Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 12
I
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
12
Eyjólfiir Konráð Jónsson í þingræðu:
Nýir skattar auka
halla ríkissjóðs
Þjóðinltaki lán
hjá sjálfri sér
Á fimmtudag í siðustu viku
fóru fram i Alþingi umræður
utan dagskrár um stöðu rikis-
Qármála. Eyjóifur Konráð Jóns-
son kvaddi sér hljóðs meðan á
umræðunum stóð og gerði at-
hugasemdir við málflutning Jóns
Baidvins Hannibalssonar og
Ólafs Ragnars Grímssonar.
Morgunblaðið birtir hér á eftir
kafla úr ræðu hans.
Utanríkisráðherra sagðist vilja
gera hreint fyrir sínum dyrum.
Hann gerði það. Hann gerði hreint
fyrir sínum dyrum. Hann taldi upp
og tíundaði allt sem hafði valdið
því að fjárlögin eru ekki hallalaus.
Þær upphæðir, eftir því sem ég gat
náð niður voru kannski kringum 1
milljarður, þessir pinklar sem hann
var að tína til og sem voru utan
við það sem áður hafði verið áætl-
að. Það er miklu meira, segir Matt-
hías Á. Mathiesen. Ég heyrði ekki
hærri tölur en þetta frá því sem
hafði verið ákveðið í fjárlögum.
Hins vegar voru allt aðrar tölur sem
hann var að tala um að réttlættu
mismuninn á júnítölunum og því
sem þær voru í reynd. Ég býst við
að þingmaðurinn eigi við það. Það
voru allt aðrar tölur. Dæmið var
nefnilega óreiknanlegt. Það er hægt
að setja upp dæmi sem er ekki
hægt að reikna, dæmi sem gengur
ekki upp, ef það er bara tekið tillit
til eins faktors í málinu, svo að ég
noti nú ljótt mál. Auðvitað er alveg
ljóst að fólk lætur ekki bjóða sér
endalausa skattheimtu. Sem betur
fer er það þannig í lýðræðisríkjum
og nú ætla ég að koma að því sem
menn virðast ekki vita hér. Það er
ekki til eitt einasta vestrænt lýð-
ræðisríki með svokallaðan halla-
lausan ríkisbúskap, ekki mér vitan-
lega. Það var að vísu bent á eitt
land af hagfræðingunum sem ég
spurði: Getið þið nefnt mér eitt ríki
sem er með hallalausan ríkisbú-
skap? Þeir sögðu Sviss. Ég hugsa
að það sé rétt vegna þess að í Sviss
eru kantónur eða fylki sem sjá svo
til um allan rekstur ríkisins. Það
er aðeins yfírstjóm ríkisins sem
hefur sín ríkisfjármál og þarf þess
vegna að skattleggja kantónumar
mjög lítið til þess að hafa halla-
lausan ríkisbúskap.
Hvemig er þá farið að því að
reka ríkið? Það er alls staðar gert
þannig að fólkið fær að lána ríkinu
svolítið af því fé sem ríkið þarf á
að halda. T.d. hefur alla tíð, ég
held öll árin frá aldamótum nema
tvö, verið halli á fjárlögum Banda-
ríkjanna. Þeir fjármögnuðu alla
styrjöldina, t.d. með skuldabréfa-
útgáfu. Þeir gefa út skuldabréf
stanslaust og alltaf meira og meira.
