Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 42
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
FRÁBÆR FÖSTUKÚR
* Mikill árangur
* Átakalaus
ic Heilsusamlegur
MJÚKFAST INNIHELDUR: 1 fl. Rabenhorst sveskjusafi 700 ml. 1 fl. Rabenhorst ananassafi 700 ml.
1 fl. Rabenhorst „Plús 11" 750 ml. 1 fl. EDEN grænmetissafi. 1 pk. DR KOUSA hveiti megrun 550 g.
2 pk. VITAMIN jurtakraft. 1 pk. Hörfræ 100 g. 1 bækl. Föstuleiosogn (á sænsku).
NÁ TTÚRULÆKNINGABUÐIN,
LAUGAVEGI25, SÍM110263.
ÍDAG
V-ÞYSKA
KVATTSPYRNAN
NtÍRNBERG - BREMEN
kl. 14:30
Þetta er bein útsending frá V-Þýskalandi,
nýjung hjá Sjónvarpinu. Fleiri slíkir leikir
verða sýndir á næstunni.
ÍKVÖLD
BESTU
TÓNLISTARMYNDBÖNDIN1988
kL2Í:25
í þessum bandaríska skemmtiþætti
er sýnt frá véitingu verðlauna
fyrir bestu tónlistarmyndböndin 1988.
Margir heimsþekktir tónlistarmenn koma
fram í þættinum sem er sannkölluð
veisla fyrir augu og eyru.
ÍKIÖLD
GLEÐILEG JÓL,
HR. LAWRENCE
kl. 23:00
Bresk kvikmynd frá 1983, með David
Bowie og Tom Conti í aðalhlutverkum.
Myndin gerist í Japan í síðari heims-
stýrjöldinni og er leikstjóri Nagisa Oshima.
Hér er spennandi mynd á ferð, sem
einkennist af góðum leik og fallegri
tónlist Ryuichi Sakamoto.
Amorgun
KIMIARSEIN
kl. 10:00
Splunkunýtt myndband með hinum
fjöruga Kim Larsen og hljómsveit hans
Bellami sem nú eru hér í heimsókn.
Lögin eru af nýjustu plötu Larsens,
Yummi Yummi.
* /
AMANUDAG
BRAUTIN RUDD
W. 20:35
Ný, athyglisverð heimildamynd um
brautryðjandann Auði Auðuns,
fyrrverandi ráðherra og borgarstjóra
í Reykjavík.
SJÓNVARPIÐ
Harrison Ford ásamt Melanie Griffith (t.v.) og Sigoruney Weaver.
KVIKMYNDIR
Harrison Ford 1 óUkiim hlutverkum
Bandaríski leikarinn Harrison
Ford, sem meðal annars lék í
kvikmynd Romans Polanskys,
Frantic, hefur nýlokið við að leika
í tveimur mjög svo ólíkum myndum.
Önnur þeirra er þriðja myndin í
myndröð Stevens Spielbergs um
ævintýramanninn og fomleifafræð-
inginn Indiana-Jones, en hin gerist
í allt annars konar heimi ævintýra,
þ.e. í hinum óblíða og miskunnar-
lausa viðskiptaheimi New York-
borgar.
Síðarnefnda myndin heitir
„Working Girl“ og þar leikur Harri-
son Ford á móti Melanie Griffith
og Sigoumey Weaver. Griffith leik-
ur framgjama skrifstofustúlku, sem
leitast við að klifra upp metorða-
stigann, en Weaver, yfirmaður
hennar er „lokkandi mannæta" eins
og það er nefnt í kynningarriti Fox-
kvikmyndafyrirtækisins um þessa
nýju mynd, sem enn hefur ekki
verið frumsýnd. Samkvæmt sömu
heimild er Harrison Ford „drauma-
prins í jakkafötum", sem hjálpar
skrifstofustúlkunni áleiðis.
Leikstjóri myndarinnar er Mike
Nichols, sem þekktur er fyrir leik-
stjóm sína á kvikmyndunum „Hver
er hræddur við Virginíu Wolf?“,
„Fagra nýja veröld" og „Silkwood".
Myndatöku annaðist Þjóðverjinn
Michael Ballhaus, sem áður vann
með Fassbinder, en er nú einn af
eftirsóttustu kvikmyndatökumönn-
um vestra.
Ef að líkum lætur fáum við
„Working girl“ á hvíta tjaldið seinna
í vetur eða vor.