Morgunblaðið - 05.11.1988, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
Siðfræði og störf
tæknimanna
Námstefna í Norræna húsinu
Endurmenntunardeild Há-
skóla íslands gengst, í samvinnu
við Verkfræðingafélag íslands
og Tæknifræðingafélag fslands,
Spilakvöld
Snæfellinga
FÉLAG Snæfellinga og Hnapp-
dæia í Reykjavík efiiir til þriggja
kvölda spilakeppni, sem hefst
fimmtudaginn 10. nóv. nk. á Hótel
Lind, Rauðarárstfg 18. Annað
spilakvöldið verður fimmtudaginn
24. nóv., og það þriðja og síðasta
fimmtudaginn 8. desember.
Kvöldverðlaun verða, leikhúsmiðar
og fl. og heildarverðlaunin hjá þeim
sem sigra verða skemmtisigling um
Breiðaflörð með Eyjaferðum í Stykk-
ishólmi fyrir fimm manna flölskyldu
hvor verðlaun, m.ö.o. sigling fyrir
10 manns. Húsið verður opnað kl.
20 og spilamennskan hefst kl. 20.30.
fyrir námstefnu í Norræna hús-
inu hinn 4. nóvember nk.
Námstefnan ber yfirskriftina
„Siðfræði og störf tæknimanna“ og
þar verður fjallað um siðfræði og
siðferðileg álitamál, sem tengjast
tækni og störfum tæknimanna.
Bæði álitamál sem tengjast störfum
einstakra tæknimanna og tækni-
þróun almennt.
Námstefnan hefst kl. 13.00 með
fyrirlestri Eyjólfs Kjalar Emilsson-
ar, lektors, sem hann nefnir „Hvað
er siðfræði?" Þá tekur Páll Skúla-
son, prófessor við og nefnist fyrir-
lestur hans „Veröld tækninnar og
mannleg verðmæti".
„Siðferðileg vandamál í störfum
íslenskra tæknimanna" er yfírskrift
fyrirlesturs Egils Skúla Ingibergs-
sonar, verkfræðings og Dean Abra-
hamsson, Ph.D. prófessor við há-
skólann í Minnesota aðjúnkt við
Háskóla íslands, flytur fyrirlestur
sem hann kallar „Limits to Growth,
a National Responsibility".
Kvenfélag Kópavogs:
Basar og kökusala
KVENFÉLAG Kópavogs verður með basar, kökusölu og flóamarkað á
morgun sunnudag 6. nóvember kl. 2 í Félagsheimili Kópavogs 2. hæð.
Þar verður einnig selt kaffi og ijómavöfflur.
A boðstólum verður meðal annars hvattir til að líta inn og styrkja um
pijónavörur og aðrir handunnir mun- leið gott málefni.
ir, einnig heimabakaðar kökur o.fl. Allurágóði rennurtil líknarmála.
Kópavogsbúar og nágrannar eru (Fréttatilkynning)
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 4. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Haasta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 44,00 36,00 40,29 1,428 57.534
Þorskur(ósL) 46,00 46,00 46,00 7,000 322.000
Ýsa 76,00 35,00 70,70 6,759 477.861
Ýsafósl.) 67,00 67,00 67,00 3,600 241.200
Undirmálsýsa 17,00 13,00 14,08 1,266 17.825
Lúöa 290,00 175,00 219,09 0,279 61.126
Næstkomandi mánudag verður meöal annars selt óákveðiö
magn af þorski og ýsu úr Stakkavik ÁR.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 39,00 39,00 39,00 1,666 64.974
Þorskur(ósl.) 32,00 32,00 32,00 0,187 5.984
Ýsa 47,00 25,00 30,99 0,689 21.353
Ýsa(ósl.) 76,00 63,00 69,91 2,395 167.431
Ýsa(smá) 10,00 7,00 7,58 0,176 1,334
Karfi 23,00 19,00 20,55 41,981 862.750
Hlýri 15,00 15,00 15,00 0,168 2.520
Lúða 260,00 165,00 189,00 0,060 11.340
Samtals 24,04 47,222 1.137.686
Selt var úr Jóni Vidalín ÁR. Næstkomandi mánudag verður selt
úr bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 52,00 34,50 42,59 129.503 5.516.103
Undirmál 15,00 15,00 15,00 5,632 84.480
Ýsa 74,50 47,50 62,12 8,316 517.034
Ufsi 15,00 15,00 15,00 7,304 109.560
Karfi 15,00 15,00 15,00 2,391 35.879
Steinbítur 38,50 25,00 36,53 0,206 7.526
Hlýri 20,50 15,00 17,01 1,804 30.609
Langa 22,00 15,00 17,20 1,750 30.100
Lúða 205,00 80,00 168,82 0,991 167.305
Grálúða 16,00 16,00 16,00 0,042 672
Keila 7,00 6,00 6,88 1,260 8.670
Samtals 40,88 159,200 6.508.019
Selt var aðallega úr Hauki GK, Gnúpi GK og Þorsteini Gíslasyni
GK. 1 dag verður selt úr dagróðrabátum ef á sjó gefur og hefst
uppboðið klukkan 14.30.
