Morgunblaðið - 02.11.1988, Side 54
54
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988
KEILA / REYKJAVÍKURMÓTIÐ 1988
Ásdfs Steingrímsdóttir og Sigurður Sverrisson urðu Reykjavíkurmeistarar
í keilu 1988.
'Ásdís og Sigurður
urðu meistarar
Reykjavíkurmótinu í keilu lauk
í keilusalnum í Öskjuhlíð á
laugardaginn. Reykjavíkur-
meistari i kvennaflokki varð
Ásdís Steingrímsdóttir og Sig-
-*urður Sverrisson sigraði í
karlaflokki.
Keppt var í unglingadeild, para-j
liða- og einstaklingskeppni. I
parakeppninni mættu 24 pör til
leiks, en þar sigruðu Elín Oskars-
dóttir og Alois Raschofer eftir úr-
slitaleik við Heirúnu Þorbjörnsdóttir
og Halldór Sigurðsson.
í liðakeppninni voru 16 íjögurra
manna lið og spiluðu Keilubanar,
Fellibylur og Þröstur til úrslita.
Fellibylur stóð síðan uppi sem sigur-
vegari eftir spennandi leik við
Keilubana.
104 þátttakendur voru í einstakl-
ingskeppninni og er það nýtt met.
- I kvennaflokki sigraði Ásdís
Steingrímsdóttir. Hún hlaut sam-
tals 194 stig í úrslitaleik við Jónu
Gunnarsdóttur sem hlaut 159 stig.
I karlaflokki sigraði Sigurður Sverr-
isson eftir að hafa sigrað Alois
Raschofer í úrslitum, 193 gegn 188.
Úrslit urðu sem hér segir.
Stúlkur 10 - 12 ára
Bima Einarsdóttir
Rannveig Guðmundsdóttir
Piltar 10 - 12 ára
Konráð Ólafsson
Andrés Júlíusson
Páll Kristjánsson
Stúlkur 13 - 15 ára
Heiðrún Haraldsdóttir
Guðrún Soffía Guðmundsdóttir
Elísabet Geirsdóttir
Piltar 13 - 15 ára
Kristinn Freyr Guðmundsson
ívar Kjartansson
Gísli Sturluson
Stúlkur 16 - 18 ára
Ásdís Ósk Smáradóttir
Piltar 16 - 18 ára
Róbert Spanó
Hörður Siguijónsson
Bjöm Vilhjálmsson
Parkakeppni
Elín Óskarsdóttir og
Alois Raschofer
Heiðrún Þorbjömsdóttir og
Halldór Siguðrsson
Dóra Sigurðardóttir og
Gunnar Hersir
Liðakeppni
Keilubanar
Fellibylur
Þröstur
Einstaklingskeppni kvenna
Ásdís Steingrímsdóttir
Jóna Gunnarsdóttir
Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir
Einstaklingskeppni karla
Sigurður V. Sverrisson
Alois Raschofer
Helgi Ágústsson
KNATTSPYRNA / FRAKKLAND
Platini tekur
viðfranska
landsliðinu
landsleiki og skoraði 41 mark.
Hann var þrívegis kjörinn knatt-
spyrnumaður Evrópu. Hann hefur
verið tæknilegur ráðgjafi hjá
gamla liðinu sínu Naney að und-
anförnu.
Jean Tigana, sem nú er orðinn
33 ára og leikur með Bordeaux,
er sagður í mjög góðri æfingu og
hann er sá leikmaður sem Platini
vili láta stjóma liðinu innan vall-
ar. Hann lék við hliðina á Piatini
í hinu sigursæla liði Frakka sem
varð Evrópumeistari 1984.
Henri Michel hefur verið undir
mikilli pressu að undanförnu
vegna lélegs áranjjurs landsliðsins
á síðustu árum. Hann er nú látinn
ijúka þrátt fyrir að Frakkar hafa
ekki tapað leik á þessu ári - unn-
ið fjóra leiki og gert flögur jafn-
tefli.
HANDKNATTLEIKUR / KVENNALANDSLIÐIÐ
ísland í 5. sæti
- sigraði Sviss, 19:17, eftirframlengdan leik
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
handknattleik haf naði í 5. sæti
í C-keppninni í handknattleik
sem lauk í Frakklandi í gær.
ísland sigraði Sviss í leik um
5. sætið með 19 mörkum gegn
17 eftirframlengingu. Staðan
eftir venjulegan leiktíma var
16:16.
Islenska liðið var undir nær allan
leikinn. Svissnesku stúlkumar
höfðu undirtökin frá fyrstu mínútu
og náðu fjögurra marka forskoti í
hálfleik, 6:10. Þegar skammt var
til leiksloka var staðan 8:13 fyrir
Sviss. Þá tóku íslensku stúlkurnar
til sinna ráða og náðu að jafna,
14:14. Svissnesku stúlkurnar skor-
uðu næstu tvö mörk og voru þá
aðeins tvær mínútur eftir. íslenska
liðið náði að minnka muninn í eitt
mark og jafna á síðustu sekún-
dunni. Kristín Pétursdóttir skoraði
jöfnunarmarkið úr hægra hominu.
Krlstín Pétursdóttlr skoraði jöfn-
unarmark íslands þegar ein sekúnda
var eftir og tryggði framlengingu.
Framlengja varð leikinn í 2 X 5
mínútur og var íslenska liðið þá
sterkara og sigraði örugglega 19:17
eftir að hafa komist í 18:16.
Halla Geirsdóttir stóð í markinu
í framlengingunni og stóð sig vel.
Eins varði Kolbrún vel í síðari hálf-
leik. Guðríður Guðjónsdóttir náði
sér loks á strik og skoraði 6 mörk
með þrumuskotum. Annars var
vörnin besti hluti liðsins í gær.
