Morgunblaðið - 05.11.1988, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
23
Reuter
Tannburstun
Starfsmaður skemmtisýningar, sem opnuð verður um þessar
mundir í Hamborg í Vestur-Þýzkalandi, burstar tennur risastórr-
ar hauskúpu, sem skipar ákveðinn sess á sýningunni.
Danmörk:
Víðtæk leit
gerð að póst-
ræningjum
Kaupmannahöfn. Reuter.
DANSKA lögreglan leitar nú um
alla Danmörku að Qórum mönn-
um sem firömdu mesta rán í sögu
landsins og skutu lögreglumann
til ólífis.
Ræningjamir, sem voru klæddir
einkennisfötum lögreglunnar,
stöðvuðu póstbíl fyrir utan aðal-
pósthúsið í Kaupmannahöfn á
fimmtudag, og borgaralega klædd-
ir aðstoðarmenn tóku 30 póstpoka
með um 8,6 milljónum danskra
króna í reiðufé (rúmar 57,6 millj-
ónir ísl. kr.) og 1,3 milljónir (rúm-
ar 8,7 milljónir Isl. kr.) í verð-
bréfum.
Talsmaður dönsku lögreglunnar
sagði í gær að Jesper Egtved Hans-
en, 22 ára gamall lögreglumaður,
hefði verið skotinn þegar hann
steig út úr bíl sínum og ætlaði að
stöðva ræningjana með því að
draga fram skammbyssu. Hansen
lést af völdum skotsáranna á
fimmtudagskvöld.
Andespil (bingó)
Foreningen Dannebrog heldur sitt árlega
matarbingó í Risinu, Hverfisgötu 105,
4. hæð, sunnudaginn 6. nóvember.
Húsið opnað kl. 20.00.
Stjórnin.
N0RGE £\{
OPPLAND
FYLKESKOMMUNE
PRESTESETER
PSYKIATISK SYKEHUS
I N0RGE óskar eftir að
ráða hjúkrunarkonur
Gætir þú hugsað þér að nýta hjúkrunarkunnáttu þína,
til styttri eða lengri tíma, í Noregi?
Við bjóðum frábæra starfsaðstöðu í sveitarlegu um-
hverfi ca 11 mílur norður af Osló. Góðir möguleikar til
útivistar jafnt sumar sem vetur. Bæirnir Gjevik og Lille-
hammer eru einnig skammt undan.
Stofnunin getur verið innan handar með húsnæði.
Umsækjendur þurfa að tala einhverja norsku/sænsku/d-
önsku. Ef þú hefur áhuga, hafðu þá samband við yfir-
hjúkrunarkonuna, Victoriu Brekke, í síma 9047-61-
97730 eða skrifið til:
Presteseter sykehus,
Personalkontoret,
N-2840 Reinsvoll, Norge.
Indland:
17 mannsláta
lífið í spreng-
ingum síkka
Chandigarh. Reuter.
ÞRJÁR eða fjórar sprengjur
sprungu í gær á útimarkaði í
bænum Batala í Norður-Indlandi
og urðu 17 manns að bana. Fjöldi
manns var í verslunarerindum á
markaðnum því í næstu viku
hefst ljósahátíð hindúa.
Að sögn lögreglu virðist sem
sprengingamar séu verk Babbar
Khalsa, hóps herskárra síkka, sem
berst fyrir sjálfstæði Punjab-hér-
aðs.
Þijár sprengjur sprungu á Ind-
landi síðastliðinn þriðjudag sem
urðu 21 manni að bana. Tværþeirra
sprungu í bænum Pathankot og sú
þriðja í áætlunarbíl sem lagði upp
frá bæ í Punjab-héraði. Indversk
fréttastofa greindi frá því að fjórða
sprengjan hefði fundist í fórum
öfgamanns nálægt Pathankot á
þriðjudag. Við yfirheyrslur sagði
hann að samviska sín hefði meinað
sér að koma sprengjunni fyrir í
áætlunarbíl, eins og ráðgert hafði
verið.
Samkvæmt óstaðfestum tölum
hafa 2.200 manns látist í herferð
aðskilnaðarsamtaka síkka á þessu
ári.
Danmörk:
Loðdýrarækt-
endur sektaðir
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
bandalagsins hefur ákveðið að
sekta samtök danskra loðdýra-
ræktenda fyrir ólögmæta við-
skiptahætti. Sektin nemur um
það bil 26 milfjónum íslenskra
króna.
Danskir loðdýraræktendur eru
sakaðir um brot á Rómarsáttmálan-
um fyrst og fremst vegna þess að
þeir skylda meðlimi samtaka sinna
til að selja öll skinn á uppboðsmörk-
uðum samtakanna. Samkvæmt nið-
urstöðum framkvæmdastjómarinn-
ar dregur slíkt úr fijálsri sam-
keppni og takmarkar verslunar-
frelsi m.a. vegna stórrar markaðs-
hlutdeildar danskra framleiðenda
en í Danmörku er boðinn upp u.þ.b.
þriðjungur allra skinna í Evrópu.
Daihatsu Charade var upphaflega hannaður
til að mæta gífurlegri hækkun bensínverðs í orku-
kreppu og að draga úr útgjöldum heimilanna.
Nú, þegar kreppir að í íslensku efnahagslífi
og bensínverðshækkun liggur í loftinu, ásamt öðrum
auknum álögum, sannar Charade enn einu sinni
ágæti sitt sem einn albesti kosturinn á markaðnum
þegar hugað er að bílakaupum.
Kynntu þér hönnun, útlit og rekstrargrund-
völl Daihatsu Charade áður en þú velur annað.
Daihatsuþjónustan er svo í kaupbæti, sú
besta sem völ er á.
Við eigum fyrirliggjandi árgerð 1988 á besta
verði sem við höfum nokkrum sinni boðið uppá.
í því eru engar blekkingar um vexti, einfald-
lega lágmarksverð á gæðabíl.
Árgerð 1989 er á leiðinni fyrir
þá sem vilja bíða,
en á töluvert hærra verði.
íarade
Verðfrákr.
■
m m Éfc: M ® % Ul
f
Innifalið hágæða útvarps- og segulbandstæki.
Við bjóðum kjör við allra hæfi og erum opnir fyrir alls konar skiptum.
Úrval notaðra bíla.
0P\Ð'
9-1»
YaU9A0'^6
BRIMBORG HF.
SKEIFUNNI 1 5 - SÍMI 685870.
Daihatsu - Volvo - Viðurkennd gæðamerki
NÝ SÍMANÚMER:
Söludeild 685870
Verkstæði: 673600
Varahlutir: 673900
1
l