Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988
13
talað er um að stofna á grunni
þeirrar starfsemi sem nú er í Sam-
bandinu, yrði yfirbyggingin og
stjómunarbatteríið minna eða ár-
angursríkara en núverandi yfír-
stgom Sambandsins. Afstaða
manna kynni að breytast, teldu
þeir sig hafa tryggingu fyrir því
að svona breytingar myndu skiia
sér í markvissari rekstri og einfald-
ari boðleiðum en nú.
Fær aðalfundur SÍS ekki
að Qalla um breytingarnar?
Verði grundvallarbreytingar á
skipulagi Sambandsins samþykktar
í stjóm SÍS, þá nægir það að mati
ákveðinna fylgismanna breyting-
anna til þess að ráðist verði í fram-
kvæmd þeirra, þar sem aðatfundur
Sambandsins þyrfti ekki að leggja
blessun sína yfir slíka uppstokkun.
Nefna þeir sem dæmi, máli sínu til
stuðnings, að ullariðnaði Sam-
bandsins hafi á sínum tíma verið
steypt saman í hlutafélag með Ála-
fossi, án þess að aðalfundur fjallaði
sérstaklega um þá ákvörðun.
Þeir sem eru andvígir þeirri bylt-
ingarkenndu uppstokkun sem nú
er rædd, eða ftillir efasemda um
ágæti hennar telja það á hinn bóg-
inn af og frá að Sambandsstjóm
ein geti ákveðið gjörbreyttan rekst-
ur og gmndvöll alls samvinnustarfs
í landinu, án þess að aðalfundur
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga flalli um slíkar breytingar og
taki afstöðu til þeirra. „Hvað svo
sem lög Sambandsins segja til um,
þá tel ég það félagslega mjög óeðli-
íegt að stjómin ákveði slfkt ein. Ég
teldi eðlilegt að aðalfundur tæki
afstöðu til slíkra breytinga, ef tillög-
ur um þær kæmu fram,“ sagði einn
efasemdarmaðurinn.
Um þetta atriði segir Valur Am-
þórsson: „Það á eftir að íjalla um
það, en það verður gert ef svona
tillögur koma fram og verða sam-
þykktar. Það liggur f augum uppi
að Sambandsstjóro hefur víðtækt
vald til þess að grípa til nauðsyn-
legra ráðstafana á hveijum tíma til
þess að tryggja reksturinn. En ég
ítreka að það á algjörlega eftir að
leggja mat á hvemig farið verður
með hugmyndir að nýju skipulagi
Sambandsins ef þær koma fram."
Gífurlegur taprekstur og
versnandi eiginfjárstaða
Það er ekki af tilefnislausu sem
ráðamenn innan Sambandsins em
uggandi um hag þess, því taprekst-
ur fyrirtækisins á þessu ári, verður
geysilega mikill. Pyrir liggur að tap
Sambandsins fyrstu 8 mánuði þessa
árs var um 575 milljónir króna og
eftir fyrstu 9 mánuðina var afkom-
an enn verri, en þá var tapið komið
yfir 600 milljónir króna. Valur Am-
þórsson sagðist ekki geta áætlað
hver afkoma Sambandsins yrði
síðasta hluta ársins, en hann benti
á að tapreksturinn fyrstu 8 mánuð-
ina væri ámóta og gengistap SlS
var fram að þeim tíma. Geftgistap
Sambandsins á þessu ári er fyrst
og fremst vegna mikilla erlendra
skulda. Heimildir herma að um ára-
bil hafi SÍS tekið mikil erlend lán,
til þess að fjárfesta í því sem síðar
reyndust vera óarðbærir hlutir.
Rangar ákvarðanir hafi nú leitt til
gífurlegs gengistaps og ekkert
bendi til þess að þar verði breyting
á, í næstu framtið. Það muni taka
mörg ár fyrir Sambandið að vinna
sig út úr þeim erfiðleikum sem það
eigi í núna.
Valur benti á að vaxtakostnaður
nú færi lækkandi svo og verðbólga
og kvaðst hann því binda vonir við
það að heildarhallinn á árinu yrði
ekki meiri en hann væri nú þegar.
