Morgunblaðið - 05.11.1988, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
Efnaskiptasjúklingur.
Tilraimastöð-
in á Keldum
— Opið hús —
Keldur: Hér eru Tilraunastöð háskólans í meinafræði og SauðQárveikivamir til húsa.
í TILEFNI af Norrænu tækniári
1988 verður Tilraunastöð Há-
skólans í meinafræði á Keldum
við Vesturlandsveg' í Reykjavík,
með Opið hús, sunnudaginn 6.
nóvember, milli klukkan 13. og
17. Fólki er boðið að koma og
skoða stofnunina, kynna sér það
sem þar fer fram og þiggja veit-
ingar.
Tilraunastöð háskólans í meina-
er því fjörutíu ára um þessar mund-
ir. Starfsmönnum hennar er ætlað
að vinna að rannsóknum á búfjár-
sjúkdómum og skyldum verkefnum.
Viðfangseftiin hafa allt frá upphafí
verið æði fjölbreytt en skipta má
þeim í nokkra aðalflokka:
Grunnrannsóknir
Grunnrannsóknir í sjúkdóma-
fræði hafa einkum beinst að visnu
og mæði í sauðfé, sem hafa aflað
tilraunastöðinni alþjóðlegar viður-
kenningar, en á Keldum tókst í
fyrsta sinn að einangra veirur þær
sem valda þessum sjúkdómi. Björn
Sigurðsson læknir, fyrsti forstöðu-
maður á Keldum, er upphafsmaður
kenninga um svonefnda hæggenga
smitsjúkdóma.
Visna í sauðfé hefur þótt sérstak-
lega forvitnilegt rannsóknarefni
vegna ákveðinna þátta í vefja-
skemmdum sem minna á heila- og
mænusigg í fólki. Ahugi á visnu
hefur stóraukist á allra síðustu
árum eftir að ljós kom að eyðniveir-
an er af sama veiruflokki og visnu-
veira.
NY ÞRÆÐING
Instant Start
tLoading Sysiem*
ÞAÐ NÝJASTA FRÁ SAMYO ER VHR 4100, SEM ER ALGJÖR NÝUNG í VHS MYNDBÖNDUM
Nýja þræðingin frá SANYO gerir það að verkum að tækið vinnur mun hraðar en önnur tæki. T.d. tekur aðeins 1 sek-
úndu að fá myndina á skjáinn, eftir að ýtt hefur verið á "spilun", sem áður tók 6 sekúndur. Og tækið þitt slitnar minna
við notkun, athugaðu það.
Tækið býður einnig upp á:
* Fullkomna fjarstýringu
* Stafrænan teljara sem telur klst./min./sek.
* Skyndiupptöku (QSR), óháða upptökuminni.
* Nákvæma skoðun atriða með skrefspólun.
* 39 rásir.
* Sjálfvirkan stöðvaleitara.
* Eins árs upptökuminni með átta skráningum.
* Hraðspólun i báðar áttir, með mynd.
* Endurtekningu á sama hlutinn (repeat), allt að fimm sinnum.
* Sjálfvirka bakspólun.
* Sjálfvirka gangsetningu við innsetningu spólu.
* Hágæða mynd (High Quality).
* Stafrænt stjórnborð lýsir öllum aðgerðum tækisins.
* Scarttengi.
FÁGAÐ ÚTLIT
Stílhreinna og fyrirferðarminna tæki finnur þú varla. Tækið er 42 cm á breidd (passar í flesta hljómtækja-
skápa), 7,9 cm á hæð og 31,7 cm á dýpt.
SKREFI FRAMAR
Gunnar Asgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16
108 Reykjavík. Simi 680780.
Hagnýtar rannsóknir
Hér er átt við öflun nýrrar þekk-
ingar á sjúkdómum, sem valda tjóni
í búrekstri hérlendis, bæði í hefð-
bundnum greinum; sauðíjárrækt,
kúabúskap og hrossarækt og nýjum
búgreinum; loðdýrarækt, fiskeldi,
svína- og alifuglarækt.
Engin tök eru á því að telja öll
viðfangsefni hér, en nefna má bakt-
eríusjúkdóma svo sem gamaveiki í
sauðfé og kúm; Hvanneyrarveiki,
kregðu, lambalát og unglamba-
dauða. Umfangsmiklar rannsóknir
hafa verið gerðar á efnaskipta- og
hörgulsjúkdómum í nautgripum,
sauðfé og hrossum.
A síðari árum hefur verið lögð
áhersla á ófrjósemi og hormóna-
rannsónir á mjólkurkúm. Einnig
má nefna að tekist hefur að útrýma
veirusjúkdómnum plasmacytosis úr
aliminkum hérlendis með hjálp blóð-
prófa.
Margvísleg sníkjudýr hijá búfé
landsmanna og hafa umfangsmikl-
ar rannsóknir verið gerðar á snikju-
dýrum sauðfjár, nautgripa, hrossa,
svína, loðdýra, alifugla og vatna-
físka og leitað leiða til að draga
úr afurðatjóni af þeirra völdum.
Stórfelld aukning fískeldis hér-
lendis hefur kallað á auknar rann-
sóknir á sjúkdómum físka. Smitandi
nýmaveiki og sérstakt afbrigði
kýlaveiki, hvort tveggja bakteríu-
sjúkdómar, eru á meðal rannsókn-
arverkefna fisksjúkdómadeildar,
sem hefur verið stórefld á síðustu
árum, þó betur megi ef duga skal.
Þjónusturannsóknir
Hér er átt við sjúkdómagreining-
ar fyrir bændur, dýralækna, lækna,
sjúkrahús og fleiri aðila. Margvísleg
sýni eru send til rannsóknar að
Keldum; dýr til krufningar, líffæri,
ve§a-, saur- og blóðsýni. Beitt er
aðferðum meinafræði, bakteríu-
fræði, sníklafræði, veirufræði,
ónæmisfræði og efnagreiningum
við athuganir á þessum sýnum.
Auk þjónustu vegna búfjársjúk-
dóma eru greind sníkjudýr í mönn-
um og ýmis meindýr í húsum og
matvælum. Verkefni vegna heil-
brigðiseftirlits í fískeldisstöðvum
eru ærin m.a. vegna vottorða, sem
krafíst er til útflutnings afurða.
Bóluefinafiramleiðsla
Á tilraunastöðinni eru framleidd
bóluefni við helstu bakteríusjúk-
dómum í sauðfé hérlendis; garna-
veiki, lambablóðsótt, gamapest,
bráðapest og lungnapest, auk serm-
is við lambablóðsótt. Til sermis-
framleiðslu eru notuð að jafnaði um
30 hross. Einnig eru flutt inn ýmis
ormalyf í sauðfé, nautgripi og hross
4