Heildarskuldimar em aldrei borg-
aðar til baka. Heildampphæðin
lækkar aldrei vegna þess að umsvif-
in í þjóðfélaginu aukast. Þegar
bamið fæðist er venjulega byijað
að saftia fyrir skólagöngu í ríkis-
skuldabréfum o.s.frv. En þessi tvö
ár vom 1928 þegar Hoover kom
af stað heimskreppunni, þá vom
hallalaus fjárlög í Bandaríkjunum,
og þegar Carter kóm af stað verð-
bólgunni í Bandaríkjunum. Þá vom
hallalaus fjárlög og þá varð vemleg
verðbólga. í Japan sem hefur sótt
hraðast fram var t.d. ef ég nefni
árið 1981, halli á japönskum fjár-
lögum 5%—6%, ekki af fjárlögun-
um, heldur 5% af þjóðartekjum. Það
þýddi þá svopa 20 milljarða á okkar
fjárlögum. Ég skal ekki segja að
það sé til fyrirmyndar, en alla vega
sóttu þeir hraðast fram allra þjóða
á þessum ámm. Þeir leyfðu nefni-
lega fólkinu að eiga peningana, en
ríkið fékk þá bara lánaða hjá því.
Þeir gerðu sem sagt fólkið að ríku
fólki. Þeir sögðu: Fyrst kemur fólk-
ið, svo kemur ríkið. Auðvitað á ríkið
að vera afgangsstærð á erfíðleika-
tímum. Fyrst á auðvitað að sjá til
þess að fólkið geti lifan sæmilega
mannsæmandi lífí og síðan auðvitað
að atvinnuvegimir gangi, eflist og
treystist til þess að skaffa tekjumar
í framtíðinni. Það mætti jafnvel
fara að borga niður þessar skuldir
sem þarf þó ekkert að borga, vegna
þess að spumingin er svona: Nu
spyr ég fjármálaráðherra, hvort
hann geti t.d. bent mér á hver sé
kröfuhafi ef ríkið er skuldari, við
skulum segja að einhverri stórri og
fallegri upphæð eins og einu hundr-
aði milljarða, í innlendum skuldum,
hefur tekið eitt hundrað milljarða
að láni hjá borgurunum með skulda-
bréfaútgáfu á einhveiju tímabili —
ríkið er skuldari, hver er þá kröfu-
hafí, hæstvirti ráðherra? Hver er
kröfuhafi ef ríkið er skuldari að
þessum milljarði borgaranna? Hver
er kröfuhafinn að þessu? Einhver
verður að vera móttakandi ef á að
greiða það til baka. (Fjármálaráð-
herra: Það vitum við báðir.) Já,
hver er kröfuhafinn? (Fjármálaráð-
herra: Fólkið í landinu.) Já. Fólkið
í landinu er bæði skuldari og kröfu-
hafí. Það skuldar sjálfu sér. Svona
einfalt er dæmið. En munurinn er
sá að fólkið í landinu er sjálfstætt
fjárhagslega, á kröfu á ríkisauðinn,
hver og einn á það. En hvað gerist
þegar hæstvirtur ráðherra ætlar
núna að hirða 3—4 milljarða í aukn-
um sköttum? Það kaupir enginn
kvittun sem hann gefur út. En ef
hann gæfí út skuldabréf, þá yrðu
það auðvitað peningar á markaði.
Þetta eru peningar sem atvinnufyr-
irtækin fengju. Skuldabréfín gengju
kaupum og sölum. Fólkið öðlaðist
hlutdeild í þjóðarauðnum. En nú á
að minnka það, auka ríkisauðinn
stanslaust. Það er verið að gera það
með milljörðum á milljarða ofan,
jafnvel milljarða í hveijum mánuði
ef út í það væri farið eftir öllum
mögulegum leiðum. Ekki bara í
ríkiskassann beint, heldur öll sjóða-
framlögin og fleira. Sjóðimir eiga
núna meira og minna flotann t.d.
og atvinnuvegina, frystihúsin og
allt það, svo ekki sé nú talað um
þennan blessaða sjóð sem á nú að
fara að koma til viðbótar. Ég ætla
nú ekki að fara að blanda honum
inn í þessa umræðu, það er auðvit-
að sérkapítuli sem við komum að
við annað tækifæri.
