Morgunblaðið - 21.08.1988, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Starfsmenn
vantar strax í verksmiðju okkar í um það bil
tvo mánuði.
Upplýsingar gefur verksmiðjustjóri í síma
93-47740.
NHF.
(Thorverk hf)
380 Reykhólar.
Landspítalinn -
ónæmisfræðideild
Aðstoðarlæknir óskast til starfa við ónæm-
isfræðideild Landspítalans. Ætlast er til að
læknirinn annist þjónustustörf í samráði við
sérfræðinga deildarinnar og taki einnig þátt
í forvarnaraðgerðum gegn ofnæmi. Jafnframt
er ætlast til að læknirinn annist sérstakt
rannsóknaverkefni.
Umsóknir sendist yfirlækni ónæmisfræði-
deildar fyrir 7 sept. nk.
Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir deildar-
innar í síma 601960.
RÍKISSPÍTALAR
STARFSMANNAHALD
nlÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS
Hefur þú:
★ Nýlokið námi í menntaskóla eða byrjað í
háskóla en ekki enn ákveðið um framhald?
★ Áhuga á efnafræði?
★ Áhuga á að kynnast efnisfræði?
★ Hug á að vinna fjölbreytt og lifandi starf
á skemmtileðum vinnustað?
Ef svo er, hafðu þá samband við okkur, því
hér vantar starfsmann á rannsóknarstofu efn-
istæknideildar Iðntæknistofnunar íslands.
Starfið er veitt til eins árs. Umsóknareyðu-
blöðin færðu í afgreiðslu ITÍ að Keldnaholti,
og umsóknarfresturinn er til 1. sept. nk.
Framkvæmdastjjóri
Fyrirtækið er meðalstórt iðnaðar- og þjón-
ustufyrirtæki á Norðurlandi. Starfsmanna-
fjöldi 30-40.
Starfssvið framkvæmdastjóra: Stjórnun
daglegs reksturs. Gerð framkvæmda-,
rekstrar- og greiðsluáætlana. Dagleg fjár-
magnsstýring. Mannaráðningar og starfs-
mannahald. Yfirumsjón og ábyrgð á bók-
haldi. Uppgjör og frágangur bókhalds til end-
urskoðunar. Stjórnun markaðsaðgerða. Til-
boðs- og samningagerð.
Við leitum að manni með menntun af sviði
viðskipta og/eða rekstrar. Reynsla af stjórn-
unarstörfum æskileg. Viðkomandi þarf að
vera tilbúinn að takast á við krefjandi og erfitt
starf. Mikil endurskipulagning framundan.
í boði er sjálfstætt og krefjandi stjórnunar-
starf. Aðstoð við útvegun húsnæðis.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðublöð-
um sem liggja frammi á skrifstofu okkar merkt-
ar: „Framkvæmdastjóri 502“ fyrir 27. ágúst nk.
Hagvangurhf
Grensásvegi 13
Reykjavík
Sími 83666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Bókhaldsþjónusta -
BORGARSPÍTALINN
Lausar Stödur
Hjúkrunarfræðingar
Staða hjúkrunarfræðslustjóra er laus til
umsóknar. Starfið er mjög sjálfstætt. Það
felst m.a. í skipulagingu á fræðslu fyrir hjúkr-
unarlið og undirbúningi á gerð fræðsluefnis
fyrir sjúklinga. Hæfniskröfur eru víðtæk fag-
leg þekking, þekking í kennslufræðum, jafn-
framt reynslu við fræðslustörf.
Umsóknarfrestur er til og með 18. septem-
ber 1988. Umsóknir ásamt upplýsingum um
nám og fyrri störf sendist hjúkrunarforstjóra
Borgarspítalans.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
hjúkrunarforstjóra, starfsmannaþjónustu,
sími 696356.
Afgreiðslustörf
Óskum eftir að ráða í eftirtalin störf í verslun
okkar:
1. Bókadeild.
2. Búsáhöld. Vinnutími frá kl. 13-18.
3. Mötuneyti.
4. Kjötafgreiðsla.
5. Bakarí.
6. Skiptiborð. Vinnutími frá kl. 13-17.
7. Kassar.
8. Sérvörulager.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri á skrif-
stofu Miklagarðs, sími 83811.
/MIKLIG4RÐUR
MARKAÐUR VIÐSUND
Staðgreiðsludeild
ríkisskattstjóra
auglýsir
eftirtalin störf
laustil umsóknar:
Upplýsingamiðlun
Starfið felst m.a. í því að veita fyrirtækjum
og einstaklingum almennar og sérhæfðar
upplýsingar um staðgreiðslu opinberra
gjalda. Um er að ræða miðlun upplýsinga í
formi útgáfu á kynningar- og fræðsluefni,
auglýsinga í fjölmiðlum, fræðslufunda og
með öðrum hætti.
