Morgunblaðið - 23.10.1988, Page 27

Morgunblaðið - 23.10.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988 27 kerfí. Verð er t.d. gefið upp í fískum og fískvættum árið 1619 og hundr- uðum físka 1684 og 1702. Árið 1776 eru peningaviðskipti orðin al- gengari og verð er uppgefið í ríkis- dölum og skildingum. Tæpast er gerlegt að framreikna bjórverðið eftir einhverri vísitölu til nútíma- verðlags. Það verður því að leita annarra leiða s.s. miða við fískverð í dag eða reikna út hlutfall milli bjórs og annarrar vöru í verðlagst- öxtunum, t.d. smjörs. Slíkir útreikningar geta orðið nokkuð flóknir og margbrotnir og við mat á þeim verður að hafa ýmislegt í huga. Mettuð feiti virðist vera í minni metum en áður var; í dag kostar kílógrammið af smjöri 378 krónur í smásölu. Af þessu leið- ir að ef miðað er við smjör, verður „mögulegt og kristilegt" verð til- tölulega lágt en hærra ef mið er tekið af físki. Reglu- og bindindis- samur fræðimaður sagði blaða- manni Morgunblaðsins að eðlilegra væri að miða við físk. En þá kemur það vandamál til sögunnar að verk- reikniforsendur. Ef við miðum við 120 potta í tunnu, drögum tunnuverðið frá og umreiknum danskan bjór til fiska; verður niðurstaðan sú að 1 lítri er jafn virði '/4 hluta af gildum físki. Ef fískurinn er metinn á núvirði skreiðar verður lítraverðið 138,75 kr. Aftur á móti ef miðað er við smjör verður niðurstaðan 23,62 krónur. Það má e.t.v. segja að þetta séu vafasamir útreikningar þar eð óvissuþættir er æðimargir og það verður að ítreka að ofangreint er til vitnis um hvað Ari sýslumaður taldi rétt og sanngjamt, það er hugsanlegt að sýslumaðurinn hafí verið hallur undir „neytendasjónar- mið“. — Allavega, yfírvöldin í Kaup- mannahöfn töldu þörf á því að setja niður þessar deilur um verðlagsmál- in og voru því sett nánari verðlags- ákvæði. Vörutaxtar eða kaupsetn- ingar vom útgefnar árin 1619, 1684, 1702 og 1776. í þessum kaupsetningum er m.a. getið um bjórtegundir og þær verðlagðar. Tunna fyrir „vota vöru" var talin 136 pottar. Einn fjórðungur (u.þ.b. 5 kg) smjörs var metinn á 15 fiska. Sumum kann að þykja verðið á 4- dala-öli í hærra lagi; á núvirði kostar 1 lítri 530,51 krónur ef miðað er við skreiðina. Aftur á móti ef miðað er við smjörið kostar lítrinn 90,33 krónur. Nú má geta þess að íslendingum fannst kaupsetningin 1684 vera óhagstæð svo ekki sé fastar að orði kveðið. Þeir fengu því framgengt að nýr taxti var settur árið 1702. Verðlag breyttist nokkuð en verð á bjómum var þó óbreytt. Smjörverð hækkaði lítillega í 16 fiska fyrir fjórðung smjörs. Arið 1776 var verslunartaxtan- um enn breytt verulega. Gamlar mælieiningar aflagðar og verð gefíð upp í ríkisdölum og skildingum. Þrátt fyrir að dregið hafi verulega úr ölneyslu íslendinga er öls getið í taxtanum. 4-dala-öl með tunnu kostaði 4 ríkisdali og 32 skildinga. Tunnan sjálf kostaði 1 ríkisdal og 33 skildinga. Einn pottur af 4-dala- Bindindismenn eða óánægðir neytendurV un físks á sautjándu og átjándu öld var ekki fullkomlega sambærileg við það sem nú tíðkast. Þó hefur sá kostur verið tekinn að samlíkja „gildum físki" landsmanna á sautj- ándu og átjándu öld við vel verkaða Ítalíuskreið í dag. Samkvæmt upp- lýsingum frá Skreiðarsamlaginu mun meðalverð vera um 555 krónur á kílógrammið. Af fyrrgreindu leiðir að útreikn- ingar hljóta að verða óvissir, en samt sem áður er hugsanlegt að þeir geti orðið nútímamönnum til nokkurrar leiðsagnar í leitinni að „mögulegu og kristilegu verði“, eins og segir í einokunartilskipun Krist- jáns fjórða frá 1602. í tilskipuninni segir einnig að kaupmenn megi ekki hækka vöru- verð að eigin vild heldur taka mið af gömlum landsvana. Til marks um hvað hefur verið talið sann- gjarnt verð má geta þess að árið 1615 taldi Ari Magnússon sýslu- maður ísfírðinga þörf á því að skylda kaupmenn til „að gera öllum og sérhverjum möguleg kristileg kaup eftir gömlu lagi sem gamlar kaupsetningar upp á hlýða". Ari sýslumaður setti svo verðlagsskrá og í henni segir m.a: „Tunnu með ómeingað Sunstöl uppá U/2 vætt. Tunnu með danskan bjór uppá vætt.