Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 30
30 ~w~ MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988 Verkefnaleg staða slæm, en eiginfj árstaða góð - segir Signrður G. Ringsted nýráðinn forstjóri Slippstöðvarinnar hf. SIGURÐUR Gísli Ringsted var ráðinn forsijóri Slippstöðvarinnar hf. á Akureyri í gær. Að öllum líkindum tekur Sigurður við forstjóra- starfínu af Gunnari Ragnars um áramótin. Gunnar hefiir verið for- stjóri fyrirtækisins siðustu 20 árin, en hann hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa í stað Gísla Konráðsson- ar, sem hættir fyrir aldurs sakir. Samþykkt var á stjómarfundi auglýsa ekki forstjórastöðu Slipp- Slippstöðvarinnar fyrir skömmu að stöðvarinnar. Þess í stað var geng- ið til viðræðna við Sigurð og var hann ráðinn í gær með öllum greiddum atkvæðum stjórnar- manna, sjö talsins. „Mér líst ágætlega á að taka við fyrirtækinu þó róðurinn gæti orðið erfíður á næstu misserum," sagði Sigurður Ringsted í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég held að staða Slippstöðvarinnar sé nokkuð góð. Verkefnaleg staða fyrirtækis- ins er slæm um þessar mundir, en JC-Akureyri kannar akstursvenjur ungs fólks 17-20 ára: Fjórðungur hefiir ekið með ölvuðum ökumanni FJÓRÐA hvert ungmenni á aldrinum 17—20 ára á Akureyri hefur verið farþegi i bifreið ökumanns undir áhrifum áfengis, samkvæmt nýrri könnun sem félagar í JC-Akureyri stóðu fyrir um síðustu helgi. Þá kemur fram að 7% fólks á þessum tiltekna aldri heftir ekið bifreið undir áhrifum áfengis. Könnunin fór fram laugardaginn 29. október sl. Félagar í JC-Akur- eyri heimsóttu alla Akureyringa á aldrinum 17—20 ára, afhentu þeim %feggspjald til að minna á að akstur er dauðans alvara og gerðu í leið- inni skoðanakönnun um umferðar- menningu. Aðaltilgangur verkefnis- ins var að vekja unga ökumenn til umhugsunar um umferðarmál. Alls eru 967 einstaklingar á þessum aldri á Akureyri og svöruðu allir sem náðist til, 312 einstaklingar. Tíu spurningar voru lagðar fyrir unglingana. 93% aðspurðra höfðu bílpróf og 45% áttu sjálfír bíl. Þá sögðust 45% hafa lent í umferðar- óhappi á þessu aldursskeiði. Því næst var spurt um hver hámarks- hraði væri í þéttbýli annars vegar og úti á þjóðvegum landsins hins- vegar. 91% sögðu hámarkshraða í þéttbýli vera 50 km á klst., en ekki voru unglingamir sammála um hámarkshraða utan þess. Stærstur hluti aðspurðra hélt sig þó við 90 km hraðann eða 155 einstaklingar af þeim 312 sem spurðir vom. 47 sögðu 70 km, 33 sögðu 80 km, tveir sögðu 70-80 km, 47 sögðu 70-90 km, 19 manns sögðu 80-90 km og níu svömðu ekki. 180 einstaklingar sögðust ekki halda sig ávallt innan hámarks- hraðans, eða 58% aðspurðra. Af hveiju ekki? Af þessum 180 ein- staklingum töldu 66 þeirra, 36% alls fjöldans, hámarkshraða of lág- an. 52% töldu sig aka hraðar en leyfílegt væri vegna kæmleysis. Eins og áður kom fram viðurkenndu 7% aðspurðra að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Það em 23 ein- staklinganna. 280 manns neituðu því og níu svömðu spumingunni ekki. 74 höfðu verið farþegar hjá ökumanni, sem var undir áhrifum áfengis, eða um 24% aðspurðra. 