Morgunblaðið - 05.11.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
Fiskiþing;
Kvótí á ísfiskútflutning
í hlutfalli við aflakvóta
FISKIÞING samþykkti í gær ályktun um að sterklega komi til greina
að útflutningur ísfisks verði kvótaskiptur í hlutfalli við aflakvóta
skipa meðan kvótakerfi er við lýði. Óeðlilegt sé að úthluta leyfúm
til útflutnings á ísfiski miðað við reynslu eins árs, eins og gert hafi
verið. Fellt verði niður álag á ísfiskútflutning annan en þorsk og
karfa og ekki verði lagt álag á loðnu sem seld er erlendis. Þingið
treysti sjávarútvegsráðherra til að framfylgja þeirri stefhu sem
fylgt hafi verið f hvalveiðimálum. Fiskiþingi lauk í gær.
í ályktunum Fiskiþings segir
einnig, meðal annars: Heildarúttekt
verði gerð á innflutningi og dreif-
ingu oliu. Tekið verði tillit til hags-
muna allra aðila og stefnt að því
að olíuverð hérlendis verði í sem
mestu samræmi við olíuverð í ná-
grannalöndum okkar. Eitt skuli yfir
allan fiskiðnað ganga f hugsanleg-
um raforkuverðslækkunum. Ekki
er ráð að breyta því grundvallarat-
riði í fískveiðistefnunni að veiði-
kvóti fylgi fiskiskipi, þrátt fyrir þá
undantekningu sem nú gildir um
skelfískbáta. Þess vegna getur
þingið ekki fallist á að humarkvóti
fylgi ekki bátum við sölu.
Ekki verður hjá því komist að
draga nokkuð úr veiðum á þorski
við núverandi aðstæður. Fiskiþing
leggur til að reglur um dragnóta-
veiðar verði teknar til gagngerrar
endurskoðunar og áhrif dragnóta-
veiða á lífríki qávar verði rannsök-
uðsem fyrst.
í hugmyndum um veiðileyfasölu
kemur fram veruleg vanþekking á
íslenskum sjávarútvegi. Fiskiþing
bendir stjómvöldum á þá staðreynd
að sú stórfellda eignaupptaka, sem
sjávarútvegurinn hefur mátt þola
undanfarin ár, er ekkert annað en
skattlagning á aðalatvinnuveg þjóð-
arinnar.
Fiskiþing hefur áhyggjur af
minni meðalþunga landaðs fisks og
leggur til að veiðieftirlit verði aukið
og skyndilokanir gerðar virkari.
Það beinir því til Hafrannsókna-
stofnunar að athuga hvort ekki sé
vænlegra til árangurs að beita
skyndilokunum á afmörkuðum
hrygningarsvæðum þorsksins við
iandið, frekar en lokunum ákveð-
inna svæða ár eftir ár.
Þingið leggur til að úthlutun
leyfa til útflutnings á ísfíski verði
í höndum nefndar sem skipuð verði
flórum mönnum: Einum frá Fiskifé-
lagi íslands, einum frá Landssam-
bandi íslenskra útvegsmanna, ein-
um frá Farmanna- og fiskimanna-
sambandinu og Sjómannasambandi
íslands og einum frá utanríkisráðu-
neytinu.
Morgunblaðið/Bjami
Til hægri situr Finnbogi Kjeld við hlið lögmanns síns, Guðmundar
Jónssonar, á uppboðinu í gær. Fjær á myndinni setur Jónas Gústavs-
son borgarfógeti upp gleraugu sín og Ingólfúr Sigurz fulltrúi bókar
uppboðsskilmála.
Eldvík og Hvalvík seldar á uppboði:
Slj ómarformaður-
inn átti hæstu tilboð
Hallarekstur ríkissjóðs:
TVÖ þriggja flutningaskipa Skipafélagsins Víkna hf., ms. Eldvík
og ms. Hvalvík, voru seld á 2. og síðara nauðungaruppboði I gær.
Hæsta boð í Eldvik var 32,5 milljónir króna, hæsta boð í Hvalvík var
32 mUljónir króna. Stjórnarformaður félagsins, Finnbogi Kjeld, bauð
hæst í bæði skipin. Hann bauð í eigin nafiii. Finnbogi hefúr 14 daga
tU að greiða uppboðshaldara fjórðung upphæðarinnar, að öðrum
kosti verður næsthæsta tilboði tekið.
kvaðst telja hæstu tilboð sín nærri
markaðsverði, í hæsta lagi fyrir
Eldvík en ívið of lágt fyrir Hvalvík.
