Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988 49 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS MtíJÍ Þessir hringdu . . Fleiri leiktæki Móðir hringdi: „Ég tel að það væri til mikilla bóta ef sett yrðu upp leiktæki fyrir böm víðar hér í borgiiini. Það eiga ekki nærri öll börn kost á að fara á dagheimili og víða er langt fyrir foreldra að fara með þau á leikvelli. Sjálf bý ég skammt frá leikvelli og þetta ekki mitt vandamál en það hafa margir tal- að við mig um þetta. Svona leik- tæki em mjög ódýr og ætti því ekkert að vera því til fyrirstöðu að sétja þau víðar upp.“ Endursýnið Austfjarðaþáttinn Auður hringdi: „Gæti Ríkissjónvarpið ekki end- ursýnt þáttinn frá Austfjörðum, Huldar vættir " í Borgarfirði eystra? Ég missti af þessum þætti en hef heyrt að hann sé mjög góður. Best væri að endursýna svona þætti á góðum tíma á sunnudögum því þá hafa flestir tíma til að horfa á sjónvarp." Hæpin auglýsing? Amma hringdi: „Ég tel mig fremur fijálslynda og ekki mjög hneykslunargjarna og hef ég ekki talði ástæðu til að amast við aulýsingu landlækn- is þar sem varað er við eyðni. Nú velti ég því hins vegar fyrir mér hvort þessi auglýsing geti ekki komið röngum hugmyndum inn hjá bömum. Eitt af baranbömum mínum hafði verið að horfa á þessa auglýsingu og spurði svo móður sína: Deyr maður af því að fara í keló? Þó þessi auglýsing sé sjálfsagt þörf er ég hrædd um að hún komi inn röngum hug- myndum um ástarlíf hjá bömum.“ Frekjulæti? Kjartan Ólafsson hringdi: „Bera fjölmiðlar ekki ábyrgð á frekjulátum fréttamanna sinna? Ég á við framkomu Halls Halls- sonar fréttamanns sjónvarps varðandi málefni Olís hf. Það er með endemum að horfa á þessar aðfarir hans.“ Skörulegur fj ármálaráðherra G.J. hringdi: „Ég vil lýsa yfir ánægju með hve hinn nýi fjármálaráðherra tekur skömlega á málum. Það var kominn tími til.“ Hvað ætlar Lífsvon gerá? Guðrún Jóhannsdóttn'- hringdi: „Nú er mikið rætt um kynferð- islega misnotkun bama vegna myndarinnar Svívirtu bömin sem sýnd var á Stöð 2. Það vekur furðu mína að ekkert heyrist frá Lífsvon um þetta mál en eins og flestum mun kunnugt gerist svona lagað hér á landi eins og annars staðar. Börn sem fyrir þessu verða eiga venjulega foreldra sem hirða lítið eða ekkert um þau og em á kafi í óreglu. Það getur ekki ver- ið nóg að börnin fái að fæðast, lífsskilyrði þeirra mega ekki vera fyrir neðan allar hellur.“ Hjól Tveggja gíra drengjahjól, grátt og silfurlitað, af tegundinni Turbo var tekið í Yrsufelli fyrir um það bil mánuði. Þeir sem hafa orðið varir við hjólið em vinsamlegast beðinir að hringja í síma 73361. Rekstrarvandi smásöluverslunarinnar Kaupmannasamtök íslands boða til almenns félagsfundar á Hótel Loftleiðum, Kristais- sal, miðvikudaginn 9. nóvember nk. kl. 20.30 um rekstrarvanda smásöluverslunarinnar. Á fundinum flytja eftirtaldir aðilar stutt framsöguerindi: Sigurður E. Haraldsson, kaupmaður, Guðjón B. Ólafsson, forstjóri S.Í.S., Júlíus Ólafsson, forstjóri Kristjáns Ó. Skagfjörð, Pétur Blöndal, forstjóri Kaupþings, Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra. JU —1 rvi ^ Tf jÉj| |L Fundarstjóri verður Guðjón Oddsson, formaður Kaupmannasamtaka íslands. Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta á fundinn. Sendiferðabílstjórar Eigum vörulyftur til á lager. Bif reiða- og trésmiðja Borgarness sími 93-71200. ERT ÞU I VANDA VEGNA VÍMU ANNARRA? Afleiðingarnar geta komið fram með ýmsum hætti í líðan þinni: • Erfjtt að tjá tilfinningar • Erfitt að táka sjálfstæðar ákvarðanlr • Skortur á sjálfstrausti • Skömmustutilfinning og sektarkennd • Kviði og ótti Nánari upplýsingar í fjölskyldudeild Krýsuvíkursam- takanna, Þverholti 20, sími 623550. Námskeið í gangi. Viðtalstímar á fimmtudögum. Akrýsuvíi KURSAMTÖKIN HB KAUPMANNASAMTÖK ÍSLANDS Vlllibráð Við endurtökum okkar vinsælu villibráðarveislu í kvöld, laugardagskvöld, í Blómasal Hótels Loftleiða Villibráðarhlaðborð: Villibráðarseyði, hreindýrapaté, sjávarréttap- até, grafmn silungur. Heilsteiktur hreindýravöðvi, ofnsteikt villigæs, pönnusteikt lundabringa, smjörsteikt ijúpu- bringa, ofnsteikt önd, hreindýrapottréttur. Heit eplakaka með vanilluís og ferskum ávextum. Og að sjálfsögðu okkar rómaöi sérrétta matseöill. HOTEL LOFTLEIÐIR FLUGLEIDA fip UOTEL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.