Morgunblaðið - 12.10.1988, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1988
29
Hrakningar
á Kaldadal:
Þrig'gja sólar-
hringa bið
eftirhjálp
ÞRÍR ferðalangar lentu í vand-
ræðum í Kaldadal um helgina,
en var bjargað af björgunar-
sveitamönnum. Einn þessara
ferðalanga hafði setið í bíl sínum
í þijá sólarhringa, áður en þjálp-
in barst.
Á iaugardagsmorgun voru þeir
félagar Sævar Reynisson og Berg-
þór Kristleifsson á ferð í jeppa suð-
ur fyrir Langjökul. Þeir eru báðir
í björgunarsveitum, Sævar í Kópa-
vogi og Bergþór í Reykholtsdal.
„Þegar við komum suður yfir
Langahrygg sáum við fólksbíl, sem
hafði farið út af veginum í Kaldad-
al,“ sagði Bergþór í samtali við
Morgunblaðið. „Bíllinn var mann-
laus og við létum lögregluna þegar
vita. Þegar við höfðum keyrt um
þijá kílómetra ókum við fram á
mann á göngu. Hann var þá á leið
í slysavamaskýli í Kaldadal, en
hafði látið fyrir berast í bíl sínum
frá því á miðvikudag. Hann var illa
búinn, orðinn nokkuð svangur og
þrekaður, en sæng sem hann hafði
í bílnum hafði haldið á honum hita.
Við ókum honum til móts við lög-
regluna á Selfossi, sem kom honum
til byggða."
Síðdegis á laugardag átti lítil
flugvél leið yfir Kaldadal og sáu
menn í henni þá tvo ferðalanga
standa við bifreið og veifa. Þegar
flugvélinni var aftur flogið yfir um
kvöldmatarleytið stóð fólkið enn við
bflinn og veifaði nú sýnu ákafar en
áður. Þá var gert viðvart og björg-
unarsveitin Ok í Reykholti benti á
að einn liðsmaður sveitarinnar væri
á þessum slóðum. „Við höfðum
ákveðið að fara Uxahryggjaieið til
baka, en þegar okkur var tilkynnt
að ferðalangar ættu í erfiðleikum í
Kaldadal lögðum við leið okkar
þangað," sagði Bergþór. „Þama
voru á ferðinni þýsk stelpa og
svissneskur kærasti hennar á jeppa
og höfðu þau fengið þær upplýsing-
ar að Kaldidalur væri greiðfær.
Sannleikurinn er hins vegar sá að
Kaldidalur er illfær jeppum. Það
amaði ekkert að fólkinu, enda hafði
það ekki verið þama lengi. Við
drógum bfl þeirra upp úr skafli og
fylgdum þeim Uxahryggjaleið."
Bergþór sagði alltof algengt að
fólk færi á fjöll án þess að þekkja
nokkuð aðstæður. Kaldidalur væri
tii dæmis með hæstu fjallvegum á
landinu og veður skipuðust þar
skjótt í lofti.
JL-húsið:
Krafist gjald-
þrots vegna
60 þúsund
króna skuldar
JÓN Sólnes hrl. hefur lagt fram,
á grundvelli árangurslaus
fjárnáms, kröfu um að bú fyrrum
rekstraraðila JL-hússins verði
tekið til gjaldþrotaskipta. Krafa
skjólstæðings Jóns mun nema
rúmum 60 þúsund krónum.
Fyrirtekt vegna málsins verður
sennilega í skiptarétti í dag. Að því
loknu verður málið tekið til úrskurð-
ar eða stuttur frestur veittur til að
koma fram athugasemdum.
Þó fjárhæð kröfunnar sé aðeins
um 60 þúsund, getur hún hmndið
af stað skriðu krafna gegn búinu í
skiptarétti þar sem aðrir, sem eiga
aðfararhæfar kröfur í búið, geta
krafist gjaldþrots á grundveili þess
að þegar hafi fjámám verið reynt
án árangurs.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson, fráfarandi forseti Sameinaðs þings, óskar Guðrúnu Helgadóttur, ný-
kjörnum forseta, til heilla með embættið.