Eftirlit
Starfið felst m.a. í því að sinna fyrirbyggj-
andi eftirliti með staðgreiðslu opinberra
gjalda með leiðbeiningum til launagreiðenda,
auk þess að hafa með höndum athuganir
og eftirrekstur á staðgreiðsluskilum launa-
greiðenda.
Afgreiðslu
Starfið felst m.a. í því að hafa með höndum
útgáfu skattkorta, tölvuskráningu upplýs-
inga, skjalavistun, auk þess að sinna almenn-
um skrifstofustörfum.
Nánari upplýsingar um ofangreind störf veit-
ir Jón Rafn Pétursson í síma 91-623300.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf ásamt öðru er máli kann að skipta sendist
staðgreiðsludeild ríkisskattstjóra, Skúlagötu
57, 150 Reykjavík fyrir 30. ágúst n.k.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Húsvörður
Stórt iðnaðarfyrirtæki í austurhluta borgar-
innar óskar eftir að ráða húsvörð. Starfið
felst aðallega í umsjón með þrifnaði og um-
gengni í húsakynnum og á lóð fyrirtækisins,
ásamt minniháttar daglegu viðhaldi. Vinnu-
tími frá 8-12 og 15.30-19.30.
Umsækjandi þarf að vera laghentur og sam-
viskusamur. Æskilegur aldur yngri en 60 ára.
Þarf að hafa yfirráð yfir bíl.
Starfið er laust frá 1. desember 1988.
Umsóknum sé skilað til auglýsingadeildar
Mbl. merktum: „Húsvörður - 4727" fyrir 31.
ágúst 1988.
Aukavinna úti á landi
Barnablað Æskunnar vill ráða innheimtufólk
til starfa sem fyrst á eftirtalda staði:
Blönduós, Borgarnes, Búðardal, Dalvík, Egils-
staði, Grenivík, Grímsey, Grindavík, Grundar-
fjörð, Hellu, Hellissand, Hólmavík, Kirkjubæjar-
klaustur, Kópasker, Laugarvatn, Njarðvík, Pat-
reksfjörð, Raufarhöfn, Reykjahlíð, Sauðárkrók,
Selfoss, Skagaströnd, Stöðvarfjörð, Tálkna-
fjörð, Varmahlíð, Vestmannaeyjar, Vík, Voga,
Vopnafjörð og Þingeyri.
Allar upplýsingar gefur Kristín í síma 17336
milli kl. 9.00-17.00 alla virka daga.
REYKJMJÍKURBORG
£<Ultol>l St&dun
Þjónustuíbúðir
aldraðra,
Dalbraut 27
Starfsfólk vantar í eftirtalin störf:
Vakt - hlutastarf, aðstoð við íbúa.
Eldhús 75% starf - vinnutími frá kUv8-14,
unnið aðra hvora helgi.
Heimilishjálp: 100% starf, hlutastarf kemur
til greina.
Dagdeild: Hlutastarf - aðstoð við vistmenn.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
685377 frá kl. 10-14 daglega.
Skrifstofustjóri
Fyrirtækið er Radíóbúðin hf., Skipholti 19,
Reykjavík.
Starfssvið skrifstofustjóra: Yfirumsjón með
bókhaldi og fjármálum fyrirtækisins. Dagleg
stjórnun á skrifstofu. Uppgjör og frágangur
bókhalds til endurskoðunar og ýmis skýrslu-
gerð. Áætlanagerð ss. gerð rekstrar- og
greiðsluáætlana. Fjármagnsstýring. Rekstrar-
uppgjör. Ýmsir hagkvæmnis- og arðsemisút-
reikningar.
Við leitum að viðskiptafræðingi, sem hefur
haldgóða þekkingu á bókhaldi og reynslu af
störfum við bókhald. Æskilegt að viðkom-
andi hafi starfað við áætlanagerð og fjár-
málastjórnun. Starfið gerir kröfu til þess að
viðkomandi sé drífandi og geti tekist á við
krefjandi verkefni í vaxandi fyrirtæki. Viðkom-
andi þarf að starfa sjálfstætt, skipuleggja
og stjórna störfum annarra.
í boði er áhugavert stjórnunarstarf hjá vax-
andi fyrirtæki. Góð laun í boði fyrir réttan
mann.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðublöð-
um sem liggja frammi á skrifstofu okkar merkt-
ar: „Skrifstofustjóri 281“ fyrir 27. ágúst nk.
Hagvangurhf
Grensásvegi 13
Reykjavík
Sími 83666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Bókhaldsþjónusta