Morgunblaðið - 07.10.1988, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988
15
mgnmgarsuddi setti svip
sinn á Norðdekkrallið
„Bíddu eftir mér..!“ Eftir bægslagang í á fór Þorbjörn Pálsson í
viðgerðarleiðangur til að koma Nova-bilnum úr hyldýpinu. Þegar
bíllinn komst í lag var Pétur Guðjónsson ekkert á þvi að hleypa
honum inn aftur fyrr en bftlinn væri kominn á þurrt.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Sigurvegararnir Steingrímur Ingason og Witek Bogdanski geisluðu
af gleði eftir sigur í Norðdekkrallinu. Þeir urðu í öðru sæti til ís-
landsmeistara eftir góðan árangur í ár.
STEINGRÍMUR Ingason og Wit-
ek Bogdanski unnu sinn annan
sigur á árinu í rallakstri, þegar
þeir komu fyrstir í mark í Norð-
dekk ralli BÍKR um helgina.
Þeir unnu öruggan sigur á Niss-
an 510 eftir að hafa ieitt keppn-
ina frá byijun. Helstu andstæð-
ingar þeirra heltust úr lestinni
strax á fyrsta degi og það veitt-
ist þeim létt verk að halda sínu
striki. í sinni fyrstu keppni sem
ökumaður náði Rúnar Jónsson
öðru sæti með föður sinn Jón
Ragnarsson sér við hlið. Þeir
víxluðu sætum en þeir höfðu
tryggt sér íslandsmeistaratitil-
inn í rallakstri fyrir keppnina.
Fraumraun Rúnars reyndist hon-
um til sóma, hann ók yfirvegað
á Ford Escort RS, sem þeir feðg-
ar hafa kepp á í nokkur ár. Ágúst
Guðmundsson og Björn Hannes-
son á Opel Kadett sýndu oft stór-
góða takta og nældu í þriðja
sæti fyrir vikið.
Rigningarsuddi setti svip sinn á
Norðdekkrailið, skyggni var slæmt
og margir veganna sem eknir voru
reyndust þungfærir. Strax á fyrsta
keppnisdegi, föstudagkvöld, féllu
tveir toppbflanna úr keppni. Guð-
mundur Jónsson á Nissan “40 RS
ók á gijót á ísólfsskálaleið, sem
sprengdi dekk og olli skemmdum á
bflnum sem sló þá útaf laginu. Þeim
hefði þó verið í lófa lagið að halda
áfram, en náðu ekki áttum fyrr en
um seinan. Porsche Jóns S. Hall-
dórssonar og Guðbergs Guðbergs-
sonar bilaði snemma í kepninni,
spyma bognaði þegar þeir lentu á
gijóti og afleiðingin var sú að öx-
ull brotnaði skömmu síðar. Þar með
voru heistu keppinautar Steingríms
og Witeks úr leik. Laugardagurinn
var hinsvegar eftir.
„Botninn datt alltof fljótt úr
keppninni, ég var kominn með
nokkuð öruggt forskot eftir fyrsta
dag. Á laugardeginum ókum við
því af öryggi, enda var ekki hægt
að beita bflnum til fulls eins og
færðin var. Ég slakaði sérstaklega
mikið á í lokin til frekara öryggis,
fannst ég verða að vinna, enda
hefur ólán stundum sett strik í
reikninginn hjá mér,“ sagði
Steingrímur Ingason í samtali við
Morgunblaðið. Með sigrinum nælir
hann í annað sætið í íslandsmeist-
arakeppninni á eftir Jóni Ragnars-
syni, sem hann hefur oft háð harða
keppni við á árinu. „Ég var strax
staðráðinn í að vinna og sigurinn
er gott veganesti fyrir næsta ár.
Ég ætla að aka sama bfl en endur-
bæta hann talsvert enda veitir ekki
af, því margir góðir bílar virðast
vera á leiðinni," sagði Steingrímur.
