Morgunblaðið - 07.10.1988, Side 21

Morgunblaðið - 07.10.1988, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988 21 Alsír: Óánægjan hefur verið að búa um sig lengi HEIFTARLEGAR óeirðir sem brutust út í Alsír rétt eftir helg- ina og virðist ekki sjá fyrir end- ann á, hafa komið flatt upp á ýmsa utan Alsírs. Fréttaskýrend- ur sem eru máluin kunnugir segja þó, að óánægjan hafí verið að búa um sig alllengi og það hafí aðeins verið orðin spuming um tíma, hvenær til tíðinda drægj. Það sem virðist hleypa óeirðunum af stað var að til- kynnt var um afhám niður- greiðslna. Undanfarið hefúr verð á nauðsynjum hækkað og verið beinlínis skortur á mörgum nauðsynjavörum. Það kórónaði síðan ástandið, að stjórn Chadli forseta ákvað að draga úr niður- greiðslunum og boðaði þar með enn meiri hækkun á nauðsynja- vörum. Chadli var málamiðlunarlausn þegar Boumedienne forseti féll frá 1979, en að mörgu leyti hefur hann reynst hagstæður stjómandi og sýnt viðleitni til að leiða Alsír inn á lýðræðislegri brautir. Þessir til- burðir hafa þótt forvitnilegir og hafa vakið athygli. Alsír hefur hvað eftir annað sýnt ákveðið sjálfstæði gagnvart öðrum arabaríkjum, tekið að sér að hafa milligöngu í deilu- málum eins og kunnugt er og árangurinn hefur verið að álit Alsír á alþjóðavettvangi hefur farið vax- andi. En það dugar ekki nema skammt, ef innanlandsmálin og þá er fyrst og fremst átt við efnahags- málin, eru í ólestri. Undanfarin þijú ár hefur stjórnin orðið að gera ýmsar ráðstafanir í efnahagsmál- um, sem hafa leitt til versnandi lífskjara og fólk er orðið þreytt á að heyra stöðugt að það þurfí að herða sultarólina og spara, og það virðist ekki neitt benda til að bati í efnahagslífinu sé í nánd. Þó er ekki vafi á því að með því að taka upp stjómmálasamband við Marokkó á ný sl. sumar eftir tólf ár, stefndi stjómin að því að fá þar markað fyrir olíuvörur og fá í stað- inn landbúnaðarvörur, sem mikill hörgull er á. Víst er að Chadli naut stuðnings alls þorra manna þegar hann ákvað að bæta samskiptin við Marokkó, þar sem náin tengsl hafa verið milli þjóðanna, hvað sem ýmiss konar ágreiningi hefur liðið. Hins vegar hefur ekki bólað á aukn- um viðskiptum eins og Alsír reikn- aði með. Alsírstjóm hefur haft að mark- miði að reyna að auka fjölbreytni í atvinnulífinu sem nú snýst að mestu um olíuvinnsluna. Þó em olíulindimar ekki það miklar að úrslitum ráði fyrir efnahag landsins eins og í ýmsum olíuríkjum á Arab- íuskaganum. Chadli hefur viljað efla einkageirann og dregið úr þjóð- nýtingunni og hefur vonast til að það gæti stuðlað að meiri Qöl- breytni í ffamleiðslu og útflutningi. Samt -em 90 prósent útflutnings Alsír olía og olíuvömr og við það bætist að olíuverð hefur farið lækk- andi. Þetta hefur haft afskaplega vond áhrif á efnahagslífið sem var ekki bermilegt fyrir. Þegar þetta er skrifað er ekki með öllu ljóst, hveijir það em sem FORYSTA Verkamannaflokks- ins var ofurliði borin í varnar- málum á ársþingi flokksins í Blackpool i gær. Þingið ítrekaði stuðning flokksins við einhliða kjamorkuafvopnun. Mikil átök hafa verið um þetta mál á þing- inu. Á þriðjudag gagnrýndi Ron Todd, leiðtogi Sambands flutningaverka- manna, endurskoðun stefnumála flokksins og lagði mikla áherslu á stuðning sambands síns við einhliða kjamorkuafvopnun. Flokksforystan vildi, að marghliða afvopnun yrði ekki útilokuð á þessu ársþingi. Endurskoðun á vamarmála- stefnu flokksins er ekki hafin og kemur til afgreiðslu á ársþinginu