Morgunblaðið - 02.11.1988, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988
19
Konur í athvarfi
eftir Guðrúnu
Einarsdóttur
í tæp sex ár hefur verið starf-
rækt athvarf fyrir konur í
Reykjavík. Fjölmargar konur og
böm þeirra hafa lagt leið sína í
athvarfíð og dvalið í lengri eða
skemmri tíma. Aðsóknin hefur sýnt
og sannað að athvarfs er þörf og
gera má ráð fyrir að athvarf kvenna
og bama sé komið til að vera í
okkar samfélagi. Fyrst, eftir að
kvennaathvarfíð leit dagsins ljós,
var talsvert um það fjallað og rætt
á opinberum vettvangi. Allra
síðustu árin hefur þó verið hljótt
um tilveru þess og starfsemi. Það
er ekki að undra því hlutir em oft
fréttnæmastir þegar óvíst er hvort
eitthvað verður úr þeim eða ekki.
Þá er spennan í hámarki. Seinna,
þegar hlutimir hafa skotið rótum
er sjaldnast talin ástæða til að
tíunda þá.
Kvennaathvarfið hefur fest ræt-
ur og mótast talsvert á undanförn-
um sex ámm. Tilgangurinn með
þessum skrifum er að upplýsa kon-
ur og aðra áhugasama aðila um
athvarfíð og skoða hvemig það
kemur til móts við konur og börn
sem þurfa að forða sér undan of-
beldi og kúgun.
Almennar upplýsingar
Kvennaathvarfíð er ekki stofnun,
heldur heimili haldið og rekið af
konum. Hið opinbera styrkir starf-
semina fjárhagslega en tengist
hvorki rekstri né heimilishaldi. Op-
inberir styrkir hafa þó aldrei nægt
fyrir rekstrarkostnaði og því hefur
starfsemin einnig verið fjármögnuð
með gjöfum og samskotum.
í athvarfinu dvelja konur og börn
á heimili, ekki sínu eigin að vísu,
en á heimili þar sem samankominn
er hópur kvenna og barna. Dvalar-
hópurinn er að sjálfsögðu misstór
á hverjum tíma. Dvalartími er einn-
ig mislangur, allt frá fáeinum dög-
um upp í nokkra mánuði. Tíma-
lengdin er háð persónulegum að-
stæðum konunnar, þ.e. andlegri
líðan og möguleikum í húsnæðis-
og atvinnumálum.
Þegar konur hafa áttað sig á
sjálfum sér og tekið ákvörðun um
nánustu framtíð, yfirgefa þær at-
hvarfíð. Ef áframhaldandi dvöl á
fyrra heimili er út úr myndinni þarf
konan að þræða nýjar slóðir og
byggja sér og börnum sínum (ef
einhver eru) heimili á ný.
Dvöl í athvarfínu er ódýr, konur
greiða lágmarks daggjöld sem alla
jafna ættu ekki að íþyngja fjár-
hagnum. Ef kona er mjög illa stæð,
má sækja um fjárhagsaðstoð til
Félagsmálastofnunar.
Hvaða konur koma
í athvarfíð?
Til kvennaathvarfsins leita konur
úr öllum þjóðfélagshópum. Þegar
kona ákveður að flytja burtu eða
flýja af heimili sínu, eru mál fjöl-
skyldunnar ætíð komin í óefni og
visst neyðarástand ríkir. Þó má
segja að tvenns konar forsendur
liggi til grundvallar komu í athvarf-
ið: í fyrsta lagi, þegar konur eiga
ekki í önnur hús að venda en
kvennaathvarfið (hér er ekki átt við
hvort konum líkar dvölin eða ekki).
í öðru lagi, þegar konur hafa
valið sjálfar að koma þótt þær
gætu dvalið hjá ættingjum, vinum
eða annars staðar. Slíkt val er mjög
skiljanlegt og jafnvel æskilegt því
tengsl við vini og ættingja eru bet-
ur geymd í vissri fjarlægð frá and-
legu uppnámi og daglegum venjum
konunnar. Fjölskylda og vinir geta
best stutt við bakið á henni með
því að hvetja hana til sjálfsbjargar
og umfram allt að virða sjálfs-
ákvörðunarrétt hennar. Ættingjar
ættu að vera þess minnugir að þeg-
ar fjölskyldumál eru komin í óefni
er gagnslaust að ásaka konuna fyr-
ir að bijóta upp fjölskylduna. Ekki
Guðrún Einarsdóttir
„Kvennaathvarfið
starfar sérstaklega fyr-
ir konur og börn sem
sætt hafa líkamiegu of-
beldi eða andlegri
þrúgun og kúgun. Kon-
ur með slíka reynsiu
eru því meir en vel-
komnar í athvarfið.“
dugar heldur að dvelja mikið við
fortíðina heldur fremur að finna
lausn á vandanum og fara nýjar
leiðir. Þetta eru reyndar þau grund-
vallarviðhorf sem kvennaathvarfið
starfar eftir.