“ Tóm bjórtunna var metin á tvo ijórðunga og til fróðleiks og saman- burðar má geta þess að Ari verð- lagði brennivínskút sem tekur 12 merkur uppá V2 vætt og messuvíns- áttunginn eins. En af íslenskri vöru má nefna að hann mat 2 fjórðunga smjörs uppá vætt og „35 blautir fiskar uppá vætt, svo að gildingu, að 30 harðir séu uppá vætt“. l>að er túlkunaratriði hvað Ari er að meina með talningu fiska í vættina. En venja er að telja 40 gilda físka í vætt, ein vætt var 8 fjórðungar, 80 pund, 40 kg. Einn gildur fískur þurrkaður var því 1 kg. í þessari grein er miðað við þær í taxtanum frá 1619 gat verð á sömu vöru verið mismunandi eftir því á hvaða kjörum var verslað. Svonefnd „hundraðakaup" sem var nokkurs konar heildsöluverð þess tíma, eða allavega verð með mjög miklum afslætti. „Einkaup" sem var venjulegt smásöluverð. Einnig var gerður greinarmunur á því hvort greitt var í físki (fiskreikning- ur) eða landbúnaðarafurðum (pijónles- og sauðareikningur). I kaupsetningunni 1619 er verð gefíð upp í þurrum fískum. í taxtanum er í einkaupi 1 tunna af góðu skildings-öli metin á 70 físka í fiskreikningi og 80 físka í prjónles- og sauðareikningi. 1 tunna af tvísterku öli (Dobbelt eða danskt öl) var metin á 50 fiska í fískreikn- ingi en 55 físka ef greitt var fyrir í landbúnaðarvörum. Ekki er gefíð upp verð á umbúð- unum þ.e.a.s. á tómum tunnum; því verður að ætla að eingöngu sé mið- að við innihaldið en ef svo er ekki kemur umbúðaverðið fram í út- reikningum greinarhöfundar og ölið verður nokkru dýrara en ella. Gert er ráð fyrir að 120 pottar séu í tunnunni. Lítri af skildingsöli í ein- kaupi og fískreikningi reyndist kosta 0,58 fiska._ Þ.e.a.s. 323,75 krónur á núvirði Ítalíuskreiðar. Ef miðað er við smjör er niðurstaðan 55,12 krónur. Taxtinn 1684 gefur eingöngu upp verð í einkaupi, þ.e. venjulegu smásöluverði. Gerður greinarmunur á því hvort greitt er í físki eða land- búnaðarafurðum. Verðlagt er í hundruðum fiska og verður að ætla að þar sé miðað við stórt hundrað, þ.e.a.s. 120 fiskar í hundraði. 1 tunna af 4-dala-öli er á 1 hundrað og 35 físka í fiskreikningi og 1 hundrað 55 fiska í prjónlesreikn- ingi. Umbúðimar, þ.e.a.s. öltunnan sjálf, voru taldar kosta í fiskreikn- ingi 25 fiska og 27 í pijónlesreikn- ingi. Sem fyrr voru 40 fískar taldir í vætt og þijár vættir í hundraði. ölinu kostaði 2V2 skilding. Til sam- anburðar má geta þess að 1 lýsis- pund (8 kg) af nýju ósöltuðu smjöri vel hreinsuðu var verðlagt á 84 skildinga. En 1 skipspund eða 20 lýsispund (160 kg) af stórum og meðalflötum hörðum físki á 7 ríkis- dali og 18 skildinga. Hér er ekki fullvíst hve stór öl- tunnan á að vera. í taxtanum er talað um komtunnu sem skyldi vera 144 pottar, lýsistunnu 136 pottar og tjörutunnu 120 pottar. Ef miðað er við verðið á stökkum potti og hertur fískur talinn jafn- gilda Ítalíuskreið verður niðurstað- an sú að lítri af 4-dala-öli ætti að kosta 321,74 krónur. — Nú vill svo heppilega til að kaupskráin 1776 getur um verð á saltfiski. Ef hann er talinn jafngilda velverkuðum saltfíski í dag sem kostar miðað við tollgengi októbermánaðar 1988 og upplýsingar frá Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda, 289,56 kr./kg, verður niðurstaðan sú að ' lítrinn af 4-dala-ölinu ætti að kosta 167,86 krónur. Ef mið er tekið af smjöri verður verðið á ölinu 90 krónur lítrinn. Af ofanrituðu má vera ljóst, að sögulegur vitnisburður leysir ekki allan vanda verðlagsnefndarinnar þar eð óvissuþættir eru ærið marg- ir. Nefndin verður í væntanlegum útreikningum að taka afstöðu til ótal álitamála en viðleitni genginna kynslóða til að fínna „mögulegt og kristilegt verð“ getur samt e.t.v. orðið henni nokkur leiðsögn. Texti: PLE Eins og fram kemur í greininni eru verðlags- forsendur og útreikningar ekki auðveld við- ureignar og reikningar ekki skýrðir nema að mjög takmörkuðu leyti, en þeim blaðales- endum sem vilja kynna sér málið nánar er bent á bækumar Upp er boðið fsaland eftir Glsla Gunnarsson og Einokunarverslun Dana & fslandi eftir J6n J. Aðils. Kaupsetn- ingar má finna I Lovsamling for Island og einnig er fróðlegt að athuga Alþingisbækur fslands. r FLUGLEIÐIR Lþúflýg^.. 1 í helgaríerð 1 Rugleið^ tii Kauf a^af0 BROTTFÖR áfimmtudögum, föstudögum eða laugardögum. Dvaliðeríeina, tvær, eða þrjár nætur. Verð frá kr. 14.900 ■ EIN NÓTT, 15.900 II TVÆR NÆTUR, 16.900 ÞRJÁR NÆTUR. Fyrir 10 krónur gefst far- þegum kostur á ferð með skíðabát til Malmö í Svíþjóð, en þar eru verslan- irm.a.opnar ásunnudögumfrá kl. 11.00-16.00. Munið að söluskattur af varningi er endurgreiddur á Kastrupflugvelli á heimlelð gegn „TAX-FREE" kvittun. AUarnánari upplýsingar gefa söluskrífstofur F/ugleiða í síma 25100 og ferðaskrifstofurnar. *Gisting með morgunmat á Hotel Absalon og dvalið aðfaranótt sunnudags.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.