Morgunblaðið - 05.11.1988, Síða 16
16
8(>í H39M3VÖM .ð 5IUOAQ5IADUA9 .QIQAT8VIUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NOVEMBER 1988
Burtferarpróf
í píanóleik
ÓLAFUR Elíasson lýkur burt-
fararprófi í píanóleik með op-
inberum tónleikum í Gerðu-
bergi sunnudaginn 6. nóv. kl.
17.
Á efnisskrá Ólafs eru Prelúdíur
og fugur eftir J.S. Bach, Sonata
op. 31 no. 3 í Es-dúr eftir Beetho-
ven, flórir þættir úr Vision Fugiti-
ves eftir Prokofíeff, Etíður eftir
Mosziowski og Scherzo no. 1 í
h-moll eftir Fr. Chopin.
Ólafur hóf píanónám hjá
Brynju Tryggvadóttur, síðar hjá
Bjama Þ. Jónatanssyni, og nú sl.
tvö ár hefur hann verið nemandi
Rögnvaldar Siguijónssonar.
Ólafúr Elíasson
- segir Gunnar Bergsteinsson, forstjóri
SAMKVÆMT Qárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að rekstri varð-
skipsins Óðins verði hætt, en Landhelgisgæslan eða Hafrannsókna-
stofiiun taki að sér rekstur Árvakurs, sem Vitastofiiun íslands hefúr
rekið. Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir
að það sé af og frá að Árvakur geti komið I stað Óðins og menn biði
nú eftir nánari útskýringum á hugmyndum þeim sem fram koma í
fjárlagafrumvarpinu, þar sem mönnum sýndist að ekki væri alveg
ákveðið hvað gera ætti við Óðin og hvernig fyrirkomulag vitaeftir-
lits ætti að vera.
í ijárlagafrumvarpinu er framlag
til Vitastofnunar lækkað um 4% í
krónum talið, sem er raunlækkun
um rúmlega 14%. Gert er ráð fyrir
Nauðgunarmál:
Viðtöl við fórnarlömb
að Landhelgisgæslan eða Hafrann-
sóknastofnun taki að sér þjónustu
við vita, með eigin skipum eða með
því að taka að sér rekstur Árvak-
urs. í áætlun fyrir Landhelgis-
gæsluna er gert ráð fyrir að Óðinn
verði ekki gerður út, en sem fyrr
er fjárveiting miðuð við þijár áhafn-
ir, en Gæslan gerir einnig út varð-
skipin Ægi og Tý. Þá er Ijárveiting
til reksturs Arvakurs færð inn hjá
Landhelgisgæslunni, þó að ekki sé
Borgarfjörður
eystri:
Fyrsta síld-
in er komin
Borgarfírði eystri
FYRSTA sUdin er komin til sölt-
unar á Borgarfirði. í gær komu
tíu tonn á bU frá Reyðarfirði og
í dag er von á 20 tonnum.
Það háir mjög söltun hér ef nokk-
ur teljandi síld berst hingað hve
fátt fólk er fáanlegt við vinnslu
hennar, því segja má að hver sem
vettlingi getur valdið vinni nú í
frystihúsinu og hrökkvi varla til því
að talsverður fískur hefur undan-
farið borist að landi. Þar sem öll
sfld er nú hausskorin krefst slíkt
nú langt um fleiri við vinnslu henn-
ar en ella og má taka til dæmis að
við þessa söltun unnu 6 til 10 kon-
ur, en þeir sem best vita segja mér
að þær hefðu þurft að vera um 20
ef vel hefði átt að vera. Söltunar-
stöðin Borg er á vegum Kaupfélags
Héraðsbúa, söltunarstjóri er Baldur
Guðlaugsson og verkstjóri Ólafur
Aðalsteinsson.