Aðrir telja þó að engin ástæða sé
til bjartsýni um að afkoma SÍS verði
nokkm betri sfðustu þijá mánuði
ársins og telja margt benda til þess
að hún skáni lítið sem ekkert. Eig-
infjárstaða Sambandsins hefur
versnað um nokkur hundmð millj-
ónir á þessu ári. Nú er svo komið
að eiginfjárstaðan er um 23% (eigið
fé er eignir fyrirtækis umfram
skuldir). Forsvarsmenn fyrirtækja
miða oft við að lágmark sé 25%,
en reyna miðað við núverahdi
vaxtakostnað í þjóðfélaginu að
halda eiginflárstöðu um eða yfir
30%. Því telja margir að eigið fé
Sambandsins sé komið niður á
hættulega lágt stig og ekkert sé til
ráða annað en sala fyrirtækja og
uppstokkun og breyttur rekstur
annarra. Eignir Sambandsins em
þrátt fyrir þetta geysilegar og Val-
ur Amþórsson sagði að eigið fé
fyrirtækisins næmi rúmum tveimur
milljörðum króna.
Talsmenn róttækra breytinga em
þeirrar skoðunar að jafnvel þótt
slík uppstokkun kostaði líf ákveð-
inna þátta Sambandsins, þá sé það
í raun betri kostur en að allur rekst-
urinn sigli í strand. Benda þeir á
að Sambandið sem slíkt þjóni sem
eins konar þak fyrir mismunandi
rekstrarþætti þess og þegar illa
ári, geti þeir sem tapi leitað skjóls
undir þessu þaki. Þetta muni breyt-
ast ef hver rekstrareining sé ein-
ungis ábyrg gagnvart sjálfri sér.
Þá verði viðhorfið það að hver þátt-
ur um sig njóti ávaxtanna ef vel
gangi, en verði jafnframt einn að
taka á sig erfiðleikana þegar syrti
í álinn. Með slíku fyrirkomulagi
yrði einnig að þeirra mati von á
meiri arðsemi í einstökum rekstrar-
þáttum, þar sem þá féllu niður
ákveðnar hlutfallsgreiðslur af
hagnaði til Sambandsins. Hið dýra
yfirsfjómarbatterí sem sé hjá SÍS
sé í rauninni tímaskekkja og það
standi enginn undir slíku lengur.
Raunar ganga hugmyndirnar að
breytingum svo iangt að næðu þær
fram að ganga, þá væri hin mikla
yfírbygging Sambandsins að miklu
leyti lögð af.
Samvinnaum
tapreksturinn, hlutafélög
um gróðavonina?
Talsmerm breytinganna sem
spurðir eru hvað ætti þá að binda
saman samvinnuhreyfínguna í
landinu ef Sambandið í núverandi
mynd yrði Iagt niður svara á þann
veg að kaupfélög landsins myndu
tengjast í sameiginlegu verzlunar-
sambandi, búvörusalan yrði í sam-
vinnusambandi í eigu sláturfélag-
anna. Þá yrðu stofnuð hlutafélög
um skipareksturinn, sjávarafurða-
deildina og iðnaðardeildina. Þessar
deildir yrðu sjálfstæð fyrirtæki, sem
heyrðu ekki lengur undir Samband-
ið, en enn væri spuming hvort Sam-
bandið ætti að eiga ákveðinn hlut
í þessum fyrirtækjum. Fræðslumál-
in yrðu síðan sameiginlegt verkefni
allra.
Fylgismenn breytinganna verða
hálfgramir við spumingu sem þess-
ari og segjast orðnir langþreyttir á
því að reyna að sannfæra fólk um
að samvinnuhreyfingin á íslandi sé
alls ekki það sama og Sambandið.
Samvinnuhreyfingin sé hreyfing
fólks sem starfí í kaupfélögunum
og Sambandið sé þjónustutæki þess
fólks. Ef það þjóni samvinnuhreyf-
ingunni best að leggja Sambandið
niður í núverandi mynd, þá sé það
fullkomlega í anda samvinnuhug-
sjónarinnar. Segja þessir menn að
nú séu breyttir tímar og að for-
svarsmenn SÍS sem aðrir verði að
horfast í augu við þá staðreynd og
haga rekstrinum I framtíðinni í
samræmi við það. Það skipulag sem
Sambandið hafi byggt á undanfarin
ár og áratugi hafi áður hentað því
vel og byggt upp þá samvinnuhreyf-
ingu sem hafi blómstrað í landinu.
