Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988 Jónas Ingimundarson Sólrún Bragadóttir Sólrún Bragadóttir syng- ur í Islensku óperunni SÓLRÚN Bragadóttir sópran- söngkona og Jónas Ingimundar- son píanóleikari halda tónleika í íslensku óperunni mánudaginn 7. nóvember kl. 20.30. Þessir tón- leikar eru á vegum Styrktarfé- lags íslensku óperunnar sem staðið hefur fyrir rðð nokkurra slíkra. Á efnisskránni eru m.a. verk eft- ir Mozart, Schubert, Bizet, Verdi, A. Lloyd-Webber, G. Gershwin og Þorkel Sigurbjömsson. Sólrún stundaði söngnám við Tónlistarskóla Kópavogs og síðar við Tónlistarskólann í Reykjavík. Þá hélt hún til Bandaríkjanna til framhaldssöngnáms og brautskráð- ist með „masters" gráðu frá Uni- Holiday Inn: Sýning á verkum eft- ir Snorra Arinbjarnar SÝNING á verkum eftir Snorra Arinbjarnar stendur nú yfir á Holiday Inn. Á sýningunni eru um 100 áður ósýnd verk úr dán- arsafni Snorra, olíu-, pastel-, krítar- og svartlistarmyndir sem spanna allan feril hans. Snorri Arinbjamar fæddist í Reykjavík 1901. Hann hóf mynd- listamám hjá Stefáni Eiríkssyni og Guðmundi Thorsteinssyni, Muggi. Síðan stundaði hann nám í Dan- mörku um hríð en árið 1927 hóf hann, ásamt Þorvaldi Skúiasyni, nám við Ríkislistaháskólann í Osló og var kennari hans þar Axel Re- vold, kunnur málari sem numið hafði hjá Henri Matisse. versity of Indiana i Bloomington árið 1987. Sama haust var hún ráðin sem fyrsti sópran við Óperuna í Kaiserslautem í V-Þýskalandi þar sem hún starfar nú. Þetta eru henn- ar fyrstu sjálfstæðu einsöngstón- leikar hér á landi. Jónas stundaði tónlistamám við Tónlistarskólann í Reykjavík og síðar við Tónlistarháskólann i Vínarborg. Frá árinu 1970 hefur hann starfað sem píanóleikari, tón- listarkennari og kórstjóri og haldið fjölda tónleika um land allt svo og á Norðurlöndunum, í Rússlandi, Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar. Einnig hefur hann leikið í útvarpi og sjónvarpi og á listahátíðum í Reykjavík og Bergen. Jónas kennir við Tónlistarskólann í Reykjavík. Snorri Arinbjamar: Sjálfsmynd 1928 Snorri kom heim árið 1930 en dvaldi af og til í Danmörku fram að seinni heimsstyijöldinni. Hann hélt §ölda einkasýninga og var einn af stofnendum Septemberhópsins. Snorri var einn af leiðandi expres- sjónistum landsins þar til hann lést árið 1958. Sýningin verður opin virka daga frá kl. 14.00 - 22.00 og frá kl. 14.00 — 23.00 um helgar til 13. nóvember. Aðgangur er ókeypis. Morgunblaðið/Júlíus Verðlaunahafar í samkeppni Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur ásamt formanni dómnefhdar. Talið frá vinstri: Margrét Þormar, Bergljót Einarsdóttir, Trausti Valsson, Sigrún Helgadóttir og Þórður Harðarson. Mannvist í þéttbýli: Tvær úrlausn- ir verðlaunaðar ÚRSLIT liggja nú fyrir í verðlaunasamkeppni Læknafélags ís- lands og Læknafélags Reykjavíkur, en viðfangsefni samkeppnin- ar var „Mannvist í þéttbýli.