Nú vonar maður bara að bátar
komi og landi hér svo að ekki þurfí
að selflytja sfldina yfír íjallvegi til
þess að koma henni í tunnur en
slflct er hæpið á meðan verkafólkið
við söltunina er jafn fáliðað og raun
ber vitni. Sverrir
ljóst hvort skipið fari þangað eða
til Hafrannsóknastofnunar.
Gunnar sagði að þjónusta við
vita færi eiginlega minnst fram með
Árvakri þá sumarmánuði sem hann
er gerður út, en Landhelgisgæslan
sinnti henni nú þegar að miklu leyti
með skipum sínum og þyrlu, svo
sem að skipta um gashylki. Hann
sagði að Landhelgisgæslan gerði
nú út tvö skip allt árið en eitt í níu
mánuði, en teldi sig þurfa að gera
þau öll út allt árið til að halda uppi
nauðsynlegri þjónustu við sjómenn
og standa undir hlutverki sínu.
Gæslan hefði hins vegar reynt að
halda sig innan ramma fjárlaga
undanfarin ár og kannski teldu
menn að auðveldara væri að skera
niður hjá stofnunum sem það gerðu
í stað hinna sem færu fram úr fjár-
lögum.
(Fréttatiikynning)
Gyrðir Elíasson.
Svíþjóð:
I skugga hrafiisins
feer misjafha dóma
„MEÐ í skugga hrafiisins hnykkir Hrafii Gunnlaugsson enn betur á
þvi sem hann sýndi í Hrafiiinn flýgur; það er hægt að gera mjög
góðar kvikmyndir byggðar á norrænum fomsögum."
verki að gegna í dramatík atburðar-
ásarinnar og nýti sér það, þess á
milli láti hann sig náttúruna engu
skipta: „Engar hversdagslegar túr-
istamyndir."
í tímaritið „Nöjesguiden" skrifar
Gunnar Aronsson: „Gerum okkur
grein fyrir því í upphafí að í skugga
hrafnsins er hetjulegur verknaður.
Að ganga inn í veröld íslenskra fom-
sagna með öllum þeirra siðferðilegu
og félagslegu flækjum er ekki eins
og að kvikmynda nútíma rifrildi yfír
kaffiborðið."
Hann hrósar einnig leik Tinnu
Gunnlaugsdóttur, og segir að ef eitt-
hvert réttlæti sé til ætti hún að fá
Þannig hefst umsögn Gunnars
Rehlins um í skugga hrafnsins í
sænska blaðinu GT. Og hann klykk-
ir út með því að segja: „Allir hafa
sameinast um að gera þetta að af-
bragðsgóðri mynd, sem ætti að eiga
mikla möguleika á velgengni, jafnvel
á alþjóðamarkaði."
Elisabeth Sörenson, gagnrýnandi
Svenska dagbladet, segir: „Frá
fyrstu míútu grípur íslendingurinn
Hrafn Gunnlaugsson athyglina og
með óvenju sterku myndmáli heldur
hann henni myndina á enda.“ Hún
segir einnig að Hrafn hafí sérstakt
auga fyrir því hvenær hin ótrúlega
stórbrotna náttúra íslands hafi hlu-
Bréflbátarigningm
Smásagnasafii eftir Gyrði Elíasson
Bókaútgáfa Máls og menning-
ar hefúr sent frá sér nýtt smá-
sagnasafii eftir Gyrði Elíasson
og hefúr það hlotið nafiiið Bréf-
bátarigningin. Þetta er fyrsta
smásagnasafn Gyrðis, en í fyrra
sendi hann frá sér skáldsöguna
Gangandi ikorni.
