Morgunblaðið - 02.11.1988, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988
39
Goethe o g Joachim frá Fiore
Erlendar baekur
Siglaugur Brynleifsson
The Fignarae of Jeachim of
Fiore. By Maijorie Reeves and
Beatrice Hirsch-Reich. Oxford.
Clarendru Press.
Johann Wolfgaiig von Goethe:
Italienische Reise — Hamburger
Ausgabe. Herausgegeben und
kommentiert von Herbert von Ein-
em. Mit 40 Illustrationen nach
zeitgenössischen Vorlagen. De-
utscher Taschenbuch Varlag 1988.
„Figurae" Joachims frá Fiore eru
gefnar út af Warburg Institut og
Clarendon Press. Svo vildi til að það
fundust tvö handrit að „Liber fíg-
urarum“ eftir Joachim, fyrir hreinar
tilviljanir, með skömmu millibili,
annað á Ítalíu og hitt í Oxford-
handritið, því var þessi bók skrifuð
og gefín út. Höfundamir leitast við
að rekja og útlista hugmyndaheim
Joachims frá Fiore með myndunum
„figurae". Joachim taldi sig geta
sýnt þá mystísku reynslu sem hann
varð fyrir fremur með myndum en
í rituðu máli. Kenningar Joachims
vom á þá leið að heimsaldrar skipt-
ust í þrennt, tíma fóðurins, sonarins
og hins heilaga anda og hann taldi
að á hans dögum (1132-1202)
bjarmaði fyrir nýju tímaskeiði, þ.e.
tímaskeiði heilags anda. Hann út-
listar kenningar sínar í „Liber con-
cordiae Novi...“ og í „Psalterium
Decem Cordumm". Spengler (Unt-
ergang des Abendlandes) telur að
Joachim frá Fiore eigi mikinn þátt
í mótun þeirra kenninga sem ein-
kenndust af sögulegri forlaga-
hyggju og tengir kenningar hans
söguskoðun Hegels. Joachim taldi
að saga mannskynsins væri eðlilega
bundin guðlegum vilja og tilgangi
og að fullkomnum guðlegs vilja
væri framtíðin. Þessar kenningar
höfðu mjög mikil áhrif á 13. og 14.
öld með þeim múnkareglum og sér-
hyggjuhópum sem kröfðust full-
komnunar kristilegs samfélags og
afneitunar allrar veraldarhyggju.
Höfundar þessarar bókar ræða
einkum um dulhyggju Joachims og
það tilvemstig sem hann taldi til-
raun til fullkomnunar guðlegs vilja
með sköpun hvers einstaklings, sem
væri íhugun guðlegrar spektar.
Goete
Eins og áður segir hafa þeir mynd-
imar „fígurae" sem leiðarvísi. Þær
em birtar í bókarlok, minna margar
t-æknilega á teikningar Botticellis.
Höfundarnir fjalla einnig um hugs-
anleg áhrif rita og mynda Joachims
á hugmyndaheim og skáldskap
Dantes.
Bók þessi veitir nokkra hugmynd
um táknfræði miðalda, einnig um
talnaspekina sem var mikill þáttur
táknfræðinnar auk þess að koma
til skila innsæi Joachims frá Fiore
að svo miklu leyti sem gjörlegt er.
Höfundar styjast m.a. við rit Mon-
signiore Tondelli, „II Libro delle fíg-
ure dell’abate Gioachino da Fiore",
sem kom út 1939, en þar birtist
þá nýfundið handrit af „figurae",
það sem fannst á Ítalíu (í Reggio).
Dtv. útgáfan hefur gefíð út þtjú
heildarsöfn verka Goetes, Attemis-
útgáfuna, Hamborgarútgáfuna og
Weimarerútgáfuna, auk einstakra
rita hans,. Þessar þijár útgáfur em
taldar þær fyllstu, sem út hafa
komið. Italíuferð Goethes birtist hér
hér í gerð Hamborgarútgáfunnar,
sem hluti æviminninga ritanna.
