Morgunblaðið - 23.10.1988, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988
5
A næstunni mun Ferðaskrifstofan Utsýn kynna tilboð sem ekki
eiga sér hliðstæðu á íslenskum ferðamarkaði. Með nýjum
straumum gefum við enn á ný tóninn í ferðalög íslendinga og
hefjum nú leikinn . . .
Hálíd í Heidelberg
4. des. - 4 dagar, verð kr. 19.400."
Heidelberg. |jeswi draumaborg fjölda íslendinga í
Þýskalandi þar sem menning. mannlíf og verslun
myndar einstakt andrúmsloft, í fylgd með íslenskum
lararstjóra.
- Króbærtað versla á Ilauptslrasse, lengstu göngugölu
l*ýskalands.
- Slcrnningin á stúdentakrúnum er mörgum enn í
lersku ntinnl sem (óru meðokkur til Heídelbergsíðustu
sumur.
- Gamli ba'rinn með hallarrústunum myndar einstaka
umgjörð enda er Heidclbcrg ncfnd römantfskasla borg
Kýskalands.
I'lng frá Kcflavík kl. 0.00 að morgni og lenl i Krankfurt
kl. 12:25. Ekið er frá Krankfurt til Heidelberg með
Útsýnamilu og gist á afbragðs bóteli, flollandcr Hof. í
miðbæ Heidclberg.
Tækifæri í Trier
19. nóv. - 4 dagar, vcrð kr. töjyMML-
Kjögurra daga lúxusferð lil Trler þar sem gist er á hinu
frábæra Dorinl hóteli sem staðsctl er hjá Porta Nigra.
hinu fræga rómverska borgarhliðl.
-Tricr, þessi lagra borg við Mosel, hcfur unnið hug og
hjörtu niargra íslcndinga f gcgnum árin.
- Tricr cr einstök vcrslunarborg og hefur uppá fjölria
vciLingastaðá að bjóða.
- Dorinl hótclið er glæsilcgt hótcl með cigin
veitingastöðum og jafnvel eigln spilavíli.
Lagl af stað kl. 7:15 frá Keflavík lil Lúxemborgar,
|jaðan sem ekið er með Útsýnarrútu tll Trier i
P»ýskalandi. llm hádegisbil, þriðjudaginn 22. nóvember
er lagt af stað aflur lil íslands.
UTSYN
Ferðasbifstofan Ftsýn hf
■
wmm
Álfabakka 16, 109 Reykjavík, sími: 91-603060 • Austurstræti 17, 101 Reykjavík, sími: 91-26611
Undirbúningur íyrir Miss World hafin:
Keppnin verdur
örugglega hörð
-segir Linda Pétursdóttir
LINDA Pétursdóttir, fegurðar-
drottning íslands 1988, er nú að
undirbúa sig fyrir Miss World
keppnina. Linda fer í næstu viku,
fyrst til London, en síðan til
Costa del Sol á Spáni þar sem
keppendur frá 87 löndum búa sig
undir keppnina í 10 daga. Að því
loknu tekur við önnur 10 daga
lota í London en þar fer úrslita-
keppnin fram 17. nóvember
næstkomandi.
„Ég er ekki farin að kvíða fyrir
keppninni ennþá en ég verð sjálf-
sagt farin að finna fiðring í næstu
viku,“ sagði Linda við Morgun-
blaðið í vikunni. „Þetta leggst bara
vel í mig þótt samkeppnin verði
örugglega hörð þar sem aldrei hafa
verið jafn margir keppendur og
núna, eða 87,“ bætti hún við.
Linda sagði að hún hefði verið
að búa sig undir Miss World keppn-
ina í allt sumar, bæði stundað
líkamsrækt af kappi og einnig sank-
að að sér fatnaði. „Eg verð úti í
þijár vikur og ég get helst aldrei
verið í sömu fötunum tvisvar, þann-
ig að ég hef verið að útvega mér
föt til að vera í með öllum fylgihlut-
um og það hefur tekið talsverðan
tírna," sagði Linda Pétursdóttir.
Morgunblaðið/Bjarni
Linda hefúr stundað líkamsrækt
af kappi í sumar til að vera sem
best undir keppnina búin.
Ragnarsbak-
arí enn lokað
Keflavík.
NIÐURSTAÐA hefiir enn ekki
fengist á málum Ragnarsbakarís
í Keflavík sem var lokað á mánu-
dag og allir starfsmennirnir sem
eru um 50 voru sendir heim.
Bakaríið er enn lokað og nú hef-
ur rafinagnið verið tekið af hús-
inu vegna vanskila. „Þetta er
alvarlegt mál og við erum að
vinna að því að fólkið fái greidd
laun um mánaðamótin,“ sagði
Magnús Gíslason hjá Verslunar-
mannafélagi Suðurnesja í gær.
Sem kunnugt er var Ragnars-
bakarí tekið til gjaldþrotaskipta
fyrir rúmu ári og þá selt Ávöxtun
sf. í Reykjavík sem síðan seldi bak-
aríið Björgvini Víglundssyni úr
Reykjavík. Hann stöðvaði síðan
reksturinn á mánudag þar sem
hann taldi eignastöðu sína það
óljósa að ekki væri hægt að halda
rekstrinum áfram. Starfsfólk bak-
arísins sem eru félagar í Verslunar-
mannafélagi Suðumesja fundaði í
gær um stöðu mála og þar var
ákveðið að bíða átekta fram yfir
helgi. Björgvin Víglundsson kom á
fundinn og upplýsti að hann hefði
sent inn riftun á samningi sínum
við Ávöxtun sf.
Bústjóri þrotabús Ragnarsbak-
arís og Ávöxtunar sf. hafa fundað
undanfama daga vegna þessa máls
sem er allt hið flóknasta. Eftir að
Ávöxtun sf. keypti Ragnarsbakarí
var stofnað nýtt fyrirtæki um rekst-
urinn sem hét Brauðgerð Suður-
nesja og Björgvin stofnaði síðan
Suðumesjabakarí þegar hann tók
við rekstrinum, en þessi fyrirtæki
seldu framleiðsluna undir merki
Ragnarsbakarís.
BB
Mezzoforte
íHeita
pottinum
HLJÓMSVEITIN Mezzo-
forte heldur tónleika í
kvöld, sunnudagskvöld í
Heita pottinum á Duus. Ell-
en Kristjánsdóttir söngkona
mun syngja nokkur lög með
hljómsveitinni.
Tónleikarnir hefjast kl.
22.00. Á efnisskránni em
gömul og ný jazzlög.