Morgunblaðið - 05.11.1988, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
51
ÍÞrimR
FOLK
■ COLIN Sugget, þjálfari New-
castle, var í gær ráðinn fram-
kvæmdastjóri liðsins. Hann kemur
í stað Willie McFaul sem var rek-
inn fyrir skömmu. Stjóm New-
castle var í megnustu vandræðum,
hafði boðið níu manns starfið, en
allir höfnuðu. David Hay, fyrrum
stjóri Celtic, var „heitur“, en missti
áhugann í fyrrakvöld þegar ljóst
var að hann átti aðeins að stjóma
þar til annar hæfari væri tilbúinn
að taka við. Bob Paisley var einn-
ig boðin staðan, en hann svaraði
strax: “Kemur ekki til mála, því ég
fer ekki frá Anfield.“
■ GABRIELA Sabatini gefur
ekki kost á sér í lið Argentínu
fyrir heimsmeistarakeppnina í tenn-
is. Margar bestu tenniskonur heims
hafa þegar ákveðið að taka ekki
þátt í keppninni. Steffi Graf, mun
ekki leika með liði V-Þjóðveija sem
reynir nú að veija titilinn. Martina
Navratilova og Chris Evert munu
heldur ekki leika með iiði Banda-
ríkjanna. Keppni fer fram í Ástr-
alíu og hefst í desember.
■ HÁSKÓLALIÐ Kansas fær
ekki tækifæri til að veija meistara-
titil sinn bandarísku háskóladeild-
inni í körfuknattleik. Háskólinn í.
Kansas er sakaður um að hafa
greitt nýliðum sínum rúmlega
50.000 kr. í formi fata og fiugmiða
í því skyni að fá þá til skólans. Það
er stranglega bannað í háskóla-
deildinni og flokkað sem mútur. Því
fær Kansas ekki að taka þátt $
keppni í vetur.
I JOHN Robertson, sem New-
castle keypti fyrir 750 þúsund pund
frá Hearts í sumar, vill fara aftur
til Skotlands.
Iþróttirí
sjónvarpi
Bein útsending frá knatt-
spymunni í V-Þýskalandi
verður í ríkissjónvarpinu i
dag. Dagskrá íþróttaþáttarins
verður þannig:
■14.25 Numberg - Werder
Bremen. Bein útsending.
■ 16.15 Enska knattspyman.
Aðalieikir þáttarins em West
Ham - Liverpool og Everton
- Manchester United.
■ 17.10 Úrslit dagsins. Þess
má geta að nýjustu tÖlum úr
ensku knattspymunni verður
skotið á skjáinn, þegar beina
útsendingin fer fram frá V-
Þýskalandi.
■ 17.20 Handknattleikur.
■ 17.50 Borðtennis.
Um helgina
Handknattleikur
IHF-keppnin, sunnudag:
FH-FSB/SKI........Hafnarfirði kl. 20.30
Kðrfuknattleikur
íslandsmótið Sunnudafnir: Þór-UMFG ÍS-Valur
UMFT-ÍBK Sauðárkróki kl. 16
ÍR-KR
1. deild kvenna Laugardagur: KR-Haukar
Sunnudagur: ÍS-UMFN ...Kennaraháskóla kl. 21.30
ÍR-ÍBK
Laugfardagur: 1. deild karia Þróttur Nes.-KA.. Blak Neskaupstaðkl. 17.15
1. deild kvenna í>róttur Nes.-KA..
Sunnudagur: 1. deild karla HK-ÍS
I. deild kvenna UBK-HK
Mánudagur: I. deild karla Fram-ÞrótturR...
1. deild kvenna ÍS-Víkingur
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Ólafur Þórðarson í landsleik. Hann leikur næstu tvö árin undir stjóm Teits
bróður síns með norska liðinu Brann.
Ólafur skrffaði
undir í Bergen
Gerði tveggja ára samnnig við Brann
ÓLAFUR Þórðarson, landsliðs-
maður í knattspyrnu af Akra-
nesi, skrifaði ígœr undir
tveggja ára samning við norska
félagið Brann, en þar er Teitur
bróðir hans einmitt þjálfari.
Eg er mjög ánægður með að
hafa fengið Ólaf til félagsins.
