Morgunblaðið - 23.10.1988, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988
33
Gjöftil Víðimýrarsafiiaðar
Lars Hansen
Lars Hansen
dýralæknir
físksjúkdóma
LARS Hansen dýralæknir hefur
verið settur dýralæknir Ssksjúk-
dóma frá 1. september siðastlið-
inn i eins árs leyfi Árna Sv. Mat-
hiesen. Árni hefiir tekið til starfa
sem framkvæmdastjóri nýstofii-
aðs fiskeldisfyrirtækis, Faxalax
hf., sem verður með sjókviaeldi
við Reykjanes.
Lars nam dýralækningar í Kaup-
mannahöfn og lauk prófi í árslok
1984 og lærði síðar fisksjúkdóma-
fræði í Skotlandi. Hann hefur starf-
að við afleysingar héraðsdýralækna
og sem deildarstjóri í útibúi Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins i
Neskaupstað. Síðastliðið ár hefur
hann starfað sem aðstoðardýra-
læknir fisksjúkdóma með Áma Sv.
Mathiesen. Lars er þrítugur að
aldri, ókvæntur.
Fyrirlestr-
ar um eld-
fjallafræði
GEORGE Walker, prófessor í
eldflallafræði við Hawaii-
háskóla, heldur fyrirlestur
klukkan 14 á sunnudag í Odda,
stofu 101, og annan fyrirlestur
á miðvikudagskvöldið 26. októ-
ber klukkan 20, á sama stað.
Walker verður veitt heiðurs-
doktorsnafiibót við útskrift í
Háskóla íslands í dag, laugar-
dag.
í fyrri fyrirlestrinum heldur
Walker tvö erindi sem nefnast:
EldQallafræði heita reitsins á
Hawaii-eyjum, og Eldfjallafræði
Taupo-eldstöðvarinnar á Nýja Sjál-
andi.
í fyrirlestrinum á miðvikudags-
kvöld heldur Walker einnig tvö
erindi: Nýjar athuganir á hraun-
lögum, og Ráðgátan um flikru-
berg. Fyrirlestramir verða haldnir
á ensku.
George Walker vann brautryðj-
endastarf í kortlagningu og rann-
sóknum á jarðfræði Austurlands á
6. og 7. áratugnum. Surtseyjargos-
ið vakti áhuga hans á eldfjalla-
fræði og hann er nú einn virtasti
vísindamaður heims á því sviði.
VÍÐIMÝRARSÖFNUÐI hefur bo-
rist gjöf frá frá Þorgrími Jóns-
syni frá Ytri-Húsabakka f Skaga-
firði, en hann lést 2. maf 1986 og
var jarðsettur f Víðimýrarkirkju-
garði. Gjöfina gaf hann til minn-
ingar um móður sfna, Filippíu
Konráðsdóttur, sem andaðist 13.
mars 1919 og hvfiir f Víðimýrar-
kirkjugarði.
Þorgrímur Jónsson, sem var
fæddur 18. september 1914, gaf
Víðimýrarsöfnuði spariskírteini
ríkissjóðs að nafnverði 375 þúsund
krónur. í gjafabréfí óskar hann eftir
að fénu verði varið til kirkjubygging-
ar í Víðimýrarsókn, en spariskírtein-
in verða ekki tekin til notkunar fyrr
enþaufallatilinnlausnarárið2000.
I bréfi sem Morgunblaðinu hefur
borist frá Gunnari Gunnarssyni,
formanni Sóknamefndar Víðimýrar-
sóknar, eru færðar dýrar þakkir fyr-
ir gjöf þessa.
o
~cr
TOYOTA
VETRARSKOÐUN
Nú er tækifærið fyrir Toyota eigendur að láta okkur gera allt klárt fyrir frosthörkurnar!
Þjónustuaðilar Toyota um allt land eru tilbúnir að taka á móti þér!
Fast gjald kr. 6.082*. - Innifalið:
11 Mótorþvottur
® Skipt um kerti
® Skipt um platínur
(ekki EFi - TCCS)
Skipt um bensfnsíu
(ekki EFi)
Skipt um loftsíu
® Ath. blöndung (ekki EFi)
® Mótorstilling
a
®
® Ath. viftureim
® Mæla hleöslu
® Hreinsa og smyrja
rafgeymispóla
® Ath. þurrkur og rúöu-
sprautur og setja á ísvara
® Ath. öll Ijós
® Ljósastilling
® Mæla frostþol kælivökva
* Gildir frá 1. okt. til 20. des.
® Bætt á frostlegi
® Ath. fjaörabúnað, stýrisbúnaö,
virkni hemla og púströr
® Stilla kúplingu
® Smyrja hurðarlæsingar og lamir
® Mæla og jafna loft í dekkjum
® Ath. oltu á vél, gírkassa og drifum
® Bera sílikon á þéttikanta
B Reynsluakstur
TOYOTA
Gunnar Asgeirsson hf.
. .SUÐURLANDSBRAUT 16...