“ Alls bámst ellefu úrlausnir, en tvær þeirra vora verðlaunaðar. Fyrstu verðlaun, 250 þúsund krónur, hlaut Trausti Valsson skipulagsfræðingur og arkitekt fyrir rit- gerð sem hann nefiiir „Stefiia menningargilda og mannlegrar velferðar." Önnur verðlaun, 150 þúsund krónur, hlutu þær Sig- rún Helgadóttir lififræðingur, Margrét Þormar arkitekt og Sigríð- ur Einarsdóttir arkitekt fyrir ritgerð sem þær nefina „Mannvist í þéttbýli.' Efnt var til verðlaunasam- keppninnar í tilefni af 75 ára af- mæli Læknablaðsins á næsta ári, en jafnframt til að heiðra minn- ingu Guðmundar Hannessonar prófessors, sem var fyrsti ritstjóri blaðsins. Áuk þess að vera stofn- andi Læknablaðsins og frumkvöð- ull á mörgum sviðum heilbrigðis- mála var Guðmundur brautryðj- andi á sviði skipulagsmála. Tilgangur samkeppninnar „Mannvist í þéttbýli" var að hvetja fólk til umhugsunar um húsakost og umhverfi, og leiða fram nýjar hugmyndir að umbótum í hús- næðis-, skipulags- og umhverfis- málum, er geti stuðlað að betra mannlífi og bættu andlegu og líkamlegu atgervi komandi kyn- slóða. Samkeppnin var kynnt í októ- ber 1987 með skilafresti í febrúar- lok 1988, sem síðan var fram- lengdur um einn mánuð. Ellefu úrlausnir bárust, en þær fjölluðu um öldrunarmál, uppeldismál, fé- lagsmál, skólamál, leikvelli, streitu, skipulags- og umhverfis- mál. Fáeinar úrlausnir voru settar fram á myndrænan hátt, ein var kvikmyndahandrit, en flestar úr- lausnanna voru ritgerðir. í dómnefnd áttu sæti þau Þórð- ur Harðarson prófessor, sem var formaður dómnefndarinnar, Þor- steinn Gunnarsson arkitekt, Guð- rún Agnarsdóttir læknir og al- þingismaður og Sveinn Einarsson rithöfundur og fyrrverandi Þjóð- leikhússtjóri. Trúnaðarmaður dómnefndar og ráðgjafi var Zóp- hónías Pálsson fyrrverandi skipu- lagsstjóri. Trausti Valsson lauk prófi í arkitektúr með áherslu á borgar- skipulag í Berlín 1972. Næstu 8 árin starfaði hann við skipulag Reykjavíkur. Hann stundaði framhaldsnám í skipulagsfræðum í Bandaríkjunum og lauk prófi frá Berkeley háskóla í Kalifomíu. Hann er höfundur bókanna Reykjavík - vaxtarbroddur og þró- un höfuðborgar og Hugmynd að fyrsta heildarskipulagi Islands. Hann er nú dósent í skipulags- fræðum við Háskóla íslands. Bergljót Einarsdóttir lauk námi í arkitektúr frá Norges Tekniske Högskole í Þrándheimi árið 1982, og kennslufræði frá sama skóla 1983. Hún hefur unnið við kennslu, arkitekta- og skipulags- störf í Noregi og á íslandi, og starfar nú á vinnustofu Geirharðs Þorsteinssonar arkitekts. Margrét Þormar lauk námi í arkitektúr frá Gesamthochschule Essen árið 1976. Hún hefur unnið við arkitekta- og skipulagsstörf, en starfar nú á Borgarskipulagi Reykjavíkur. Sigrún Helgadóttir er kennari og líffræðingur að mennt, með framhaldsnám í nýtingu náttúru- auðlinda frá Edinborgarháskóla. Hún hefur starfað sem kennari og hjá Náttúruvemdarráði, en starfar nú hjá þingflokki Kvenna- listans. ÞAÐ ER DRAUMUR AÐ S0FA MEÐ B0RÁS Mú þarftu eKKi lengur að kvíða fyrir því að fara í háttinn. íiann er sænsKur og alveg frábær, þú verð- ur að prófa hann. BORÁ5 sængurfatnaður er sænsk gæðavara úr 100% mjúkri bómull og fæst í öllum helstu heimilis- og vefnaðarvöruverslunum landsins. ENGIN SLAGSMAL VIÐ K0DDAVERIN B0RÁ5 sængurfatnaðurinn er nefnilega sér- saumaður fyrir almennileg íslensk heimili. Koddaverin eru 50x70 cm. Engin afgangsbrot 5em lafa útaf eða sem verður að troða undir. Eða þá þessi slagsmál við að troða stóra og góða kodd- anum sínum inn í alltof lítið koddaver. I1EITARK! Ég tek sænska B0RÁ5 sængurfatnaðinn fram yfir allt annað - þú líka. SAGRES T

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.