Morgunblaðið - 02.11.1988, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988
Flugleiðir/Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
••
Ollum starfemönnum í hlað-
deild hefiir verið sagt upp
m Keflavík.
ÖLLUM starfsmönnum Flugleiða í hlaðdeild í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar, 42 talsins, hefur verið sagt upp störfum frá og með 31. jan-
úar 1989. f uppsagnarbréfinu sem starfsmennirnir fengu á föstudag
var ástæðan sögð að félagið sæi sig knúið til að mæta stórauknum
rekstrarkostnaði með aukinni hagræðingu á öUum sviðum. Ennfrem-
ur sagði í uppsagnarbréfinu að tekið yrði upp nýtt rekstrarfyrir-
komulag i hlaðdeild og leitað yrði tilboða í þennan verkþátt.
Starfsmenn í hlaðdeild eru félag- upp viðræður við Flugleiðir um
ar í þremur verkalýðsfélögum á
Suðumesjum; í Sandgerði, Garði
og í Keflavík. Síðastliðið sunnu-
dagskvöld sátu foiystumenn félag-
anna ásamt trúnaðarmönnum á
fundi vegna þessa máls. Á fundin-
um var ákveðið að grípa ekki til
neinna aðgerða að sinni og taka
málið. Til tals hefur komið, að
starfsmenn hlaðdeildarinnar taki að
sér þetta verkefni sem eins konar
verktakar.
Guðmundur Finnsson fram-
kvæmdastjóri Verkalýðs og sjó-
mannafélags Keflavíkur sagði þetta
hafa vofað jrfír nokkuð lengi, eða
Lektorsmálinu
skotið til umboðs-
manns Alþingis
ÞEIR Gunnar Helgi Kristinsson og Ólafiir Þ. Harðarson, stjórn-
málafræðingar, hyggjast kæra til umboðsmanns Alþingis málsmeð-
ferð við ráðningu Hannesar H. Gissurarsonar í lektorsstöðu í stjórn-
málafræði við Háskóla íslands. Þeir Gunnar og Ólafiir sóttu báðir
nm stöðuna og dæmdi dómnefnd Ólaf vel hæfan til að gegna henni,
Gunnar hæfan en Hannes hæfan að hluta.
„Við viljum fyrst og fremst fá lagsvísindadeildar Háskólans, mun
úr því skorið hvort þetta hafí ekki
verið óeðlileg afgreiðsla málsins,"
sagði Gunnar Helgi Kristinsson.
„Það hefur fordæmisgildi." Gunnar
sagði að ekki væri að því- stefnt að
fá stöðuveitingu Hannesar ógilta,
enda hefði umboðsmaður Alþingis
ekki vald til slíks.
Að sögn Gunnars munu þeir
Ólafur ganga á fund Gauks Jör-
undssonar, umboðsmanns Alþingis,
í dag eða eftir helgina og bera upp
erindi sitt.
Þórólfur Þórlindsson, forseti fé-
eiga fund með kennurum í deildinni
í næstu viku. Þar verður að sögn
Þórólfs rætt um það, hvort unnt sé
að skilgreina stöðu Hannesar H.
Gissurarsonar að nýju á sviði, þar
sem hann hafí hlotið ótviræðan
hæfnisdóm til kennslu, til dæmis
stjómmálaheimspeki. „Ef það gengi
í gegn ættum við möguleika á að
komast í forgangsröð hvað það
varðaði að fá ijárveitingu fyrir nýrri
stöðu lektors í stjómmálafræði,"
sagði Þórólfur í samtali við Morgun-
blaðið.
Bíóborgin:
Nýtt hljóðkerfi
tekið í notkun
Fyrsta sinnar tegundar á Norðurlöndum
BÍÓBORGIN er fyrsta kvik-
myndahús á Norðurlöndum sem
tekur í notkun THX-hljóðkerfi
frá Lucasfilm, segir í fréttatil-
kynningu frá Bióborgihni. Kerf-
ið er komið í notkun víða í Banda-
ríkjunum og Kanada en Bíóborg-
in er með fyrstu kvikmyndahús-
um í Evrópu sem tekur þetta
kerfi í notkun. Miklar endurbæt-
ur hafa verið gerðar á hljóðkerfi
Bíóborgarinnar vegna þessa.
