Morgunblaðið - 07.10.1988, Side 35

Morgunblaðið - 07.10.1988, Side 35
arínu Irene, hjúkrunarkonu frá Rostock, þann 12. febrúar árið 1943 og eignuðust þau flögur böm: Kath- arina f. 1944, búsett í Engiandi, Birgir f. 1947 og Gunnar Martin f. 1954, báðir búsettir í Reyiqavík, og Kristín f. 1957, búsett á Siglu- firði. Fljótlega eftir að Úlfur Gunnars- son kom til starfa á ísafirði varð ijóst hvem ágætismann hann hafði að geyma. Það var ekki aðeins að bæjarbúar skynjuðu að þeir höfðu fengið til starfa frábæran lækni, og höfðu þeir þó kynnst mörgum afbragðs læknum, heldur fór þar maður dagfarsprúður, hógvær og lítillátur, sem vann verk sín af mik- illi kostgæftii og kunnáttu. Hann var afbragðs skurðlæknir, með mikla reynslu og þekkingu, sem hann hafði aflað sér erlendis, m.a. á stríðsárunum í Þýskalandi. Að baki prúðmennskunnar, sem ávallt fylgdi honum, bjó -þó klmnin og orðheppinn var Ulfur með afbrigð- um ef því var að skipta. Á góðri stund var hann óborganlegur húm- oristi, sem flestir kunnu að meta. Það fór ekki hjá því að starfið tæki flestar stimdir yfirlæknisins. Hann vann og vann og þrátt fyrir að hann hefði oftast góða aðstoðar- menn þá urðu vinnustundimar allt of margar. Og í tímans rás kom einnig í ljós að vinnuaðstaðan var orðin óviðunandi. Gamla-sjúkrahús- ið; sem byggt var 1925 og var þá eitthvert glæsilegasta sjúkrahús landsins, var nú orðið ófullnægjandi með öllu. Þar vom þrengsli slík, að ekki reyndist unnt að koma fyrir nýjum tækjum, þrátt iyrir góðan vilja, og öll aðstaða starfsfólks var orðin svo bágborin að erfiðleikamir margfolduðust. Þetta sá Úlfur og reyndi eftir megni að opna augu ráðamanna fyrir þörfinni á bættu húsnæði. Hann vildi fljótlega byggja við gamla húsið og lagði fram tillögur. En menn töldu rétt- ara að byggja nýtt hús. Reyndin varð sú, að ráðist var í byggingu nýs húss, sem nú hefur verið í smíðum í 13 ár, og enn hefur ekki leyst gamla húsið af hólmi. Menn hefðu trúlega farið að ráðum Úlfs, ef þeir hefðu séð þróunina fyrir. Það var þó ekki langt í það að Úlfí auðnaðist að sjá nýja húsið vigt, e.t.v. nokkrar vikur, og þótt hann hlakkaði til þeirrar stundar, þá hafði hann um nokkurt skeið starf- að í nýja sjúkrahúsinu við sérfræði- störf. Þau Úlfur og Benedikta áttu sér þó griðastað, sumarbústað í Tungudal, þar sem þau dvöldu eins lengi og fært var. Allt of oft mun þó siminn hafa kallað lækninn til skyldustarfa, bæði á sjúkrahúsinu og á heimilum hinna flölmörgu fs- firðinga, sem bám meira traust til læknis síns en annarra manna. Þá má ekki gleyma hinum stóra þætti í störfum Úlfs hér áður fyrr, þegar hann á öllum tímum var kallaður til að sinna erlendum sjómönnum, af togumm, sem leituðu til fsaQarð- ar. Hann var líka vararæðismaður Vestur-Þýskalands frá árinu 1961 til dauðadags, enda tengdur þýsku þjóðinni sterkum böndum. Eftir áratuga fómfúst starf, sem tekið hafði sinn toll af þreki okkar ágæta læknis, gat ekki hjá því far- ið að bæjarstjómin vildi sýna honum nokkum sóma og þakklæti. Og því var það á 65. afinælisdegi hans, hinn 12. nóvember 1984, að sam- þykkt var einróma að kjósa