Morgunblaðið - 05.11.1988, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
4
Kristján Jóhanns
son syngur Don
Carlos í Dallas
Góðar viðtökur á frumsýningu
KRISTJÁN Jóhannson syngur nú
aðalhlutverkið í óperu Verdis
„Don Carlos" í uppfærslu Dall-
as-óperunnar. Frumsýnt var
fimmtudaginn 3. nóvember og
að sögn Kristjáns fögnuðu áhorf-
endur ákaft að lokinni sýningu.
Stjómandi sýningarinnar er Nic-
ola Rescigno, óperustjóri Dallas-
óperunnar, leikstjóri er Lotfi
Mansouri, óperustjóri bæði í San
Fransico og Toronto í Kanada. Aðal
sópranhlutverkið syngur Susanne
Dunn, sem Kristján segir eina skær-
ustu stjömu í bandaríku óperulífi í
dag og aðal bassahlutverkið er
sungið af Poul Rishka. „Þetta er
sýning í hæsta klassa", sagði Kristj-
án „og frumsýningin var mikill sig-
ur fyrir mig. Áhorfendur risu úr
sætum og hrópuðu bravo og fagn-
aðarlátum ætlaði aldrei að linna.“
Ópemhúsið í Dallas, Music Hall,
tekur 3.600 manns í sæti, en Kristj-
án sagði sér hafa þótt vænst um
blómakörfu sem honum barst frá
íslendingafélaginu í Texas.
Strax eftir síðustu sýningu á
„Don Carlos" flýgur Kristján til
Nice í Frakklandi, þar sem hann
syngur aðal tenórhlutverkið í ópem
Puccinis „Dóttir vestursins". Þaðan
fer hann til Palermo á Sikiley og
syngur í lítt þekktri ópem eftir
ítalska tónskáldið Catalani, sem
heitir „La Vally“.
Að lokum sagðist Kristján ný-
verið hafa fengið upphringingu frá
Þrándheimi, þar sem vígja á nýtt
ópemhús í janúar 1990 með upp-
færslu á „Tosca" eftir Puccini í leik-
stjóm Sveins Einarssonar. Kristján
sagði ekki ljóst hvort hann gæti
verið með í þeirri uppfærslu þar sem
Krístján Jóhannsson
hann yrði hjá skosku ópemnni í
Glasgow á þessum tíma, en hann
væri að athuga möguleika á því að
syngja með á vígsluhátíðinni.
VEÐURHORFUR Í DAG, S. NÓVEMBER
YFIRLIT í GÆR: Skammt norðaustur af Jan Mayen er 983ja mb
lægð á leið norð-norðaustur en lægöardrag á Grænlandssundi
þokast suðaustur. Víðattumikil 985 mb lægð milli Labradors og
Suður-Grænlands hreyfist norðaustur. ( nótt verður víða 2ja til 6
stiga frost, en á morgun mun veður smám saman hlýna á ný, fyrst
vestanlands.
SPÁ: Á morgun þykknar upp vestanlands með vaxandi suðaustan-
átt. Kaldi eða stinningskaldi og rigning eða slydda síðdegis. Vest-
læg og síðar suðvestlæg átt og þurrt austanlands.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG: Vestan- og suðvestanátt um mest allt
land. Skúrir víða um land, sést þó á Austur- og Suðausturlandi. Hiti
á bilinu 2 til 6 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG: Suðlægt átt og sæmilega hlýtt. Rigning
eða súld um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt að mestu fyr-
ir norðan.
y, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
■» ■* *
* * * * Snjókoma
* * *
■J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
\J Skúrir
*
V
El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
[T Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hltl veður
Akureyri 3 hálfskýjaö
Reykjavik 3 úrk. f gr.
Bargen S alskýjað
Helslnki 2 alskýjaó
Kaupmannah. 6 akýjaft
Narsaarsauaq +3 ilrfc. f gr.
Nuuk +3 skýjað
Oeló 0 þoka
Stokkhólmur 4 léttskýjað
Mrshðfn S rigning
Algarve 20 skúr
Amstardam 4 heiðskfrt
Barcelona 17 súld
Chicago 12 skúr
Feneyjar vantar
Frankfurt 4 heiðskfrt
Glasgow 7 mlstur
Hamborg S léttskýjað
Las Palmas vantar
London 24 léttskýjað
Los Angelos 16 þokumóða
Luxemborg 3 heiðskfrt
Madnd 16 skýjað
Malaga 22 mlstur
Mallorca 22 skýjað
Montreal 1 skýjað
New York ð alskýjað
Parfs 6 helðskfrt
Róm vantar
San Diego 15 þokumóða
Winnipeg 3 alskýjað
Teljum engan
hafa einkarétt á
myndlyklunum
- segir Indriði G. Þorsteinsson,
sljórnarformaður fsfílm
„MYNDLYKLARNIR eru í almannaeigu, og við ætlum okkur að
láta reyna á það hvort almannaeign verður stjórnað af einhverri
miðjutölvu í eigu ákveðins fyrirtækis, og hvort almenningur tek-
ur það í mál,“ segir Indriði G. Þorsteinsson, síjórnarformaður
Isfilm, en næsta haust mun Stöð 3, sem svo er kölluð og er í
eigu Isfilm, he§a útsendingar á sjónvarpsefni.