THX bætir meðal annars stereo-
hljóm og hljóðdreifíngu. Kerfíð er
hannað af fyrirtækinu Lucasfílm
sem er í eigu leikstjórans og kvik-
myndaframleiðandans George Luc-
as. Við uppsetningu THX-kerfís er
farið gaumgæfilega yfír öll þau
atriði sem snerta hljóð í viðkomandi
kvikmyndasal og strangt eftirlit er
haft með til dæmis endurkasti og
gæðum hljóðeinangrunar í salnum,
segir í fréttatilkynningunni.
frá því í sumar. Hann sagði ekki
vera á döfínni neinar aðgerðir í
þessu máli að svo stöddu, enda
væru Flugleiðir ekki að bijóta nein
lög með uppsögnunum og fyrir-
huguðum skipulagsbreytingum.
Rætt hefur verið um að verkstjórar
í hlaðdeild taki að sér reksturinn
og hafa Flugleiðir haft samband
við þá vegna málsins. „Ef verkstjór-
amir fá þetta. þá sé ég það fyrir
mér að mannskapurinn heldur
áfram," sagði Guðmundur. Ekki
hefur enn verið ákveðið hvenær við-
ræður við Flugleiðir hefjast, en
stefnt er að því að það geti orðið
mjög fljótlega.
„Það hefur lengi vakað fyrir okk-
ur að endurskipuleggja þessa deild,
það er hluti af endurskipulagningu
í öllu fyrirtækinu," sagði Einar Sig-
urðsson blaðafulltrúi Flugleiða.
Hann sagði að margt annað í rekstri
fyrirtækisins hefði verið boðið út
nýlega, þar á meðal fraktflutningar
til Keflavíkur. „Önnur útboð hafa
sýnt að hægt er að ná fram hag-
kvæmari rekstri með smærri rekstr-
areiningum," sagði Einar. Hann
sagði að Flugleiðir hefðu haft frum-
kvæði að því að rætt var við verk-
stjóra í hlaðdeild um að yfírtaka
þennan rekstur, en ekkert hefði
verið ákveðið í því efni ennþá. „Það
kemur vel til greina," sagði hann.
Stefíit er að því, að nýr rekstrarað-
ili taki við hlaðdeild þegar uppsagn-
imar taka gildi, um mánaðamót
janúar og febrúar 1989.
-BB
Vinnumarkaður:
Uppstilling, olíumálverk frá 1950 eftir Kristínu Jónsdóttur, er
mynd nóvembermánaðar í Listasafhi íslands.
Listasal&i íslands:
Mynd mánaðarins eflir
Kristínu Jónsdóttur
í LISTASAFNI íslands er viku-
lega kynnt „Mynd mánaðarins".
Mynd nóvembermánaðar er
eftir Kristínu Jónsdóttur list-
málara: Uppstilling, olíumál-
verk málað um 1950. Myndin
var keypt til safiisins árið 1962.
Myndin er nú á sýningu sem
sett héfur verið upp í tilefhi af
hundrað ára fæðingarafmæli
Kristínar. Sýningunni hefur verið
valið þema sem er Kyrra líf, og
eru þar sýndar 25 blómamyndir
og uppstillingar. Myndefni þetta
var Kristínu mjög hugleikið og
gefur sýningin góða mynd af þess-
um hluta lífsstarfs hennar, þróun
listar hennar og breytingum sem
á henni verða.
Kristín Jónsdóttir fæddist á
Amamesi við Eyjafjörð árið 1888
og varð fyrst íslenskra kvenna til
að ljúka námi frá hinni Konung-
legu Listaakademíu í Kaup-
mannahöfn. Kristín lést í
Reykjavík árið 1959.
Leiðsögnin „Mynd mánaðarins"
fer fram í fylgd sérfrasðings, alla
fímmtudaga kl. 13.30. Listasafn
íslands er opið alla daga, nema
mánudaga kl. 11—17. Veitinga-
stofa safnsins er opin á sama
tíma.
