Morgunblaðið - 09.10.1988, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1988
....og góðir búmenn
byrgja sig upp fyrir veturinn
<£f>Fiigor dönsku frystikisturnar hafa
verið á markaðnum í áratugi og stað-
ið sig með mikilli prýði. í þeim eru
innbyggð hraðfrystihólf sem reynst
hafa sérlega vel til að hraðfrysta ný-
meti. Einnig má breyta kistunni í
hraðfrystitæki með því að þrýsta á
hnapp.
FIMM STÆRÐIR • HAGSTÆTT VERÐ
^Bauknecht frystiskápar. Há-
þróuð þýsk gæðavara sem Islending-
um er að góðu kunn eftir áratuga
reynslu. Einföld og falleg hönnun.
Mikið úrval, við allra hæfi.
LITLIR SKÁPAR, STÓRIR SKÁPAR
OG ALLT ÞAR Á MILLI.
-
MW
SLATIJUTU)
KitchenAid hrærivélar.
Þessar frábæru bandarísku vélar
þekkja allir enda hafa þær verið
ómissandi á jslenskum heimilum í
tæpa liálfa öld. Fylgihlutir:
HAKKAVÉL • PYLSUSTÚTUR
HVEITIBRAUT • GRÆNMETIS-
KVÖRN • ÁVAXTASAFAPRESSA
HLÍFÐARKÁPA • DÓSAOPNARI
PASTAGERÐARVÉL • SÍTRÓNU-
PRESSA • SMÁKÖKUMÓT
mms 0G
&SAMBANDSINS kaupfélögin
ÁRMÚLA 3 SÍMAR 687910 ~ 68 1266 UM LANDALLT
Háskólafyrirlestur
um miðaldamanninn
„GETUM við talað um einhvern
miðaldamann?", nefiiist fyrírlest-
ur sem transki prófessorinn Jac-
que Le Goff £rá Ecole des Haute
Etudes í París flytur í Háskóla
íslands fimmtudaginn 13. október
næstkomandi. Verður fyrirlestur-
inn í stofii 101 í Odda kl. 17.15.
Fyrirlesturinn flytur hann á
frönsku undir titlinum „Peut-on
parler d’un homme médiéval?“,
en dreift verður til áheyrenda
útdrætti úr honum á íslensku. Auk
þess mun Torfi Tuliníus verða á
staðnum og þýða spurningar
áheyrenda og svör prófessorsins.
Prófessor Jacques Le Goff er
þekktur í Frakklandi fyrir störf í
þágu vísindanna og hlaut fyrir það
viðurkenningu La Fondation de
Franee-stofnunarinnar. Hefur hann
undanfarin 30 ár gefið út fjölda
sagnfræðirita, sem mörg flalla um
miðaldasögu, nú síðast La Bourse
et la Vie í París 1986, La Nouvelle
Histoire í Bruxelles 1988 og Histoire
et Memoire í París 1988. Hann hóf
feril sinn sem kennari við mennta-
skóiann í Amiens 1950-51, starfaði
við franska skólann í Róm og gerð-
ist síðan rannsóknafulltrúi við
Frönsku vísindarannsókna-stofnun-
ina 1953-54 og 1959-60, en var í
millitíðinni aðstoðardeildarstjóri bók-
menntadeildarinnar við Háskólann í
Lille. Þá gerðist hann stjómandi við
Ecole Pratiques des Etudes og síðar
forseti VI deildar við Ecole des Haut-
es Etudes í stjómmálafræðum frá
1975-77. Hann hefur átt sæti í nefnd
sagnfræðirannsókna og verið aðstoð-
arritstjóri tímaritsins „Annálar um
efnahags-, þjóðfélags- og menning-
arrnál".
í fyrirlestrinum í Háskóla íslands
ræðir prófessor Le Goff um ímynd
miðaldamannsins eins og hann kem-
ur fyrir sjónir á mismunandi tíma
og frá mismunandi sjónarhóli. Dreg-
ur m.a. fram nokkrar meinlokur mið-
aldamannsins, meira og minna sam-
eiginlegar með fólki af mismunandi
félagslegum og menningarlegum
stéttum. Um þróun mannsins á þess-
um tíma segir hann almennt að
ímynd hans sé dökk á seinasta skeiði
miðalda, bjartsýn um miðbikið á 12.
og 13. öld og við upphaf miðalda sé
ímynd mannsins mjög mótsagna-
kennd, á þeim krepputímum þegar
maðurinn tvístígur milli áunninnar
virðingar og áfalla sem hann verður
aftur fyrir.
Áttavitanámskeið
fyrir ferðamenn
EINS og undanfarin 22 ár gengst
Hjálparsveit skáta i Reykjavík
fyrir námskeiði í meðferð átta-
vita og landabréfa fyrir ferða-
menn. A námskeiðinu verða einn-
ig veittar upplýsingar um ferða-
fatnað og ýmsan ferðaútbúnað.
Námskeiðið stendur tvö kvöld,
þriðjud. 11. okt. og fímmtud. 13.
okt. Á fyrra kvöldinu er meðferð
áttavita og landabréfa kennd og
notkunin æfð innanhúss. Síðara
kvöldið er veitt tiisögn um útbúnað
og síðan er farið í stutta verklega
æfingu. Þátttakendum verður ekið
til og frá æfingasvæði í bifreiðum
sveitarinnar.
Námskeiðið verður haldið í hús-
næði Hjálparsveitarinnar á Snorra-
braut 60, jarðhæð, og hefst kl.
20.00, bæði kvöldin. Þátttökugjald
er kr. 1.200.
Nánari upplýsingar er að fá í
Skátabúðinni, Snorrabraut 60.
„Á þetta námskeið eru allir vel-
komnir sem áhuga hafa á að læra
notkun áttavita og landabréfa, eða
vilja bæta við kunnáttu sína. Þetta
er gott námskeið fyrir t.d. skíða-
göngumenn, skotveiðimenn, vél-
sleðamenn og aðra ferðamenn sem
ferðast um fjöll og fimindi," segir
í frétt frá Hjálparsveit skáta í
Reykjavík.
Hraðahindranir
við Grundarflörð
Grundarfirði.
VEGAGERÐ ríksins hefúr nú ný-
verið sett upp hraðahindranir
beggja vegna Grundarfjarðarbæj-
ar. Þó að allir fagni bættum veg-
um og bundnu slitlagi fylgir oft
sá böggull skammrifi að ökuhraði
eykst.
Á Grundarfirði, sem og í mörgum
öðrum bæjum, hagar þannig til að
bióðvegurinn liggur gegnum bæinn
og að honum liggja íbúðahverfi. Böm
á leið í skóla þurfa mörg hver að
fara yfir veginn. Með uppsetningu
þessara hindrana er það von bæj-
arbúa að ökumenn átti sig á að draga
ber úr hraða þegar ekið er gegnum
bæi og þorp þó að aðliggjandi þjóð-
vegir leyfi 90 km hámarkshraða.
- Ragnheiður
HAUSTVERÐIHERRARIKI
framlengt um viku — til laugardags 15. október.
25% afsláttur á vönduðum
íslenskum herrafatnaði.
H
K
SNORRABRAUT 56 f 13505 + f 14303