Útgefandinn segir í eftirmála „að
Ítalíuferð Goethes hafí ekki verið
ferðabók, heldur skáldsaga um ferð
og inntak sögunnar hafí verið
Goethe sjálfur. Þegar Goethe kom
frá Ítalíu 1788 hafði hann fundið
„Arkadíu" og sjálfan sig sem skáld.
Bókin er gefín út myndskreytt.
IZUMI
STÝRILIÐAR
Allar stæröir fyrir allar
spennur. Festingar fyrir
DIN skinnur.
Gott verð.
= HÉÐINN =
VELAVERSLUN, SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Robert Kennedy -
hvernig hann var
Erlendar baekur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Lester og Irene David: ROBERT
KENNEDY - the making of a
folk hero
Útg. Paperbacks Ltd. 1988
Enn er verið að skrifa bækur um
þá Kennedy-bræður, John og Ro-
bert. f sjálfíi sér ekki óeðlilegt þeg-
ar haft er í huga, hvílíkir áhrifavald-
ar þeir vom, hvemig þeir lifðu og
kannski umfram ailt hvemig þeir
dóu, báðir féllu fyrir morðingja-
hendi. Kennedy forseti 1963 og
Robert bróðir hans fímm og hálfu
ári síðar, þegar hann var að keppa
að því að verða forsetaefni demó-
krataflokksins í Bandaríkjunum.
Þessi bók er ólíkt vandaðri en
ýmsar aðrar sem ég hef gluggað í
um þessa sérstæðu fjölskyldu. Höf-
undar leggja sig fram um að safna
að sér upplýsingum og staðgóðum
heimildum í stað þess að byggja á
slúðri og getgátum eins og sumir
þeirra sem hafa ritað „ævisögur"
bræðranna.
Rakinn er ferill Roberts frá unga
aldri og fram til síðustu stundar.
Það kemur skýrt fram, hversu háð-
ur hann var föður sínum og lagði
sig fram um að þóknast honum í
flestu. í skóla var Robert ekki ýkja
áberandi og bekkjarfélagar og
^VERMQvrr
Hjólsagarblöð
þau endast!
BjiigBliiiip
ÁRVÍK
ÁRMÚU 1 -REYKJAVlK-SlMI 687222 -TELEFAX 687285
kunningjar hans frá þeim árum
virðast ekki hafa séð í honum neinn
forystusauð né áttað sig á þeim
eiginleikum í upplagi hans sem
síðar meir urðu ráðandi.
Athyglisverð er frásagan um
kynni Roberts af McCarthy, hinum
illræmda kommúnistahatara sem
fór hamförum í ofsóknum á hendur
aðskiljanlegum mönnum á árum
kalda stríðsins og sá raunar komm-
únista í hveiju skoti. Robert átti
að sönnu síðar eftir að súpa seyðið
af samvinnu sinni við McCarthy og
sá stimpill sem á hann komst vegna
skoðana hans á yngri árum loddi
býsna lengi við. Almennt virðist
Robert Kennedy á sínum yngri
árum hafa verið ósveigjanlegur
stirðbusi, auðkýfíngssonur sem lítt
þurfti eða hafði áhuga á öðru en
því sem upp sneri og augljóst var.
Með árunum breyttist afstaða hans,
eins og alkunna er; hann og John
Kennedy áttu án efa dijúgan þátt
í að auka réttindi svertingja og
annarra sem æðri Bandaríkjamenn
töldu annars og þriðja flokks þegna.
Robert Kennedy var ekki aðeins
skeleggur baráttumaður fyrir bætt-
um hag svertingja, hann var þvert
ofan í það sem um hann var löngum
sagt hjartahlýr maður sem smám
saman varð gagntekinn löngun til
að gera Bandaríkin að betra þjóð-
félagi og heiminn sem heild að
hugnanlegri verustað fyrir alla.
Einnig segir frá einkalífi hans
og Ethel Kennedy, sem hann gekk
* ■ú.ORlQIKAL
RESEARCRAU1X
FRESHIN
—HEWYOR
Kápumynd
Reuter
að eiga ungur og eignaðist með 11
böm á þeim átján árum sem þau
voru í hjónabandi. Ethel er mikil
kjamorkukona, kjarkur hennar og
kapp, eindreginn stuðningur við
eiginmanninn; öllu er þessu lýst.