Úlf Gunnarsson heiðursborgara ísa- Qarðarkaupstaðar. Með kjörinu vildi bæjarstjórinn votta honum virðingu sína og þökk fyrir ómetan- leg og fómfús störf að heilbrigðis- málum kaupstaðarins um 30 ára skeið. Ég átti því láni að fagna að fá að starfa nokkuð með Úlfi Gunnars- syni um ævina. Leiðir okkar lágu saman í stjóm sjúkrahússins, þar sem ég gegndi formennsku í tæp- lega áratug. Reyndar lágu leiðir okkar saman á fleiri sviðum, þar sem sjúkrahússreksturinn heyrði undir bæjarsjóð ísafjarðar allt fram á síðustu ár, en þar var minn vinnu- staður. Það fór því ekki hjá því að ég kynntist honum vel. Þessi kynni hafa orðið mér umhugsunarefni nú, þegar hann er allur. Skyldum við Isfirðingar eignast slikan lækni aft- MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988 35 ur? Það em vissulega breyttir tímar frá því sem áður var og viðhorf önnur. Ég kveð Úlf Gunnarsson. Það sem einkenndi hann í mínum augum vom trúmennska, hógværð og góð- látleg glettni, þrátt fyrir gífurlegt álag alla tíð. Mættum við fá að njóta starfskrafta fleiri slíkra manna, hér norður við heimskaut. Ég vil að lokum votta eiginkonu hans, bömum og aðstandendum öllum innilegustu samúð. Magnús Reynir Guðmundsson, bæjarritari. Það er erfitt að ímynda sér ísa- §örð án Úlfs Gunnarssonar. Eins og klettur í hafinu, bjargfastur og óbifandi, stóð hann sína vakt við læknisstörf á Fjórðungssjúkrahús- inu á ísafirði í 34 ár, lengst af sem yfirlæknir, eða til ársins 1981. Hann var enn i fullu starfi er hann lést svo sviplega á heimili dóttur sinnar í Englandi. í hugum almennings var Úlfur ekki bara skurðlæknir. Hann var persónugervingur sjúkrahússins og læknislistarinnar þar; ósérhlífinn og samviskusamur, alltaf reiðubúinn á nóttu sem degi, hvort sem kallið kom af sjúkrahúsinu, heimili, úr nágrannabyggðum, af heiðum há, eða af Halamiðum. Válynd veður og ófærð vom hon- um sjaldnast farartálmi, þó ekki væri bílfært. Þá dugðu hestur, reið- hjól, bátkæna, varðskip, flugvél, eða tveir jaftifljótir honum alveg eins vel. Kallinu skyldi hann hlýða, hvað sem raulaði og tautaði. Á slíkum stundum þurfti Úlfur oft að sinna sjúkum og slösuðum við erfið- ar aðstæður og frumstæðustu skil- yrði. Rólyndi hans, ótrúlegri útsjón- arsemi og leikni var viðbrugðið á neyðarstundu. Þau fóm hljótt afreksverkin hans Úlfs og urðu aldrei blaðamatur, eins og nú er títt. En þau greyptu sig í hjörtu þeirra, sém nærri stóðu, og munu halda nafni hans á loft um langa framtíð. Úlfur réðst til yfirlæknisstarfa við Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði árið 1954. Hann var þá talinn einn menntaðasti og færasti skurðlæknir Minning: landsins. Hann hafði hlotið eldskím sína við læknisnám í Þýskalandi stríðsáranna, og verið við sémám í FVakklandi, Englandi, Danmörku og víðar. Mörg fyrstu ár Úlfs á ísafirði Ásdís Svavarsdóttir vom fáir læknar starfandi í bænum. Vinnudagurinn langur og slítandi og frídagar fáir. Vestfjarðamið vom full af innlendum og erlendum fiski- skipum allan ársins hring, og leit- uðu þau undantekningalaust til ísa- fjarðar eftir læknishjálp. Ef minnst er á Ísaíjörð