Morgunblaðið - 23.10.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988
29
þekktra merkja í hundruðum verslana um land allt.
FJÖLMÖRG KYNNINGARTILBOÐ í verslunum.
VÖRUSÝNING Á HOLIDAY INN.
Vörusýning og ferðakynning alla vikuna.
Einnig finnskur matur.
aniííiOSi
FINNWEAR
LEIJONA
LUHTA
FINNWEAR
T ónlistarhátíð ungra
norrænna einleikara
Átta tónleikar á fímm dögum
Konur
sem reka lítil fyrirtæki eða
hyggjast stofna fyrirtæki:.
Námskeiðið Stofnun og rekstur fyrir-
tækja verður haldið 30.okt.-5. nóv.
Meðal efnis: frumkvöðullinn, stofnáætlun,
markaðsmál, fjármál, form
fyrirtækja og reiknisskil.
Námskeiðið fer fram í kennslusal
Iðntæknistof nunar í Keldnaholi.
Þátttaka tilkynnist í síma 687000.
nlÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS
rekstrartæknisvið.
BARNA
KULDASKÓR
Litir: Rautt - bleikt -
grænt - dökkblátt
Stærðir: 24-28
Verð: 2.485.-
Vatnsheldir
SMÁSKÓR,
Skólavörðustíg 6b
Póstsendum. Sími622812.
FIMMTI tvíæringurinn fyrir
unga norræna einleikara verð-
ur haldinn í Reykjavík dagana
25.-29. október. Þetta er í
fyrsta sinn sem tvíæringurinn
er haldinn í Reykjavík, en frá
1980 hefur hann verið haldinn
á tveggja ára fresti, fyrst í
Kaupmannahöfn, þá Stokk-
hólmi, Osló og Helsinki. Átta
ungir einleikarar koma fram á
hátíðinni og er Áshildur Har-
aldsdóttir, flautuleikari, fuUtrúi
íslands
Frá hinum Norðurlöndunum
koma Leif Ove Andsnes, píanóleik-
ari frá Noregi, Michaela Fukacová
Christensen, sellóleikari og Geir
Draugsvoll, harmoníkuleikari frá
Danmörku, Jan-Erik Gustafsson,
sellóleikari frá Finnlandi og And-
ers Kilström, píanóleikari, Dan
Laurin, blokkflautuleikari og Olle
Persson, barítonsöngvari frá
Svíþjóð.
Það er Tónlistarháskólaráð
Norðurlanda sem stendur á bak
við hátíðina, en um framkvæmd
hennar hérlendis sér Tónlistarskól-
inn í Reykjavík. Jón Nordal, skóla-
stjóri Tónlistarskólans sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að tvíær-
ingnum hefði verið komið á fót til
þess að koma ungum einleikurum
á framfæri og væru margir þeirra
er þar hefðu komið fram nú orðn-
ir heimsþekktir einleikarar. Frá
íslandi hefðu þátttakendur í fyrri
hátíðum verið Manuela Wiesler og
Einar Jóhannesson á þeirri fyrstu,
Sigríður Vilhjálmsdóttir á annari,
Þorsteinn Gauti Sigurðsson á
þeirri þriðju og Sigrún Eðvalds-
dóttir á §órðu.
Jón sagði að kalla mætti tónlist-
arhátíðina litla listahátíð, þar yrðu
flutt mörg stærstu verk sem til
væru fyrir viðkomandi hljóðfæri
auk frumflutnings verka. Einleik-
aramir væru valdir með árs fyrir-
Litir: Bleikir m/grænu -
fjólubláir m/svörtu -
brúnir - svartir
Stærðir: 20-35
Verð: frá kr. 1.985.-
Áshildur Leif Ove
Jan-Erik
Michaela
INNSK VIKA
71-29. OK1ÓBER1988
-hi-o/THv msa aÉ'env
vara og fengju sjálfír að ráða verk-
unum sem þeir léku. Síðan þátt-
takendumir hefðu verið valdir
hefðu Leif Ove Andsnes, píanóleik-
ari og Jan-Erik Gustafsson, selló-
leikari vakið mikla athygli í hei-
malöndum sínum og víðar og Gu-
stafsson m.a. unnið verðlaun í
keppni útvarpsstöðva í Evrópu.
Allir þátttakendumir væm mjög
færir og þetta væri rjóminn af
ungum einleikurum Norðurlanda.
Hver einleikari kemur fram á
tvennum tónleikum, einu sinni með
Sinfóníuhljómsveit íslands og
síðan á einleikstónleikum, ýmist
einir eða með meðleikara. Meðleik-
ari Áshildar Haraldsdóttur er
Anna M. Magnúsdóttir semballeik-
ari, Mats Jansson leikur undir hjá
Olle Persson, Arto Satukangas er
meðleikari Jan-Eriks Gustafssons
og með Michaelu Fukacová Christ-
ensen leikur Bohumila Jedlickova.
í tengslum við tónlistarhátíðina
verður haldin ráðstefna um hvem-
ig best sé að koma ungum einlei-
kumm á framfæri og þar verða,
að sögn Jóns Nordal, samankomn-
ir margir lykilmenn í tónlistarmál-
um Norðurlanda.
Jón sagðist vilja hvetja fólk til
að sækja tónleikana, miðaverði
væri mjög stillt í hóf og það ríkti
alltaf sérlega ferskur andi á tón-
leikum svona ungs fólks sem væri
að byija sinn feril. Jón sagði það
mikinn feng fyrir íslenskt tónlist-
arlíf að fá þessa hátíð auk þess
sem þetta væri góður samanburð-
ur fyrir íslenska tónlistamema þar
sem sumir einleikaranna á hátí-
ðinni hefðu enn ekki lokið prófí.
Fyrstu tónleikamir verða í ís-
lensku ópemnni 25. október, og
síðan verða tónleikar á hveijum
degi, stundum tvisvar á dag, ýmist
í Norræna húsinu, Háskólabíói,
íslensku ópemnni eða Listasafni
íslands.
Anders
OUe Persson
Geir
Dan Laurin