Guðrún Helgadóttir for-
seti Sameinaðs þings
Salome Þorkelsdóttir og Valgerð-
ur Sverrisdóttir varaforsetar
Guðrún Helgadóttir, Alþýðu-
bandalagi, var kjörin forseti
Sameinaðs þings í gær með 39
Fjögur stjórnarfúmvörp vóru
lögð fram á Alþingi í gær:
1) Frumvarp til laga um efna-
hagsráðstafanir, það er frum-
varp til staðfestingar á bráða-
birgðalögum frá 28. september
1988 um aðgerðir í atvinnumál-
um, verðlags- og kjaramálum. ■
Þessi lög taka m.a. til „frysting-
ar launa“ til 15. febrúar 1989.
2) Frumvarp til breytinga á lög-
um um viðskiptabanka og spari-
sjóði.
3) Frumvarp um verðbréfavið-
skipti og verðbréfasjóði og
4) Frumvarp um eignarleigu-
starfsemi.
atkvæðum. Salome Þorkels-
dóttir, Sjálfstæðisflokki, var
kjörin fyrri varaforseti með 55
Frumvarp til laga um eignar-
leigustarfsemi (eingarleiga, fjár-
mögnunarleiga, kaupleiga, rekstr-
arleiga) er samið af nefnd sem
viðskiptaráðherra skipaði í febrú-
armánuðu síðast liðnum. Það er
„flutt til þess að tryggja að örugg-
ar og sanngjamar reglur gildi um
hvers konar starfsemi á fjár-
magnsmarkaði og að sams konar
reglur gildi um sams konar starf-
semi á þessu sviði“, að því er segir
í athugasemdum með frumvarpinu.
atkvæðum og Valgerður Sverr-
isdóttir, Framsóknarflokki,
annar varaforseti með 52 at-
kvæðum.
Guðrún Helgadóttir er fyrsta
konan sem gegnir forsetastörfum
í Sameinuðu þingi. Hún var fyrsti
varaforseti Sameinaðs þings á
næstliðnu þingi. Konur hafa áður
gegnt forsetastörfum bæði í efri
og neðri deild Alþingis.
Kjör forseta er skriflegt og
óbundið. Guðrún Helgadóttir hlaut
39 atkvæði, auðir seðlar vóru 23
og einn þingmaður var fjarverandi.
Salome Þorkelsdóttir var kjörin
fyrri varaforseti Sameinaðs þings
með 55 atkvæðum, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson hlaut 1 at-
kvæði, 5 seðlar vóru auðir og tveir
þingmenn vóru ijarverandi at-
kvæðagreiðsluna. Salome var for-
seti efri deildar Alþingis á næst-_
liðnu þingi.
Valgerður Sverrisdóttir var kjör-
in annar varaforseti Sameinaðs
þings með 52 atkvæðum, Egill
Jónsson og Ólafur Þ. Þórðarson
hlutu sitt atkvæðið hvor, 7 seðlar
vóru auðir og tveir þingmenn vóru
ljarverandi atkvæðagreiðsluna.
Skrifarar Sameinaðs þings vóru
lgomir Jóhann Einvarðsson, Fram-
sóknarflokki, og Málmfríður Sig-
urðardóttir, Samtökum um
kvennalista.
Tillögur til þingsályktunar:
Fyrstu þingmálin:
Stj órnar frumvörp
um verðbréfaviðskipti
og verðbréfasjóði
Staðfestingarfrumvarp á „frystingu
launa“ til 15. febrúar
Deildaforsetar
Alþingis:
Kjartan
Jóhanns-
son og Jón
Helgason
Kjartan Jóhannsson, Alþýðu-
flokki, var kjörinn forseti neðri
deildar Alþingis í gær. Jón
Helgason, Framsóknarflokki,
var kjörinn forseti efri deildar.
Kjartan Jóhannsson verður for-
seti neðri deildar Alþingis á 111
löggjafarþinginu. Hann hlaut 31
atkvæði við forsetakjör. Auðir
seðlar vóru 2. Jón Kristjánsson,
Framsóknarflokki, gegndi þessu
embætti á síðasta þingi.
Fyrri varaforseti var kjörinn Óli
Þ. Guðbjartsson, Borgaraflokki.
Hann hlaut 39 atkvæði en 2 seðlar
vóru auðir. Óli hafði þetta embætti
einnig á hendi á síðasta þingi.
Annar varaforseti þingdeildar-
innar var kjörinn Hjörleifur Gutt-
ormsson, Alþýðubandalagi. Hann
hlaut 31 atkvæði, Stefán Valgeirs-
son 1 en 7 seðlar vóm auðir.