En utanríkisráðherra sagði: Mis-
tökin voru að gera ekki ráð fyrir
verulegum greiðsluafgangi. Það á
íslenskt tónverk fær viður-
kenningu á tónlistarhátíð
Rómanza eftir Hjálmar H. Ragnarsson valin úr 140
verkum á alþjóðlegri tónlistarhátíð í Hong Kong
Árlegri tónlistarhátíð ISCM, sem eru alþjóðasamtök um samtímatón-
list, lauk í Hong Kong um síðustu helgi. 140 verk höfðu verið valin
til flutnings á hátíðinni úr hópi 500-600 verka sem bárust dómnefiid
hátíðarinnar til skoðunar. Á hátíðinni valdi siðan dómnefiid 10-12
athyglisverðustu verkin og var Romanza, kammerverk Hjálmars
H. Ragnarssonar fyrir flautu, klarinett og píanó, eitt þeirra verka.
jálmar sagði í samtali við Morgun-
blaðið að það væri mikilsvert að
verk hans hefði verið valið {þennan
úrvalshóp. „Tilgangurinn með slíku
úrvali er að velja verk sem samtök-
unum ISCM er síðan falið að koma
á framfæri eftir öllum leiðum á
tónlistarhátíðir og annars staðar
þar sem verið er að velja samtíma-
tónlist til flutnings. Þá staðfestir
þetta einnig listræna þátttöku ís-
iands í þessum samtökum og sýnir
að smáþjóð eins og okkur er ekki
bara leyft að vera með til að auka
Qölda aðildarlandanna," sagði
Hjálmar H. Ragnarsson.
Alþjóðasamtök um samtímatón-
list voru stofnuð árið 1923 og hafa
alþjóðlegar tónlistarhátíðir verið
haldnar á vegum samtakanna nær
árlega allar götur síðan að undan-
skildum stríðsárunum 1939-1945.
Tónlistarhátíð á vegum þessara
samtaka hefur verið haldin einu
sinni hérlendis, árið 1973. Aðildar-
lönd að samtökunum eru nú tæp-
lega 40.
„Þetta er í fyrsta sinn sem þessi
hátíð er haldin í Asíu og það var
sannarlega gaman að sjá hversu
mikil og Ijölbreytt samtímatónlistin
er í þessum heimshluta. Þá bættust
tvö Ásíulönd núna í samtökin, Kína
og Tævan, og þama hittust tón-
skáld frá Kína, Hong Kong og
Tævan og sátu saman í mesta bróð-
emi þrátt fyrir pólitískan fjandskap
þessara landa. Mér fannst sérstak-
lega athyglisvert að heyra þá tón-
list sem Kínveijar og Japanir höfðu
fram að færa. Svo virðist sem dyr
séu að opnast í listunum inn í Kína
og það er ljóst að framlag þeirra
til alþjóðlegra lista mun aukast á
næstu árurn."
Hjálmar sagði að aðild að tónlist-
arhátíðinni værí þannig háttað að
hveiju aðildarlandi væri heimilt að
senda inn 6 verk. Þá gætu einstakl-
ingar einnig sent inn verk í eigin
nafni. Sérstök dómnefnd á vegum
samtakanna færi síðan yfír inn-
sendu verkin og veldi úr til flutn-
ings á hátíðinni. Alls bárust á milli
500 og 600 verk að þessu sinni og
voru 140 valin til flutnings. „Þetta
er í þriðja sinn sem ég hef komið
verki inn á hátíðina og í fyrra átti
Atli Heimir Sveinsson tónskáld verk
á hátíðinni. Verkið mitt er kammer-
verk, samið árið 1981 fyrir flautu,
klarinett og píanó. Það var fmm-
flutt á útvarpstónleikum í Stokk-
hólmi árið 1981 af þeim Manuelu
Wiesler, Einari Jóhannessyni og
Þorkatli Sigurbjömssyni. Síðan hef-
ur það verið flutt nokkrum sinnum
hér heima. Flytjendur í Hong Kong
voru félagar í Messiaen kammer-
sveitinni frá París — framúrskar-
andi hljóðfæraleikarar sem áttu
áreiðanlega sinn þátt í því að verk-
ið var valið í sérstakt úrval 10-12
verka. Þetta er í þriðja sinn sem