Sjálfsvirðing konu styrkist þegar
hún hefur tekist á við ástand sitt
og aðstæður í samneyti við aðrar
konur sem svipað er ástatt fyrir.
Að leita skjóls og stuðnings hjá
kvennaathvarfinu ber því ekki vott
um ósjálfstæði heldur er þvert á
móti sjálfsbjargarviðleitni af hæstu
gráðu.
Kvennaathvarfið starfar sérstak-
lega fyrir konur og böm sem sætt
hafa líkamlegu ofbeldi eða andlegri
þrúgun og kúgun. Konur með slíka
reynslu eru því meir en velkomnar
í athvarfið. Þar geta þær treyst því
að vera ekki byrði á öðmm fyrir
það eitt að hafa gefist upp á vitleys-
unni.
Hvað stendur konum og
börnum til boða i
athvarfinu?
Skipta má þjónustu kvennaat-
hvarfsins í sex meginþætti.
1. í fyrsta lagi býður athvarfið
konum og börnum til dvalar á
heimili ásamt fleiri konum og
bömum fyrir vægt endurgjald.
Boði þessu fylgir flest það sem
venjulegt heimili býður upp á
pg gerir kröfu til.
2. í athvarfinu fá konur stuðning
og uppörvun frá öðmm konum,
bæði starfskonum og dvalarkon-
um.
3. í athvarfinu starfar bamastarfs-
maður sem hefur það hlutverk
að styðja við börnin og styrkja
tengsl mæðra og bama eftir því
sem þörf er á.
4. Athvarfið hefur sérstakan fag-
lærðan ráðgjafa á sínum snær-
um sem konur geta leitað að-
stoðar hjá varðandi andlega upp-
byggingu sína og uppeldi bam-
anna.
5. Vikulega era haldnir sjálfs-
styrkingarfundir í athvarfinu.
Þátttakendur em dvalarkonur,
fyrrverandi dvalarkonur, konur
sem tengjast athvarfinu á annan
hátt (t.d. í gegnum viðtöl),
starfskonur á vakt svo og fag-
lærður ráðgjafi sem leiðir fund-
inn.
6. Konur geta hringt í athvarfið
og fengið stuðning í gegnum
síma eða komið þangað í viðtal.
Viðtölin em í umsjá starfskonu
á vakt og geta komið til án þess
að dvöl í athvarfinu sé á döfinni.
Af þessu má ljóst vera að kona
sem ætlar sér ekki að dvelja í at-
hvarfinu en þarf samt hjálp getur
nýtt sér þjónustu á vegum athvarfs-
ins. T.d. viðtöl við starfskonu á
vakt í gegnum síma eða á staðnum.
Einnig er möguleiki á að sækja
sjálfsstyrkingarfundi í athvarfinu
og/eða einkaviðtöl við ráðgjafa.
Kona sem hyggur á dvöl í athvarf-
inu, hins vegar, á auðvitað kost á
þjónustu á öllum ofantöldum svið-
um.
Er athvarfíð fyrir þig?
Kvennaathvarfíð er raunvemleg-
ur valkostur fyrir konur sem vilja
bijóta upp neikvætt lífsmynstur og
fínna stuðning til að byggja upp
nýtt. Kvennaathvarfíð er bæði dval-
arstaður og einnig staður sem leita
má til án þess að dvöl sé inn í
myndinni.
Það skal sérstaklega tekið fram
að hægt er að leita til kvennaat-
hvarfs í tengslum við sifjaspellamál
og nauðgunarmál. Þessi mál em
sérstaklega viðkvæm og krefjast
oftast sérhæfðrar meðhöndlunar. í
þeim tilfellum á athvarfið kost á
að vísa konum til utanaðkomandi
aðila (t.d. fagaðila eða sérstakra
hópa) eða nýta sér sjálft utanað-
komandi aðstoð. Eins og áður sagði
hefur athvarfið sinn eigin ráðgjafa
og í samtökum um kvennaathvarf
em starfandi nauðgunarhópur og
bamahópur sem fjalla sérstaklega
um þau mál sem heiti hópanna
gefa til kynna. Vinnuhópur um
sifjaspellamál er einnig starfandi
og þá reyndar hægt að hafa sam-
band við hann beint (í s. 21260).
Hvernig kemst þú í
samband við athvarfíð?
Það er mjög einfalt, hringdu í
síma (91) 21205 og berðu þín mál
upp við starfskonu á vakt. Hún
gefur þér nánari leiðbeiningar.
Höfundur er sáltræðingur.
v I
(L1 *t } -
r J t. 'vv.-
á ■ • | } i' f
' •!'» ri
'■P ■,; t t < : ií P f,., . ■ r"
I |.'l V fW'
*jL >; 1 •
;Éy : »
1, ‘ T
FULNINGAHURÐIR
Fura - greni
a laugardag
handa þér, ef þú hittir
á réttu tölumar.
Láttu þínar tölur ekki
vanta í þetta sinn!
,
Leikandi og létt!
SMIÐJUVEGI6, KÓPAVOGI, S: 45670 - 44544
Góóan daginn!