Grasnmetisverð á uppboðsmörkuðum 3. nóvember.
SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA
Gúrkur 152,00 0,015 2.280
Sveppir 450,00 0,088 39.624
Tómatar 127,00 0,558 70.866
Gulrætur(pk.) 106,00 1,220 129.320
Gulrætur(ópk.) 97,00 0,150 14.570
Steinselja 32,00 1,210 3.900
Kínakál 117,00 2,532 295.344
Hvítkál 66,00 6,600 438.480
Rauðkál 85,00 0,100 8.500
Rófur 46,00 4,375 201.625
Samtals 1.241.369
Inflúensubólusetning
Heilsugæslustöðin í Asparfelli 12 býður íbúum
Breiðholts III (Fella- og Hólahverfi og skjólstæð-
ingum stöðvarinnar) upp á inflúensubólusetningu.
Bólusett verður alla mánudaga í nóvember frá kl.
16.00-18.00 og þriðjudaga frá kl. 8.00-9.00.
nTíTíTTnnfwntRTntmí?.-! 'ii-TífCT11! <.
Þessir voru
á myndinni
í viðtali við Eirík Briem í
síðasta sunnudagsblaði var mynd
af brúðkaupi í Viðey, brúðhjónum,
presti og gestum. Ekki hafði tek-
ist að þekkja alla gestina og ekki
allt rétt sem giskað var á. Hafa
margir sjálfboðaliðar komið þar
að liði og hringt til að segja frá
þeim sem þeir þekktu betur. Hér
birtum við því myndina aftur með
nöfnum þeirra sem einhver hefur
þekkt, sem eru allir utan einn
karlmaður. Á myndinni þekkjast
þá:
1. Sæmundur Bjamhéðinsson,
2. kona hans, Christophine Mik-
keline, 3. Jón Hermannsson, 4.
Jón Baldvinsson, þ. Júlíana Guð-
mundsdóttir, 6. Ásta Hermanns-
son, 7. Ólafur Johnsson, 8. Halla
Briem, 9. Eggert Briem, 10.
Sveinn Gunnarsson, 11. séra Frið-
rik Hallgrímsson, 12. Inga Ás-
munds, 13. Pétur Thorsteinsson,
14. Ásthildur Briem, 15. Bentína
Hallgrímsson, 16. franskur kons-
úll? 17. Haraldur Guðmundsson,
18. Laufey Valdimarsdóttir, 19.
Ásthildur Thorsteinsson, 20. Bríet
Bjamhéðinsdóttir, 21. EiríkurBri-
em, 22. brúðurin, Gyða Briem,
23. brúðguminn, Héðinn Valdi-
marsson, 24. Katrín Gunnlaugs-
dóttir, 25. Sverrir Briem, 26.
Theodóra Thoroddsen, 27. Borg-
hildur Bjömsson. Bömin fremst:
28. Guðrún Briem, 29. Pétur
Thorsteinsson, 30. EiríkurBriem.
Sparisjóðurinn hefiir boð-
ist til að lána fólkinu launin
Keflavík.
„Sparisjóðurinn í Keflavík hef-
ur boðist til að lána kaup fólksins
þar til málin hafa skýrst og viljum
við feera Tómasi Tómassyni spari-
sjóðsstjóra bestu þakkir fyrir,“
sagði Guðrún Árnadóttir fyrrum
framkvæmdastjóri Ragnarsbak-
arís á fúndi með fyrrum starfs-
mönnum bakarísins á fimmtu-
dagskvöldið, en Guðrún á sæti í
5 manna nefhd sem starfsfólkið
kaus til að gæta hagsmuna sinna.
Á fúndinum kom fram að laun
hafa enn ekki fengist greidd og
að launakröfúr næmu á bilinu 8
til 10 milljónum króna.
Verslunarmannafélag Suðurnesja
sem er stéttarfélag starfsfólks bak-
arísins sendi frá sér eftirfarandi um
gang mála:
Eins og flestum er kunnugt þá
var Ragnarsbakarí hf. tekið til gjald-
þrotaskipta þann 2.12. 87 og í fram-
haldi af því urðu 45 manns atvinnu-
lausir.
