Morgunblaðið - 07.10.1988, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988
37
SKEMMTISTAÐIR
Rétt hjá Nonna
Samkeppni skemmtistaða á milli
er hörð og fer enn harðnandi
ef marka má allar andlitslyftingar
sem eiga sér stað á þeim um þess-
ar mundir. í miðbænum eru margir
staðir og í dag bætist einn við,
Rétt hjá Nonna, en hann er til húsa
þar sem Óðal var á sínum tíma og
hafa víst mörg nöfn verið á þeim
stað.
Hjörtur Jónsson hefur fengið það
hlutverk að endurreisa skemmtana-
hald í Óðali og hann var beðinn að
segja sitthvað um breytingamar.
Hveiju verður breytt?
Það verður öllu breytt sem ég fæ
að breyta. Ég ætla mér að koma
upp stað fyrir tónlist fyrst og
fremst, þar sem eingöngu verði leik-
in valin tónlist, en ekki lollypoppið
sem er allstaðar. Við munum líka
standa fyrir ýmsum uppákomum
sem tengjast tónlist og húsið verður
opið fyrir hljómplötuútgefendur
sem vilja kynna sína útgáfu.
Nú eru margir búnir að reyna
við þennan stað og hann hefúr
óðara farið á hausinn. Heldurðu
að þetta gangi betur þjá þér?
Ég er sannfærður um það að það
hafí vantað svona stað og að fólk
muni kunna að meta tónlistina og
það andrúmsloft sem hún ætti að
gefa. Málið er að innréttingamar á
staðnum hafa alltaf verið hörmuleg-
ar og menn hafa ekkert áttað sig
á því hvað þeir voru að gera. Þær
verða allar rifnar út smátt og smátt
og ég reikna með að staðurinn verði
orðinn hæfilega hrár eftir 6-8 mán-
uði. Annað sem hlýtur að tryggja
aðsókn er staðsetningin, en hún
gæti ekki verið betri að mínu mati.
Við verðum ekki í beinni sam-
keppni við staði eins og Lækjar-
tungl, enda byggjum við á allt öðr-
um grunni, þetta verður meiri
pöbb-stemmning.
Hvað á staðurinn að heita?
Rétt hjá Nonna, enda er stutt í
Jón Sigurðsson.
Morftunblaðið/Júlíus
Hjörtur með diskójjósahlemm einn mikinn yfir sér, en hlemmurinn .
er komin á haugana þegar þessi mynd birtist.
Sean Lennon, sonur Johns Lenn-
on og Yoko Ono, er aðeins tólf
ára gamall. Hann hefur þó ákveðið
sig hvað hann ætli að verða þegar
hann verður stór, hála braut leiklist-
arinnar vill hann feta. Um næstu
jól fær umheimurinn að sjá kvik-
mynd með Sean í einu af aðalhlut-
verkum og það er enginn annar en
michael Jackson sem kostar mynd-
ina sem ber nafnið „Moonwalker".
Sean sjálfur hefur aldrei gefíð
blaðamönnum færi á sér, en sagði
þó um daginn er hann var inntur
eftir dómi hans um nýjustu bók um
föðurinn, John Lennon. „Faðir minn
var kærleiksríkur, umhyggjusamur
og skemmtilegur maður" segir Se-
an, og er þar óssammála höfundi
bókarinnar, Albert Goldmann, sem
ekki taldi að John hefði þessa kosti
í farteskinu.
BV
Htmd-
lyfti
vagnar
Eigum ávallt fyrirliggjandi
hina velþekktu BV-hand-
lyftivagna með 2500
og 1500 kílóa lyftigetu.
UMBOÐS- OG HE/LDVERSLUN
BiLDSHÖFDA 16 SÍML6724 44
MÝ OUllölD OLEEHMHRR
FRfi 7 fiRRTUGMUM I
Peir fjölmörgu sem sakna gullaldar fjörsins á SÖGU geta
nú tekið gleði sína á ný! Næsta laugardagskvöld verður
stemningin ógleymanlega frá árunum fyrir ’70 endurvak-
in með pompi og prakt - og meira fútti en nokkru sinni.
Kl. 19:00 heilsar Fornbílaklúbburinn með heiðursverði og
i anddyrinu bíður allra Ijúffengur FINLANDIA fordrykkur.
Síðan töfrar listakokkurinn SVEINBJÖRN FRIÐJÓNSSON
fram eftirlætis kræsingarnar undirseiöandi tónum GRETTIS
BJÖRNSSONAR.
Fjörið eykst svo um allan helming þegar söngvararnir
vinsælu, RAGNAR BJARNA. ELLÝ VILHJÁLMS og
PURIÐUR SIGURÐAR stíga á sviöið og viö syngjum,
duflum, tvistum og tjúttum fram á rauöa nótt
ásamt dönsurum frá DANSSKÓLA auðar haralds
Mætum oll. fersk og fönguleg!
Kynnir kvöldsins: MAGNÚS AXELSSON
Stjórnandi: JÓNAS R. JÓNSSON / Flljómsveit hússins leikur.
Lagautsetnmgar: ARNi SChEViNG / Ljosameistarr. KONRAÐ SlGURÐSSÖN
HI)OÖmeistan: GUNNAR SMARIHELGASON, Aögangseyrir: 3500 kr. meö mat
Sertilboð a gistmgu tyrir hopa gesta1
Pöntunarsimi: Virka daga frá 9-17, s. 29900. föruttccí twuutleqa !
Föstudaga og laugardaga, s 20221. ScSdút UfíflJCÍt