Morgunblaðið - 09.10.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1988
41
Afinæliskveðja:
Pétur Jónsson
forstjóri sjötugur
Innarlega í botni Svínadals er
Dragháls, nafntogað bændabýli.
Norðan dalsins er Skarðsheiði, hvít
og blá að hausti, að sunnan sjálfur
Hvalfjörður lygn, kyrr og langur.
Niður hlíðar dalsins keppast lindir
og lækfr við að renna ár og síð um
gróðursælar brekkur og beitilönd,
að leita hafsins. Margur hefur haft
orð á fegurð náttúrunnar á þessu
svæði sem er bæði smáfrítt og stór-
brotið.
Þar milli fjallanna fæddist
sveinninn Pétur Jónsson, hinn 11.
september 1918. Að honum stendur
stór og sterkur frændgarður þar
um slóðir, allt frá því á nítjándu
öid og fram á þennan dag. Foreldr-
ar hans voru þau Jón Pétursson og
Steinunn Bjamadóttir. Þau voru
búandi þá á Draghálsi og eignuðust
níu böm alls. Seinna fluttist þessi
ijölskylda að Geitabergi í sömu
sveit, allt var þetta meira og minna
brattgengt fólk og vant fjöllum.
Grafardals fögmm við gengum í
hlíðum, söng ungt fólk við raust í
byijun aldarinnar, það var á því
skeiði þegar ungmennafélögin
höfðu breiðst um landið, og tóku
undir með íslenskum vorfuglum.
Rómantík og eftirvænting höfðu
byr undir vængjum í átt til nýrra
tíma.
Pétur var í föðurgarði fram und-
ir fimmtán ára aldur. Samhliða
hugsuninni um almenn sveitarstörf
bjó í hug hans áhugi til að hefja
landnám á nýjum vettvangi, þar
sem ekki væri eingöngu stuðst við
pál og reku. Honum varð snemma
ljós sú staðreynd að í þúsund ár
höfðu íslendingar barist vopnlausir
við hijóstur og harðfenni. Þetta var
að vísu sama niðurstaða um arf-
leifðina og flestir samtíðarmenn
Péturs hafa komist að.
Innan við tvítugt fór Pétur til
náms í alþýðuskólanum í Reyk-
holti, eins og fjöldi annarra borg-
firskra ungmenna hafði gert á und-
an honum. Þar var hann í tvö ár
og sóttist námið vel, einkum í reikn-
ingi, enda hefur það fag legið vel
fyrir honum alla tíð síðan. Beinni
skólagöngu hefur hann ekki sinnt
síðan, en notið hennar til fulls á
við aðra samtíðarmenn.
Umsvif þessa unga manns hefj-
ast upp úr þessu. Hann fór til sjó-
róðra norður á Strandirmeð skóla-
félögum sínum. Þar reri hann tvær
vertíðir, en þaðan lá leiðin austur
yfir Hrútafjörð, og gerði út bát á
eigin kostnað. En útgerðarmaður-
inn færði sig þá um set og varð
sjómaður í Höfnum suður á útgerð
hjá Helga frá Tungu, síðar í
Keflavík en lauk þar sjóferðum
Péturs því báturinn sem hann var
á fórst í lendingu og brotnaði í spón,
en Pétur og félagar hans dregnir í
land. Þetta var í byrjun stríðsins.
Þá sneri Pétur heim í Geitaberg,
sinnti þar vegagerð og fleiru þar í
dalnum. En árið 1956 keypti halin
fyrstu stórvirku vinnuvélina og
vann hann með hana við malamám
og á Keflavíkurflugvelli. Ekki hafði
farið fram hjá honum að bylting
var orðin í alls konar verktækni á
öllum sviðum í kjölfar stríðsins.
Nýjar stórvirkar vélar voru sem
óðast að komast í gagnið, þær gátu
breytt mörgum dagsverkum f
klukkustundavinnu eða svo. Hann
stofnaði þá þungavinnuvélafyrir-
tæki sem hann nefndi Véltækni hf.
Það var fyrir 30 árum og er það
nú elsta fyrirtæki sinnar tegundar
sem starfað hefur samfellt síðan.
