Morgunblaðið - 02.11.1988, Page 56
Höfðar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Morgunblaðið/Bjami
Haraldur Sveinsson, framkvæmdastjóri Árvakurs hf., ásamt verðlaunahöfunum, þeim Jónasi Þor-
bjarnarsyni og Hansínu R. Ingólfsdóttur.
Morgunblaðið 75 ára:
J Verðlaun ísamkeppni um Ijóðafhent
í tilefni af sjötíu og fímm ára afínæli sinu,
sem er í dag 2. nóvember, efhdi Morgunblaðið
til verðlaunasamkeppni um ljóð. 431 ljóð barst
í keppnina en skilafrestur rann út þann 15. sept-
ember síðastliðinn. Verðlaunum var heitið fyrir
tvö kvæði, sem dómnefhd taldi best að þeim
komin; 200.000 krónum fyrir hvort ljóð.
Dómnefndin, sem skipuð var þeim Rannveigu G.
Ágústsdóttur, framkvæmdastjóra Rithöfundasam-
bands íslands, Þóru Jónsdóttur, skáldkonu, Kristjáni
Karlssyni, skáldi, og Matthíasi Johannessen, rit-
stjóra og skáldi, hefur skilað áliti sínu og í gær
afhenti Haraldur Sveinsson, framkvæmdastjóri Ár-
vakurs hf., vinningshöfum verðlaunin.
Verðlaunin hlutu Jónas Þorbjamarson fyrir ljóðið
„Þú sem býrð handan árinnar" og Hansína R. Ing-
ólfsdóttir fyrir ljóð sem ber heitið „Til Siggu“.
Sjá nánar frá verðlaunaafhendingunni i
miðopnu.
Hvalveiðideilurnar:
Ekki var reynt að
grafa undan sam-
komulagi þjóðanna
— segir talsmaður Bandaríkjamanna
FULLTRÚI bandaríska viðskiptaráðuneytisins sló fram þeirri hug-
mynd að Japanir takmörkuðu innflutning á hvalkjöti á fundi í Japan
í september, en hann hafði enga heimild frá stjórnvöldum til að semja
um slíkt, að sögn talsmanns bandaríska utanríkisráðuneytisins. Tals-
maðurinn sagði að þessi hugmynd hefði ekki verið rædd síðan og
engar hugmyndir væru uppi um að hvika á nokkurn hátt frá eða
grafa undan samningi íslands og Bandaríkjanna frá því í júní vegna
hvalveiða íslendinga í vísindaskyni.
Fulltrúar frá bandaríska við-
skiptaráðuneytinu ræddu við Japani
vegna fyrirhugaðra vísindaveiða í
september og sagði talsmaðurinn að
engar viðræður um efnið hefðu farið
fram síðan. íslenska utanríkisráðu-
neytið fékk hins vegar upplýsingar
um það frá Japönum að Bill Evans,
yfírmaður fískveiðideildar viðskipta-
ráðuneytisins, hefði reynt að fá Jap-
• ani til að hætta hvalkjötskaupum
gegn fríðindum af hálfu Bandaríkja-
stjómar, aðeins tveimur dögum eftir
fund Jóns Baldvins Hannibalssonar,
utanríkisráðherra, með George
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna.
Fulltrúi frá bandaríska utanríkis-
ráðuneytinu tók ekki þátt í viðræð-
unum við Japani í september, að því
að talsmaður þess sagði, en fékk
upplýsingar um það frá viðskipta-
ráðuneytinu að þessi hugmynd hefði
komið upp einu sinni í óopinberum
viðræðum. Líklega væri þarna um
að ræða sambandsleysi á milli
manna í stjórnkerfinu, en það væri
alls ekki stefna stjórnvalda að gera
neitt sem gæti grafið undan júní-
samkomulagi þjóðanna.
Opinbert svar bandarískra stjórn-
valda vegna þessa máls barst í gær
og mun Jón Baldvin Hannibalsson
kynna svarið í utanríkismálanefnd í
dag.
Fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár lagt fram með 1,2 milljarða tekjuafgangi:
Skattar hækka verulega og
rQdsútgjöld dragast saman
Aukin skattheimta 50-60 þúsund á fjölskyldu, segir Pálmi Jónsson
15 þrotabú gerð upp:
Eignir 0,3%
af skuldum
INNAN við þriðjungur úr pró-
senti fékkst upp f heildarkröf-
ur í 15 þrotabú í Reykjavik,
þar sem skiptum er nú lokið.
Samtals voru viðurkenndar
kröfur að upphæð um 60,3 millj-
ónir króna, auk vaxta og kostnað-
ar eftir upphafsdag skipta í
hveiju búi. Einungis í þremur
málanna fékkst eitthvað greitt
upp í skuldir, alls krónur 183.184,
en það er innan við þriðjungur
úr prósenti af heildarkröfunum.
Hér var um þijú hlutafélög og
tólf einstaklinga að ræða.
Stærsta gjaldþrotið var í búi ein-
staklings, sem skuldaði um 9,2
milljónir króna án þess að nokkr-
ar eignir kæmu á móti.
f fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1989 er gert ráð fyrir tekjuaf-
gangi af ríkissjóði, sem nemur 1,18 milljörðum króna. Miðað er við
að tekjur ríkissjóðs verði 77,3 milljárðar á næsta ári en gjöld 76,1
milljarður. í frumvarpinu er gert ráð fyrir hækkun beinna og óbeinna
skatta, og einnig nýjum leiðum til tekjuöflunar. Hluti þessarar tekju-
öflunar kemur til framkvæmda þegar á þessu ári. Þá er boðaður
verulegur samdráttur í ríkisútgjöldum, bæði með því að draga úr
og fresta framkvæmdum og með því að draga úr launagjöldum sem
-^ivarar 250-300 stöðugildum. Að auki er gert ráð fyrir að ríkissjóður
taki engin erlend lán heldur greiði niður eldri skuldir.
