Morgunblaðið - 07.10.1988, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 07.10.1988, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988 Minning: * Ulfur Gunnarsson yfírlæknir Fæddur 12. nóvember 1919 Dáinn 29. september 1988 Hinn 29. september sl. lést Úlfur Gunnarsson, fyrrverandi yfirlæknir Fjórðungssjúkrahússins á ísafirði og heiðursborgari ísaijarðarkaup- staðar. Úlfur fluttist til ísafjarðar árið 1954 og gerðist yfirlæknir Fjórð- ungssjúkrahússins. Því starfí gegndi hann í rúman aldarfjórðung, en starfaði enn sem sérfræðingur við sjúkrahúsið er hann lést. Hálfa ævi sína helgaði Úlfur því ísfírðing- um og öðrum Vestfírðingum og naut almennrar virðingar sem læknir og mannvinur. Þann 12. nóvember árið 1984, á 65. afmælisdegi Úlfs Gunnarsson- ar, samþykkti bæjarstjóm ísafjarð- ar að kjósa hann heiðursborgara ísaijarðarkaupstaðar. Með kjörinu vildi bæjarstjómin votta honum virðingu og þökk fyrir ómetanleg og fómfús störf að heilbrigðismál- um kaupstaðarins um 30 ára skeið. Með Úlfí Gunnarssyni er genginn mætur maður sem vann störf sín af einstakri alúð og virðingu fyrir viðfangsefninu. Hógværð hans og Iitillæti vakti hvarvetna athygli og hann var ávallt reiðubúinn til hjálp- ar. Hann var kjölfestan í læknalið- inu, einstaklingur sem bæjarbúar bám meira traust til en annarra manna. í virðingar- og þakklætisskyni við Úlf Gunnarsson hefur bæjar- stjóm IsaQarðar óskað eftir að fá að sjá um útför hans, sem fer fram nk. föstudag í kapellu ísafjarðar- saftiaðar í Menntaskólanum á ísafirði, og hefst kl. 14.00. Bæjarstjóm ísafjarðar og íbúar ísafjarðarkaupstaðar votta frú Benediktu, eiginkonu hins látna, bömum þeirra og öllum öðram ást- vinum innilegustu samúð. Bæjarstjóm ísafjarðar Fimmtudaginn 29. september bárast mér þær fréttir að vinur minn Úlfur Gunnarsson fyrrverandi yfírlæknir hefði orðið bráðkvaddur þá fyrr um daginn. Hann var þá staddur hjá dóttur sinni sem býr í Suður-Engiandi. Mer brá við að heyra þessa frétt. Ég vissi að vísu að hann væri ekki heill heilsu en um veikindi sín talaði hann aldrei. Þess vegna fannst okkur sem störf- uðum með honum að hann væri vel frískur. Fráfall hans kemur mér því að óvöram. Úlfur fæddist í Danmörku 12. nóvember 1919. Foreldrar hans vora Gunnar Gunnarsson rithöfund- ur og kona hans, Franzisca, sem var af dönskum ættum. Hann ólst upp í Danmörku. Eftir stúdentspróf hóf hann nám í læknisfræði í Þýska- landi. Vegna seinni heimsstyijald- arinnar lauk hann ekki læknanámi sínu þar. Hann kom heim til íslands árið 1945 og lýkur læknisfræðinámi sínu við Háskóla íslands 1947. Hann starfaði síðan hér heima til ársins 1949 en þá fer hann til Frakklands til náms í skurðlækn- ingum og heldur því námi áfram í Danmörku. Árið 1954 flyst hann heim til íslands og tekur við starfí yfírlæknis á ísafirði. Þar starfaði hann allt til dauðadags. Ég kynntist Úlfí fyrst vorið 1971 en þá vann ég sem læknanemi á sjúkrahúsinu á ísafirði. Seinna þeg- ar ég tók við starfí yfirlæknis af honum sumarið 1981 urðu kynni okkar meiri. Úlfur var einstaklega ljúfur maður og þægilegur í öllu samstarfi. Það sem einkenndi hann sérstaklega var létt kímni hans sem kom öllum í gott skap, en særði engan. Hann kunni þó þá list öðram læknum betur að umgangast sjúkl- inga sína og leit á þá sem vini sína og sú vinátta varð oftast gagn- kvæm. Oft var það að sjúklingar hans hringdu á sjúkrahúsið og spurðu eftir honum og þegar við yngri læknarnir svöraðum að Úlfur væri í fríi þá sögðust þeir hringja seinna þegar Úlfur væri kominn aftur til starfa. Þeir treystu engum öðram en honum. Það var oft langur vinnudagur hjá Úlfí, einkum fyrstu ár hans á ísafirði en þá voru læknar fáir. Starf sjúkrahúslæknisins var ekki eingöngu tengt sjúkrahúsinu