Morgunblaðið - 07.10.1988, Side 22

Morgunblaðið - 07.10.1988, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988 Verða Moskvuréttar- höldin endurtekin? Að þessu sinni yfír sjálfíim Jósef Stalín? Sjónvarp í vasann Reuter Nýlega hófet I Tókíó árleg sýning á nýjustu hægt er að koma fyrir í rúmgóðum vasa. Búist tækniundrum rafeindatækninnar í Japan. Á er við 400 þúsund gestum á sýninguna er varir myndinni sjást dvergsmá sjónvarpstæki sem í sex daga. Ríkisstjórn Chile játar ósigur Pinochets í kosningum: Mikil óvissa er um fram- haldið í stjómmálunum Stjórnarandstaðan vill semja við her- foringjaráðið um kosningar og slj órnar skrárbr eytingar Reuter Rúmar sjö miHjónir manna greiddu atkvæði í kosningum í Chile á miðvikudag. Hér sjást kjósendur í Santiago standa í röðum reiðubún- ir að tjá vilja sinn í fyrstu fijálsu kosningunum í 18 ár. Moskvu. Reuter. KUNNIR menntamenn í Sov- étríkjunum hafa á pijónunum að halda opinber réttarhöld yfir Jósef heitnum Stalín og eiga þau að fara fram í bygging- unni, sem notuð var fyrir sýnd- arréttarhöldin á flórða ára- tugnum. Arkadíj Vaksberg, sem kunnur er fyrir skrif sín um lagaleg mál- efni og einarður stuðningsmaður umbótastefnunnar, sagði í viðtali við fréttamann Reuters, að við réttarhöldin fengju ákærendur Stalíns og veijendur að flytja sitt mál fyrir opnum tjöldum. „Um málið verður fjallað eins og Stalín stæði sjálfur frammi fyrir réttin- um,“ sagði Vaksberg. Vaksberg sagði, að hugmyndin um réttarhöldin væri komin frá Minningarsamtökunum, félags- skap, sem ætlar að reisa minnis- merki um fómarlömb Stalíns, en meðal félaga í þeim má nefna frið- arverðlaunahafann Andrei Sak- harov, sagnfræðingana Roy Medvedev og Júríj Afanasjev, rit- höfundinn Anatólíj Rybakov, leik- skáldið Míkhaíl Shatrov og ljóð- skáldið Jevgeníj Jevtúsjenko. Stefnt er að því, að réttarhöldin fari fram í Súlnahöllinni, þar sem Níkolaj Búkharín og aðrir kunnir bolsévikar voru dæmdir árið 1938. Ekki vildi Vaksberg segja neiit um það hvort yfírvöldin leyfðu réttar- höldin en bætti við: „Eg held, að enginn muni koma í veg fyrir þau.“ Stjómarár Stalíns, frá 1924 til 1953, hafa verið mikið til umræðu í Sovétríkjunum að undanfömu og Míkhaíl Gorbatsjov, Ieiðtogi Sov- étríkjanna, hefur sjálfur gert glæpi hans að umtalsefni. Vikuritið Moskvutíðindi skýrði frá því nú í Mexíkó: Bankarán fór út um þúfur Mexíkóborg. Reuter. TVEIR bankaræningjar i Mexíkó héldu 70 manns í gíslingu þegar bankarán þeirra fór út um þúf- ur. Skömmu síðar gáfúst þeir upp án þess að til skotbardaga kæmi, að sögn lögreglunnar. Bankaræningjamir, sem voru vopnaðir skammbyssum, réðust til inngöngu í Banco del Noroeste í borginni Los Mochis árla miðviku- dagsmorguns. Þeir héldu sjötíu manns í gíslingu, þar á meðal bankastarfsmönnum og viðskipta- vinum, í um það bil klukkustund. Að sögn Femando Garcia Felix, yfírmanns öryggismála í fylkinu Sinaloa, umkringdi lögreglan bank- ann og tókst að fá bankaræningjana til að sleppa gíslunum. vikunni, að fundist hefði í skógi skammt frá Mínsk í Hvíta-Rússl- andi fjöldagröf 102.000 manna, lík fólks, sem öryggislögreglan, NKVD, myrti á ámnum 1937-41. Er það haft eftir vitni, að fólkinu hafí verið stillt upp, tveimur og tveimur saman, og síðan skotið í gegnum þunnvangann til að kúlan dræpi tvo í einu. Var það gert til að spara skotfærin. Annað vitni sagði, að embættismenn hefðu borgað fólki fyrir að kæra ná- granna sína. ERLENT Santiago. Reuter. RÍKISSTJÓRN Chile og herfor- ingjaráðið, sem er yfir hana sett, játuðu seint á miðvikudagskvöld að Augusto Pinochet, forseti landsins, hefði tapað í almennum kosningum um það hvort fram- lengja ætti valdatíma hans um átta