dómnefnd velur úr verk á hátíðinni
Eyjólfur Konráð Jónsson
að vera borð fyrir báru, ef samdrátt-
ur verður nú og mistök. Hann ráð-
lagði núverandi fjármálaráðherra
að hafa borð fyrir báru, ef nú yrði
samdráttur mikill, þá þyrfti sko
ríkið að eiga verulegan afgang. Jú,
jú, ég get fallist á að það væri
gott fyrir ríkið að eiga einhvem
afgang, ef það verður mikið at-
vinnuleysi, sem mér virðist nú að
stefnt sé að vísvitandi, að skapa
kreppu, þá þarf auðvitað að hjálpa
fólkinu með einhveijum hætti. Én
hvemig gengur þetta nú upp. Það
þarf endilega að vera greiðsluaf-
gangur til að koma í veg fyrir
þenslu, en það verður líka að vera
greiðsluafgangur til þess að bjarga
hruninu. Þama eru tvær stefnur
komnar, sem ganga sitt í hvora
áttina. Það er ekki heil hugsun í
þessu. Annað hvort er rétt, skulum
við segja. Og ríkissjóður er auðvitað
hagstjómartæki eins og þeir eru
alltaf að tala um, þessi blessuð
tæki. Þeir hafa nú ftillt af sleggjum
og hömrum og jámkörlum og ég
veit ekki hvað og hvað í öllum þess-
um stofnunum til þess að koma
kreppunni af stað og halda henni
gangandi. Það hefur svo verið núna
í hálfan annan áratug eða meira
þetta hagstjómartæki. Það getur
ekki verið rétt bæði í kreppu og
líka í ofþenslu endilega að láta ríkis-
sjóð ganga hallalausan, með ein-
hvem tekjuafgang.
Auðvitað er gamla hagfræði-
kenningin sú að á samdráttartímum
eigi að vera halli á flárlögum og
hún er sjálfsagt að einhveiju leyti
rétt, svona sem megindrættir. Allir
fyrri hagfræðingar sögðu: Það er
ekkert kappsmál eða sáluhjálparat-
riði að ríkissjóður sé alltaf halla-
laus. Þeir sögðu að á þenslutímum
ætti ríkið kannski að auka sína
skattheimtu eitthvað, taka eitthvað
af borgurunum, þó auðvitað innan
Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld.
á þennan hátt og í fyrsta sinn sem
íslenskt verk er valið," sagði Hjálm-
ar H. Ragnarsson tónskáld.
Þess má að lokum geta að nú
um helgina verður fmmflutt í Laug-
ardalshöll nýtt verk eftir Hjálmar,
Áfangar, verk fyrir kór og hljóm-
sveit, samið við hinn alþekkta ljóða-
bálk Jóns Helgasonar. Flytjendur
verða 1100 félagar í Landssam-
bandi blandaðra kóra en sambandið
heldur einmitt 50 ára afmæli sitt
hátíðlegt nú um helgina. „Þetta
verk er afmælisverk og einmitt þess
vegna fannst mér tilvalið að nota
ljóð Jóns Helgasonar því þar lýsir
hann 11 stöðum á landinu og það
á vel við því flytjendur eru hvað-
anæva af landinu,“ sagði Hjálmar
H. Ragnarsson að lokum.
ákveðinna piarka þannig að fólkið
sprengdi þetta ekki af sér, en á
krepputímum ætti ríkið auðvitað
að vera rekið með nægilega miklum
halla til þess að halda atvinnuveg-
unum gangandi. Auðvitað verða
peningar að vera í umferð. Pening-
ar eru ávísanir á auðlegð. Menn
segja: Það eru engir peningar til á
íslandi. Þrátt fyrir öll okkar mistök,
t.d. síðasta hálfan annan áratuginn,
eins og ég sagði, allt þetta kreppu-
ástand, heimatilbúna kreppu, þá er
ísland auðvitað ríkara í dag en
nokkru sinni áður. Við erum' búnir
að byggja hús fyrir svo til allan
landslýð til 200 ára. Við erum bún-
ir að ofbyggja í frystihúsum, í iðn-
aðarhúsnæði, ekki bara í Reykjavík
heldur úti um allt land. Nú í land-
búnaði hefur verið ofljárfesting.
