Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
Rannsókn á Filippseyjum:
Áhöfii olíuskips kennt
um mannskætt feriuslys
Manila. Reuter. **
Manila. Reuter.
ÁHÖFN og útgerðarfélag olíuskips, sem var án haffærnisskírteinis,
með ólöglegan skipstjóra og var siglt án þess að nokkur væri á vakt
i brúnni, átti sök á mannskæðasta sjóslysi sem orðið hefur á frið-
artímum. Þetta var niðurstaða rannsóknar sem gerð var af fiiippínsk-
um yfirvöldum á slysinu er varð í desember síðastliðnum þegar feij-
an Dona Paz og rúmlega 600 tonna olíuskip, Vector, rákust á. Eldur
braust út og er talið að allt að 3.000 manns hafi farist.
er hún lenti í hvirfílbyl o’g meira
en 60 fórust, að sögn útgerðarfé-
lagsins. Félagið á um ijórðung alls
ferjuflota Filippseyja.
Reuter
Michael Dukakis varð 55 ára á fimmtudaginn og var þá efiit tiul
veislu honum til heiður i Newark í New Jersey. Sharpe James, borg-
arstjóri í Newark, er hér að færa Dukakis afinælistertuna.
Skýrsla um rannsóknina var gerð
opinber í gær. Þar kemur fram að
við áreksturinn hafí kviknað í farmi
olíuskipsins og eldurinn komist í
feijuna með fyrrgreindum afleið-
ingum. Sagt er að Sulpicio Lines,
útgerðarfélag Donu Paz, hafí enga
sök átt á slysinu; ekkert hafí verið
hægt að fínna að búnaði feijunnar
sem var um 2.200 tonn að stærð
og gerð fyrir um 1.500 farþega.
Samkvæmt farþegalista voru þeir
ekki fleiri. í skýrslunní er engu sleg-
ið föstu um fjölda farþega um borð
en í febrúar skýrði opinber upplýs-
ingastofnun frá því að meira en
3.000 manns hefðu týnt lífí í slys-
inu.
Sulpicio Lines hefur verið bannað
að stunda siglingar um hrfð vegna
slyss er varð 24. október síðastlið-
inn. Þá sökk feijan Dona Marilyn
Lokasprettur kosningabaráttunnar í Bandaríkjunum:
Dukakis einbeitir sér
að stærstu ríkjunum
- en Bush tíundar verðleika meðframbj óðanda síns
Washington. Reuter.
Kosningabaráttan i Bandaríkjunum er nú að renna sitt skeið og
þessa síðustu daga reynir Michael Dukakis, forsetaframbjóðandi
demókrata, að einbeita sér að stærstu og mikilvægustu rikjunum.
George Bush, frambjóðandi repúblikana, sem hefiir enn 10% forskot
á keppinaut sinn samkvæmt skoðanakönnunum, hefiir hins vegar
gert sér far um það á lokasprettinum að sannfæra kjósendur um
verðleika varaforse^aefiiisins, Dans Quayle.
Dukakis hefur átt hvert sjón- Bush, sem virðist vera öruggur
varpsviðtalið á fætur öðru nú að með að verða næsti forseti Banda-
undanfömu í þeim tilgangi að ná ríkjanna, hefur tekið upp hanskann
til sem flestra fyrir kjördag en þótt
hann sé rámur og þreytulegur að
sjá lætur hann engan bilbug á sér
fínna. „Við sælg'um á um landið
allt. Við ætlum að sigra," sagði
hann á útifundi f Fíladelfíu og f gær
ætlaði hann auk sjónvarpsviðtala
að tala á fundum í New York„Illino-
is og Kentucky. í skoðanakönnun-
um kemur fram, að mjótt geti orð-
ið á mununum í New York og Illino-
is og öðrum mikilvægum ríkjum
eins og Kalifomíu, Ohio, Michigan
og Pennsylvaníu. Frá þessum sex
rfkjum koma 175 kjörmenn af þeim
270, sem forseti þarf að hafa á bak
við sig.
fyrir varaforsetaefni sitt, Dan Qua-
yle, en demókratar hafa um hann
hin verstu orð og segja, að f stjóm-
málunum sé hann ekki einu sinni
gjaldgengur f §aðurvigtarflokkn-
um.