á næsta ári. Umræðan nú þjónaði einungis þeim tilgangi að staðfesta stefnuna óbreytta eða gefa til kynna mögulegar breytingar. Fyrir ársþinginu lágu þijár tillög- ur. Flokksforystan studdi tillögu, sem sagði, að kjamorkuafvopnun skyldi náð með einhliða aðgerðum, tvíhliða eða marghliða samningum. Hinar tvær ítrekuðu stuðning við einhliða afvopnun. Nokkrir hófsamir verkalýðsleið- togar lögðu fram tiilöguna, sem gerði ráð fyrir marghliða samning- um. í umræðum naut hún stuðnings fleiri ræðumanna en hinar, en það var bersýnilegt, að hún naut lítils stuðnings fulltrúa á þinginu. Ron Todd ítrekaði stuðning sambands síns við einhliða afvopnun á fyrsta kjörtímabili næstu stjómar Verka- mannaflokksins. Allir ræðumenn voru sammála um kjamorkuafvopnun, en greindi hleyptu mótmælaaðgerðunum af stað. Talað er um „neðanjarðar- hreyfingu verkamanna", en ekki skilgreint hveijir eru innan vébanda hennar né hveijir eru í forsvari. Menn treysta sér tæplega til að spá um framvindu næstu daga, eða hvort einhveijar ráðstafanir verða , gerðar af hálfu stjómvalda til þess annaðhvort að lægja öldumar eða bijóta andstöðuna á bak aftur með valdi. En hvað sem því líður verður að líta svo á að þetta sé áfall fyrir stefnu Chadli forseta og gæti orðið til að hægja á þeim tilburðum í lýð- ræðisátt sem vikið var að áður og nokkrar vonir voru bundnar við. jk Frá Algeirsborg — hvltu borginni. Reuter . 'Ml. M Ársþing breska Verkamannaflokksins: Forystan borin ofiir- liði í varnarmálunum St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins. á um leiðir. Tillaga um einhliða afvopnun var samþykkt með veru- legum meirihluta, en tillagan, sem naut stuðnings flokksforystunnar, var felld. Talsmenn flokksins lögðu áherslu á, að þessi umræða væri til marks um skoðanaskipti í flokknum. Á undanfömum árum hefði ekki þýtt að ræða neitt annað en einhliða afvopnun, og það væri því ekkert áfall að tapa þessari atkvæða- greiðslu. , .... v ' Líbanon: Varað við „alþjóðlegu samsæri“ Beirut. Reuter. LÍTT kunn öfgasamtök í Líban- on vöruðu í gær við því, sem kaflað var „alþjóðlegt samsæri" gegn landinu, og sögðu, að það gæti teflt lífi tveggja banda- riskra gisla í tvisýnu. í yfirlýsingu samtakanna sagði, að Líbanon væri skotmark „hinna nýju nýlenduherra", sem ætluðu að gera það að öðm ísrael og her- stöð fyrir Atlantshafsbandalagið. Þá var sagt, að írakar tækju þátt í þessu ráðabmggi en farið lofsam- legum orðum um Sýrlendinga. Að lokum var sagt, að það færi eftir framvindunni hvort bandarísku gíslamir lifðu eða dæju. ,JIOTTFORM“-ÆFINGAKERF1 £S»V Kramhúsið hefur opnað tækjasal með Hkamsræktartækjum. Tækin eru hönnuð með það í huga að veita alhliða þjálfuq án of mikils álags. „Flottform“-æfingakerfið styrkir, liðkar, grennir og veitír góða slökún. Kerfiðhentar fólki á öllum aldri, ekki síst eldra fólki og öðrum þeim sem vilja fara varlega af stað. „Flottform“-æingakerfið gefur ótrúlega góðan árangur á skömmum tíma. Ókeypis reynslutínii! ..:■ „•t■,■;.• ; ,■ . , .■ Getum bættvið okkur nokkrum nemendum í eftirtalda tíma: • Músíkleikfimi álla virka daga A kl. 9:30,12:05 og 13:1 • Byrjendatímar í jassi fyrir börn og unglinga. • Leiklist fyrir 7-9 árá og 10-12 ára. 1 . ■•, .,:■ ... •■ ■ i Kynntu þer „Flottform“ æfingakerfið hjá okkur - þér að koStnaðarlausu. 20% afsláttur fyrir ellilífeyrisþega. 15% afsláttur fyrir 10 manna hópa. - ■'" SÍMAR15103 og 17860 ' - ., :>> >: :

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.