Aðspurður hvort honum tækist að
greiða rúmar 16 milljónir fyrir 18.
nóvember, sagði Finnbogi: „Það
verður að koma í ljós, ég vona það.“
Olíklegt að innlend
lán Qármagni hallann
ÓLÍKLEGT er að hægt verði að
fjármagna þriggja milljarða
króna hallarekstur ríkissjóðs á
þessu ári með lántökum innan-
lands. Skuld ríkissjóðs við Seðla-
bankann vegna þessa verður þvi
væntanlega gerð upp með nýjum
erlendum lánum. I lánsfiáráætl-
un fyrir næsta ár er talið að
erlendar lántökur ríkissjóðs á
Leit stend-
ur enn yf-
ir í Nepal
NEPALAR, af þjóðfiokki flalla-
sherpa, leita nú líkamsleifa Þor-
steins Guðjónssonar og Kristins
Rúnarssonar, íslensku fiall-
göngumannanna sem taldir eru
af í Himalayaflöllum.
Þyrla leitaði um síðustu helgi en
án árangurs. Sherpamir, 3 eða 4
talsins, voru viðloðandi flokk sem
leitar nú uppgöngu á Everest-tind.
Þeir féllust á að leggja lykkju á
leið sína og leita Þorsteins og Krist-
ins.
þessu ári verði 4,6 milljarðar
króna í stað 900 milljóna eins
og upphaflega var gert ráð fyr-
ir.
Geir Hallgrímsson, bankastjóri
Seðlabankans, sagði að möguleikar
á að taka innlend lán til að borga
skuld ríkissjóðs við Seðlabankann
færu eftir því hve mikið væri keypt
af ríkisskuldabréfum, svo sem
spariskírteinum ríkissjóðs, sem
færi aftur eftir þvf hvort ávöxtun
af þeim væri nægilega góð til að
hvetja menn til að spara. Seðla-
bankinn vildi helst að rekstrarfjár-
þörf ríkissjóðs væri borgið með inn-
lendum spamaði, en til þess að svo
mætti verða yrði innlendur spam-
aður að aukast og ríkissjóður að
bjóða góð ávöxtunarkjör.
Vextir af spariskírteinum ríkis-
sjóðs hafa hins vegar lækkað og í
lánsíjáráætlun er gert ráð fyrir að
vextir af spariskírteinum ríkissjóðs
lækki enn frekar í samræmi við
stefnu ríkisstjómarinnar. Gert er
ráð fyrir að spariskírteini ríkissjóðs
verði seld fyrir 4,7 milljarða króna
á næsta ári, sem er lítið eitt minna
en á þessu ári, en hrein fjáröflun
ríkissjóðs af sölunni lækki úr 1.500
milljónum króna í 600 milljónir.
Uppboðin fóru fram að kröfu
Tryggingastofnunar ríkisins og
Landsbanka íslands. Sjóveðrétt-
arkröfur í Eldvík námu 4,3 milljón-
um en um 9,9 milljónum í Hvalvfk.
Lögmaður Landsbankans, Stefán
Pétursson, og Finnbogi buðu einir
fjölmargra viðstaddra f skipin. Ekki
fengust upplýsingar um skuldír
skipafélagsins við Landsbankann.
Eldvík var boðin upp á undan. Fyrst
bauð Stefán Pétursson 4,5 milljón-
ir, Finnbogi hækkaði í 5 milljónir
og Stefán í 6. Eftir það hækkuðu
þeir hvor annan um fimmhundruð
þúsund hverju sinni, allt þar til
Finnbogi hafði boðið 32,5 milljónir
króna. Hærra tilboð barst ekki.
Stefán Pétursson byijaði á 10
milljóna boði í Hvalvík og buðu
þeir Finnbogi enn á víxl. Finnbogi
átti 8. tilboðið, 32 milljónir, og
„ÉG ER ekki sammála Seðla-
bankanum," sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra f
gær um álit Seðlabankans um
breytingar á lánskjaravísi-
tölunni. Seðlabankinn skilaði
áliti sínu í gær. Steingrímur
sagði Seðlabankann sjá öll tor-
merki á breytingunni, sem felst
í að taka launavísitölu inn í láns-
kjaravísitölu og að afnema verð-
tryggingu. Ríkisstjórnin mun þó
halda sínu striki og gera það sem
þarf til að koma breytingunum
á, að sögn Steingríms.
„Ég held að það sé engin laun-
ung að þeir sjá alls konar þránda
í götu, erfiðleika við það að breyta,
en ríkisstjómin er auðvitað ákveðin
í því að breyta og þetta verður
rætt við Seðlabankann f næstu
viku,“ sagði Steingrímur.
Hann var spurður hvort leggja
þurfi málið fyrir Alþingi. „Það er
álitamál sem þarf að skoða. Það
getur vel verið að þurfí að leggja
hærra fór Stefán ekki.