við erlenda g'ómenn frá þessum ámm við íslandsstrend- ur, koma tvö nöfii strax upp í huga þeirra. Annað er Úlfur læknir. Hitt er nafn góðvinar hans, Einars lóðs Jóhannssonar. Úlfs verður þannig minnst víðar en á Vest§örðum og í fiskibæjum íslands. í fjölmörgum útgerðarbæjum Englands, Þýska- lands, Belgiu, Færeyja og Noregs er hann enn ofarlega í huga margra ijölskyldna, sem eiga honum líf og heilsu fyrirvinnunnar að launa. Við, samstarfsfólk Úlfs á Fjórð- ungssjúkrahúsinu, sjáum á eftir frá- bæmm lækni, og kannski enn betri manni. Söknuður okkar er mikill. Gamla sjúkrahúsið okkar verður tómlegt án hans. Alúð Úlfs, vin- gjamleiki og vinskapur í garð okkar allra var einn af homsteinum húss- ins og átti að fara með okkur yfir í nýtt sjúkrahús í haust; húsið sem Úlfur beið svo lengi eftir. Guð gefi að sama gæfa fylgi starfí okkar þar og einkenndi störf hans á gamla staðnum. ísfirðingar hafa misst lífakkeri sitt til margra ára; mann sem var þeim jafrimikill vinur og læknir. Fyrir marga þeirra var Úlfur og læknisþjónusta ennþá einn og sami hluturinn. Við þökkum Úlfí samstarfið á liðnum ámm. Benedictu þökkum við hennar stóra þátt í þvi sam- starfi. Hún varð stoð og stytta Úlfs, hollvinur og sálusorgari á erilsamri starfsævi. Henni, bömum þeirra og Qölskyldum sendum við okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Starfsfólk FSÍ og HSÍ Mig langar með þessum fátæk- legu orðum að kveðja tengdamóður mína, Ásdísi Svavarsdóttur, sem í dag verður jarðsett frá Fossvog- skapellu í Reykjavík. Ásdis hafði lengi átt við erfið veikindi að stríða og undmðust margir þrek hennar. En henni var ekki tamt að kvarta og ef hún var spurð um eigin líðan beindi hún talinu iðulega að öðm. Þess vegna held ég að við höfum kannski ekki alltaf gert okkur grein fyrir þjáningum hennar. Ásdís var fædd á Sauðárkróki 24. febrúar 1931, elsta dóttir hjónanna Sigur- bjargar Ögmundsdóttur og Svavars Guðmundssonar. Hún giftist ung Agli Halldórssjmi og bjó í Reykjavík þar til þau slitu samvistum árið 1959. Egill og Ásdís eignuðust 5 böm, Svavar, Sigurbjörgu, Egil Halldór, Önnu Maríu og Guðjón. Það hefur ekki verið auðvelt fýrir einstæða móður með fimm böm að sjá sér og sínum farborða á þessum tímum. Skilningur á vandamáli frá- skilinnar konu með fimm böm lítill, ekkert Félag einstæðra foreldra eða dagmæðrakerfi og mæðralaun og bamabætur hmkku skammt. Ásdís leitaði til æskustöðvanna. Hún fór með ijögur yngstu bömin til Skaga- fjarðar og gerðist þar ráðskona, fyrst á Ánastöðum, síðan í Breiða- geiði, en lengst af var hún á Breið. Elsti sonurinn, Svavar, fór til ömmu sinnar og afa á Sauðárkróki og bjó þar alla tíð síðan. Það var merki- legt að koma til Ásdísar i sveitina. Það var sama hvemig húsakynnin vom, hversu margar kýr þurfti að mjólka eða munna að fæða og þó úti væri for og bleyta og mörg böm að leik, alltaf var jafnfínt hjá Ás- dísi. Samt sást hún aldrei flýta sér og aldrei hasta á nokkum mann. Hún vann öll sín verk svo undur hljóðlátlega, látlaust og skipulega að það var eins og þau gerðu sig sjálf. En mikil vinna við erfíðar aðstæður tók sinn