Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988
-
Miklatún í
Reykjavík
Á góðvlðrlsdögum er hægt að fara með barnlð. . . Morgubiaðið/Einar Faiur
Klambratún
Miklatúnið hét áður „Klambra
tún“. Það nafn mun vera þannig
til komið að Júl. Magnús læknir og
bæjarfulltrúi var með búskap þama
í túninu. Hann nefndi býli sitt
Klömbrur eftir samnefndu býli í
Vesturhópi í Vestur- Húnavatns-
sýslu en þar var hann fæddur.
Nafnið Klambratún á því ekki langa
hefð í Reykvískri sögu. Ýmsum var
þessi nafngift þyrnir í auga og var
túnið endurskírt „Miklatún" en það
heiti mun vera dregið af umferða-
ræðinni Miklubraut. Sumum hefur
þótt þessi nafngift bera vott um
ófrumleika og fordild Reykvíkinga.
Danskur maður Christian Christ-
ensen keypti erfðafesturétt að
Klömbrum árið 1934 og rak þar
búskap en hætti honum í lok síðari
heimstyijaldarinnar og byggði þar
svínasláturhús og reykhús. Bæjar-
sjóður Reykjavíkur leysti til sín
erfðafesturéttinn árið 1946. Christ-
ian rak þó áfram sláturhúsið fram
á miðjan sjötta áratuginn en reyk-
húsið fram til ársins 1965 en bæjar-
húsin að Klömbrum voru rifín sama
ár.
Það var á sjötta áratugnum að
farið var að huga að þvl að koma
þama upp skrúð- eða almennings-
garði. Arið 1957 efndi bæjarráð
Reykjavíkur til hugmyndasam-
keppni um skipulag á Klambratún-
inu og var öllum íslendingum heim-
iluð þátttaka í keppninni. Tilgangur
bæjarráðsins með keppni þessari
var að fá úr því skorið hvort byggja
skyldi á svæðinu að einhveiju leyti
eða halda því óbyggðu með öllu og
gera það að almenningsgarði en um
það voru skiptar skoðanir. í áliti
dómnefndarinnar kom fram að
nefndin var sammála um að engin
lausn sýndi á viðunandi hátt hvem-
ig koma mætti fýrir byggingum á
svæðinu. Tillaga Sigurðar Thor-
oddsen hlaut fyrstu verðlaun en hún
var þó ekki lögð til grundvallar við
skiplagningu almenningsgarðsins.
Eins og kunnugt, er voru Kjarvals-
staðir, listamiðstöð Reykjavlkur,
reistir I túninu norðanverðu og
teknir I notkun árið 1973. Arkitekt
er Hannes Kr. Davíðsson.
1963 og 1964 var unnið að skipu-
lagi og teikningu Miklatúns. Teikn-
ingar gerði Reynir Vilhjálmsson
GarArækt á íslandi er
langtímaverkef ni sem krefst
þolinmæði og bjartsýni.
En líka fyrirhyggju og sveigjanleika.
Fyrir hartnær aldarfjórðungi var
hafist handa við að gróðursetja tré á
Miklatúninu í Reykjavík.
Núna er kominn garður sem
borgarbúar sækja I, á
góðviðrisdögum. En sumum þykir
ekki um nógu auðugan garð að
gresja, eitt og annað vanti. Er
garðurinn tilbúinn og fullfrágenginn
eða er hægt að gera garðinn
betur úr garði?
. . . eöa dagblöðln á Mlklatún.
Morgunblaðið/Einar Falur