Morgunblaðið - 23.10.1988, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988
*
Okunnur loftbelg-
ur barst að landi
Austfirðingar fengu óvenjulega sendingu af hafi þegar stóran
auglýsingaloftbelg bar að landi skammt frá Reyðarfirði. Ekki er
vitað hvaðan belgurinn kom.
Það var aðfaranótt fimmtudags
sem vegfarandi sá belginn veltast
við Qöruna í Finnafirði, undir Gunn-
ólfsvíkurfjalli. Vegfarandinn hafði
snör handtök, greip í spotta sem
hékk úr belginum og hnýtti hann
fastan við stein í ijöranni. „Belgur-
inn er vindillaga og á hann er letr-
uð auglýsing um Nissan-bfla,“ sagði
Rúnar Valsson, lögregluvarðstjóri á
Vopnafirði. „Hann var farinn að
tapa mjög lofthæð, en ég reikna
með að fullútblásinn sé hann um 7
metrar á lengd og 2lh í ummál.
Héma veit enginn hvaðan hann
hefur borið að.“
Tveir fótbrotn-
uðu í eltingaleik
TVEIR piltar á Vopnafirði gættu
ekki að sér við leik og fór svo að
þeir steyptust fram af skurðbakka
og fótbrotnuðu báðir.
Piltamir tveir voru við vinnu á
sfldarplani á fimmtudagskvöld. Þeir
voru að gantast í eltingaleik og hljóp
annar þeirra út í myrkrið og hinn á
eftir. Rétt við planið er verið að reisa
hús og féllu piltamir fram af þriggja
metra háum skurðbakka, niður með
húsvegg. Þeir fótbrotnuðu báðir.
Piltunum tókst að gera vart við
sig eftir nokkra stund, en í fyrstu
hélt fólk sem heyrði köll þeirra að
þeir væru enn að gera að gamni sínu.
Annasamt hjá lögreglu
MIKIL ölvun var í Reykjavík
aðfaranótt laugardags og hafði
lögreglan í mörgu að snúast.
Fangageymslur lögreglustöðvar-
innar við Hverfisgötu yfírfyllt-
ust.
Að sögn Jónasar Hallssonar, að-
alvarðstjóra, vom róstur í mið-
bænum og víðar og drykkjulæti
fram á morgun. Um kl. 7.30gær-
morgun þurftu lögreglumeíin*:*a
morgunvakt að hleypa mönnum úr
fangageymslum til að rýma fyrir
nýjum gestum, en það dugði ekki
til, heldur varð að setja þá sem
skást hegðuðu sér í stóran almenn-
ing. Engin kona var í þessum hópi.
Lögreglan varð fyrir nokkm að-
kasti í miðbænum og víðar um
bæinn. Þannig var algengt að hrækt
væri á lögreglu við skyldustörf.
Nokkrar rúður voru brotnar hér og
þar um bæinn.
Grænfriðungar í Vestur-Þýskalandi:
Vopnafiörður:
Nýsókngegn íslenskum
fiskafttrðum í undirbúningi
Morgunblaðið/Bjami
Tveir af eigendum Þóris Jó-
hannssonar, Matthías Ingi-
bergsson og Margrét Magnús-
dóttir, um borð í bátnum. Inn-
fellda myndin sýnir bátinn við
bryggju í Reykjavíkurhöfn.
Stelum ekki báti
sem við þegar eigum
- segir skipstjórinn á Þóri Jóhannssyni GK
„VIÐ STELUM ekki okkar eig-
in báti. Það er ekki rétt að við
höfiim laumast um borð í bátinn
á Skagaströnd, því nokkrir
menn firá útgerð bátsins unnu
við hann þar og bjuggu um
borð í honum,“ sagði Mattthías
Ingibergsson, skipstjóri og einn
af eigendum Þóris Jóhannsson-
ar GK, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Það er heldur ekki rétt að
báturinn hafi ekki nægilegan ör-
yggisbúnað því að um borð í hon-
um em til dæmis tveir björgunar-
bátar, slökkvibúnaðar, línubyssur
og ratsjá. Við höfum einnig sigl-
ingaleyfi. Áhöfnin var skráð um
leið og báturinn fór frá Skaga-
strönd og skipstjómarmennimir
em allir með réttindi.
Ég hef heldur ekki látið mér
detta í hug að við sleppum við
að greiða okkar skuldir á Skaga-
strönd með því að fara með bátinn
þaðan. Mánavör lofaði upphaflega
að skila bátnum um síðastliðin
áramót og við vomm orðnir
þreyttir á þessum seinagangi. Við
fórum því með bátinn til
Reykjavíkur, meðal annars til að
láta ganga frá frystibúnaði um
borð í honum,“ sagði Matthías.
ræðan fór af stað. Við vonuðum
að við gætum hætt við hana. En
nú verðum við að halda baráttu
okkar ótrauð áfram."
Hann sagði að herferðin í Banda-
ríkjunum og í Vestur-Þýskalandi
hefði borið árangur og vakið fyrir-
tæki í Bretlandi til umhugsunar.
„Hún hefur komið umræðu af stað
og nú er ljóst að talsvert margir á
íslandi em á okkar bandi. Umræðan
hlýtur því að halda áfram. Vonandi
verður hún til þess að hvalveiðar
verði bannaðar áður en það er um
seinan."
