Morgunblaðið - 23.10.1988, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988
41
h
Ham hefði fengið mikla fjármuni
gæti félagið einfaldlega ekki fengið
þá leikmenn til sín sem þeir hefðu
áhuga á því þeir vilja einungis fara
til hinna „sex stóru“. Þetta væri
þróunin í Englandi og henni yrði
ekki breytt.
íslensk knattspyrna
í stöðugri sókn
„Ég vissi því miður ekki mikið
um íslenska knattspymu áður en
ég kom hingað til lands á dögunum,
en er nú margs vísari eftir dvöl
mína hér,“ sagði Moore þegar um-
ræðan beindist að íslenskri knatt-
spymu. „En ég veit að mjög góður
árangur íslenska landsliðsins hefur
vakið verðskuldaða athygli og þá
sérstaklega jafnteflið gegn Sov-
étríkjunum í undankeppni heims-
meistarakeppninnar, en þeir hafa á
að skipa einu albesta landsliði heims
í dag. Því er heldur ekki að leyna
að flest landslið, sem koma hingað
til að leika gegn Íslendingum, þykj-
ast góð að ná öðru stiginu í viður-
eign sinni við þá, og þetta undir-
strikar styrkleika landsliðs ykkar.
Þá veit ég að þið eigið knattspymu-
menn í fremstu röð sem leika með
félagsliðum á meginlandi Evrópu,
m.a. í Vestur-Þýskalandi og Belgíu.
Á uppskeruhátíðinni í Broadway
hitti ég þá Ian Ross og Frank Up-
ton, sem þjálfa lið hér á íslandi,
og voru þeir báðir á einu máli um
það að knattspyman hér á Islandi
væri í stöðugri framför og nefndu
þeir meðal annars góðan sigur Vals
gegn meistaraliði Mónakó. En það
sem vakti mikla athygli mína á
uppskemhátíðinni þegar ég ræddi
við íslendinga þar, var hversu gífur-
legan áhuga þeir hafa á knattspyrn-
unni í Englandi og er hún greini-
lega mjög vinsæl hér á landi. Sum-
ir sem ég ræddi við virtust vita
meira en ég, og er þá mikið sagt.“
Höldum enn tengslum
Bobby Moore sagði að leikmenn-
imir úr sigurliði Englendinga frá
1966 héldu enn vissum tengslum
sín á milli og hefðu þeir m.a. leikið
góðgerðaleik fyrir nokkram áram í
Þýskalandi gegn liði Þjóðveija úr '
úrslitaleiknum 1966.
„Það era aðeins tveir úr liðinu
sem era enn í knattspymunni, en
það eru þeir Jackie Charlton, sem
er landsliðsþjálfari íra, og Alan
Ball, sem er framkvæmdastjóri hjá
Portsmouth. Gordon Banks býr í
Stoke og vinnur hjá markaðsfyrir-
tæki í Leicester-skíri og er hann
eitthvað viðloðandi markmanns-
þjálfun að ég held hjá Aston Villa.
Geoff Hurst og Martin Peters starfa
hjá sama tryggingafélaginu í Essex
og koma hvergi nærri knattspyrnu
og ég veit að George Cohen rekur
eigið framleiðslufyrirtæki í Loridon.
Sjálfur starfa ég hjá fyrirtæki sem
heitir Blue Arrow, sem er ráðgjafa-
fyrirtæki er sérhæfir sig í að skipu-
leggja fyrir einstaklinga og hópa
m.a. ferðir á hin ýmsu íþróttamót
eins og t.d. golfmót, tennismót og
á knattspymuleiki. Ég fer t.d. á
þeirra vegum til Dubai við Persaflóa
á næstunni og skipulegg keppni og
þjálfun fyrir unglingalið í knatt-
spymu. Þessi atvinna mín hefur
gefið mér tækifæri til mikilla ferða-
laga sem ég hef haft mikla ánægju
af.“
Bobby Moore dvaldi hér á landi
ásamt unnustu sinni, Stephanie,
sem er flugfreyja hjá breska flugfé-
laginu British Airways. Moore á tvö
böm frá fyrra hjónabandi, Robertu
23 ára og Dean sem er 21 árs.
„Dvöl mín hérna á íslandi hefur
verið afar ánægjuleg í alla staði og
höfum við bæði notið þess að vera
hér því allt er svo afslappað hér
miðað við það sem við þekkjum frá
London, svo ég tali nú ekki um
þetta frábæra hreina loft héma.
Við eram ákveðin í því að koma
einhvem tíma aftur til íslands."
Texti: Sigþór Eiríksson
Stóra Laxá í Hreppum
Stóra Laxárdeild Veiðifélags Árnesinga óskar
eftir tilboðum í veiðirétt árinnar 1989. Um
er að ræða 10 stangir á fjórum svæðum.
Þrjú vönduð veiðihús eru við ána.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafnaöllum.
Tilboðum sé skilað fyrir 10. nóv. 1988 til Hilm-
ars Jóhannessonar, Syðra Langholti, 801
Selfoss, sem einnig veitir nánari upplýsingar
ísíma 98-66718.
K • Ö • R • F • U • R
Námskeið í körfugerðarlist
Irefjast næstu daga..