Kjartan Jó- Jón Helgason,
hannsson, for- forseti efri
seti neðri deild- deildar.
ar.
Skrifarar þingdeildarinnar vóm
kjömir Jón Sæmundur Siguijóns-
son, Alþýðuflokki, og Hreggviður
Jónsson, Borgaraflokki.
Jón Helgason, Framsóknarflokki,
var kjörinn forseti efri deildar Al-
þingis með 16 atkvæðum en 4
seðlar vóm auðir.
Guðrún Agnarsdóttir, Samtökum
um kvennalista, var kjörin fyrri
varaforseti þingdeildarinnar, með
17 atkvæðum, 3 seðlar vóra auðir.
Karl Steinar Guðnason, Alþýðu-
flokki, hlaut kjör sem annar varfor-
seti deildarinnar með 18 atkvæðum
en 2 seðlar vóm auðir.
Skrifarar efri deildar vóm kjöm-
ir Egill Jónsson, Sjálfstæðisflokki,
og Valgerður Sverrisdóttir, Fram-
sóknarflokki.
AIÞinGI
Þrírjaftiréttisráðgjafar
Fræösla um umhverfismál - bann við geimvopnum
Fyrsttalda fmmvarpið er flutt til
staðfestingar á bráðabirgðalögum
ríkisstjómarinnar frá í endaðan
septembermánuð sl., sem fela m.a.
í sér „frystingu" launa og verðlags.
Framvarp til laga um verðbréfa-
viðskipti og verðbréfasjóði er að
stofni til samið af nefnd, sem við-
skiptaráðherra skipaði í febrúar
síðastliðnum til að fjalla um starf-
semi á fjármagnsmarkaði utan
banka og sparisjóða.
Fmmvarpið felur í sér „ramma“
um starfsemi verðbréfamiðlara,
verðbréfafyrirtækja og verðbréfa-
sjóða, fjallar m.a. um ársreikninga
verðbréfafyrirtækja og -sjóða, sem
og endurskoðun og eftirlit.
Fmmvarp um breytingu á lögum
um viðskiptabanka og sparisjóði
er flutt í tenglsum við fmmvarp
til laga um verðbréfaviðskipti.
Samkvæmt fmmvarpinu verður
bönkum og sparisjóðum heimilað
að starfrækja verðbréfafyrirtæki.
Þijár þingsályktunartillögur
vóru lagðar fram á fyrsta starfs-
degi Alþingis:
1) um ráðningu þriggja jafinrétt-
isráðgjafa,
2) um aukna fræðslu um um-
hverfismál í grunn- og firam-
haldsskólum og
3) um bann við geimvopnum.
Þrírjafhréttisráðgjafar
Hjörleifur Guttormsson, Kristín
Einarsdóttir, Ámi Gunnarsson, Að-
alheiður Bjamfreðsdóttir og Val-
gerður Sverrisdóttir flytja tillögu
um jafnréttisráðgjafa. Samkvæmt
henni ber ríkisstjórninni að „ráða á
vegum félagsmálaráðuneytis þijá
jafnréttisráðgjafa til þriggja ára
sem hafi það verkefni að vinna að
leiðréttingu á stöðu kvenna í stofn-
unum og fyrirtækjum um land allt
í samvinnu við starfsmenn og
stjómendur".
U mhverfisfræðsla
Kristín Halldórsdóttir og fimm
aðrir þingmenn Samtaka um
kvennalista flytja tillögu um aukna
umhverfisfræðslu. Samkvæmt til-
lögunni skal menntamálaráðherra
„efla og samræma fræðslu um
umverfismál í gmnnskólum og
framhaldsskólum landsins og meðal
almennings".
Bann við geimvopnum
Hjörleifur Guttormsson og Guðrún
Agnarsdóttir flytja tillögu til þings-
ályktunar um bann við geimvopn-
um. Samkvæmt tillögunni ber ríkis-
stjóminni að styðja á alþjóðavett-
vangi bann við geimvopnum þar
sem miðað verði við: 1) að rann-
sóknir og tilraunir sem tengjast
hemaði í himingeimnum verði þeg-
ar stöðvaðar, 2) að hemaðarumsvif
og vopnakerfi í himingeimnum verði
bönnuð, 3) að óheimiluð verði smíði
vopna sem grandað geti gervihnött-
um sem tengjast friðsamlegri nýt-
ingu himinhvolfsins.