Einnig að hún var umhyggjusöm
móðir, þótt bömin virðist stundum
hafa setið á hakanum vegna óvenju-
lega náins sambands þeirra hjón-
anna. Það er greinilegt að höfundar
bókarinnar telja Ethel hina ágæt-
ustu konu og kostum prýdda, en
ekki hreifst ég að ráði. Þessi enda-
lausi hressleiki virkaði á mig dálitið
yfírdrifínn og smáborgaralegur
hugsunarháttur hennar gerir að
verkum, að mér fannst hún hvað
sem öllum kostum líður, dálítið leið-
inleg.
Robert Kennedy varð dómsmála-
ráðherra í stjóm bróður síns og
átti þátt í að koma áfram ýmsum
umbótum. Hann og John Kennedy
vora mjög nánir vinir og vel kemur
fram, hversu John Kennedy snið-
gekk oft Lyndon Johnson, varafor-
seta sinn, og leitaði ráða hjá bróður
sínum. Ekki er heldur dregið úr að
lýsa þeirri gagnkvæn.u andúð og
vantrú sem var milli þeirra John-
sons og Roberts Kennedy.
Sögusagnir um samband þeirra
bræðra við kyntáknið Marilyn
Monroe hafa verið lífseigar og um
það skrifaðar bækur. Sagt er að
Robert Kennedy hafí heimsótt hana
kvöldið sem hún dó og sumir höf-
undanna sem hafa skrifað um ást-
arævintýrin hafa ekki skirrst við
að gefa í skyn að Robert Kennedy
hafi á einhvem hátt verið viðriðinn
dauða hennar.
Þessu máli era einnig gerð skil
í bókinni sem hér um ræðir. Það
er nokkum veginn öraggt að þeirra
dómi, að hafí Robert Kennedy ein-
hvem tíma orðið ástfanginn af ann-
arri konu en Ethel^ hafí það verið
Marilyn Monroe. Á hinn bóginn
draga höfundar í efa, að hann hafí
staðið í sambandi við hana og hafí
hann gert það, sem væri vissulega
ekki útilokað, telja þeir af og frá
að hann hafí komið nálægt heimili
hennar kvöldið fyrir lát hennar og
færa rök fyrir því. Þeir viðurkenna
að sönnu að allt megi hrekja og
sannanir fyrir því að hann hafí ekki
komið séu ekki pottþéttar og svör
muni ekki fást héðan af.
Þetta er í hvívetna hin læsileg-
asta bók og lesandi fær góðan skiln-
ing á manninum Robert Kennedy
og áttar sig ennfremur betur en
áður á hversu umtalsverð áhrif
hans sem stjómmálamanns hafa
verið.
Viðtalstímar
alþingismanna
Sjálfstæðisflokksins
Alþingismenn Sjálfstæðisflokksins efna til við-
talstíma íValhöll, Háaleitisbraut 1, í nóvember.
Allir velkomnir.
Fimmtudaginn 3. nóvember kl. 10-12 eru til viðtals
Kristinn Pétursson, þingmaður Austfirðinga, Birgir
Isleifur Gunnarsson, þingmaður Reykvíkinga.
M'm
Fimmtudaginn 3. nóvember kl. 17-19 eru til viðtals
Friðjón Þórðarson, þingmaður Vesturlands og Salómi
Þorkelsdóttir, þingmaður Reyknesinga.
«4.
Sovéskir
aagar
ÁrlegirSovéskirdagar
MÍR, að þessusinni
sérstaklega helgaðir
Sovétlýðveldinu Kirgizíu,
verða settir í Félagsheimili
Kópavogs miðvikudaginn
2. nóvember kl. 20.30.
Fluttverða ávörp
og listafólkfrá Kirgizíu
skemmtir með söng, dansi
og hljóðfæraleik.
Aðgangur ókeypis
ogöllum heimill.
MIR
ARGUS/SIA