Morgunblaðið - 05.11.1988, Side 50
50
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR IAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Islander
íB-þjóða
gæðaflokki
Tölulega séð á íslenska landsliðið að rokka
á milli B og A í keppni HM. Árangur ís-
lands gegn A-þjóðum er aðeins 27.6%,
en 58.7% gegn B-þjóðum
AÐ undanförnu hefur mikið verið rætt um árangur
landsliðsins á Ólympíuleikunum í Seoul og hvaða
möguleika liðið eigi í B-keppninni sem fer fram í
Frakklandi ífebrúar. Margir eru ekki ánægðir með
að ísland sé orðin B-þjóð f handknattleik, en þegar
að er gáð - þá séstþað tölulega að ísland er í B-
þjóða gæðaflokki. Arangur landsliðsins er ekki nægi-
lega góður gegn þjóðum í A-flokki, eða aðeins 27.6%.
Árangur gegn B-þjóðum fer rétt yfir meðallag, eða
58.7%. Þannig að tölulega séð á landsliðið að rokka
á milli þess að vera B-þjóð og A-þjóð.
AF -
INNLENDUM
VETTVANGI
SigmundurÓ.
^Stcinarsson
skrifar
Arangur landsliðsins í Seoul var
ekki sá sem menn vonuðust
eftir, en að öllu eðlilegu á landslið-
ið að ná að tryggja sér rétt til að
leika í A-keppni HM
í Tékkóslóvakíu
1990 í B-keppninni
í Frakklandi. Ef
árangur liðsins und-
ir stjórn Bogdans,
landsliðsþjálfara, er
skoðaður - þá á ís-
land að bera lægri
hlut gegn Rúmeníu
í riðlakeppninni, en
vinna Bulgaríu og Kúvait. Þannig
á Island að komast í milliriðii. Þar
á ísland að vinna Sviss og Holland,
en bera lægri hlut gegn V-Þýska-
landi. _
Að öllu eðlilegu á Island því að
leika um fimmta sæti gegn Dan-
mörku eða Frakklandi. Sjötta sætið
dugar til að ná farseðlinum til
Tékkóslóvakíku 1990.
52.4% árangur
Landsliðið hefur náð 52.4% ár-
angri undir stjórn Bogdans frá
1983. Undir stjóm hans hefur liðið
leikið 187 landsleiki, unnið 89, gert
18 jafntefli og tapað 80 leikjum.
Arangur íslands gegn A-þjóðum
hefur ekki verið góður. Sextán leik-
ir hafa unnist af 65, eða 24.6%
árangur. Fimm sigrar hafa unnist
á Júgóslövum, þrír á Svíum, tveir
á Tékkum, einn á Sovétmönnum,
Rúmönum, S-Kóreumönnum, Ung-
veijum, A-Þjóðverjum og B-liði
A-Þjóðverja.
Einn sigur vannst 1983, tveir
1984 (annar í Reykjavík), tveir
Arangurá v milli ára
Hér má sjá árangur lands- liðsins undir stjórn Bogdans frá byijun. Það er árangur á hveiju ári gegn A, B og
C-þjóðum: 1983
A 5 1 0 4 20%
B 10 0 1 0%
C 1100 100%
.. 7 2 0 5 28.5%
1984
A .... 12 2 2 8 25%
B .... 19 10 3 6 60.5%
C .... 5 5 0 0 100%
Samtals: 36 17 5 14 47.2%
1985
A .... 7 2 0 5 28.5%
B .... 21 12 2 7 61.9%
c .... 1 1 0 0 100%
29 15 2 12 55.1%
1986
A ..11 10 10 9%
B ....17 10 1 6 61%
C ..9 6 1 2 72.2%
37 17 2 18 48.6%
1987
A 16 5 3 8 40.6%
B 20 12 1 7 62.5%
C 5 5 0 0 100%
Samtals: 41 22 4 15 58.5%
1988
A 14 4 1 9 32.1%
B 13 5 2 6 46.1%
C 10 7 2 1 80%
Samtals: 37 16 5 16 51.3%
Bogdan Kowalczyk, landsliðs-
þjálfari fslands.
