Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Stefiiuræða Steingríms Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, flutti stefnuræðu sína á Alþingi í fyrrakvöld. í kjölfar hennar fylgdu umræður, sem útvarpað var og sjónvarpað að venju. Þessar umræður voru með hefð- bundnu sniði en þær sýndu líka, að Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verður harðsnúinn forystumaður stjóm- arandstöðunnar á Alþingi. Ræða hans í umræðunum hefur hvar- vetna vakið athygli vegna þrótt- mikils málflutnings. Ástæða er til að staldra við söguskýringar forsætisráðherra í stefnuræðunni. Honum varð tíðrætt um stefnuna í vaxtamál- um og peningamálum eins og eðlilegt er og sagði m.a.: „Síðan 1985 má segja, að hér á landi hafí verið fylgt hefðbundnum vestrænum leiðum í efnahags- málum. Ætlað var að skapa jafn- vægi með því að takmarka fram- boð fjármagns og láta markað- inn ráða vöxtum. Um þessa leið voru að vísu skiptar skoðanir, en þeir, sem ráðið, hafa stjóm peningamála í landinu, höfðu sitt fram.“ Rétt er að vekja athygli á í þessu sambandi, að fyrstu skref- in til fijálsræðis í vöxtum vom stigin haustið 1984, þegar Steingrímur Hermannsson var forsætisráðherra. Sjálfstæðis- flokkurinn hafði forystu um þá breytingu. Þáverandi forsætis- ráðherra var henni samþykkur, þótt andstaða væri að vísu innan flokks hans, Framsóknarflokks- ins. Steingrímur Hermannsson getur því alls ekki fírrt sig ábyrgð af þessari vaxtapólitík, eins og hann virðist reyna að gera í stefnuræðunni nú. Stefnuræða forsætisráðherra sýnir, að hann gerir sér glögga grein fyrir því, að efnahagsráð- stafanir ríkisstjómarinnar duga skammt. Raunar er ljóst, að með þeim er stefíit út í efnahagslegt kviksyndi. Þegar verðstöðvun- artímabilinu lýkur biýzt ný verð- hækkunaralda fram. Ríkis- stjómin byggir vonir sínar um framhaldið á tvennu: í fyrsta lagi að samdráttur í efnahagslíf- inu og viðskiptum almennt leiði til þess að seljendur vöm og þjónustu treysti sér ekki til að hækka verðlag, þegar færi gefst, heldur muni þessir aðilar taka á sig kostnaðarhækkanir. Vel má vera, að eitthvað verði um það, að einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir reyni að taka útgjalda- hækkanir á sig í stað þess að hækka verð en það er óskhyggj- an einber að halda að það gerist í þeim mæli, að máli skipti. í öðm lagi er ljóst, að ríkis- stjómin gerir sér vonir um, að afurðaverð á Bandaríkjamarkaði fari hækkandi. Forsætisráðherra sagði í ræðu sinni: „Ýmsir telja, að verðhækkun muni verða á sjávarafurðum að vori vegna uppskembrests í Bandaríkjun- um.“ Sennilega verður ekki um frekari verðlækkun að ræða á Bandaríkjamarkaði og það er rétt hjá Steingrími Hermanns- syni, að einhveijar vísbendingar em um að verðlag kunni að hækka. En er hægt að byggja efnahagsstefnu ríkisstjómar á slíku happdrætti? Það er auðvit- að fullkomið ábyrgðarleysi. í ræðu sinni sagði Steingrímur Hermannsson: „Að mati Þjóð- hagsstofnunar munu þjóðartekj- ur dragast saman um 5-6 af hundraði á yfírstandandi ári og því næsta. Við þær aðstæður er óhjákvæmilegt, að kaupmáttur lækki." Það em mjög skiptar skoðanir um það, hvort einhvers konar kreppa sé yfírvofandi. 'Andmælendur þeirrar skoðunar benda á, að ekkert hmn hafí orðið í aflabrögðum og þótt verð- lag hafí lækkað á Bandaríkja- markaði sé það enn mjög hátt. Ekkert annað í atvinnu- og efna- hagsmálum okkar bendi til þess að raunvemleg kreppa sé í að- sigi. Þeir sem telja, að svo sé benda hins vegar á mikinn sam- drátt í viðskiptum og athafna- lífí, minnkandi innflutning, minnkandi veltu, eins og bezt kemur fram í tekjum ríkissjóðs, gjaldþrot fyrirtækja o.sv. frv. Hér skal ekkert fullyrt um, hvorir hafa rétt fyrir sér. Hitt er ljóst, að þjóðin hefur lifað um efni fram og tímabært er orðið að snúa blaðinu við. Þess