heldur þurfti hann að fara í erfíðar vitjan- ir með hinum ýmsum farartækjum svo sem bílum, bátum eða flugvél- um. Margar sögur hefur Úlfur sagt mér frá þessum ferðum og er greini- legt af þeim, að hann hafði oft lent í lífsháska, enda era vetrarferðalög á Vestfjörðum mjög erfið. Það erfíð- asta í starfí sjúkrahúslæknis á landsbyggðarsjúkrahúsi er að vera stöðugt á vakt. Þetta er erfíð kvöð og hefur farið illa með lækna sem hafa verið á vakt áram saman. Öragglega hafa þessar vaktir haft slæm áhrif heilsufar hans því hann var í eðli sínu samviskusamur mað- ur. _ Árið 1984 var Úlfur gerður að heiðursborgara ísafjarðar. Á þann hátt vildu Isfírðingar þakka honum fyrir vel unnin störf. Ég veit að hann mat þetta mikils og þótti vænt um þennan þakklætisvott bæjarbúa. Því miður mun ég ekki geta fylgt Úlfí vini mínum síðustu sporin. Vil ég því senda Benediktu konu hans og bömum samúðar- kveðjur. Ég veit að minning um góðan dreng og mikilhæfan læknir mun lifa í huga mínum og hjá öllum þeim sem kynntust honum. Einar Hjaltason Þegar mér bárast boð um svo skyndilegt lát okkar kæra læknis, Úlfs Gunnarssonar, verður minn- ingin um manninn og lækninn manni kær. Við minnumst Úlfs sem hins trygga yfirlæknis sem helgaði okkur krafta sína, frá því að hann hóf störf við Sjúkrahúsið á ísafírði á árinu 1954. Hann starfaði oft við slæmar aðstæður og erfitt hlut- skipti, þurfti jafnvel að sækja sjúkl- inga um borð um fiskiskip er lágu hér við fjörðinn. Þá var ekki spurt hvort veður væri gott. Frá fyrstu hendi var Úlfur mjög vinsæll meðal starfsfólks og sjúkl- inga, og eigum við öll hinar bestu minningar um hann. Hann sat í stjóm sjúkrahússins meðan hann var yfirlæknir frá árinu 1954 til 1980, og var þar góður félagi á ferð. Hann átti þátt í undir- búningi að byggingu nýja sjúkra- hússins. Þáð er okkur öllum mikill harmur að hann skuli ekki fá að njóta vinnuaðstöðunnar þar, sem hann batt svo miklar vonir við. Stjóm FSÍ er þakklát fyrir að Úlfur Gunnarsson starfaði svo mik- ið fyrir sjúkrahúsið, og vill votta aðstandendum öllum innilegustu samúð. Blessuð sé minning Úlfs Gunn- arssonar. F.h. stjómar Fjórðungssjúkra- hússins á Isafírði, og framkv.stjóra. Fylkir Ágústsson, form. Því fylgir oft kviði að hefja störf á nýjum vinnustað. A.m.k. var mik- ill uggur í bijósti ungs læknanema, sem fyrir mörgum árum gekk inn um dyr sjúkrahússins á ísafírði til að stíga sín fyrstu spor sem aðstoð- arlæknir. En þessi tilfínning hvarf fljótlega eftir að hann hitti yfír- lækninn, brosandi og viðmótsþýðan, og kynntist starfsháttum hans, sem mótuðust af hlýhug til samstarfs- fólks og fómfysi við sjúklingana. Ekki granaði mig þá, að fyrir mér ætti að liggja að verða síðasti samstarfslæknir Úlfs á sama sjúkrahúsi. En um sl. áramót kom égþangað aftur til að taka við störf- um yfirlæknis, sem Úlfur hafði lát- ið af sjálfviljugur nokkram árum áður. Þá var einnig geigur í bijósti mínu, þótt annars konar væri. Því hvemig átti ég að geta verið yfír- læknir hjá Úlfí sem var mér svo langtum fremri að bæði þekkingu og reynslu? En Úlfur gerði mér þetta jafnauðvelt og það, að vera lærisveinn hans áður. Hann miðlaði mér af reynslu sinni, þegar við átti, og taldi aldrei eftir sér að koma og hjálpa mér við erfiðar fæðingar eða annað, sem hann kunni betur en ég. Og ef mér fannst ég ekki hafa gert nógu vel, hughreysti hann mig og hvatti með hnyttnum sögum frá eigin starfsferli. Én aldrei greip hann fram fyrir hendurnar á mér eða gagnrýndi gerðir mínar óbeð- inn. Og aldrei heyrði ég hann mæla styggðaryrði til nokkurs manns. Allir vita að hann var meðal hæf- ustu lækna okkar lands. En þetta lítillæti hans og hógværð, sem ég kynntist svo vel á þessum síðustu mánuðum ævi hans, gera hann í