„Eins og allir vita herðist stálið
í eldinum. Meðframbjóðandi minn
hefur verið ausinn eldi og eimyiju,
sem ekki á sinn neinn lfka, en hann
hefur eflst við þessa raun,“ sagði
Bush á fimmtudag en fram að þessu
hefur hann stundum ekki minnst
einu orði á Quayle í ræðum sínum.
í kosningabaráttunni hefur Qua-
yle aðallega komið fram í bæjum
og smáborgum, sem ekki eru undir
smásjá fjölmiðlanna, og af þvf til-
efni birti dagblaðið Washington
Post frétt á forsíðu með fyrirsögn-
inni: „Quayle ekki lengur umdeild-
ur, heldur gleymdur." Hafa þeir
Bush og Quayle sjaldan komið fram
saman síðan á flokksþinginu f
ágúst.
Þar sem almennt er búist við,
að Bush sigri eru menn famir að
velta fyrir sér líklegum ráðherrum
í næstu stjóm. Telja flestir senni-
legt, að James Baker, fyrmrn fjár-
málaráðherra og kosningastjóri
Bush, verði utanríkisráðherra og
John Tower, fyrrverandi öldunga-
deildarþingmaður frá Texas, vam-
armálaráðherra. John Sununu, sem
lætur nú af ríkisstjóraembætti í
New Hampshire, er ekki talinn ólfk-
legur sem starfsmannastjóri í Hvíta
húsinu en einnig er búist við, að
einhveijir úr núverandi stjóm sitji
áfram, til dæmis Nicholas Brady
fjármálaráðherra.
Mexíkó:
Blóðug- orr-
usta á hóteli
Mexíkóborg;. Reuter.
BYSSUBOFAR frá tveim
stríðandi stéttarfélögum hófii
skothríð í móttökusal glæsihót-
elsins Presidente Chapultepec í
Mexíkóborg á fimmtudagskvöld.
Að sögn embættismanna Rauða
krossins féllu tveir og allt að 15
særðust en stjórnvöld töldu að-
eins átta hafa særst. Ástæðan
fyrir bardaganum mun hafá ver-
ið deila um það hvort félagið
ætti að annast kjaramál starfs-
fólks á hótelinu.
„Fyrst heyrði ég gler brotna, þar
næst skothríð og síðan sá ég fólk
hlaupa burt, skelfíngu lostið," sagði
hótelstjórinn sem var staddur við
afgreiðsluborðið er átökin hófust.
Sjálfur flýði hann inn í bakherbergi
ásamt 15 öðrum starfsmönnum og
földu þeir sig í hálfa klukkustund
þar til ólætin hjöðnuðu.
Talsmaður lögreglu sagði að 173
hefðu verið handteknir vegna máls-
ins. Starfsmenn á hótelinu sögðu
félaga í öðru stéttarfélaginu hafa
angrað hljómlistarmenn úr hinu
félaginu er þeir vom að störfum.
Skyndilega hafí deilan farið úr
böndunum með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Israel:
Ósigurinn mikið áfall
fyrir Shimon Peres
Ný herþota
reynist dýr
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSK stjómvöld segjast nú íhuga að hætta við metnaðarfyllstu
og dýrustu áætlun sina á sviði hermála, smiði mjög háþróaðrar orr-
ustuþotu. Kostnaður við smíðina hefur farið fram úr áætlunum.
Talsmenn fyrirtækjanna, er annast smíðina, bera sig þó vel og segj-
ast hafa unnið bug á helstu tæknivandamálum við smíði þotunnar.
Talsmaður sænska vamarmála-
ráðuneytisins, Nils Gunnar Billin-
ger, sagði fréttamönnum Reuters á
fímmtudag að nauðsynlegt hefði
reynst að endurskoða áætlunina
þegar reikningar frá fyrirtækjum
sem standa að smíðinni, bárust, en
þeir reyndust mun hærri en gert
var ráð fyrir.