„Fjárlagafrumvarpið fyrir árið
1989 er enginn gleðiboðskapur,"
sagði Olafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra, þegar hann kynnti
frumvarpið fyrir fréttamönnum í
gær. Samkvæmt frumvarpinu eiga
tekjuskattar einstaklinga að hækka
þannig að þeir skili 500 milljónum
í auknar tekjur til ríkissjóðs. Ekki
er enn ljóst hvemig skatthlutfalli
verður breytt, en persónuafsláttur
_^rnun hækka á móti þannig að skatt-
ar hækki ekki af tekjum undir
60-70 þúsund krónum á mánuði.
Einnig verða bamabætur hækkað-
ar. Þá kemur til greina að setja
skattþrep á háar tekjur, en ekki
hefur verið skilgreint við hvaða
tekjur eigi að miða.
Eignaskattar munu hækka al-
_y-r,jsennt úr 0,95% í 1% og sett verður
hærra skattþrep á skuldlausa eign
yfír 12 milljónum króna. Þessi
hækkun eignarskatts á að skila 200
milljónum í ríkissjóð. Þá verður
lagður skattur á fjármagnstekjur,
en ekki er búist við að fmmvarp
um þann skatt verði lagt fram fyrr
en liðið er á næsta ár. Lagður verð-
ur 12% söluskattur á sölu happ-
drættisvinninga, og er talið að það
skiii 4-500 milljónum í ríkissjóð.
Loks verða ýmsir óbeinir skattar
hækkaðir, eins og vörugjald,
bensíngjald og innflutningsgjald af
bílum.
Fyrir liggur að hlutfall heildar-
tekna ríkissjóðs á næsta ári verður
28,1% af landsframleiðslu sam-
kvæmt fjárlagafmmvarpinu og
hækkar úr 26,2%. Hlutfall útgjalda
hækkar úr 27,4% í 27,7% af lands-
framleiðslu, en samkvæmt þjóð-
hagsspá dregst landsframleiðsla
saman á næsta ári um 1,6%.
Fjármálaráðherra segir að tekjur
ríkissjóðs hækki aðeins um lx/4%
að raungiidi frá fjárlögum 1988,
eða um 1 milljarð króna. Ef miðað
er við verðlag þessa árs gerir fjár-
lagafmmvarpið ráð fyrir 2,5 millj-
arða króna meiri tekjuöflun ríkis-
sjóðs en áætluð er á þessu ári.
Pálmi Jónsson þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins segir hins vegar,
að með teknu tilliti þess að ríkistekj-
ur hækki úr 26,2% af landsfram-
leiðslu í 28,1%, þýði það skatta-
hækkanir upp á 3,5 til 4 milljarða
króna eða 50-60 þúsund krónur á
fjögurra manna fjölskyldu. Hann
segir slíka skattheimtu óeðlilega
þar sem kaupmáttur muni lækka á
næsta ári.
Sjá fréttir á bls. 2, 34 og 35.
Kambaröst
í landhelgi
Eskifírði.
Skuttogarinn Kambaröst SU
200 frá Stöðvarfirði var færður
til hafíiar á Eskifírði laust fyrir
kl. 16 í gær eftir að varðskipið
Oðinn hafði staðið skipið að
meintum ólöglegum veiðum úti
af Austfjörðum.
- Ingólfur
Vilja ekki bergja af sama bikar
HUGMYNDIR eru uppi um að breyta útdeilingu altarissakrament-
is þannig að það fari fram með þeim hætti að oblátunni sé dýft
í vínið og síðan gefín þeim sem skal neyta. Ástæða þess er að
kirkjunnar menn hafa orðið varir við vaxandi andstöðu við að
allir bergi af sama bikar.
Sr. Hreinn Hjartarson hefur
lagt fram tillögu til þingsályktun-
ar á Kirkjuþingi sem nú stendur,
þar sem því er beint til biskups
að hann láti kanna hvort heimilt
sé að berging fari fram með þess-
um hætti. I greinargerð með til-
lögunni segir, að á fundum með
foreldrum fermingarbarna sé
mjög að því spurt, hvemig altaris-
göngunni sé hagað með tilliti til
útdeilingar á víni. „Sífellt fleiri
gefa það í skyn að þeir treysti sér
ekki til að ganga til altaris verði
allir látnir bergja af sama kal-
eik,“ segir í greinargerðinni. Þá
segir að borið sé við smithættu
og ekki síður, að fólki finnst ógeð-
fellt, ef ekki ósiðlegt, að allir
drekki af sama bikar.
í sumum kirkjum eru notaðir
sérbikarar. I greinargerð sr.
Hreins segir hins vegar að slíkt
fyrirkomulag mælist misjafnlega
fyrir. Sumum fmnist það minna á
veisluhöld og ekki eiga heima í
kirkju. Auk þess sé það ekki í
samræmi við orð Krists og því
fylgi nokkuð umstang. Þá eigi
ekki allar kirkjur sér bikara. Sú
tilhögun, sem tillagan geri ráð
fyrir mundi leysa þetta mál á ein-
faldan hátt og prófessor í gxið-
fræði við Háskóla Islands telji
guðfræðilega séð ekkert því til
fyrirstöðu að þessi háttur verði
hafður á við útdeilingu.