Bókin geymir fjórar sögur, og
„Fjárveiting er miðuð við að varðskipið Óðinn verði ekki gert út“
segir í fjárlagafrumvarpinu, þannig að hugsanlegt er að hann muni
ekki sigla á næsta ári. ---------------
Breytingar boðaðar hjá Landhelgisgæslu:
Arvakur getur ekki
komið í stað Óðins
gerast tvær þeirra í þorpi, ein á
sveitabæ og ein í sumarhúsahverfi
í Danmörku. Lesandinn kynnist fjöl-
skrúðugu persónusafni, allt frá
ungri sveitastúlku, Heiðu að nafni,
til manns sem smíðar sér vængi í
tómstundum sínum. En sögurnar
eru innbyrðis tengdar og í þeim
öllum kemur ungur piltur mjög við
sögu. Þær virðast í fyrstu láta lítið
yfir sér, en geyma leyndarmál og
furðu þegar að er gáð. Sama hefur
verið sagt um stíl Gyrðis, hann er
látlaus en þó seiðandi og sýnir gott
vald á íslensku máli. Skáldsaga
hans hlaut einkar góðar viðtökur
lesenda og gagnrýnenda, og það
er von útgefanda að þessum sögum
verði ekki síður vel tekið.
Bréfabátarigningin er 155 bls.
að stærð. Málverk á kápu er eftir
Elías B. Halldórsson, en auglýs-
ingastofan Teikn hannaði kápuna.
Bókin er unnin í Prentsmiðjunni
Odda.
MÁL og menning hefúr gefið út
bókina Hremmingar - viðtöl um
nauðgun, eftir Sigrúnu Júlíus-
dóttur félagsráðgjafa. í bókinni
er sagt frá reynslu 24 íslenskra
kvenna, sem orðið hafa fórn-
arlömb nauðgunar.
Konumar segja frá sjálfum sér,
árásinni sem þær urðu fyrir og eftir-
köstum hennar. Einnig er §allað
um kæm, læknisskoðun og önnur
eftirmál.
Sigrún Júlíusdóttir hefur um ára-
bil unnið með konum sem orðið
hafa fyrir nauðgun eða nauðgunart-
ilraun og átti sæti í nauðgunarmála-
nefnd dómsmálaráðuneytisins.
Kristjana Samper myndskreytti
bókina.
Sigrún Júlíusdóttir
*
Listdansbraut við Armúlaskóla
AÐALFUNDUR Félags íslenskra
listdansara var haldinn nýlega. í
skýrslu formanns kom m.a. fram
að sl. vetur var unnið að gerð
kennaraprófs í listdansi á vegum
félagsins. Einnig eru í undirbún-
ingi stigapróf fyrir börn frá 7
ára aldri og stefiit að því að hefja
kennslu fyrir þau á næsta ári.
Þá hefúr verið komið á listdans-
braut við Fjölbrautaskólann við
Ármúla í samvinnu við Listdans-
skóla Þjóðleikhússins. Félagið
vill af alhug styðja Islenska dans-
flokkinn og Listdansskóla Þjóð-
leikhússins í baráttu þessara að-
ila til að komast í nýtt og rýmra
húsnæði.
Á sl. starfsári gengu alls 10 nýir
félagar í FÍLD og kom fram að
margir em í námi erlendis, ýmist í
dansara- eða listdanskennaranámi.
Allir félagsmenn sem reka list-
dansskóla héldu nemendasýningar
sl. vor og vom þær mjög vel sóttar.
Fundurinn fagnar árangri Hlífar
Svavarsdóttur í keppni norrænna
danshöfunda í maí, þar sem hún
vann til 1. verðlauna með verki sínu
„Af mönnum", sem dansarar úr
Islenska dansflokknum fluttu. Enn-
fremur för Auðar Bjamadóttur með
verk sitt ,,Skapanornimar“ á Nor-
rænu kvennaráðstefnuna í Osló í
sumar.
Breytingar urðu á stjóm félags-
ins, en hana skipa nú: Guðbjörg
Björgvinsdóttir formaður, Ingibjörg
Bjömsdóttir ritari og Edda Schev-
ing gjaldkeri. Meðstjómendur era
Auður Bjamadóttir og Nanna Ól-
afsdóttir. (FréttatUkynning)
r