Hönnun þotunnar, sem er kölluð
JAS-39 Gripen, átti upphaflega að
kosta 40.8 milljarða sænskra króna
(rúma 303 milljarða ísl. króna).
Fjögur fyrirtæki, undir forystu Sa-
ab-Scania fyrirtækisins, smíða þot-
una. Önnur fyrirtæki sem taka þátt
í smíði hennar eru Volvo, L.M.
Ericsson og ríkisrekna vopnafyrir-
tækið FFV.
Rolf Erichs, talsmaður Saab-
Scania, sagði fréttamanni Reuters
að þotan yrði send í fyrsta tilrauna-
flugið fyrir árslok og jafnframt að
menn gerðu sér vonir um að geta
afhent þotuna á umsömdum tíma.
Heimildarmenn hjá Saab sögðu að
hótanir yfírvalda væru aðeins bragð
til að reyna að fá fyrirtækin til
þess að lækka verðið. Vamarmálas-
éifræðingar álíta að sænska þotan
verði mun ódýrari en svipuð her-
þota, svonefnd Eurofighter, sem nú
'er verið að smíða af Bretum, Vest-
ur-Þjóðveijum, ítölum og Spán-
veijum í sameiningu.
Jérúsalem. Reuter.
LOKATÖLUR i ísraelsku kosn-
ingunum voru birtar i gær og
ljóst er að Verkamannafiokkur-
inn undir stjóm Shimon Peres
utanríkisráðherra beið ósigur.
Verkamannafiokkurinn hlaut 39
þingsæti en Likud-flokkurinn
undir stjórn Yitzhak Shamirs
hlaut 40 þingsæti. Shamir reynir
nú að mynda stjórn með þátttöku
hægrifiokka og strangtrúar-
flokka. Ósigur Verkamanna-
flokksins er talið mikið áfall fyr-
ir Shimon Peres sem Qórum sinn-
um hefur mistekist að leiða flokk
sinn til sigurs i þingkosningum
frá árinu 1977.
Peres, sem setti tillögur um frið-
arráðstefnu fyrir botni Miðjarðar-
hafsins á oddinn í kosningabarátt-
unni, verður nú að gera það upp
við sig hvort hann sækist eftir
valdaminni embættum í samstjóm
Líkud-flokksins og Verkamanna-
flokksins, ef til kæmi, eða fara í
stjómarandstöðu og eiga það á
hættu að verða vikið til hliðar sem
formanni Verkamannaflokksins.
Peres sagði í viðtali við dag-
blaðið Yedioth Ahronoth að það
væri ekki slæmt fyrir flokkinn að
fara í stjómarandstöðu en það væri
afleitt fyrir hagsmuni landsins og
að hann ætlaði sér ekki að láta það
gerast.
Vinstri armur flokksins hefur
hvatt Peres til að hætta öllum
Reuter
Frank Carlucci, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, er nú I opin-
berri heimsókn i ísrael. í gær hitti hann Yitzhak Shamir, forsætisráð-
herra ísraels, að máli í Jerúsalem.
stjómarumleitunum við stjóma-
málaöfl strangtrúaðra. „Það er al-
veg ljóst að það er enginn grund-
völlur fyrir því að mynda sam-
steypustjóm við trúarflokkana, þeir
hafa ekki í hyggju að starfa með
okkur," sagði Haim Ramon, þmg-
maður af vinstri armi Verkamanná-
flokksins.
Stjómmálaskýrendur telja að enn
sé hugsanlegt að Shamir bjóði
Verkamannaflokknum að fara með
valdaminni embætti í næstu ríkis-
stjóm, að því tilskildu að flokkurinn
falli frá tillögum um friðarráð-
stefnu'
Peres sagði í gær að hann hyggð-
ist ekki segja af sér sem formaður
Verkamannaflokksins og skoraði á
andstæðinga sína að koma úr fel-
um. „Ég var kosinn til að gegna
formannsémbætti I flokknum og ég
mun skilyrðislaust halda áfram að
sinna skyldum rnínutn," sagði Per-
es.