vegna verður að líta svo á, að sá sam- dráttur, sem nú er að verða, sé til marks um jákvæða þróun og vísbending um, að efnahags- stefna fyrrverandi ríkisstjómar hafí verið byijuð að bera árang- ur. Þótt vemlegur samdráttur verði frá þeirri miklu þenslu, sem hér hefur ríkt, er það engin kreppa. Ríkisstjóm Steingríms Hennannssonar á því ekki að komast upp með að nota slíka aðlögun til þess að hræða fólk með því, að alvarleg kreppa sé yfírvofandi. Fari hins vegar svo, að við verðum að skera vemlega niður aflakvóta fískiskipanna vegna ástands fískistofnanna má vel vera, að það harðni á dalnum. „Það gildir að halda í forvitnina...“ Rætt við Erling Blöndal Bengtsson sellóleikara, sem er kominn hingað enn á ný í tónleikaferð Af tilviljun lágu leiðir okkar Erlings Blöndals Bengtssonar saman um daginn á skartgripa- sýningu, þar sem sonur hans sýndi verk sin ásamt félaga sínum. Reyndar sama tvíeykið og sýndi í Norræna húsinu fyrir nokkru, en það er önnur saga. Liklega er tónlistin aldrei langt undan í huga Erlings, þvi auk þess að virða fyrir sér munina og skiptast á orðum við sýningar- gesti, þá rölti hann um og raul- aði lagstúf fyrir munni sér. Hvort það var brot úr seilósvítum Bachs, sem hann segist aldrei þreytast á að spila, eða eitthvað annað heyrðist ekki glögg- Iega... Sellóleikarinn virtist ekkert hugsa út í, að hann var sá eini þama, sem hafði tónlistina með sér. Leiðir hans og tónlistarinnar hafa legið saman svo lengi, að um annað er ekki að ræða. Lengi? Nei, alltaf því hann hefur haft tónlist í kringum sig síðan hann fæddist. Móðir hans var íslensk, ættuð frá ísafirði, en fór ung til Kaupmanna- hafnar til að stunda píanóleik. Áður en hún fór utan, spilaði hún meðal annars undir í Gamla bíói hjá Bíó- Petersen. Erling finnst það skemmtileg tilviljun að í þessari íslandsferð spilar hann þar á vegum Tónlistarfélagsins . . . og hann spil- aði J>ar líka í fyrstu tónleikaferðinni til Isiands 1946, en meira um það á eftir. Frá Kaupmannahöfn fór píanó- leikarinn til Svíþjóðar og spilaði á hóteli í Nyköbing. Á þeim tímum var ekkert hótel með hótelum, nema þar væri boðið upp á stofutónlist og þar hitti stúlkan fyrir fíðluleik- ara af sænskum ættum og úr varð eftimafnið Bengtsson. Mikið rétt, Blöndalsnafnið er það sama og málarans okkar. Gunnlaugur var meira að segja brúðkaupsvottur, þegar foreldrar Erlings giftu sig og heima hjá Erling hangir meðal annars gullfalleg blöndælsk mynd af fjögurra ára sveinstúf með agn- arlítið selló. Tilvonandi foreldrar sellóleikarans fluttust til Danmerk- ur, ferðuðust um og spiluðu í átta ár, áttu örugglega fimaskemmti- legan feril, segir sonurinn. Þetta er ekki aðeins rifjað upp hér til fróð- leiks um ætt og uppmna Erlings, heldur einnig til að bregða upp mynd af tíma, sem einu sinni var. Tónlistarmönnum núorðið stendur margt til boða, en ekki það að spilá kammertónlist daginn út og daginn inn á hótelum fyrir lágmælta gesti... Reykjavík - Fíladelfía Stríðið lokaði Dani inni í eigin landi. Þegar móðuramma Erlings dó 1941 barst fréttin aðeins í skeyti til fjölskyldunnar í Danmörku. Það var allt og sumt, sýnir hvað Danir vom einangraðir í stríðinu, segir Erling, en 1946 kom hann í fyrsta skipti til íslands. Hélt þá tónleika á vegum Tónlistarfélagsins og vel á minnst, hann er fæddur 1932. En ekki vom þetta fyrstu opinbem tónleikamir, því hapn kom fram meðan hann var enn á leikskóla- aldri. Kom fyrst fram á fimmta ári á jólatónleikum, sem dagblaðið Pol- itiken stóð fyrir. Á veggnum við flygilinn í vinnustofunni á heimili Erlings hangir hljóðfæri sem við fyrstu sýn virðist fíðla, en er í raun agnarlítið selló, sem faðir hans lét smíða drengnum. Og af hveiju þá selló? Erling brosir, segist vera bú- inn að segja söguna svo oft... en það var þannig að þegar honum var