Grænfriðungar í Vestur-Þýska-
landi beina áróðri sínum gegn
íslenskum fískafurðum fyrst og
fremst til almennings. En samtökin
hafa einnig samband við fyrirtæki
og Puecschel sagði að fulltrúar
grænfriðunga hefðu átt fund með
ráðamönnum Tengelmann-fyrir-
tækisins fyrr á þessu ári. Verslun-
arkeðjan hætti að selja skjaldböku-
súpu fyrir nokkmm árum þegar
grænfriðungar börðust fyrir friðun
skjaldbakna og ákvað í fyrri viku
að hætta að versla með vömr Sölu-
stofnunar lagmetis.
Vestur-Þjóðveijar verða æ með-
vitaðri um umhverfið og náttúm-
vemd. í nýlegri könnun nefndu 50%
aðspurðra áhrif vöm á umhverfið
sem einn þátt í vömvali sfnu. Fyrir
þremur ámm sögðu aðeins 28%
aðspurðra að umhverfisáhrif vöm
skiptu þá máli við innkaupin.
Heimsbikarmótið í skák:
Sigurganga Jóhanns stóijók aðsókn
„ÞAÐ ER skemmst frá því að segja að þetta hefiir tekist allt
með miklum ágætum,“ sagði Páll Magnússon fréttastjóri Stöðvar
tvö þegar Morgunblaðið spurði hann hvemig honum þætti hafa
til tekist með Heimsbikarmótið í skák. Mótinu lýkur annað kvöld.
Páll sagði aðsókn áhorfenda hafia aukist mjög í síðari umferðum
mótsins og greinilega væri mikil stemmning í kring um vel-
gengni Jóhanns Hjartarsonar. Aðsóknin náði meti á föstudag, en
þá komu um þúsund áhorfendur að fylgjast með viðureignum
stórmeistaranna.
Páll sagði mótshaldið hafa
gengið fullkomlega hnökralaust,
ef undan er skilin deila milli fram-
leiðanda og eiganda tölvuskák-
borðanna sem notuð voru í byij-
un. Því máli Iyktaði svo, að Stöð
tvö keypti ný skákborð og voru
þau sett upp á milli umferða og
trufluðu á engan hátt mótshaldið.
Heimsmótið hefur vakið mikla
athygli bæði hér á landi og erlend-
is. Páll sagði að yfír 150 fjölmiðl-
ar úti um allan heim fái reglulega
fréttir .af mótinu. Það hefur sýnt
sig, sagði Páll, að hægt er að
gera skák að spennandi sjón-
varpsefni, eins og vísbendingar
komu um í beinum útsendingum
frá einvígi Jóhanns og Kortsnojs
í ársbyijun. Nú væri full vissa
fyrir því, að þetta er hægt.
„Aðsóknin héma heima hefur
farið fram úr öllum áætlunum sem
við gerðum," sagði Páll. Hann
kvað hafa komið fæst um 300
áhorfendur, en venjulega væm
þeir á bilinu 800 til 900, síðan
hafi aðsóknin slegið öll met á
föstudag þegar um þúsund nianns
komu. að horfa á skákimar og
hlýða á skákmeistara útskýra
gang einstakra viðureigna. Áð-
sókn jókst verulega þegar Jóhann
Hjartarson og Kasparov fóm að
taka endaspretti sína. Páll sagði
áhorfendur vera úr öllum áttum.
Þama væri hinn harði kjarni eld-
heitra áhugamanna sem fylgist
með öllum mótum, um 50 manns,
síðan væri fólkið úr öllum áttum,
ungir sem gamlir.
Páll sagði ekki endanlega ljóst
hvemig fjárhagsdæmið gengur
upp, en flest benti þó til þess að
áætlanir muni standast.
Sjá einnig skákþátt á bls. 23.
zarich, trá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgrinblaðsins.
GRÆNFRIÐUNGAR í Vestur-Þýskalandi munu nú halda baráttu
sinni fjrir kaupbanni á íslenskar sjávarafiirðir áfram efitir að ríkis-
stjórn íslands ákvað að breyta ekki um stefinu í hvalamálinu. „Við
vonuðum að ríkisstjórnin samþykkti að banna hvalveiðar á næsta ári
á fiindi sínum á fimmtudag," sagði Peter Puecschel, talsmaður nátt-
úruverndarsamtakanna í Hamborg. „Við erum vonsvikin en munum
ákveða næstu daga hveraig við liöldum baráttu okkar áfram.“
Puecschel sagðist hafa fylgst ferð fyrir kaupbanni á íslenskar
náið með umræðunni á íslandi í sjávarafurðir í undirbúningi en
vikunni. „Við emm með nýja her- lögðum Hana á hilluna þegar um-
MorgunblaðiO/tijami
Fréttir breyta um svip
Fréttir Ríkissjónvarpsins
breyta um svip í kvöld. Ný sviðs-
mynd verður tekin í notkun í
fyrsta Kastljósþætti vetrarins,
sem hefst klukkan 19.30. Frétt-
imar era sendar út frá fréttastof-
unni, sem er á 4. hæð sjónvarps-
hússins við Laugaveg. Sjónvarps-
menn vora að leggja lokahönd á
undirbúning þáttarins í gærmorg-
un.