Morgunblaðið - 23.10.1988, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988
45
ingi. Að öðrum kosti hefði þeim
ekki auðnast hugvit og kjarkur til
að búa þar í fjórtán ár með bama-
hópinn sinn. Arið 1926 er Sigurður
sautján ára. Þá flytja gömlu hjónin
að Innri-Lambadal og voru þar með
síðustu ábúendur á Fjallaskaga. í
Lambadal bjuggu þau til ársins
1938 að Sigurður tók við búinu og
hélt heimili með þeim.
Sigurður giftist árið 1944 Karit-
as Hinriksdóttur frá Reykjavík. Þau
bjuggu í Lambadal til ársins 1954
að hún lést eftir erfíða sjúkdóms-
legu. Sigurður og Karitas eignuðust
þijú böm, þau Bjama f. 1945 sem
er lærður húsgagnasmiður en hefur
verið sjúklingur til margra ára,
Steinunni f. 1948 lærða sjúkraliða.
Hún giftist Hrafni Guðlaugssyni
sem lést 1976. Þau eignuðust tvö
böm, dóttur og son, og Ingibjörgu
húsmóður í Reykjavík. Hún er gift
Guðmundi Kr. Olafssyni og eiga þau
ijórar dætur.
Eftir lát konu sinnar flutti Sig-
urður með bömin sín til Reykjavík-
ur á Skúlagötu 52 þar sem hann
bjó til dauðadags. Hann hóf störf
við Trésmiðjuna Víði og vann þar
í yfir tuttugu ár. Sigurður safnaði
ekki veraldlegum auði. Hans auður
vom bömin hans, hann helgaði
þeim líf sitt allt. Þegar Steinunn
dóttir hans varð ekkja með tvö
komaböm var hann samstundis
kominn upp að hlið hennar. Síðar
fór að bera á sjúkleika hjá Stein-
unni sem varð til þess að Sigurður
tók hana og telpuna heim á Skúla-
götu en drengurinn elst upp hjá
frændfólki okkar á Þyrli í Hvalfírði.
Uppvaxtarár Sigurðar á Fjalla-
skaga, þar sem lífínu var mætt með
ró og aeðmleysi, þar sem lífsbarátt-
an stóð frá degi til dags, mun vafa-
lítið hafa hjálpað honum til þess
að mæta erfíðleikum og mótlæti er
urðu á vegi hans síðar í lífínu.
Hann var þeirrar gerðar að styrkj-
ast við hveija þraut. Mér liggur við
að segja að hann hafí verið nær
algóður maður sem náttúrlega er
afar sjaldgæft ef ekki einstakt.
Fómarlund hans og þrautseigja var
slík að undran sætti. En því miður
uppskar hann ekki alltaf eins og
hann sáði og það er vont að þurfa
að viðurkenna að maður lætur sig
oft litlu varða náungann og frænd-
fólk sitt, fyrr en maður þarf á því
að halda sjálfur. Það er nefnilega
að stómm hluta til frænda mínum
á Skúlagötunni að þakka að ég lauk
námi er ég sótti til Reykjavíkur.
Þegar ég stóð frammi fyrir húsa-
leigumarkaðnum í Reykjavík, með
vasana tóma, var það hann sem
kom til sögunnar og lét mér í té
íbúð Steinunnar dóttur sinnar með
öllum búnaði fyrir sama og ekki
neitt. Það var einfaldlega sjálfsagt
mál. Mér er líka ógleymanlegt að
einhveiju sinni þurfti ég að mæta
í próf en þá var sonur minn veikur
og ég komst ekki frá honum. Nú
vom góð ráð dýr, allir sem ég
þekkti vom í vinnu eða skóla. Þá
var það Sigurður sem kom mér til
bjargar þó sjálfur væri ekki ferða-
fær vegna flensu. Svona var hann
allur, heill og sannur í hjálpsemi
sinni við aðra. Við drakkum stund-
um kaffí á laugardagsmorgnum í
eldhúsinu í Breiðholtinu. Þá sagði
hann mér sögur af afa og ömmu
og lífínu á Fjallaskaga, hann sagði
mér líka af bömunum sínum. Mikið
óskaplega þótti honum vænt um
þau. Hann átti sér draum sem hélt
í honum lífinu, drauminn um það
að eldri bömin hans tvö næðu bata.
Því miður lifði hann það ekki. Og
nú er það draumurinn minn að hin
bjarta minning um föður og afa
verði til þess að lýsa afkomendum
hans leiðina áfram, án hans. Ég
votta afkomendum hans og að-
standendum öllum samúð mína og
bið þeim guðs blessunar. Sigurður
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 24. okt.
kl.15.00.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Blessuð sé minning Sigurðar
Bjamasonar.