Ég reikna með að hann styrki liðið
mikið," sagði Teitur í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Óiafur var einnig ánægður: „Mér
lýst vel á þetta. Eg flyt hingað út
KORFUKNATTLEIKUR
Norðurlandamótið
á Suðurnesjum?
KKÍ vill að Suðumesjaliðin þrjú taki að sér að halda
Norðurlandamótið næsta vor
„ÉG FINN fyrir miklum áhuga
meðal Suðurnesjamanna og
það er eitthvað stórkostlega
athugavert ef vlð getum ekki
tekið mótið að okkur,“ sagði
Helgl Hólm formaður Iþrótta-
félags Keflavíkur um beiðnl
Körfuknattleikssambands ís-
lands um að Suðurnesjaliðin,
ÍBK, UMFN og UMFG taki að
sér að halda Norðurlanda-
mótið, Poiar Cup, f körf u-
knattleik á nœsta ári.
Liðin hafa skipað nefnd þriggja
manna, Helga Hólm frá ÍBK,
Stefán Bjarkason UMFN og Bjöm
Birgisson UMFG til að kanna
hvort geta og vilji
mótið sem fram á
að fara hér á landi
f apríl og þarf svar
að hafa borist KKÍ
fyrir næstu heigi.
Polar Cup hefur aðeins einu
sinni farið fram hér á landi áður
og var það fyrir 10 ámm, en
mótið er haidið annað hvert ár
og kemur því í hlut íslands að
Bjöm
Blöndal
skrifarfrá
Kefíavik
halda það á 10 ára fresti. Helgi
Hóim sagði að svo stórt mót í
körfuknattieik hefði aldrei farið
fram utan Reykjavíkur og þessi
ósk KKÍ væri virðing við körfu-
knattleikinn á Suðumesjum og
stöðu hans. „Hér eru allar aðstæð-
ur til að halda mót af þessu tagi,
við erum með 3 íþróttahús og
fyrsta flokks gistiaðstöðu og ekki
hvað síst höfum við áhorfendur.
Því tel ég yfírgnæfandi iíkur á
að mótið verið haldið á Suðumesj-
um,“ sagði Heigi ennfremur.
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN
„Mætum reiðir í
næsta deildarleik"
- sagði Geir Hallsteinsson, þjálfari UBK, eftir
sjö marka tap Breiðabliks í Stavanger
Hans Quðmundsson var áberandi
bestur hjá UBK í gærkvöldi og gerði
sjö mörk (tvö víti).
BREIÐABLIK tapaöi 30:23 fyrir
Stavanger í gærkvöldi í seinni
leik liðanna í Evrópukeppni bik-
arhafa. Stavanger vann fyrri
leikinn 29:25 í Kópavogi og
heldur áfram í 2. umferð, en
Breiðablik er úr leik.
UBK tók tvo menn úr umferð í
byijun rétt eins og f seinni
hálfleik f fyrri leiknum og leiddi
framan af. Heimamenn gripu þá til
þess ráðs að setja tvo unga leik-
menn inná, þá Austein Strei og
Olav Vatne. Þeir hafa lítið fengið
að spreyta sig, en gripu tækifærið
fegins hendi og blómstruðu.
Stavanger náði að rétta úr kútnum
og var þremur morkum yfir í hálf-
leik, 12:9. Sami munur hélst þar
til 10 mínútur voru eftir, staðan
23:20, en þá gáfust gestimir upp.
„Stavanger er einfaldlega með
betra lið en við. Eðlilegt hefði verið
að tapa hér með þremur til fjórum
mörkum, en botninn datt úr þessu
hjá okkur í lokin. En við stöndum
uppi eftir þijá tapleiki í röð og
strákana hungrar í sigur. Því mæt-
um við reiðir í næsta deildarleik,
staðráðnir í að gera betur en hing-
að til," sagði Geir Hallsteinsson,
þjálfari UBK, við Morgunblaðið eft-
ir leikinn.
Hans Guðmundsson var afger-
andi bestur hjá UBK, en Flemming
Hansen (7) og Olav Vatne (7) hjá
Stavanger.