Útlendingar hafa sama
rétt til atvinnuleysisbóta
Norðurlandabúar geta flutt með sér réttinn að heiman
ÚTLENDINGAR sem hér starfa hafa sama rétt til atvinnuleysisbóta
og íslendingar með þeim sömu skilyrðum sem almennt gilda um
þessar bætur, það er að hafa áunnið sér réttindin hér á landi. Norð-
urlandabúar geta farið beint á atvinnuleysisbætur um leið og þeir
koma hingað, ef þeir hafa áunnið sér rétt til þeirra í heimalandi
sínu. Eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins á föstudaginn eru
11 útlendingar á atvinnuleysisskrá í Njarðvíkum. Óskar Hallgrims-
son hjá félagsmálaráðuneytinu segist ekki minnast þess fyrr, að
stöðvun í fískvinnslu hafi verið látin ganga yfir útlendinga. Hann
segir nokkuð meira vera um það nú en áður, að synjað sé um atvinnu-
leyfi fyrir útlendinga.
„Það gildir sama um útlendinga
og heimamenn, ef þeir fá atvinnu-
lejrfí á annað borð þá vinna þeir sér
inn rétt til atvinnuleysisbóta," sagði
Óskar. „Norrænir ríkisborgarar
þurfa engin atvinnulejrfí. Það þýðir
að ef Norðurlandabúi yrði atvinnu-
laus hér og hefði bótarétt til dæmis
í Danmörku þá flytur hann réttinn
með sér. Hann getur farið beint á
atvinnuleysisbætur ef hann upp-
fyllir lágmarksskilyrði um vinnu-
stundun síðustu tólf mánuði. Aðrir
erlendir ríkisborgarar sem fá at-
vinnuréttindi hér verða að ávinna
sér bótarétt eins og heimamenn.
Áunninn réttur er að lágmarki 25%
atvinnuleysisbóta eftir að hafa skil-
að 425 dagvinnustundum á síðustu
tólf mánuðum. Þetta fer síðan stig-
hækkandi þar til hann hefur náð
fulium bótum, til þess þarf að skila
1.700 vinnustundum."
Óskar sagði réttindi íslendinga
erlendis fara eftir sömu reglum og
gilda í hveiju landi fyrir sig, sem
væri mjög misjafnt. Á Norðurlönd-
unum eru réttindin gagnkvæm.
Óskar var spurður hvort menn
hafí farið offari í að ráða útlendinga
til vinnu hér á landi. „Það hefur
auðvitað ekki verið reiknað með því
að þeir gætu orðið atvinnulausir
þegar þeir voru ráðnir," sagði hann.
„En fyrst við vorum að þiggja
vinnukrafta þeirra verðum við að
taka afleiðingunum. Ég minnist
þess ekki fyrr að stöðvun í físk-
vinnslu hafí verið látin ganga jrfir
útlendinga. Menn tóku ekki þá
áhættu að þeir færu burtu og kæmu
ekki aftur. Það er fyrst nú að þeir
eru látnir hætta þegar um tíma-
bundna stöðvun er að ræða. Hvaða
vit er í þessu, það er náttúrulega
annað mál.“
Óskar sagði atvinnuástandið al-
mennt hafa mest áhrif á veitingu
atvinnulejrfa til útlendinga. For-
sendan er að vinnuafl skorti. Ekki
hefur verið mikið um synjanir, þó
heldur meira en venja er. Sá sem
sækir um atvinnuleyfí þarf að út-
vega umsögn viðkomandi verka-
lýðsfélags til að fá lejrfið.
Borgarnes:
24 sagt upp hjá
kaupfélaginu
Borgarnesi.
ATVINNUÁSTAND í Borgar-
nesi, sem annars hefur verið
nokkuð gott, breyttist skyndi-
lega til hins verra er 23 starfs-
mönnum Kaupfélags Borgfirð-
inga var sagt upp störfúm á
mánudag. Að sögn Þóris Páls
Guðjónssonar kaupfélagsstjóra
er hér um að ræða fastráðið
starfsfólk í frystihúsi, fóður-
vörudeild og sláturhúsi félags-
ins.
Sagði Þórir Páll að þessar upp-
sagnir væru liður í breytingum og
hagræðingu í rekstri kaupfélags-
ins. Gera mætti ráð fyrir að tölu-
verður hluti þeirra sem sagt var
upp yrði endurráðinn en ljóst að
um 10 manns misstu vinnuna. Þá
sagði Þórir að fækkað yrði um
IV2 starf í útibúi kaupfélagsins á
Hellissandi. Væru þessa ráðstaf-
anir liður í að bregðast við sam-
drætti í verslun hjá félaginu.
TKÞ.