Við nauðungarsölu er venja að
V* kaupverðs sé greiddur við sam-
þykkt tilboðs en eftirstöðvar innan
tveggja mánaða, að frádregnum
veðskuldum þar sem um áfram-
haldandi lán semst. Uppboðshald-
ari, Jónas Gústavsson borgarfógeti,
tilkynnti Finnboga Kjeld að greiddi
hann ekki fjórðung hæsta tilboðs í
sfðasta lagi á hádegi 18. nóvember,
yrði tilboðum Landsbankans tekið.
Stefán Pétursson óskaði eftir að
fógeti véitti Finnboga styttri frest
en víð því var ekki orðið.
Finnbogi Kjeld hefur um nokkuð
skeið unnið að því að skrá flutninga-
skip félagsins, ms. Keflavík auk
framangreindra, undir erlendum
fána. Að loknu uppboði sagðist
hann harma að það hefði ekki tek-
ist í tæka tíð fyrir uppboðin. Hann
það fyrir Alþingi."
Steingrfmur kvaðst ekki vilja
nefna dæmi um helstu þröskuldana
sem Seðlabankinn telur vera í vegi
þess að breyta lánskjaravísitölunni,
sagði hann rétt að viðskiptaráð-
herra greindi frá því. „En, ég get
staðfest það að Seðlabankinn hefur
loksins svarað og telur vera ýmsa
erfiðleika í að breyta grundvellinum
Þyrlan lagði af stað frá
Reykjavík kl. 17.55 og var lent
með manninn við Borgarspítalann
24 mínútum síðar. Það tekur hins
vegar að minnsta kosti klukku-
Hann sagðist enn eiga í viðræðum
við aðila erlendis sem hefðu áhuga
á að taka skipin í kaupleigu og ef
saman gengi kvaðst hann telja sig
geta reitt fram féð. Aðspurður hvort
hann hygðist annars feta í fótspor
eigenda Hótels Arkar og Gestgjaf-
ans í Vestmannaeyjum, og leita
allra leiða til að tefja að nauðungar-
salan næði fram að ganga, kvaðst
Finnbogi ekkert geta um það sagt;
það yrði einnig að koma í ljós.
Hvalvík er í Reykjavíkurhöfn en
Eldvík er f Portúgal þar sem unnið
hefur verið að viðgerðum á skipinu.
Kostnaður vegna þeirra nemur um
300 þúsund Bandaríkjadölum, um
14 milljónum króna, og fellur á
kaupandann. Skipin teljast í vörsl-
um Skipafélagsins Víkna þar til
uppboðshaldari hefur samþykkt til-
boð.
og það gengur þvert á það sem
verðtryggingamefnd taldi."
Steingrímur var spurður hvort
ríkisstjómin væri eftir sem áður
ákveðin í að framkvæma þessar
breytingar á lánskjaravísitölunni.
„Við erum það, það er í stjómarsátt-
málanum og mun verða gert,“ sagði
forsætisráðherra.
Ekki náðist i viðskiptaráðherra í
gær til að fá álit hans á svari Seðla-
bankans.
stund að aka hvora leið. Maðurinn
mun ekki hafa verið lífshættulega
slasaður, og að sögn lögreglunnar
í Borgamesi gekk hann frá lög-
reglubíl um borð í þyrluna.
Verðkönnun á hárgreiðslu- og rakarastofiim:
Allt að 327% verð-
munur á hárþvotti
VERÐLAGSSTOFNUN gerði verðkönnun í hárgreiðslu- og rak-
arastofúm í september og október sl. og samkvæmt upplýsingum
verðlagsstofiiunar er mikill verðmunur á þjónustunni hjá stofim-
um, en mestur á hárþvotti, þar sem fjórnr stofiir taka allt að
327% hærra verð fyrir hann en sú stofa, sem ódýrust er.
Lægsta verð á herraklippingu dýrari en verðið á þeirri stofu,
var 660 krónur og það hæsta þar sem þessi þjónusta er ódýrust.
1.100 krónur eða 69% hærra verð. Sjá niðurstöður verðkönnun-
Dýrasta dÖmuklippingin er 179% arinnar á bls. 29.
Breytingar á lánskjaravísitölu:
Seðlabankínn sér öll
tormerki á að breyta
Ósammála, segir forsætisráðherra
Bílslys í Leirársveit
HARÐUR árekstur varð milli jeppa og amerísks fólksbíls á veginum
í Leirársveit um miðjan dag 1 gær. Báðir ökumenn voru fluttir í
sjúkrahúsið á Akranesi, og var annar þeirra fluttur þaðan með
þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Bílarnir eru taldir ónýt-
ir eftir áreksturinn.