fengin fíðla, rétt rúmlega farinn að ganga, stakk hann henni ákveðinn í gólfið og skorðaði hana milli hnjánna. Þannig skyldi hún vera... og slíkt hljóðfæri heitir víst selló. Stór og björt vinnustofan er byggð út í fallegan garð. Hann er dauflitur þessa dagana, haust hér eins og annars staðar, en inni á milli höggmynda og haustlita gefur að líta sterkbláa leirbelgi, sem Mer- ete, eiginkona Erlings, hefur mót- að. Málverk út um allt hús, líka lítil silfurhraunlit æfíntýramynd, sem Erling eignaðist í einni af fyrstu íslandsferðum sínum. Bjó þá á Hótel Borg og þar var bankað upp á einn góðan veðurdag. Á ganginum stóð undirleitur maður, sem rétti eldsnöggt fram strigarullu og hvarf jafnskjótt og Erling hafði tekið við rullunni. Þannig þakkaði Kjarval fyrir góða heimsókn ... Svo er eitthvað til sem heitir danskur húmor og hann birtist þarna í vinnustofunni í skáp, troð- fullum af sellóleikurum af öllum stærðum og gerðum, sem Erling hefur safnað á ferðum sínum vítt og breitt um heiminn. Hollenskur tréprestur spilandi á selló, músafjöl- skylda sömuleiðis með selló ... en enginn spilar á eins gott hljóðfæri og eigandi safnsins. Sellóið hans er smíðað af Frakkanum Nicolas Lupot (1758-1824). Af því allir vita að Stradivari er höfuðmeistari fiðlu- smiða, er einfaldast að kalla Lupot Stradivari sellósmiða. Finnskur nemandi Erlings sagði honum af því til sölu í Finnlandi og í 23 ár hafa þeir haldið saman, Erling og Lupot. En það er allt í lagi að halda sig áfram við Reykjavík 1946, því upp- úr þeirri heimsókn tóku þeir sig saman Ragnar Jónsson í Smára, Ólafur Þorgrímsson og fleiri frum- kvöðlar í Tónlistarfélaginu og af- hentu Erling upphæð fyrir tveggja ára námsdvöl í Bandaríkjunum. Árið 1948, sextán ára, fór Erling til Bandaríkjanna, á Curtis-skólann í Fíladelfíu, stundaði meðal annars nám hjá Rússanum Gregor Piatig- orski og varð svo aðstoðarkennari hans og tók svo við kennslunni af honum 1950. „Það er óhætt að segja að tengslin við ísland hafí haft mikið að segja fyrir mig. Og árið áður en ég fór til Banda- ríkjanna, fór ég aftur til íslands og hitti þá Busch-bræðuma, Adolf og Fritz, fyrir hér. Þeir komu mér í kynni við ýmsa þama ytra bentu mér á Curtis-skólann. Ég rétt náði því að kynnast þessari kynslóð tón- listarmanna, meðal annars í gegn- um Ragnar og tónlistarfélagið. Bandaríkin vora eins og paradís eftir hersetu og myrkur heima fyrir og svo var Rudolf Serkin og fleiri hans líkar viðloðandi skólann .. . Kynnin af Piatigorski vora ómetan- leg.“ „Ég er tortrygginn gagiivart öllum sérfræðingum, þegar tónlistarmenn eru annars vegar“ „Eftir fímm ár í Bandaríkjunum fékk ég það hlutverk að heiman að kenna við Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Síðan hefur heim- ili mitt verið í Kaupmannahöfn. Þar kenni ég enn, en spila og kenni svo hingað og þangað eins og margir aðrir tónlistarmenn.“ Það era marg- ir útlendir nemendur sem sækja kennslu til Erlings í Kaupmanna- höfn. Líka íslendingar ... Hann Tónlistardagar Dómkirkjunnar: Tónleikar til heiðurs í Þorkell Sigurbjörnsson MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 7. nóv- ember kl. 20.30 verða haldnir tónleikar í Dómkirkjunni til heiðurs Þorkeli Sigurbjömssyni tónskáldi, sem varð fimmtugur á liðnu sumri. í fréttatilkynningu frá Dóm- kirkjunni segir að Þorkell hafí verið ötull að semja kirkjutónlist og hafí verk hans vakið athygli hér á landi og erlendis. Tónleikam- ir á mánudagskvöld eru upphafs- tónleikar á Tónlistardögum Dóm- kirkjunnar, og auk Dómkórsins syngja Mótettukór Hallgríms- kirkju og sönghópurinn Hljó- meyki. Halldór Vilhelmsson flytur kantötu eftir Bach, Martial Narde- au leikur á flautu og Þröstur Eiríksson leikur einleik á orgel. Dómkórínn á tónleikum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.