Svanhildur Daníelsdóttir
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
ÁSGERÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
verður jarösungin í Fossvogskirkju mánudaginn 24. október kl.
13.30
Viggó Bergsveinsson,
Ingveldur Viggósdóttir, Gísli Ólafsson,
Þráinn Viggósson, Margrót Björnsdóttir.
t
Minningarathöfn um eiginmann minn, föður okkar og bróður minn,
DR. PÁLMA MÖLLER
prófessor,
sem lést í Birmingham, Alabama, 19. júní síöastliöinn, verður í
Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 25. október, kl. 13.30.
Málfrföur Óskarsdóttir Möller,
Pálmi Möller,
Óskar Möller,
Jóhann Georg Möller, Þorbjörg Möller Leifs.
t Faðir okkar, tengdafaðir og afi.
ÞORVALDUR ÁSGEIRSSON
golfkennari,
Miöleiti 1,
verður jarðsunginn í Fossvogskirkju þriðjudaginn 25. okt. 1988
kl. 15.00.
Ásgeir Þorvaldsson, Erla Alfreðsdóttir,
Pótur Þorvaldsson, Ágústa Guömundsdóttir,
Stefán Þorvaldsson, Guðrfður Waage,
Kristfn Þorvaldsdóttir, T ryggvi T raustason
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ESTER GEORGSDÓTTIR,
Barónsstfg 16,
Reykjavfk,
verður jarösungin fró Fossvogskirkju þriðjudaginn 25. október kl.
13.30.
Guöbjörn Guðbjörnsson, Guðfinna Ásgeirsdóttir,
Hólmfrfður Guðbjörnsdóttir,
Sigrfður Guðbjörnsdóttir, Guðmundur Pétursson,
Liíja Hólm Ólafsdóttir, Haraldur Gunnarsson,
Sigurlaug Hólm Ólafsdóttlr, Birgir Baldursson
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓHANNA ELÍNBORG SIGURÐARDÓTTIR,
áður Selvogsgötu 9,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin þriðjudaginn 25. október frá Hafnarfjarðarkirkju
kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabbameins-
félags íslands.
Rfkharður Kristjánsson, Guðrún Ólafsdóttir,
Skarphéðinn Kristjánsson, Guðrún Bjarnadóttir,
Hrefna Kristjánsdóttir, Kolbeinn Grfmsson,
Dúfa Kristjánsdóttir, Hörður Hallbergsson
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR BJARNASON
frá Innri-Lambadal, Dýrafirði,
bjó á Skúlagötu 62,
Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 24. október
kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaöir, en þeim sem vilja minnast hans, er
vinsamlega bent á Krabbameinsfélag fslands.
Bjarni Sigurðsson,
Steinunn Sigurðardóttir,
Ingibjörg Siguröardóttir, Guðmundur Kr. Ólafsson
og barnabörn.
t Hjartanlegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúö og hlýju við andlát og útför HAUKS HAFSTEIN. Ragnheiður Hafstein og fjölskylda.
t Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför eiginmanns míns, sonar, stjúpföður, afa og bróður, GUÐMUNDAR JÓNS KRISTJÁNSSONAR frá Arnarnúpi. Ásmunda Ólafsdóttir, Guðbjörg Guðjónsdóttir, Erna Elrfksdóttir, Bragi Kristjánsson, barnabörn og systkini hins látna.
t Færum öllum hjartans þakkir, sem heiðruöu minningu JÓNASAR BÖÐVARSSONAR skipstjóra, Háteigsvegi 32, og vottuðu okkur samúð við fráfall hans. Hulda Haraldsdóttir, Sigrfður Jónasdóttir, Jón Erlendsson, Haraldur Jónasson, Svanhlldur Ólafsdóttir, Marta Marfa Jónasdóttir, Böðvar Jónsson, Erna Aradóttir, barnabörn og fjölskyldur.
SÆNSKAR GÆÐADYNUR
MÓUE
15
110
200
cm
UNI-LUX
KING
900.-
90 x 200 cm - kr. 16.400.-
90 X 210 cm - kr. 20.500,-
105 x 200 cm - kr. 20.800.-
120 X 200 cm - kr. 25.650.-
160 X 200 cm - kr. 34.100,-
90X200 cm-kr. 21.700.-
90 x 210 cm - kr. 23.900.-
105 x 200 cm - kr. 25.850,-
120 X 200 cm - kr. 30.650.-
160 x 200 cm - kr. 42.800,-
• GÆÐI • ÞJÓNUSTA
HÚSGAGNADEILD
KRISTJÁN
SIGGEIRSSON HF.
Laugavegi 13-101 Reykjavík - Sx. 91 -625870
90x200 cm-kr. 31.900.
Nokkrar tegundir af höfða-
göflum og tilheyrandi lappir
eða bogar fyrirliggjandi.