Fróðlegt verður að sjá hvort
Rúnar Jónsson verður einn and-
stæðinga hans á næsta ári, eftir
fraumraun hans við stýrið og góðan
árangur. Þeir feðgar Rúnar og Jón
hafa þó ekkert ákveðið, ökumaður-
inn blundar í Rúnari en það er ekki
víst að hans tími sé kominn. „Við
bíðum bara og sjáum hvað úr verð-
ur,“ sagði Rúnar. „Það er ekkert
mikið skemmtilegra að keyra sjálf-
ur, þetta býður upp á svipaða útrás
og að vera í aðstoðarökumannssæt-
inu. Ég stefndi strax á toppsæti,
en átti þó ekki von á því að ná
öðru sæti. Á tímabili hélt ég að
allt væri fyrir bí, þegar gírkassinn
fór að stífna, ég ók ijórar leiðir
með hann í ólagi áður en við létum
skipta um hann í viðgerðarhléi.
Eftir það gekk þetta ágætlega og
ég er ánægður áð hafa sloppið við
óhöpp. Svo sá ég heldur enginn
hraeðslumerki á pabba, það var
ágætt líka...“
Tveir bíiar ultu í keppninni og
þeir bræður Birgir og Gunnar
Vagnssynir á Toyota annað árið í
röð í sömu keppni. í fyrra urðu
þeir að hætta keppni, en nú héldu
þeir ótrauðir áfram og unnu flokka-
sigur. Það sama gerðu Pétur Guð-
jónsson og Þorbjöm Pálsson á for-
láta Chevrolet Nova, sem var ör-
ugglega þyngsti og erfiðasti bfll
keppninnar. Þó tímafrekt aukabað
í á kostaði þá mikinn tíma nældu
þeir í flokkaverðlaun og skutluðu
þess á milli breiðum bflnum um
þrönga vegina. Að venju má segja
unnu Óskar Ólafsson og Jóhann
Jónsson flokk óbreyttra bfla á Su-
baru 4WD Turbo, en það er langt
síðan einhver skákaði þeim félögum
í þeim flokki.
Lokastaðan í Norðdekk-rallinu
1. Steingrímur Ingason
Witek Bogdanski Nissan 1.51.39
2. Rúnar Jónsson
Jón Ragnarsson
Ford Escort 1.56.24
3. Ágúst Guðmundsson .
Bjöm Hannesson
Opel Kadett 1.57.52
4. Páll Harðarson
Ásgeir Ásgeirsson
FordEscort 2.01.57
5. Óskar Ólafsson
Jóhann Jónsson Subaru 2.04.55
6. Birgir Vagnsson
Gunnar Vagnsson
Toyota Corolla 2.06.
7. Einar Þór Magnússon
Elías Jóhannesson
FordEscort 2.09.10
8. Guttormur Sigurðsson
Elmar Ingibergsson
Toyota Corolla 2.12.
Af 25 keppnisbflum sem hófu
keppni náðu 17 í endamark.
Flokkasigurvegarar
Óbreyttir bflar, Subaru Óskars
Ólafssonar/Jóhanns Jónssonar
1600—2000cc, Páll Harðarsson/Ás-
geir Ásgeirsson Ford Escort
1300—1600cc, Birgir Vagnsson/-
Gunnar Vagnsson, Toyota Corolla
2000 og yfir Pétur Guðjónsson/Þor-
bjöm Pálsson Chevy Nova.
- G.R.
Ágúst Guðmundsson og Björn Hannesson óku oft stórvel og tryggðu sér þriðja sætið á bíl sem kominn
tryggðu sér þriðja sætið á bíl sem kominn er til ára sinna.
TEPPADAGAR
15% afsláttur af öllum teppum og mottum fram til 15. okt. 10% afsláttur af gólf- og veggdúkum.
Sterk og góö
lykkjuteppi
frá kr. 675.- m2
meö 15% afslætti
Þykkir og sterkir
gólf- og veggdúkar
frá kr. 446,- m2
með 15% afslætti
■unmBi
Dæmi um verð:
Stofa og gangur í hefðbund-
inni 3ja herbergja íbúð er
um 30 m2
Pú færð 30 m2 af fallegu og
sterku lykkjuteppi í Húsa-
smiðjunni fyrir:
kr. 23.820,-
-15% kr. 3.575,-
kr. 20.274,-
HÚSA
SMIÐJAN
SKÚTUVOGI16 SfMI 687700
tl
%