Mörfc UBK: Hans Guðmundsson 9/2, Jón
Þórir Jónsson 6/2, Ólafur Bjömsson 4, Sveinn
Bragason 2, Magnús Magnússon 1, Þórður
Daviðsson 1.
strax eftir áramót," sagði hann í
gær, eftir að hafa skrifað undir
samninginn. Ólafur sagðist myndu
vinna hálfan daginn — fram að
hádegi — auk þess-að leika með
félaginu.
Ekki hefur enn verið gengið frá
samningi miili Brann og LA en Teit-
ur sagði að hann teidi það ekki
verða neitt vandamál.
Teitur hefur keypt tvo aðra leik-
menn — miðvallarleikmanninn Karl
Erik Karlsson frá Djerv 1919 og
framheijann Einar Roodh frá Ále-
sund i 2. deild.
ÍÞRÚmR
FOLK
■ DAVID Hay gerði f gær
tveggja ára samning um að þjálfa
Lillestrom, sem hafnaði f 2. sæti
í 1. deild norsku knattspyrnunnar
á sfðasta keppn-
istímabili.
■ CHRIS
Waddle, sem verður
28 ára í næsta mán-
uði, verður næstu sjö árin hjá Totl>
enham, en félagið keypti hann tief^
Newcastle f maí 1985 fyrir 590
þúsund pund. Waddle, sem átti
eftir tvö ár af samningi sfnum við
Spurs, undirritaði nýjan samning f
gær, sem rennur út 1995 og trygg-
ir honum 1,5 milijónir punda. „Von-
andi lýk ég ferlinum hjá Spurs,"
sagði Waddle eftir undirritunina.
Frá
Bob
Hennessy
íEnglandi
■ KEMN MacDonald, sem
Liverpool keypti frá Leicester
1984 fyrir 400 þúsund pund, hefur
átt erfitt uppdráttar hjá meisturun-
um. „Ég sé enga framtíð fyrir mig
hjá Liverpool og þvf miður verð
ég að fara eitthvað annað,“ sagði
MacDonald f gær.
■ ALAN BaU, stjóri Portá-
mouth, keypti Gavin Maguire frá
QPR í gær fyrir 180 þúsund pund.
Hann hefur einnig áhuga á að fá
Gary Thompson, miðheija Aston
villa til Portsmouth.
■ BILLY Bremner, sem var
rekinn frá Leeds fyrir um fjórum
vikum, hefur verið orðaður við
framkvæmdastjórastói Chesterfi-
eld, sem er á botni 3. deildar.
Bremner vili ekki sækja um starf-
ið, en bíður eftir tilboði.
I MILLWALL hefur komið á
óvart í 1. deild ensku knattspym-
unnar og hefur verið í toppbarát-
tunni allt tfmabilið, en iiðið koro
upp úr 2. deild. Um aðra heigi leik-
ur liðið gegn Liverpool á Anfield
og vegna strangrar öryggisgseslu
fær liðið aðeins 3.900 miða á leik-
inn. Til að koma til móts við fjöl-
marga stuðningsmenn iiðsins hefur
stjóm Millwall ákveðið að sýna
leikinn beint á heimavellinum, „The
Den“ í London.
HANDKNATTLEIKUR / IHF-KEPPNIN
FH byrjarfimm mörkum undir
Seinni leikur FH og Fredens-
borg/SKI í IHF-keppninni í
handknattieik fer fram í fþrótta-
húsinu við Strandgötu í Hafnar-
firði á morgun og hefst klukkan
20.30. FH-ingar byija fimm
mörkum undir þar sem FSB/SKI
vann fyrri leikinn 30:25.
FH-ingar voru óiíkir sjálfum sér
lengst af í Noregi. Norðmennimir
nýttu sér mistök andstæðinganna
og náðu mest 10 marka foiystu,
en FH-ingar klóruðu í bakkann
undir Iokin. „Við höfum sýnt í
tveimur sfðustu ieikjum að barátt-
an er í iagi þó á móti blási. Leik-
ur okkar gegn Sljömunni var mun
betri en Evrópuleikurinn og með
sömu framförum samfara góðum
stuðningi áhorfenda eigum við að
ná takmarkinu — að sigra með
nægjanlegum mun og komast
áfram," sagði Þorgils Óttar
Mathiesen við Morgunblaðið eftir
sigurinn gegn Stjömunni.