Norræna ráðherra-
nefndin er samvinnu-
stofnun fyrir ríkis-
stjórnir Norðurlanda.
Samvinnan nær yfir
alla meginþætti fé-
lagsmála.
Framkvæmdanefnd
ráðherranefndarinnar
hefur bæði frumkvæði
og annast fram-
kvæmdir fyrir nefnd-
ina.
Framkvæmdanefnd-
inni er skipt í 5 sér-
deildir: Fjárhags- og
stjórnunardeild, upp-
lýsingadeild og skrif-
stofu aðalritara.
NORRÆNA RÁÐHERRANEFNDIN
Framkvæmdanefndin auglýsir stöðu
RÁÐUNAUTS
á rannsóknasviði
Einn af ráðunautum okkar á
rannsóknasviði lætur af störf-
um og við leitum nú að eftir-
manni í hans stað.
Ráðunautar á rannsóknasviði
mynda hóp sem vinnur aö
fjöida mismunandi verkefna á
sviði norrænnar samvinnu um
rannsóknir. Ráðunautarnir
undirbúa m.a. rannsóknar-
stefnu þá (forsknings polit-
iska árenden) sem fjallað er
um í norrænu ráðherranefnd-
inni og stofnunum hennar.
Starfið spannar bæði undir-
búningsverk og stjórnunarleg
verkefni. Eins og hópur ráðu-
nautanna á rannsóknarsvið-
inu er núna samsettur mun
starf hins nýja ráðunautar
aðallega verða samvinna um
rannsóknir almennt ásamt
stjórnun norrænu líftækni-
fræðilegu áætlunarinnar (bio-
teknologiska samarbetspro-
grammet).
Eftir því sem umhverfissjón-
armið verða æ meir ríkjandi
koma verkefni ráðunautanna
til með að snúast einnig um
umhverfisstefnu og stefnu í
orkumálum (áhrif orkunotkun-
ar á umhverfi).
Framkvæmdanefndin felur
ráðunautunum e.t.v. einnig
önnur verkefni.
Reynsla í stjórnun þjóðlegra
rannsókna og alþjóða sam-
vinnu er æskileg.
Umsækjandinn verður að
geta tjáð sig skýrt bæði skrif-
lega og munnlega á einu af
þeim tungumálum sem notuð
eru: Dönsku, norsku og
sænsku.
Framkvæmdanefndin býður
góð vinnuskilyrði og góð laun.
Talsverð ferðalög innan Norð-
urlanda eru bundin starfinu.
Ráðningin er tímatakmörkuð:
4 ár samningsbundin með
möguleika á framlengingu.
Ríkisstarfsmenn eiga rétt á
fríi frá störfum á ráöningar-
timanum.
Vinnustaðurinn er Kaup-
mannahöfn. Framkvæmda-
nefndin aðstoðar við útvegun
á húsnæði.
Norrænar samvinnustofnanir
vinna að jafnrétti kynjanna og
vænta umsókna jafnt frá kon-
um sem körlum.
Nánarí upplýsingar veitir
Risto Tienari deildarstjóri og
Bertel Stáhle sérráðgjafi.
Harald Lossius starfs-
mannaráðunautur svarar
fyrírspurnum um ráðningar-
skilmála. Sími í Kaupmanna-
höfn 1-11 47 11.
Umsóknarfrestur er til 14.
nóvember 1988.
Skriflegar umsóknir sendist
til:
Nordiska Ministerrádet
Generalsekreteraren
Store Strandstræde 18
DK-1255 Köbenhavn
Danmark
NÝ ÞRÆÐING
=lnstant Start=
SSSmSSSSmLoading SystemSSSSSS^S
ÞAÐ NÝJASTA FRÁSAMYO ER VHR 4100, SEM ER ALGJÖR NÝUNG í VHS MYNDBÖNDUM
Nýja þræðingirt frá SANYO gerir það að verkum að tækið vinnur mun hraðar en önnur tæki. T.d. tekur aðeins 1 sek-
úndu að fá myndina á skjáinn, eftir að ýtt hefur verið á "spilun", sem áður tók 6 sekúndur. Og tækið þitt slitnar minna
við notkun, athugaðu það.
Tækið býður einnig upp á:
* Fullkomna fjarstýringu
* Stafrænan teljara sem telur klst./mín./sek.
* Skyndiupptöku (QSR), óháða upptökuminni.
* Nákvæma skoðun atriða með skrefspólun.
* 39 rásir.
* Sjálfvirkan stöðvaleitara.
* Eins árs upptökuminni'með átta skráningum.
* Hraðspólun í báðar áttir, með mynd.
* Endurtekningu á sama hlutinn (repeat), allt að fimm sinnum.
* Sjálfvirka bakspólun.
* Sjálfvirka gangsetningu við innsetningu spólu.
* Hágæða mynd (High Quality).
* Stafrænt stjórnborð lýsir öllum aðgerðum tækisins.
* Scarttengi.
FÁGAÐ ÚTLIT
Stílhreinna og fyrirferðarminna tæki finnur þú varla. Tækið er 42 cm á breidd (passar í flesta hljómtækja-
SANYO SKREFI FRAMAR
Gunnar Asgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16
108 Reykjavík. Simi680780.