Við erum komnir langt með vegina
o.s.frv. Auðvitað er grundvöllur
lagður að blómatíma hér. Þó er allt-
af verið að skapa þessa kreppu með
því að ríkissjóður eigi að ganga á
undan öllum öðrum.
En segjum nú sem svo að þetta
yrði til þess að ríkissjóður yrði halla-
laus, þá skyldi ég kannski fara að
hugsa mitt ráð upp á nýtt. En þeg-
ar maður sér það ár eftir ár að
gatið stækkar stanslaust, nákvæm-
lega í réttu hlutfalli við nýjar skatt-
lagningar, og hugleiðið nú þetta
mál, svona af því að þetta er nú
rétt inngangur að því sem kemur
þegar utanríkisráðherra verður hér
mættur, þá ætla ég að reyna að
rökræða við hann, einmitt hann,
af því að það er gaman að rökræða
við hann. Ég tek sérstaklega fram
að ég hafði mjög mikla ángæju af
að hlýða á hans ræðu, sérstaklega
fyrri hlutann, áður en hann fór nú
svolítið að slá um sig eins og ég
geri stundum líka. Rökræðum þetta
og hugsum um þetta á næstunni:
Hvemig stendur á því að gatið
stækkar alltaf eftir því sem skatt-
amir hækka? Það er auðvitað vegna
þess að dálkar fjárlaganna eru tveir
og gjaldahliðin hækkar á undan
tekjuhliðinni vegna þess að útgjöld
ríkisins, og m.a.s. hagfræðingamir
mótmæla því ekki, em bara tvennt
þegar upp er staðið. Og hvað er
það? Bein og óbein vinnulaun og
gjaldeyrisnotkun. Ekkert annað. Og
þegar launin hækka og gengið
lækkar, hvað gerist þá? Þeir em
búnir að lýsa því hér yfír ráðherr-
amir hver sé skýringin á því að
gatið sé stærra núna en það var í
fyrra þrátt fyrir allar skattahækk-
animar í fyrrahaust. Það var vegna
þess að gjöldin hækkuðu á undan
tekjunum, segja þeir. Og núna þeg-
ar við emm að koma kreppunni á,
koma henni í algleymi og fólk er
að verða atvinnulaust, þá leiðir það
af sjálfu sér að tekjuhliðin lækkar
auðvitað enn þá meira. Og þeir
vom báðir tveir, hæstvirtu ráð-
herrar, réttilega að ræða um það
að svo gæti farið að tekjumar yrðu
enn þá minni og gatið enn þá
stærra. Sem sagt: Þeir standa á
gati. ______ _ _______
Sýning á
leikföng-
um og hús-
gögnum
HEILDVERSLUNIN ísklass hf.
hyggst efiia tíl sýningar á leik-
föngum og húsgögnum fyrir
bamaheimili og aðrar stofiianir
dagana 7.-9. nóvember næst-
komandi. Sýningin er haldin í
tilefni af búferlaflutningum
fyrirtækisins, sem nú er til húsa
að Reykjavíkurvegi 64 í Hafhar-
firði.
í fréttatilkynningu frá ísklass
segir að heildverslunin sérhæfí sig
aðallega í innflutningi á bamahús-
gögnum, leikfongum og hjólum
sérstaklega hönnuðum fyrir
barnaheimili og aðrar stofnanir.
Á sýningunni verða meðal ann-
ars vömr frá dönsku fyrirtækjun-
um HIKIT og AMICUS. Sýningin
er opin frá kl. 10-18.