ár. Samkvæmt opinberum tölum sögðu 54,7% kjósenda „nei“ en 43% Já“ við áframhaldandi völdum Pinochets. í gær sagði ríkisstjórnin af sér, að sögn til að gefa Pinochet ráðrúm til að end- urskipuleggja hana. Talsmenn stjórnarandstöðunnar segja að þeir muni þrýsta á stjómvöld að flýta kosningu nýs forseta og nýs þings en í verkahring þess yrði m.a. að breyta stjómarskrá lands- ins í lýðræðisátt. „Þjóðin hefur gefið lýðræðisöflunum umboð til að komast að samkomulagi við herinn um leiðir til lýðræðis,“ sagði Patricio Aylwin, leiðtogi stjóraarandstöðunnar. „Atkvæðagreiðslan var til fyrir- myndar, herinn tryggði réttmæti hennar og þjóðin er hinn mikli sigur- vegari," sagði Sergio Femandez inn- anríkisráðherra, og leiðtogi ríkis- stjómarjnnar, í sjónvarpsviðtali þeg- ar hann játaði ósigur Pinochets. „Ekki er á nokkum hátt réttlætan- legt að stöðva þróun í landinu. í lýð- ræðinu sem við vinnum að verður rúm fyrir alla sem á það trúa,“ sagði ráðherrann ennfremur. Yfírmaður flughers Chile, Femando Matthei hershöfðingi, varð fyrstur ráða- manna til að viðurkenna ósigurinn. Þegar fréttamenn spurðu hann um úrslitin er hann var á leið á auka- fund herforingjaráðsins svaraði hann: „Það lítur út fyrir að „neiið" hafi í raun unnið". Ekki er reiknað með að kjörstjóm landsins birti end- anleg úrslit kosninganna fyrr en eft- ir nokkra daga. í gær hafði Pinochet ekki tjáð sig um úrslitin. Þegar kjörstöðum hafði verið lokað á miðvikudagskvöld sagði hann við fréttamenn að hann hefði áhyggjur af ffegnum um að „grímu- klæddir ribbaldar væru á ferli,“. Samkvæmt stjómarskránni getur Pinochet nú haldið forsetaembættinu í 15 mánuði til viðbótar. Honum ber að efna til frjálsra forsetakosninga í síðasta lagi í desember á næsta ári og láta af embætti þremur mánuðum síðar. Samhliða forsetakosningunum fara fram þingkosningar. Pinochet á sæti bæði í efri deild þingsins og í Þjóðaröryggisráðinu og herinn á eft- ir að hafa mikil völd í gegnum það hvemig sem þróunin verður. Allt með kyrrum kjörum Stjómarandstaðan hafði lýst yfir sigri nokkrum klukkustundum áður en stjómvöld játaði ósigur Pinochets. Hvorirtveggja, stjómarandstæðingar og menn Pinochets, töldu atkvæðin og bar þeim ekki saman í fyrstu um hvert stefndi. Stjómarandstaðan sagðist hafa unnið með tæplega 60% atkvæða og föðmuðust menn, sungu þjóðsöng Chile og stigu dans í þeirra herbúðum. I nokkrum fátæktar- hverfum í höfuðborginni Santiago fagnaði fólk á götum úti en að öðm leyti var allt með kyrrum kjörum samkvæmt tilmælum stjómarand- stöðunnar. Lengi vel eftir að talning hófst spáðu talsmenn stjómarinnar sigri Pinochets en smám saman mjókkaði bilið samkvæmt þeirra tölum uns ósigurinn var játaður. Pinochet sem treyst hafði á að batnandi efnahagsástand færði sér sigur í kosningunum, fékk mikla út- reið í Santiago og öðrum borgum landsins. Útkoma hans var einnig verri en búist var við í smærri bæjum og sveitahéruðum. Óvissa um framhaldið Óvissa ríkir um framhaldið í stjómmálum Chile. Stjómarandstað- an sem unnið hefur tímamótasigur á fátt annað sameiginlegt en and- stöðuna við einræði hersins. Þjóðin verður því að bíða og sjá hvort stjóm- arandstöðunni tekst að standa sam- einuð um nýja stefnu. Flokkamir 16 í henni spanna allt pólitíska litrófíð að kommúnistum undanskildum. Stjómmálaskýrendur segja að um- bótavilji Pinochets sé undir því kom- inn hvort kommúnistar komast til áhrifa á næstu mánuðum. í fimmtán ár hefur einræði Pinochets hers- höfðingja með andkommúnisma að leiðarljósi kostað þúsundir vinstri- sinna og talsmanna lýðréttinda frels- ið eða lífið. SJÁLFSTÆÐISMENN Dregið eftir 1 dag. Happdrætti Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.