Morgunblaðið - 12.10.1988, Qupperneq 44
ii
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1988
KNATTSPYRNA
Guðmundur og unnusta hans Erla
Björk Guðjónsdóttir.
Skrífaði undir eins
ðrs samning
Guðmundur segir að andinn í
hinu nýja félagi sé mjöggóður, leik-
menn leggi sig alla fram um að
gera sitt besta. Sex nýir leikmenn
voru keyptir, þar á meðal ungversk-
ur landsliðsmaður, Laszllo Giymesi
frá Honved Budapest, og belgíski
landsliðsmaðurinn Gérard Plessers,
sem keyptur var frá Hamburger
SV í Þýskalandi.
Guðmundur skrifaði undir eins
árs samning hjá félaginu: „Til stóð,
að ég færi til Rapid Vín í vor; samn-
ingamir voru tilþúnir, og ég átti
bara eftir að skrifa undir. Svo kem-
ur sú staða upp, að þriðji útlending-
urinn hjá Vín, Júgóslavinn Stojad-
inovic sem ég átti að koma í stað-
inn fyrir, var ekki seldur til Espan-
ol Barcelona, eins og til stóð, heldur
ungur og óþekktur Austurríkismað-
ur. Allt skeði þetta á síðustu stundu.
„Síðan," heldur Guðmundur áfram,
„skrifaði ég undir eins árs samning
hjá Rc. Genk og er ég mjög ánægð-
ur með hann. Þama sést á þessum
unga Austurríkismanni hvað
heppnin hefur mikið að segja í
knattspymuleiknum.“
Þjálfari félagsins er Þjóðveijinn
Emst Kunnecke, sem hefur þjálfað
mörg félög, þar á meðal KV Mec-
helen, Standard, Basel í Sviss
o.s.frv. „Okkur kemur ágætlega
saman," segir Guðmundur um
þjálfarann „en það er þó stundum,
sem við emm ekki á sömu skoðun."
Guðmundur er bjartsýnn á gengi
félagsins í vetur: „Liðið er sterkt,
en samt vil ég vera varkár með
allar spár, vegna þess hvað erfitt
er að starta svona nýju liði. Við
emm með sterkt lið á pappímum
en í knattspymu getur allt gerst.“
„Betri og betrí
með hverjum leik“
Guðmundur fær góð ummæli í
belgískum blöðum, og sagði blaðið
„Het Laatste Nieuws" eftir leikinn
við Beveren nú á dögunum: „Hann
verður betri og betri með hveijum
leik.“ „í framhaldi af þessu með
blaðaskrif og umfjöllun fjölmiðla,
þá er maður óspart látinn heyra það
ef illa gengur. Kannski koma 3 eða ’
4 leikir í röð, þegar vel gengur, svo .
kemur einn ekkert sérstakur eða \
iélegur, þá er strax búið að gleyma
og grafa þetta góða.
En sem betur fer er blaða-
mennskan hér í Belgíu ekki eins og '
í Þýskalandi eða Italíu, þar sem S
slúðrið er alsráðandi og hægt að }
eyðileggja menn með einni setn-
ingu.
Annars spilar sjálfstraustið líka
mikið þama inn í og um að gera
þótt á móti blási að yfírvinna mót-
spymuna."
„Atvinnuknattspyman
ererfíð vinna“
Guðmundur segist sjálfur vera í
mjög góðu formi um þessar mund-
ir. „Allt er þetta bundið sjálfstraust-
inu, ef það er í lagi þá getur maður
sýnt hvað í honum býr, nú svo þarf
heilsan líka að vera 100%. Ef hún
er það ekki þá getur maður gleymt
þessu." Guðmundur segir að at-
vinnumennskan sé ekki bara gull
og grænir skógar eins og margir
halda: „Þetta er eins og hver önnur
Guðmundur Torfason sóst hér ð ferðlnni með knöttinn í iandsleik á Laugardalsvellinum.