Fyrstu árin annaðist Véltækni jarð-
vinnslu til undirbúnings nýbygg-
ingu á’ höfuðborgarsvæðinu, lagði
vatns- og skolplagnir. Meðal annars
tók það að sér að byggja skolpræsi
í Fossvogi, sem var eitt stærsta
verk á sínum tíma. Um þessar
mundir hafði Pétur í þjónustu sinni
hjá Véltækni hundrað manns, verk-
stjóra, verkfræðinga og ve'rkamenn.
Alla tíð hefur farið vel á með starfs-
fóHci Péturs, enda nokkuð heppinn
með samstarfsmenn. Þegar fram-
leiðsla á olíumöl hófst var Pétur
þátttakandi þar, allt þar til sveitar-
félöein stofnuðu fyrirtækið Olíumöl
hf. Árið 1976 flutti Véltækni inn
frá Bandaríkjunum svokallaða
kantsteypuvél, seinna komu til við-
bótar tvær vélar, þannig að fyrir-
tækið hefur nú þremur vélum á að
skipa. Með vélum þessum eru fram-
leiddir jámbentjr kantsteinar í
gangstéttar. íslendingar urðu fyrst-
ir Evrópuþjóða til að nýta sér þessa
nýju aðferð og hefur Véltækni ann-
ast það fyrir nær 40 sveitarfélög,
Vegagerð ríkisins og marga verk-
taka síðan. Fyrir utan þetta hefur
það sinnt verktökum á Irlandi,
Saudi Arabíu og Noregi, og vakti
þessi starfsemi verulega athygli á
hveijum þessara staða.
Raunverulega hefur fátt verið
rakið í þessari afmælisgrein sem
rekið hefur á fjömr piltsins úr
Svínadal, enda mun í undirbúningi
ritun ævisögu hans. Samferða-
mönnum hans ber saman um að
hann hafi iðulega siglt djarft með
köflum en þó jafnan komið skipi
sínu heilu í höfn. Hann er vinsæll
af samtíðarmönnum og viðskipta-
mönnum víðs vegar um landið,
rausnarmaður hinn mesti og hvers
manns hugljúfi á gleðistundum svo
að á orði má hafa. Fer þó jafnan
sínar eigin leiðir.
• Og meðal annars til þess að valda
ekki hinum stóra hópi kunningja
óþarfa ónæði kaus hann að eyða
afmælisdegi sínum í Piccadilly í
London, í stórborginni við Thames
innan um hið margbreytta og marg-
lita mannlíf, sem þar streymir fram
af hillum og stöllum eins og lindim-
ar við hlíðar Geitabergs, kristallað-
ar í fegurð á leið til hafsins.
Bestu hamingjuóskir.
Valtýr Guðjónsson
lf M þýiir ekki
il sttage tltai
oo gera ekki neitt!
Ef þú ert meðal þeirra, sem óttast áhrif vaxandi verðbólgu en veist
ekki hvað þú átt að gera, er mál til komið að fá ráðleggingar og
aðstoð hjá Fjárfestingarfélaginu. Það er óráðlegt að stinga höfðinu
í sandinn og bíða eftir betri tíð.
Þetta á sérstaklega við þá, sem þurfa að geyma peninga í
skemmri tíma, peninga sem ættu að bera háa vexti, en það gera
Skyndibréf Fjárfestingarfélagsins.
Skyndibréfín bera nafn sitt með rentu! Þeim er ætlað að leysa
vanda þeirra, sem þurfa að ávaxta fé til skamms tíma með
hæstu mögulegum vöxtum. Þessi bréf henta því bæði fyrir-
tækjum og einstaklingum.
Skyndibréf eru tilvalin fyrir þá sem þurfa t.d. að geyma og
ávaxta peninga á milli sölu og kaupa á fasteignum.
Skyndibréfín eru sem sagt ætluð til skammtíma fjármála-
lausna. Ávöxtun þeirra er á bihnu 7-9% umfram verð-
bólgu. Skyndibréf eru að jafnaði innleyst samdægurs, -
án innlausnargjalds. Kostir þeirra eru óumdeilanlegir.
FIÁRFESriNGARFÉLAGIÐ
Hafnarstræti - Kringlunni - Akureýri
Aöili að Verðbréfaþingi íslands
Hluthafar: Verslunarbankinn, Eimskip, Tryggingamiðstöðin,
Lifeyrissjóður Verslunarmanna
auk rúmlega 400 fyrirtækja og einstaklinga.
Fjármál þín — sérgrein okkar
VISÍ7BS0