Þann 7.12. 88 var þrotabúið síðan
selt Pétri Björnssyni og Ármanni
Reynissyni, eigendum Ávöxtunar sf.
Allt starfsfólkið var kallað til starfa
á ný og gengu nýir eigendur inn í
þá launasamninga sem í gildi voru
hjá Ragnarsbakaríi hf. Fyrirtækið
var í byijun rekið undir nafninu
Hjörtur Nielsen hf. þar til stofnað
var nýtt fyrirtæki um rekstur bak-
arísins þann 14.4. 88, sem er Brauð-
gerð Suðumesja hf. Fyrirtækið hélt
síðan áfram rekstrinum þar til eig-
endur Brauðgerðar Suðumesja hf.
tóku þá ákvörðun að selja það.
Nýr eigandi tekur síðan við fyrir-
tækinu þann 22.8. 88 og var rekið
í nafni Suðurnesjabakarís hf. en einn
aðaleigandi var Björgvin Víglunds-
son verkfræðingur.
Björgvin Víglundsson ákveður
síðan þann 14.10. 88 að hætta
rekstri bakarísins og var 16.10. 88
síðasti dagur sem unnið var í fyrir-
tækinu.
Samkvæmt beiðni Björgvins við
framkvæmd.astjóra var, ákveðið að.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Ragnarsbakarí í Keflavík hefúr verið rekið undir þrem nöfiium frá
því að það var selt í desember í fyrra.
loka fyrirtækinu þann 17.10. 88 og
ennfremur taldi Björgvin ekki þörf
á því að starfsfólkið mætti til vinnu.
Allir starfsmenn mættu þó á þeim
tíma sem þeim bar, þar sem hann
var ekki búinn að tilkynna því hvert
framhaldið yrði.
Björgvin kom síðan á vinnustað-
inn og hélt fund með öllu starfs-
fólkinu og tilkynnti þeim að vegna
óljósrar eignarstöðu hans í fyrirtæk-
inu þá sæi hann sér ekki fært að
halda þeim rekstri gangandi áfram,
ennfremur tilkynnti hann starfs-
fólkinu að því bæri ekki að mæta
til vinnu að morgni þann 18.10. 88.
Engum var sagt upp störfum að
svo komnu máli og hefur reyndar
ekki verið gert ennþá. Á launaskrá
fyrirtækisins eru 44 manns.
Nú í dag, þann 3.11. 88, hefur
enginn stárfsmaður fengið greidd
laun vegna október að undanskyjd-
um bökurum sem fengu greitt viku-'
lega, en þeir fengu síðast laun sín
fyrir vikunna 5.10.-11.10. greidd
þann 17.10. 88.
Magnús Gíslason formaður Versl-
unarmannafélags Suðumesja sagði
í sámtali við Morgunblaðið að ríkið
væri ábyrgt fyrir launum starfs-
manna bakarísins ef Suðumesjabak-
arí hf. yrði lýst gjaldþrota. Nú væri
unnið að launakröfum starfsfólksins
?era yrðu sendar lögmanni,.Björgyii)s
Víglundssonar og ákveðinn frestur
veittur. Ef kröfunum yrði ekki sinnt
yrði líklega farið fram á gjaldþrota-
skipti. Einnig kom fram hjá Magn-
úsi að Verslunarmannafélagið ætti
kröfur á öll fyrirtækin sem stofnuð
voru í kringum rekstur bakarísins,
því ekkert þeirra hefði greitt neitt
til félagsins.
Nú eru 10 félagar á atvinnuleysis-
skrá hjá Verslunarmannafélagi Suð-
umesja og sagði Magnús Gíslason
að útlit væri fyrir að sú tala ætti
eftir að hækka á næstu dögum, því
vitað væri um nokkra sem misstu
vinnuna á næstu dögum. Magnús
sagði að hann væri óhress með að
á sama tíma og ijöldi manns í félag-
inu gengju um atvinnulausir á Suð-
umesjum fengju erlendir þegnar á
Keflavíkurflugvelli að vinna þjón-
ustustörf. bb
Lonli blú bojs
í Glaumbergi
HIN þekkta hljómsveit Lonli blú
bojs mun leika í veitingahúsinu
Glaumbergi í Keflavík á næstunni.
Hljómsveitin kemur fram í fyrsta
sinn um næstu helgi, 11. og 12.
ÚÓYS #|PFi»,, 1111,1111111«111«.