236 svömðu spumingunni neitandi og tveir svömðu ekki. Alls sögðust 272 ávallt nota bílbelti við akstur. Tíu sögðu stund- um, 28 sögðu oftast og tveir svör- uðu ekki. Þá sagðist mikill meiri- hluti nota ökuljós við aksturinn, eða 92% aðspurðra. „Aðalmálið hjá okkur með þess- ari könnun var ekki að fá þessa sláandi niðurstöðu. Heldur vildum við fyrst og fremst heimsækja krakkana til að gefa þeim vegg- spjöldin og fá þau til að hugsa um þessi mál,“ sagði Magga Alda Magnúsdóttir fráfarandi forseti JC- Akureyri í samtali við Morgun- blaðið. JC-dagurinn um land allt var 29. október sl. og hafði verið ákveðið að helga daginn æskulýðs- málum. „Við fengum mjög góðar viðtökur hjá krökkunum og foreldr- ar þeirra vom sérstaklega áhuga- samir og töldu ekki vanþörf á að minna þau á enda væm þau tiltölu- lega nýlega búin að fá bílprófið," sagði Magga Alda. Umferðarráð aðstoðaði við framkvæmd könnun- arinnar. eiginfjárstaða þess er góð og á því hefur reksturinn gengið. Ég hef trú á að rekstur skipasmíðaiðnaðar í landinu verði áfram erfíður einhver næstu misserin. Það virðist enginn hljómgmnnur fyrir því að gera inn- lendar stöðvar samkeppnishæfar við erlendar. Það segir sig sjálft að Slippstöðin ein og sér ræður ekki við ríkisstyrki annarra landa. Við emm að keppa við ríkisstyrki og ríkisvaldið í viðkomandi löndum hlýtur að telja þá borga sig fyrir þjóðina í heild. Við emm hvorki meðmæltir ríkisstyrkjum né höftum á skipakaup erlendis. Hins vegar væri hægt að hliðra til með lánafyr- irgreiðslu og fjármagnskostnað hér innanlands meira en gert er,“ sagði Sigurður. Sigurður sagði að menn sæju fram á lágmarksviðhaldsverkefni fram í janúarmánuð, en eftir það ríkti mikil óvissa. „Við emm að vinna við smíði á öðmm 240 tonna togaranum okkar og ef sú vinna væri ekki fyrir hendi, væri nánast ekkert að gera hér.“ Hann sagði að nokkrar fyrirspumir hefðu borist um togarana tvo sem Slippstöðin hefur fengið leyfí til að smíða. Eng- in formleg tilboð hefðu þó enn bor- ist í skipin. Fyrra skipið verður væntanlega tilbúið í apríl á næsta ári og þá verður hafíst handa við smíði hins togarans, sem verður sambærilegur. „Þetta skip er ódýr- ara en sambærileg skip, sem hafa verið að koma til landsins að und- anfömu. Við emm til viðræðu um að taka eldri skip upp í kaupin að því tilskildu að þau séu í því ástandi að hægt sé að fá eitthvað fyrir þau. Rætt hefur verið við örfáa aðila um slík skipti," sagði Sigurð- ur. Tvö skip em væntanleg í slipp á Akureyri á næstu dögum sem byggja á yfír. Það em Sæþór EA 101 og Gissur hvíti HU 35. „Þrátt fyrir verkefnaleysi á stundum, hef- ur Slippstöðin komist hjá fjöldaupp- sögnum. Hinsvegar höfum við und- anfarin ár ekki ráðið í þær stöður sem losna og em starfsmenn nú Morgunblaðið/Rúnar Þór Sigurður Gísli Ringsted nýráðinn forstjóri Slippstöðvarinnar hf. um 220 talsins, en vom þegar mest var um 300 árið 1984. Stundum höfum við þurft að grípa til þess ráðs að hætta yfirvinnu. Yfirleitt hefur það ástand ekki verið lang- varandi, en nú sjáum við fram á slíkt í nokkra mánuði. Unnið er frá 7.30 til 16.00. Útistandandi skuldir hafa aukist gífurlega á síðustu mánuðum og nú er svo komið að við eigum útistandandi um 90 millj. kr. Útgerðarmenn hafa ekki pen- inga þó þeir hafi þurft að láta dytta að skipum sínum og því höfum við virkað eins og einn bankinn til við- bótar. Aðeins góð