toll. Ásdís veikt- ist illa af skjaldkirtilsjúkdómi, þurfti að fara í mikla aðgerð og var alla tíð síðan veil til heilsu. Arið 1977 kynntist hún á Sauðárkróki eftirlif- andi eiginmanni sínum, Gunnlaugi Sigurgeirssyni. Þau giftust árið 1978 og fluttust til Reykjavíkur þar sem hún bjó til dauðadags. Gunn- laugur hefur reynst Ásdísi ómetan- leg stoð í veikindum hennar. Und- anfarið hefur hann verið frá vinnu og gert það kleift að hún gat verið að mestu leyti heima þrátt fyrir veikindj sín. Við böm og tengda- böm Ásdísar emm honum afar þakklát. Stundum getur dauðinn verið líkn fró þeim sem mikið hefur þjáðst. Ég kveð samt Ásdísi með söknuði og minnist hennar sem persónugerfíngs rósemi, hæversku, og lítillætis — hetju hvunndagsins. Sigríður Margrét Guðmundsdóttir t Móðir mín og tengdamóðir, INGIBJÖRG VILBORG BENJAMÍNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju föstudaginn 7. október kl. 15.00. Þeir sem vildu minnast hennar sérstaklega em beðnir aö láta Samband fslenskra kristniboðsfélaga njóta þess. Benedikt Jasonarson, Margrót Hróbjartsdóttir. t Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Agústs þórarinssonar, Höfðagötu 11, Stykkishólmi, fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 8. október kl. 14.00. Marfa Bæringsdóttir, dætur, tengdasynlr og barnabörn. t Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall eigin- konu minnar, GUÐRÚNAR F. JÓNSDÓTTUR hjúkrunarfræðlngs. Jón Halldórsson og fjölskylda. Erfidrykkjur í hlýju og vinalegu umhverfi. Salirfyrir 20-25 Veitingahöllinni Veitingahöllin S: 685018- o t Eiginmaöur minn og faöir okkar, tengdafaöir og afi, hálfdAn Agúst jóhannesson, Stórateig 11, Mosfellsbæ, veröur jarösettur frá Lágafellskirkju laugardaginn 8. október kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hans láti Krabbameinsfélag fslands njóta þess. Salóme Þorsteinsdóttir, Agúst Hálfdánarson, Bente Jensen, Kristján Þór Hálfdánarson, Margrót Jónsdóttir og barnabörn. t Þökkum innilega samúðarkveöjur og hlýhug viö fráfall sonar okk- ar og bróður, INGÓLFS HELGASONAR, Blrklhlfö 20, Vestmannaeyjum, Helgi Gestsson, Amý Jónsdóttir, systklni og fjölskyldur þeirra. Kynningarfundur hjá Guðspekifélaginu Vetrarstarfsemi Guðspekifé- lags íslands er þegar hafin. í vetur verða jafnan erindi á föstudagskvöldum kl. 21.00 í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. Hús félagsins verður opið á laugardögum kl. 16.00 til 17.00. Félagamir munu skipta með sér að sjá um dagskrá milli kl. 15.30 og 16.15. Þar verður m.a. upplest- ur úr bókum eða tímaritum og myndbandaefni, en síðan umræður um það efni, sem tekið verður fyr- ir hverju sinni. Auk þess verður bókaþjónustan opin. Sloifstofan og bókaþjónustan verða einnig opin á miðvikudögum frá kl. 16.30 til 17.30. Hugræktariðkanir verða á mið- vikudögum. Kynningarfundur verður laugar- daginn 8. október kl. 15—17. Stefnuskrá félagsins verður kynnt, Qallað verður um sérstæði félags- ins og frelsi ásamt starfsemi Is- landsdeildarinnar. Allir eru vel- komnir, segir í frétt frá félaginu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.