Mörk Íslands gerðu: Guðríður Guðjóns-
dóttir 6, Margrét Theódórsdóttir .6/4,
Kristín Pétursdóttir 2, Rut Baldursdóttir
2, Ema Lúðvíksdóttir 1, Erla Rafnsdóttir 1
og Ama Steinssen 1.
íslenska liðið kemur heim á
morgun, fimmtudag.
FELAGSMAL
Aðalfundur FH
Aðalfundur knattspymudeildar
FH verður haldinn í félags-
heimilinu Kaplakrika mánudaginn
7. nóvember og hefst kl. 20.30.
FYRRUM fyrirliði franska
landsliðsins í knattspyrnu,
Michel Platini, tók í gær form-
lega við þálfun franska lands-
liðsins í stað Henri Michels.
Eins mun Jean Tigana koma
inn í liðið sem fyrirliði. Að-
stoðarmaður Platinis verður
Gerard Houilier, fyrrum þjálf-
ari PSG og formaður lands-
liðsnef ndar verður Claude
Bez, formaður Bordeaux.
Þessar breytingar koma í kjöl-
far lélegs árangur franska
landsliðsins að undanförnu.
Franska landsliðinu hefur
gengið mjög illa undanfarin
ár, eða allt frá því 1984 er það
varð Evrópumeistari. Franska út-
varpsstöðin
„France Info“
skýrði frá þessum
breytingum
snemma í gær-
Frá
Bemharði
Valssyni
iFrakklandi
mogun og franska knattspymu-
sambandið staðfesti þetta í gær-
kvöldi. Hugmyndin um að Platini
tæki við liðinu kom upp hjá
franska knattspymusambandinu
eftir að liðið náði aðeins jefnteflið
við Kýpur í undankeppni HM fyr-
ir 10 dögum. Henri Michel, sem
hefur verið landsliðsþjálfari
Frakka frá því 1984, kom til fund-
ar hjá franska knattspyrnusam-
bandinu síðdegis í gær þar sem
honum voru tilkynnt tíðindin.
Hann kom á hvttum golf og var
fölur er hann kom út af fundinum.
Platini muni stjóma liðinu gegn
Júgóslavíu í Belgrad 19. nóvem-
ber t undankeppni HM.
Platini, sem lagði knattspyrnu-
skóna á hilluna á stðasta ári eftir
fimm ár hjá Juventus á Ítalíu, er
besti knattspyrnumaður sem
Frakkar hafa átt. Hann lék 72
AMERISKI FOTBOLTINN
Young rann úr greipum vfldnganna
Stjórnandi San Fransico skoraði sjálfur sigurstigin í leik dagsins í NFL-deildinni
LEIKUR dagsins í 9. umferð
NFL-deildarinnar á sunnudag
var milli Minnesota Vikings og
San Fransico 49ers. í lið San
Fransico vantaði aðalstjórn-
anda liðsins, Joe Montana, en
49ers hafa mjög góðan vara-
stjórnanda þar sem Steve Yo-
ung er. Þegar50 sekúndur voru
til leiksloka var staðan 21:17
fyrir Vikings. 49ers voru með
boltann 49 metra frá marki og
áttu aðeins eina tilraun eftir
áður en þeir hefðu misst hann.
. - jjfoung settu kerfi í gang og
eitthvað fór úrskeiðis, en þá fór
Young sjálfur af stað og hljóp
í átt að marki. Fimm varnar-
menn Víkinganna náðu að hafa
hendur á honum í þessari
skógarferð, en tiiraunir þeirra
að stöðva hann mistókust og
Young komst alla leið í mark.
San Fransico sigraði því í leikn-
um 24:21.
ijú af þeim liðum sem höfðu
bestann árangur eftir átta
umferðir töpuðu um helgina. Los
Angeles Rams sigraði New Orleans
Saints 12:10, þrátt
Gunnar fyrir að liðinu tækist
Valgeirsson ekki að skora sner-
skrifar timark í leiknum.
Fjögur vallarmörk
nægðu liðinu í þessum leik þar sem
vamimar léku aðalhlutverkið. New
Orleans tapaði þar með aðeins öðr-
um leik sínum á tímabilinu. Rams
eru með sama árangur og virka
mjög sterkir um þessar mundir.
Chicago Bears steinlágu fyrir
New England Patriots 30:7. Stjórn-
anda Patriots, Doug litla Flutie,
gekk illa að koma sendingum til
samheija sinna og aðeins sex sinn-
um af átján kom hann boltanum í
hendur þeirra. En það kom ekki að
sök, því fjórar þeirra rötuðu í hend-
urnar á sai.iheijum sem skoruðu.
Mjög góð nýting þar! Stjómandi
Chicago, hinn litríki Jim McMahon
er nú enn einu sinni meiddur. I
þetta sinn á hné og mjög líklegt
að hann verði ekki meira með á
þessu keppnistímabili.
I leik liðanna frá Ohio sigraði
Cleveland lið Cincinnati Bengals
23:16 að viðstöddum rúmlega 80
þúsund áhorfendum á bökkum Erie
vatns í Cleveland. Vöm Cleveland
var mjög sterk í þessum leik og
stjómandi liðsins, Bemie Kosar,
hefur náð sér eftir meiðsl fyrr á
keppnistímabilinu. Með þessum
ósigri tapaði Cincinnati sínum öðr-
um leik, eins og Chicago og New
Orleans.
Eftir helgina hefur Buffalo Bills
bestann árangurinn í deildinni. Lið-
ið hefur unnið átta af fyrstu leikjum
sínum og um helgina vann liðið
Green Bay Packers örugglega 28:0.