A-ÞJÓÐIR
97 fio/
m ■
GíSL' &
B-ÞJÓÐIR
Arangur SandsBiðsins
æt Bk rangur íslenska landsliðsins í liand-
knattleik á undanförnum árum,
undir stjórn Bogdans, er þessi gegn þjóð-
um - eins og styrkleikaflokkarnir eru í
dag. A-þjóðir:
A-Þýskaland... 13 1 1 11 11.5%
A-Þýskaland B 110 0 100%
Júgóslavía 12 5 2 5 50%
Svíþjóð 12 3 0 9 25%
Sovétríkin 11 1 1 9 13.6%
Sovétríkin B... 10 0 1 . 0%
Tékkóslóvakía 8 2 0 6 25%
Tékkóslóvakía B 10 1 0 50%
S-Kórea 4 112 37.5%
Ungveijaland. 2 10 1 50%
Samtals: 27.6%
B-þjóðir:
Noregur 15 10 1 4 70%
Danmörk 15 7 3 5 56.6%
Danmörk B.... 1 10 0 100%
V-Þýskaland.. 12 3 3 6 37.5%
Pólland 10 6 0 4 60%
Sviss 85%
Sviss B 10 10 50%
Spánn 8 10 7 12.5%
Frakkland 7 4 0 3 57.1%
Frakkland B... 1 10 0 100%
Holland 6 5 0 1 83.3%
Holland B 1 10 0 100%
Rúmenía 3 10 2 33.3%
Austurríki...... 1 10 0 100%
Samtals: 91 49 9 33 58.7%
C-þjóðin
Bandaríkin 7 5 11 57.1%
Japan 9 6 2 1 77.7%
ísrael 5 5 0 0 100%
Alsír 4 4 0 0 100%
Finnland 3 2 0 1 66.6%
Portugal 110 0 100%
Ítalía 110 0 100%
Kína 110 0 100%
Samtals:
C-ÞJÓÐIR
1985 (annar í Reykjavík), tveir
1986, fimm 1987 (þrír í Reykjavík)
og Qórir 1988 (tveir í Reykjavík).
Heildarárangur gegn A-þjóðum
er 27.6%, en 58.7 árangur gegn
B-þjóðum. Árangurinn er bestur
gegn C-þjóðum, _eða 85.4%. Það
má sjá árangur íslands gegn ein-
stökum þjóðum hér á töflu á
síðunni. Einnig sjá árangur lands-
Afi, amma,
eða bara þú!
GJAFAKASSI FYRIR UIMGABARNIÐ
sem inniheldur fatnað úr 100% náttúruefnum - 40 stykki
100% MERINOULL 100% SILKI
4 ytribuxur 1 húfa
2 treyjur I 1 koddi fylltur með hirsiklíði
2 gallar án erma
1 galli með ermum
1 tvöfalt teppi
100% BÓMULL
1 flúnellak
5 buxur
10 bleiur
5 flúnelsstykki
* Merinofé er þekkt fyrir fingerða og mjúka ull.
AÐRIR VALDIR HLUTIR
1 CALENDULA sápa
1 CALENDULA púður
1 LINDOS barnakrem
1 AUFBAUKKALK 1+2
1 mjólkuraukandi te
1 AMYTIS þvottalögur
1 hárbursti
Á þessari öld gerviefna gleymist það alltof oft að húðin er stærsta líffæri mannsins. Því þarf að vanda sérstak-
lega fatnað á ungabörn, svo líkamsstaffsemi þeirra truflist ekki fyrir áhrif rangs fatnaðar.
Veljið börnum ykkar fatnað úr bómull, ull eða silki og forðist að klæða þau í fatnað úr gerviefnum.
NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN, l^ugavegi 25, SÍMI 10263.
liðsins undir stjóm Bogdans á milli
ára.
íslendingar hafa alltaf verið stór-
huga og litið á sig sem A-þjóð, þó
svo að árangur landsliðsins segir
að við séum í B-gæðaflokki.
Allir klárir í slaginn
Undirbúningur fyrir B-keppnina
í Frakklandi verður ekki mikill, en
landsliðsmenn okkar búa af miklum
undirbúningi fyrir Ólympíuleikana
í Seoul. Allir þeir leikmenn sem léku
í Seoul gefa kost á sér í slaginn í
Frakklandi, þar sem „Innrásin í
Normandí“ hefst í lok febrúar.
Bogdan fær það hlutverk að
skapa samstöðu í landsliðshópnum
og tefla leikmönnum sínum sem ein
sterk liðsheild. Til þess að það ger-
ist verðu Bogdan að treysta öllum
leikmönnum sínum til að klára
dæmið. Ef íslenska landsliðið
endurheimir sæti sitt í A-flokki og
tryggir sér farseðilinn til Tékkósló-
vakíu 1990, hefst nýtt tímabil hjá
landsliðinu.
í Tékkóslóvakíu verður keppt um
sex farseðla til Barcelona, þar sem
Ólympíuleikarnir fara fram 1992.
Síðan verður keppt um tvo farseðla
í B-keppni 1991. Eftir ÓL í
Barcelona verður HM í Svíþjóð 1993
og síðan HM á íslandi 1995. Mörg
spennandi verkefni eru framundan
hjá íslenska landsliðinu.
Þróttarar
Styðjum íþrótta- og æskulýðs-
starf íVoga-og Heimahverfi.
Félagsnúmer Þróttara er 104.
Mætið í getraunakaffi á milli kl.
11 -14 á laugardögum í Þrótt-
heimum.
+
l V'*