„Myndlyklamir vom seldir með
þeim skýringum frá seljanda, að
sumir þeirra gætu tekið 10 rásir
og aðrir 20. Ég fæ ekki séð hvem-
ig menn ætla koma í veg fyrir að
einstaklingar geti notað þessi tæki
sín til að horfa á þá dagskrá sem
þeir kjósa. Við lítum ekki svo á
að neinn hafi einkarétt á þessum
myndlyklum, og við munum því
láta reyna á þetta þegar þar að
kemur,“ segir Indriði G. Þorsteins-
son.
Heilbrigðisráðuneytið:
fl
4(i
Innflutningur og
notkun PCB bönnuð
i
Heilbrigðisráðherra hefur bannað innflutning og notkun á eit-
urefiiinu PCB með reglugerð, sem öðlast mun gildi 1. desember
næstkomandi. Ákvæði reglugerðarinnar eiga þó ekki við ef magn
efiiisins í efiiablöndum, vamingi eða tækjum er undir 0,2%. Þá
má Vinnueftirlitið veita undanþágur frá banninu. PCB hefur víða
verið notað, meðal annars í rafþéttum.
Aðeins má veita undanþágu frá
banninu, ef önnur efni geta ekki
komið í stað PCB-efna í viðkom-
andi búnaði. I innflutningsleyfí
skal einnig taka fram til hverra
nota efnin eru ætluð.
í bráðabirgðaákvæði reglugerð-
arinnar er mælt fyrir um að aðeins
megi farga PCB-efnum með leyfi
Hollustuvemdar ríkisins, þar til
sett hafí verið reglugerð um förgun
eiturefna og annarra hættulegra
efna.
Umferðarslys við Hvolsvöll:
Þrjú flutt á sjúkra-
hús í Reykjavík
PILTUR og tvær stúlkur slösuðust í hörðum árekstri Subaru-
bifreiðar og dráttarvélar á Suðurlandsvegi, skammt austan við
Hvolsvöll, um klukkan 19.30 á fimmtudagskvöld. Þau voru flutt
á Borgarspítalann í Reykjavík en voru ekki talin í lífshættu.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Hvolsvelli komu öku-
tækin úr gagnstæðum áttum og
er talið að dráttarvélin hafi verið
ljóslaus og á öfugum vegarhelm-
ingi.
Ókumaður dráttarvélarinnar
slapp ómeiddur. Tvær stúlkur og
piltur úr Subaru-bílnum voru flutt
með hraði til Reykjavíkur. PilturJ
inn, farþegi úr framsæti, var talinn
mest slasaður, brotinn á höndurtt
og með áverka á höfði en ekki
sagður í lífshættu. Hann, eins og
stúlkan sem ók bílnum, notaði
bílbelti. Subaru-bíllinn er mikið
skemmdur.
Olís: ;
h i
Ræði þetta mál ekki
meira í Qölmiðlum
- segir Oli Kr. Sigurðsson
„ALLT sem ég vil segja um þetta mál stendur í greinargerð sljóm-
ar OLÍS, sem afhent var á blaðamannafúndinum á miðvikudag-
inn. Það er búið að hrekja allt þetta mál eins og hægt er og
meira er ekki um það að segja,“ sagði Óli Kr. Sigurðsson for-
sljóri Olís þegar hann var spurður hvort satt væri að Þórður S.
Gunnarsson fyrrum stjórnarformaður Olís hefði sýnt honum bréf
Landsbankans til Þórðar þann 21. október.
„Ef maðurinn fékk þetta bréf í
hendur 21. október af hveiju ka.ll-
aði hann þá ekki saman stjómar-
fund? Annars neita ég að ræða um
annað í þessu máli en þá greinar-
gerð sem lögð hefur verið fram,
og stjórn fyrirtækisins stendur öll
á bakvið. Ég þarf nú að snúa mér
að því að koma ró á í mínu fyrir-1
tæki og ég verð að fá frið til þess.
Ég ræði þetta mál ekki meira í
fjölmiðlum," sagði Óli Kr. Sigurðs-
son.