Það verði hjns vegar ekki horft
framhjá því að allar forsendur í
þjóðfélaginu til atvinnureksturs hafi
gjörbreyst og því sé ekki hægt að
halda í gömlu hugmyndafræðina,
hugmyndafræðinnar einnar vegna.
Er Sænska sambandið
fyrirmyndin þegar rætt er
um breytingar?
Helstu talsmenn 'róttækrar
uppstokkunar Sambandsins segja
að það sé ekkert einsdæmi að
rekstri samvinnufélaga sé umbylt.
Vísa þeir m.a. til samvinnuhreyfíng-
arinnar í Svíþjóð sem fyrir nokkmm
ámm var brotin upp í smærri sjálf-
stæðar einingar og um þær allar
vom stofnuð hlutafélög með sjálf-
stæðri stjóm og sérstökum for-
stjóra, en sænska sambandið er nú
eignarhaldsfélag hlutafélaganna.
Guðjón segir að erfítt sé að bera
saman samvinnurekstur í Svíþjóð
og hér á landi. Sænsku samvinnufé-
lögin séu fyrst og fremst neytenda-
félög. Sænska samvinnusambandið
reki heildsölu og síðan séu þar starf-
andi sjálfstæð kaupfélög eins og
hér. Loks eigi Sænska samvinnu-
sambandið nokkrar verksmiðjur
sem að nokkm leyti séu tengdar
heildsöluþjónustunni fyrir sína með-
limi og að nokkm leyti selji þær á
almennum markaði sína framleiðslu
bæði í Svíþjóð og til útlanda. Þess-
um fyrirtækjum hafí öllum verið
breytt í hlutafélög og þau starfi
eins og almenn hlutafélög, en séu
þó öll að meirihluta og sum alfarið
í eigu Sænska sambandsins. Þetta
sé því talsvert ólík starfsemi þeirri
sem Samband íslenskra samvinnu-
félaga stundi. Sú starfsemi sé mik-
ið fólgin í innflutningi, útflutningi,
skiparekstri, heildsöludreifingu og
síðast en ekki síst útflutning á fisk-
afurðum sem sé nánast helmingur-
inn af heildarsölu Sambandsins.
Starfsemin sé því mun blandaðri
hér.
Því virðist mega álykta sem svo
að íjölmargir Sambandsmenn hafi
komist að þeirri niðurstöðu að sam-
vinnufélagsformið sé ekki lengur
heppilegt rekstrarform í islénsku
atvinnulífí og til þess að bregðast
við þeirri staðreynd sé ekki um
annað að ræða en hverfa til hlutafé-
lagsformsins. Verði talsmenn rót-
tækra breytinga hjá Sambandi
íslenskra samvinnufélaga ofan á í
Sambandsstjóm, er allt eins líklegt
að SÍS-skútan sigli ekki áfram imd-
ir samvinnufánanum, ef hún þá
siglir ekki í strand.
Þú nefnir það—
IBM S/36
Norsk Data
Bankalína Bunaðarbankans
Novell
IBM 9370
MSDOS
Gaenabankar
—mt
£
1
t
3-
-r4 -r* w* ■¥** t* ir
saE
WANG
h
1
I
Gasnanet Pósts og síma fc ^110!M,e
og við tengjum
Nú er ekki lengur neitt mál aö tengja Macintosh tölvuna þína
við önnur tölvukerfi, þannig aö þú notar hana sem vinnustöð,
en getur engu aö síöur notaö öll forrítin þín
með hinu vingjamlega Macintosh skjáumhverfi.
Einnig geturöu tengst Ijölda gagnabanka,
hvort sem er hér á landi eða eriendis.
Já, er ekki kominn tími til að tengja...?
SKIPHOLTl 19
SIMI 29800