mínum huga stærstan þeirra allra. Ég votta aðstandendum Úlfs Gunnarssonar einlæga samúð mína. Ísafjarðarspítali verður aldrei sam- ur án hans. En andi hans ríkir þar enn, og meðan svo er, mun okkur vel farnast. Krístinn P. Benediktsson Úlfur Gunnarsson, fyrrverandi yfírlæknir Fjórðungssjúkrahússins á ísafírði og heiðursborgari ísa- fjarðarkaupstaðar, sem lést hinn 29. september sl., verður borinn til moldar í dag. í faðmi fjallanna þar sem hann þjónaði fólkinu í 34 ár, hvort heldur var á nóttu eða degi, mun hann nú loksins hvflast. Úifur fæddist á Friðriksbergi í Kaupmannahöfn 12. nóvember 1919. Foreldrar hans vora Franz- isca Antonie Josefine, danskrar ættar og Gunnar Gunnarsson rit- höfundur. Hann lauk stúdentsprófí í Birkeröd árið 1939 og lagði síðan stund á læknisfræði í Rostock ogg Greifswald á áranum 1939 til 1945. Hann varð cand. med. frá Hásóla íslands árið 1947 og var náms- kandidat á Landspítalanum 1948—49 og jafnframt var hann aðstoðarlæknir á Vífílsstöðum í rúmt ár á þessum tíma. Hann var ,við framhaldsnám í Lyon í Frakk- landi á árinu 1949 og ennfremur í Danmörku á áranum 1949—1953. Almennt lækningaleyfi hér á landi hlaut hann 28. maí 1954 og sama dag varð hann viðurkenndur sem sérfræðingur í handlækningum. Úlfur Gunnarsson var ráðinn yfírlæknir við Fjórðungssjúkrahúsið á ísafírði 1. október árið 1954 og gegndi því starfí óslitið til 1. ágúst 1981. Síðan starfaði hann sem sér- fræðingur við sjúkrahúsið. Úlfur kvæntist Benedictu Kath- Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skríf- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar framort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- ur. Meginregla er sú, að minn- ingargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar era birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. + Eiginmaður minn, ÞÓRIRINGVARSSON, Lambasta&abraut 1, Seltjarnarnesi, lést í Landakotsspítala 5. október. Vigdís Júnsdóttlr. t Minn ástkæri vinur og sonur, ÞÓRÐUR ÞORGRfMSSON, lést mánudaginn 3. október. Kristín Ottósdóttir, Gu&rún Þór&ardóttir. + Eiginmaður minn og faðir okkar, ÞÓRHALLUR RAGNAR STEFÁNSSON, Akurgerði 48, Reykjavfk, lést í Landspítalanum þriðjudaginn 4. október. Unnur Helgadóttir, Gyða Þórhallsdóttir, Svala Þórhallsdóttir, Árni Þórhallsson. + KJARTAN EIÐSSON, Höfðahlíð 13, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag, föstudaginn 7. októb- er, kl. 16.00. Björg Steingrfmsdóttir og börn, Aðalheiður Jonsdóttir, og systkini hins látna. + Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, ÁGÚSTU MAGNÚSDÓTTUR, Hátúni 9, Keflavfk, verður gerð frá Innri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn 8. október kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Sjálfsbjörg. Hafsteinn Jónsson, Eyþór Ómar Hafsteinsson, Hafsteinn Árni Hafsteinsson, Herdfs Hafsteinsdóttir, Rúnar Þ. Magnússon, Magnús Rúnar Hafsteinsson, Sólborg E. Ingimarsdóttir og barnabörn. + Móðir mín, tengdamóðir og amma, HREFNA HJARTARDÓTTIR, Grundargötu 18, Grundarfirði, verður jarðsungin frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 8. októ- ber kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabba- meinsfélag íslands. Agúst Breiðfjörð, Marfa Asgeirsdóttir og barnabörn. + Faðir okkar tengdafaðir og afi, JÓHANN PÉTUR RUNÓLFSSON bifrelðastjórl, Álftamýri 46, lést á Landspítalanum 26. september sl. Jarðarförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þórunn S. Jóhannsdóttlr, Hrafnhitdur Jóhannsdóttir, Sverrir Jóhannsson, Styrmir Jóhannsson, Páll Óskar Jóhannsson, Ingvar Þór Jóhannsson, og barnabörn. Ólafur Þór Jóhannsson, Magnús Eyjólfsson, Ásta Dóra Ingadóttir, Valgerður Hlfn Ólafsdóttir,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.