Morgunblaðið - 09.10.1988, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.10.1988, Qupperneq 1
88 SIÐUR B 231. tbl. 76. árg. SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsíns Græniand: Taka 9,4 mílljarða erlent lán Nuuk. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunbladsins. GRÆNLENSKA landsþingið hef- ur ákveðið að taka erlent lán að upphæð einn milljarður og fjög- ur hundruð þúsund danskar krónur alls (um 9,4 miiyarðar isl. kr.). Nota á féð til að standa undir halla í atvinnurekstri, eink- um fiskframleiðslu, og til að styrkja skuldastöðu landstjórn- arinnar. Landstjómin hefur þegar fengið tilboð um lán að upphæð 270 millj. d. kr. í japönskum jenum og 890 millj. d. kr. í vestur-þýskum mörk- um. Allt lánið, 1400 milljönimar, samsvarar 35.000 d. kr. (ríflega 230.000 ísl. kr.) erlendri skuld á hvert einasta mannsbam í Græn- landi. Halli á ijárlögum landstjómar- innar árið 1987 var um 600 milljón- ir danskar krónur eða sem samsvar- ar rúmum 3,6 milljörðum íslenskra króna. 320 milljónir af þessum halla er vegna tapreksturs í fisk- og rækjuvinnslu. Efnahagsráðunautur OECD gagnrýndi nýlega. framleiðslu- stjómun grænlensku landstjómar- innar. Hann sagði landstjómina borga sjómönnum of mikið fýrir hráefnið með það fyrir augum að halda uppi nægri atvinnu til sjávar. Efnahagsráðunauturinn vill að hrá- efnisverð til sjómanna verði ákveðið með tilliti til heimsmarkaðsverðs á fullunnum vömm. Þá segir hann að grænlensk fiskvinnsiuhús séu illa rekin og mælir með fjölgun verksmiðjuskipa á kostnað fisk- vinnsluhúsa í landi. Efnahagsráðu- nauturinn heldur því einnig fram að of mörg fiskiskip séu á Grænl- andi miðað við kvóta og fiskimið Grænlendinga. Samkomulag í augsýn í deílu Irana og Iraka? Þjóðirnar hafa fallist á tiliögur SÞ í meginatriðum Nikóslu. Reuter. ALI Akbar Velayati, utanríkisráðherra írans, sagði í gær að íranir óg írakar hefðu í meginatriðum fallist á tillögur Sameinuðu þjóð- anna sem miða að þvi að koma hreyfingu á friðarviðræður þjóð- anna. Iranska fréttastofan IRNA hafði það eftir velayati að þegar þjóðirnar hafa fallist á tillögurnar megi fara að ræða um allsheijar- samkomulag milli ríkjanna. í tillögum Javiers Perez de Cuellars, aðalritara SÞ, er gert ráð fyrir aðlranir og írakar kalli heim heri sína innan fimmtán daga, fangaskipti fari fram og að íranir hætti að leita í skipum sem fara um Hormuz-sund. Að sögn Velayatis voru tillögur Perez de Cuellar í flórum liðum og ef samkomulag næst varðandi þær þijár fyrstu leiðir það til þess að fjórða tillagan, um allshetjarsam- komulag þjóðanna, verður tekin til umræðu. Velayati sagði að viðræðum yrði haldið áfram undir stjóm Perez de Cuellars og sérstaks fulltnia hans, Jans Eliassons. Enn ætti eftir að ákveða dagsetningu viðræðnanna en Eliasson myndi vera í sambandi við fulltrúa beggja þjóðanna. Velayati kenndi írökum um seina- gang í viðræðunum og sagði að full- trúar þeirra hefðu ekki umboð til að taka sjálfstæða ákvörðun. „íraska nefndin skortir það vald- boð sem nauðsynlegt er við slíka samninga og þess vegna er eins og írösku fulltrúamir viti stundum ekki hvom fótinn þeir eigi að stíga," hafði IRNA eftir Velayati. Hann minntist hins vegar ekki á kröfur íraka um að sprengidufl og skipsflök yrðu flar- lægð úr Shatt al-Arab fljótinu svo hann yrði skipgengur á ný. Fréftir frá SÞ herma að Perez de Cuellar hafi lagt til við írani að þeir hættu að leita í skipum á Hormuz- sundi gegn þvi að írakar frestuðu viðræðum um Shatt el-Arab. Velayati sagði að viðræðumar við utanríkisráðherra íraks, Tareq Aziz, í síðustu viku hefðu verið árang- ursríkari en fyrri viðræður þeirra í Genf. Friðarviðræður milli írana og ír- aka hafa verið í sjálfheldu frá því þær hófust í Genf 25. ágúst, fimm dögum eftir að Sameinuðu þjóðunum tókst að koma á vopnahléi milli þjóð- anna í Persaflóastríðinu sem hafði geysað í átta ár. Kína: Fjórir lifðu af þegar þota flaug á hótel Peking. Reuter. FJÓRIR verkamenn komust af en 42 biðu bana þegar Iljúsliín- þota fórst rétt eftir fiugtak i borginni Linfen í Shanxi-héraði i norðurhluta Kína í gærmorgun. Þotan náði ekki að klifra eftir að hún lyfti sér og skall niður á þak Xingiao-hótelsins í Linfen. Brotnaði hún í tvennt og hmndi niður af hótelinu. Tókst þeim íjór- um, sem komust lífs af, að losa sig úr brakinu og komast burt frá því áður en flugvélin sprakk og varð alelda. Iljúshín-þotan, sem smiðuð var í Sovétríkjunum, var á leið í stundar- flórðungs skemmtiferð með „fyrir- myndarverkamenn", sem vefnaðar- verksmiðja í Linfen var að verð- launa fyrir gott starf. Bann við brennslu eiturefna á hafí úti London. Reutcr. RÁÐSTEFNA fulltrúa frá 65 rikjum í London samþykkti ný- lega bann við því að eitruð úr- gangsefiii séu brennd á höfiun úti. Markmiðið er að minnka líkur á sjávarmengun og jafii- framt að vernda líf sjávardýra. Bannið tekur að fullu gildi árið 1994. Undanfarin ár hafa verið brennd 100 þúsund tonn af úrgangsefnum á Norðursjónum einum árlega og em notuð til þess ama sérstaklega hönnuð skip. Eitt þessara efna er svonefnt PVC, eitthvert kröftug- asta eitur, sem til er, og við bmna þess getur myndast lífshættulegt gas. Vísindamenn, sem rannsakað hafa botn Norðursjávar, segjast hafa fundið þar lög eiturefna er þeir álíta að geti ógnað lífi sjávar- dýra. Heimildarmenn á ráðstefn- unni sögðu að dauði 10.000 sela síðan í maí, sem sumir vísindamenn telja að eigi rætur að rekja til meng- unar, hafi orðið til að auka stuðning við bannið. Ákveðið var sömuleiðis að stöðva útflutning á eiturefnaúrgangi frá iðnríkjunum til annarra ríkja og em þá fátæk þriðjaheimsríki höfð í huga. Meðal þátttökuríkjanna á ráðstefnunni vom helstu iðnríki á Vesturlöndum, Sovétríkin og nokk- ur þróunarríki. Losun og eyðing eitraðra úr- gangsefna komst í brennidepil í síðasta mánuði er flutningaskipinu Karin B, sem lestaði efnaúrgang á Italíu og fyrirhugað var að sigla til Nígeríu, var meinað að losa farminn þar og í fimm Evrópulöndum. Varð skipið að iokum að snúa aftur með farminn til Italíu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.