Morgunblaðið - 21.08.1988, Side 40
40
MOEGUyBLAÐJB. g.UNNUDAGUg 31,.ÁGÚST, 1988
r—
—
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Garðabær
Blaðbera vantar í Mýrar.
Upplýsingar í síma 656146.
Rafmagns-
verkfræðingur
Rótgróið innflutnings- og verkfræðifyrirtæki
á rafmagnssviði, staðsett í Austurborginni,
vill ráða rafmagnsverkfræðing til framtíðar-
starfa. Starfið getur verið laust strax eða eftir
nánara samkomulagi.
Starfssvið: Samskipti við erlend fyrirtæki, inn-
lenda viðskiptavini, útreikning tilboða, ráðgjöf
og önnur skyld verkefni.
Góð tungumálakunnátta m.a. nokkur þýsku-
kunnátta er skilyrði, einnig þarf að vera fyrir
hendi áhugi á tæknilegum viðskiptum.
Góð launakjör eru í boði ásamt góðri vinnuað-
stöðu.
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsókn-
ir f fyllsta trúnaði.
Umsóknafrestur er til 27. ágúst nk.
Gudni ÍÓNSSON
RAÐCJOF & RAÐN I NCARÞJON USTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Sölumaður
Stórt, þekkt iðnfyrirtæki í matvælaiðnaði á
Stór-Reykjavíkursvæðinu óskar eftir að ráða
sölumann sem allra fyrst. Viðkomandi þarf
að hafa reynslu í sölustörfum, geta unnið
sjálfstætt og byggt upp sölukerfi á nýjum
vörum. Starfið er krefjandi og aðeins fyrir
röskan stafskraft.
Allar umsóknir verður farið með sem trúnaðar-
mál og öllum svarað.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 26. ágúst merktar:
„Framtíð - 2349“
BORGARSPÍTALINN
Lausar SlOdur
Aðstoðarlæknar
Aðstoðarlæknisstaða
á Dagdeild geðdeilar
Borgarspítalans, Eiríksgötu 5, er laus frá 1.
sept. nk. Megináhersla er lögð á hópmeð-
ferð, en fjölskyldu- og einstaklingsviðtöl eru
einnig ríkur þáttur í meðferðinni. Æskilegt
er að umsækjandi hafi reynslu í geðlækning-
um.
Upplýsingar veitir Páll Eiríksson, geðlæknir,
í símum 13744 og 11534.
Tvær stöður aðstoðarlækna
við geðdeild
éru lausar til umsóknar nú þegar. Önnur
staðan er til eins árs, en hin til hálfs árs.
Upplýsingar veitir yfirlæknir deildarinnar í
síma 696300.
Læknaritari
Læknaritari óskast á lyflækningadeild Borg-
arspítalans.
Nánari upplýsingar veitir deildarfulltrúi í síma
696382.
Blikksmíði
Viljum ráða blikksmið. Mikil vinna framund-
an. Góð laun fyrir góðan starfskraft.
Upplýsingar á staðnum.
e
K.K. BLIKK H/F
Auðbrekku 23, simi45575.
FÉLAGSMÁLASTOFNl 'N REYKJAVlKURBORGAR
Fulltrúi
í öldrunarþjónustu
Laust er 50% starf fulltrúa hjá ellimáladeild
Félagsmálastofnunar.
Starfið felst í almennri ráðgjöf og upplýsinga-
starfi við Reykvíkinga, 67 ára og eldri, ásamt
ýmiskonar meðferðar- og fjárhagsmálum og
þátttöku í uppbyggingu öldrunarþjónustu í
Reykjavík.
Félagsráðgjafa- eða önnur sambærileg
menntun nauðsynleg.
Laun skv. kjarasamningum Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar. Staðan er laust nú
þegar.
Umsóknarfrestur er til 9. september.
Umsóknir sendist til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, PóSthússtræti 9, á eyðu-
blöðum sem þar fást.
Nánari upplýsingar veita Þórir S. Guðbergs-
son og Sigríður Hjörleifsdóttir í síma 25500.
Bygginga-
verkfræðingur
óskar eftir vinnu við stjórnunar- og hönnunar-
störf. Átta ára starfsreynsla. Margt kemur
til greina.
Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Mbl. fyr-
ir 26. ágúst merkt: „B - 4348".
Dagheimili
ríkisspítala
Sunnuhlíð
Óskum eftir að ráða deildarfóstru, fóstru
og starfsmenn til starfa á Dagheimilið
Sunnuhlíð við Kleppsspítala sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Ásgeirs-
dóttir forstöðumaður í síma 602600 og í
heimasíma 617473.
Sólhlíð
Óskum eftir að ráða fóstru og starfsmann
til starfa við Dagheimilið Sólhlíð sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Elísabet Auðuns-
dóttir forstöðumaður í síma 601594 og í
heimasíma 612125.
Stubbasel
Fóstrur og stafsmenn óskast til starfa við
Dagheimilið Stubbasel við Kópavogshæli í
fullt starf og á kvöldvakt frá kl. 14.30-19.30
frá 1. september nk.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Einarsdóttir
forstöðumaður í síma 44024.
RIKISSPITALAR
STARFSMANNAHALD
Hönnuður
Útflytjandi á íslenskum prjónavörum óskar
eftir hönnuði (free lance). Æskilegt er að
umsækjandi sendi 1-2 hugmyndir með um-
sókn, sem þarf að berast auglýsingadeild
Mbl. fyrir24/8, merkt: „Hönnuður-6923".
Fóstrur
Forstöðumann og deildarfóstrur vantar til
starfa á dag- og leikskóla á ísafirði. Fóstru-
menntun eða önnur menntun á uppeldissviði
áskilin. Útvegum húsnæði.
Upplýsingar um önnur kjör hjá félagsmála-
stjóra í síma 943722.
Félagsmálastjóri
Smurstöð - atvinna
Viljum ráða áhugasaman mann á smurstöð
fyrir bíla, helst vanan, en aðrir vandvirkir
koma einnig til greina.
Góð, björt og hreinleg vinnuaðstaða.
Samviskusemi, reglusemi og stundvísi er
áskilin.
Upplýsingar gefur Jón C. Sigurðsson, smur-
stöð Heklu hf.
IhIHEKLAHF
I Laugavegi 170-172. Sími 695500.
Húsasmiðir
Okkur vantar 3 smiði strax í skemmtilegt
verk. Úti- og innivinna, uppmæling.
Upplýsingar í símum 23117 og 51855.
Atvinna
Við óskum að ráða duglegt fólk til fram-
leiðslustarfa í vettlingadeild okkar í Súðavogi.
A. Mann til starfa í framleiðslusal.
B. Konur til framleiðslu- og frágnagsstarf.
C. Fólk hálfan daginn, eftir hád.
Upplýsingar gefnar á skrifstofunni á Skula-
götu 51 eða í síma 12200.
66PN SEXTÍU OG SEX NORDUR
Sjóklæðagerðin hf.,
Skúlagötu 51, - v/Skúlatorg, Reykjavík.
RAÐGJÖF OG RAÐNINGAR
Ert þú á réttri hillu?
Ert þú að fara í nám?
Langar þig að skipta um starf?
Náms- og starfsráðgjöf Ábendis getur að-
stoðað þig við að finna það nám eða starf
sem líklegt er til að veita þér ánægju.
Tímapantanir í síma 689099 frá kl. 9-15 alla
virka daga.
Ábendisf.