staða fyrirtækis- ins hefur gert það að verkum að við höfum getað hliðrað til með greiðslur." Eigið fé Slippstöðvarinn- ar var um 174 millj. kr. um síðustu áramót. Sigurður G. Ringsted er fæddur á Akureyri 1. mars árið 1949. For- eldrar hans em Sigurður Sigurðs- son Ringsted fyrrverandi banka- stjóri Iðnaðarbankans á Akureyri og Hulda Haraldsdóttir. Sigurður varð stúdent frá MA árið 1969. Hann lauk fyrrihluta verkfræði- prófs frá Háskóla íslands árið 1972 og síðan hélt hann til Danmerkur og lauk þar prófí í skipaverkfræði frá Danmarks Tekniske Höjskole í Kaupmannahöfn árið 1975. Er námi lauk hóf hann störf hjá Slipp- stöðinni hf. og hefur starfað þar óslitið síðan. Eiginkona hans er Sigrún Skarphéðinsdóttir. Kristniboðsfélögin: Arleg samkomu- vika að hefjast HIN árlega samkomuvika kristniboðsfélaganna og KFUM Tölvutæki Bókval Akureyri S. 96-26100 og KFUK hefst á morgun, sunnu- dag. Samkomur verða á hverju kvöldi og hefjast þær kl. 20.30 til sunnudagsins 13. nóvember, sem er kristniboðsdagurinn. Ræðumenn verða séra Guðni Gunnarsson skólaprestur, Jónas Þórisson kristniboði, Carlos Ferrer æskulýðsfulltrúi Akureyrarkirkju, séra Birgir Snæbjömsson prófastur og Friðrik Hilmarsson starfsmaður Kristniboðssambandsins. Sýndar verða myndir frá starfinu í Afríku. Laugardaginn 12. nóvember verður auk samkomunnar kl. 20.30 mið- nætursamkoma kl. 23.30. Mikill almennur söngur verður á samkom- unum og einnig einsöngur. I vik- unni verður veitt móttöku gjöfum til kristniboðsins. Það er von þeirra, sem að samkomuvikunni standa, að sem flestir gefi sér tíma til að koma í Sunnuhlíð vikuna 6.-13. nóvember. !-Vj }'s*&f4ív$ cft > 'i «’' *j ^ "í », Morjjfunblaðið/Rúnar Þór Miklum borða hefiir verið komið upp við Sjallann. Við hann á myndinni standa nokkrir aðstandendur pipar- sveinakvöldsins, frá vinstri: Friðþjófur Sigurðsson, Margrét Pétursdóttir og Pétur Eggerz leikarar, Bjarni Bjarnason kynnir kvöldsins, Viðar Þórarinsson og Páll Jónsson, piparsveinar og kokkar. Piparsveinar stoftia samtökin Pipar-Inn PIPARSVEINAR á Akureyri og víðar hyggjast stofiia formlega samtök í Sjal- lanum á Akureyri í kvöld laugardag. Samtökunum hefiir verið valið nafiiið Pipar-Inn. Haldin verður kvöldskemmt- un piparsveina í Mánasal og gera skipu- leggjendur kvöldsins ráð fyrir 70 ólofuð- um sveinum á öllum aldri, ef marka má undirtektir sveina á Akureyri og i nær- liggjandi sveitum. Kynnir kvöldsins verður Bjami Bjarnason. Viðar Þórarinsson og Páll Jónsson hafa unnið við undirbúning, en þeir eru báðir kokkalærðir og hyggjast útbúa matföngin sjálfir. „Við tókum Mánasalinn á leigu og ætlum að elda sex-réttaða glæsilega máltíð. Hátíðin hefst klukkan 19.00 með því að boðið verður upp á tvenns konar fordrykk og piparkökur í anddyri. Með kvöldverðinum fá gestir að njóta úrvals skemmtikrafta í 150 mínútur. Þar á meðal verður frumsýnt leikrit, sem útskýrir kvenímyndina í okkar augum," sagði Viðar. Þrír piltar og ein stúlka leika í verkinu, Pétur Eggerz, Frið- þjófur Sigurðsson, Gunnar Gunnsteinsson og Margrét Pétursdóttir. Pétur sagði að leikhópurinn væri einskonar piparsveinaráð- gjöf, sem flytja myndi fræðsluballettinn „Piparsveinavatnið". i S t HI i I {:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.