Morgunblaðið - 05.11.1988, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
43
Skautadrottning
Þetta glæsilega fólk efndi til skrautsýningar á skautum í Ziirich í Sviss fyrir skömmu. Raunar þykir það
almennt ekki í frásögur færandi úti í heimi, að fagurlega sé dansað á skautum en stúlkan fremst á mynd-
inni heitir Katharina Witt og hefur hún til þessa stundað keppni í skautadansi og orðið tvöfaldur olympíumeistari
og þrefaldur heimsmeistari. Nú er hún hætt keppni og tekin til við að sýna hæfni sína í atvinnuskyni með
hópnum „Holdiday on Ice“.
SJÓNVARP
CNN til Sovétríkjanna
Ted Turner ræðir við blaðamenn i Stokkhólmi, eftir að hafa verið
í Moskvu og selt mönnum þar aðgang að sjónvarpsstöð sinni.
Skammstöfunin CNN stendur
fyrir Cable News Network,
sem mætti þýða sem Kapalsjón-
varps-fréttastöðin, enda sendir
þessi stöð ekki annað en fréttir og
fréttatengt efni um kapal allan sól-
arhringinn. Hún er með höfuð-
bækistöðvar í Atlanta í Banda-
ríkjunum en starfar um heim alian
og er meðal annars unnt að sjá
sendingar hennar hér á landi. Nú
ætlar hún- að færa út kvíamar til
Sovétrílqanna.
Stofnandi CNN og aðaleigandi
er Bandaríkjamaðurinn Ted Tumer,
sem á sínum tíma var í siglingaliði
lands síns í keppninni um Ameríku-
bikarinn. Hann var í Moskvu á dög-
unum og skýrði síðan frá því, að
frá og með næstu áramótum gætu
menn séð CNN& hótelum í Moskvu.
Þegar í dag geta Kremlveijar,
starfsmenn TASS-fréttastofunnar
og annarra sovéskra fréttastofnana
horft á sendingar stöðvarinnar í
Moskvu. Á hverjum degi notar sov-
éska sjónvarpið nokkrar mínútur
af efni frá CNN. Starfsmenn stöðv-
arinnar fylgdust náið með líðan og
björgun gráhvalanna við Alaska á
dögunum og hver veit nema Kreml-
veijar hafi ákveðið að senda ísbijót
til að aðstoða við björgun þeirra,
eftir að þeir sáu til hvalanna í CNN.
Ted Tumer leggur sig nú fram
um að auka áskrift að stöð sinni í
Evrópu og hefur einkum leitað eftir
ítökum í Svíþjóð og Hollandi. í þess-
um löndum er verið að auka mjög
útbreiðsiu kapalkerfa, en með
áskrift að þeim geta notendur feng-
ið aðgang að jafnvel tugum stöðva.
CNN aflar sér einkum tekna með
auglýsingum og því, sem á íslensku
hefur verið kallað kostun, það er
að fyrirtæki eða einstaklingar taka
að sér að kosta gerð og útsendingu
einstakra þátta.
Eftir förina til Moskvu var Tum-
er nokkra daga í Stokkhólmi.
Reyndi hann meðal annars að selja
sænskum fyrirtækjum auglýsingar
í CNN og þá sérstaklega með Jap-
ansmarkað í huga.
Frá bústað norsku krónprinshjónanna að Skaugum. Hann iítur vel
út, þótt býlið allt sé í niðurníðslu og nágrannar kvarti.
NORSKA KONUNGSFJÖLSKYLDAN
Jörðin að Skaugum
til vandræða
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
Býli norsku krónprinshjónanna
að Skaugum er svo illa farið,
að nágrannamir eru byijaðir að
kvarta. Nefnd frá Stórþinginu hef-
ur verið að kanna málið og Harald-
ur krónprins segir, að á næstu
fimm ámm þurfi um 85 milljónir
íslenskra króna til að koma jörð-
inni og húsum á henni í viðunandi
horf.
Skaugum er stór búgarður í
Asker um 20 kílómtera fyrir utan
Ósló. Á sínum tíma gaf Hákon
konungur syni sínum Olafi býlið í
brúðargjöf, en Ólafur gaf það
síðan syni sínum Harajdi og konu
hans Sonju prinsessu. Á býlinu eru
samtals 39 byggingar.
Fé það sem krónprinshjónin fá
árlega sér og sínum til framfæris
úr norska ríkissjóðnum hefur ekki
dugað til að kosta viðhald að
Skaugum. Nágrannar hafa meðal
annars kvartað undan því við Stór-
þingið, að girðingar séu úr sér
gengnar. Nú hefur verið frá því
skýrt, að Haraldur krónprins hafi
varið rúmlega 30 milljónum ísl.kr.
af væntanlegum arfi sínum eftir
Ólaf konung til endurreisnar að
Skaugum, jafnfram hefur hann
notað sjö milljónir ísl. kr. úr eigin
vasa. Þetta fé hefur hins vegar
ekki dugað tii að halda í horfínu.
Opinber Qárveiting til krón-
prinshjónanna verður um 60 millj-
ónir ísl. kr. á næsta ári, en þau
hafa nú beðið Stórþingið um auka-
fjárveitingu vegna framkvæmda
að Skaugum. Þess er vænst að
komið verði til móts við þessar
óskir og er lagt til að 5 milljónir
ísl. kr. verði aukalega á íjárlögum
næsta árs vegna þessa verkefnis.
CÖSPER
-Ég get ekki opnað strax, ég var að enda við að lakka
neglurnar.
Eigendur dieselbifreiða
í tilefni af flutningi fyrirtækisins bjóðum við eigend-
um dieselbifreiða og öðrum viðskiptavinum okkar
að líta inn og skoða hin glæsilegu húsakynni.
Kaffiveitingar á staðnum.
Opið frá kl. 16.00-19.00.
H.P.H. dieselvéíaviðgerðir,
Eldshöfða 16.
Viðtalstimi borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum í vetur frá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurn-
umogábendingum.
Allir borgarbúar eru velkomnir.
Laugardaginn 5. nóvember eru til viðtals Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður atvinnumálanefndar,
í stjóm bygginganefndar aldraðra og SVR, Ingólfur Sveinsson, i stjórn heilbrigðisráðs og Sjúkrasam-
lags Reykjavíkur, og Guðrún Zoéga, t stjóm veitustofnana, skólamálaráði og fræðsluráði.