O
,Sjálfs-
traust
skiptir
miklu
máli"
GUÐMUNDUR Torfason er
einn af þeim leikmönnum sem
verður í sviðsljósinu í Istanbul
í dag, þegar íslenska landsliðið
leikur sinn annan leik í undan-
keppni heimsmeistarakeppn-
innar. íslenska liðið gerði jafn-
tefli, 1:1, gegn Sovétmönnum
í fyrsta leiknum, en nú eru
mótherjarnirTyrkir. Guðmund-
ur kom til Istanbul frá Belgíu,
en þangað fór hann fyrir tveim-
ur árum ásamt unnustu sinni,
Erlu Björk Guðjónsdóttur, til
að leika með 1. deildarfélaginu
SK Beveren. Þar komst hann
að því eins og margir aðrir -
að atvinnumennskan er ekki
bara dans á rósum. Morgun-
blaðið heimsótti Guðmund rétt
áður en hann hélt til Tyrklands,
i núverandi heimabæ hans
Genk, sem er í héraðinu Limb-
urg.
Guðmundur lék með í fjórtán
af 34 leikjum Beveren á tíma-
bilinu 1986/87. Guðmundur segir
að mikil pressa sé á leikmönnum
er þeir koma til nýs
félags og þurfí þeir
helst að sýna topp-
leik í sínum fyrsta
leik. Þrýstingurinn
er enn meiri, sértu útlendingur.
Meiri kröfur eru gerðar en til ann-
arra leikmanna og þú ert undir
smásjá hjá hveijum einasta manni.
Þurftl að búa á hóteli
íQóramánuði
Það sem bætti ekki stöðu Guð-
mundar hjá Beveren voru aðstæð-
ur. Hann og Erla þurftu að búa á
hóteli í rúma fjóra mánuði á meðan
félagið var að fínna húsnæði handa
þeim. „Margt var gert til að reyna
að bijóta menn niður, en þá er það
sjálfstraustið sem skiptir mestu
máli og að vera nógu harður á móti.
Samt verða ungir menn, sem eru
að stíga sín fyrstu meistaraflokks-
spor, og ég tala nú ekki um, ef það
er í atvinnumennskunni, að kunna
að taka mótlæti. Ég veit það, ég
hengdi sjálfur haus þegar ég byij-
Bjami
Markússon
skrifarírá
Belgiu
aði í meistaraflokki og einhver af
eldri og reyndari leikmönnum var
kannski bara að leiðbeina manni til
hins góða. „Þegar maður er ungur,
heldur hann, að hann viti allt manna
best.“
Undir lok keppnistímabilsins
1986/87 stóð til að kaupa enn einn
útlending hjá Beveren, en fimm
voru þar fyrir.
Guðmundur óskaöi efftlr aö
fara frá Beveren
Bað Guðmundur þá um að fá að
fara, þrátt fyrir tveggja og hálfs
árs samning. Hann var seldur til
Winterslag, sem er lítill bær sem
liggur að Genk. Winterslag var í
fallbaráttu í fyrra en tókst undir
lokin að halda sér í fyrstu deildinni.
Til stóö að lýsa fólagiö
gjaldþrota
í vor voru svo umræður um að
sameina tvö félög Winterslag og
Waterschei, hið síðamefnda, sem
einnig er staðsett rétt fyrir utan
Genk, var um miðja aðra deild og
átti í fjárhagslegum örðugleikum.
Tii stóð að iýsa félagið gjaldþrota.
Þess má geta að Lárus Guðmunds-
son og Ragnar Margeirsson léku
báðir á sínum tíma með Waterschei.
Af þessari sameiningu varð svo
í sumar og eru það námufyrirtæki
í Genf og Genk-bær sem standa á
bakvið hana. Félagið heitir Racing
Genc. Til stendur að gera einn
glæsilegasta völl sem til verður í
Belgíu. Hann mun taka 30.00-
35.000 manns, þar af 20.000 í
sæti. Sérstakur matsölustaður verð-
ur í innbyggðri stúku þar sem gest-
ir geta fylgst með leikjum félagsins
í gegnum gler! Völlurinn verður
hálfpartinn byggður niður í jörðina,
og eiga sérstakir speglar að sjá um
að þótt sól skíni að engir skuggar
af stúku varpist á völlinn.
Þessi mannvirki eiga að kosta
um 400 milljónir belgískra franka
sem svara nú í dag til tæpra 480
milljóna ísl. króna. Aætlað er að
byija að leika á hinum nýja leik-
velli á tímabilinu 89/90.
I