Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988 19 það sem þær segja í Thorvaldsens- bazamum: Við erum ópólitískar — kjósum bara Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfur gerðist ég sósíaldemókrati af hagfræðinámi með Skotum og stúdentaflakki um Evrópu vestan- og austanverða. Og hvemig kost- uðu'n við okkur til náms? Með því að strita í sveita okkar andlits inn- an um annað vinnandi fólk á sumr- um; með því að stunda sjó á bátum frá Suðumesjum og Vestmannaeyj- um og togumm frá Siglufirði og Litlu-Moskvu. Enda héldu menn sig ríkmannlega á þeim árum. Enn í dag er uppistaðan í bókasafni mínu bækur sem voru keyptar þegar maður var fátækur stúdent. Auðvitað reyndi ég að stelast í tölvuskjáinn hjá ævisöguritara Bryndísar. Þá rifjaðist upp fyrir mér að konan mín hefur m.a. haft emum. Hvort skyldi nú vera skemmtilegra líf, viðburðaríkara, fyllra? Hvumig er það með framtíð- ina: á ekki fólk að mennta sig með tilliti til þess að það geti fyrirvara- Iítið skipt um störf svo oft á ævinni sem þurfa þykir? Kannski framtíðin geti lært eitthvað af okkur? Það var þetta með breytinga- skeiðið. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að allt okkar líf hafi verið eitt samfellt breytingaskeið og kvíði því engu næstu breyting- um. Það eina sem væri kvíðvænlegt væri, ef lífið hætti að breytast. Eg vona að það gerist þá ekki fyrr en hinumegin. Samt hafa verið nokkrir fastir punktar í tilvemnni á þessu sam- fellda breytingaskeiði. Einn af þeim er Mogginn. Einu sinni sagði Ey- steinn að hann hefði eytt 10% ævi „Hver er ég þá? Elnhvers konar munaðarleyslngl á gamals aldri, gestur heima hjá mér? Og hinn fasti punktur tllverunnar sl. 14 mánuði, fjármálaráðuneytiö, komið í hendur vandalausra. Þetta hlaut að vera byrjunin á breytingaskeiðinu." þetta að iðju um dagana: ballerína, kaupakona, síldarstúlka, fegurðar- drottning, leiðsögumaður, farar- stjóri, þula, leikkona, kennari, skólameistari, þáttagerðarmaður, kvikmyndagerðarmaður, kvik- myndaleikkona, ritstjóri, sölumað- ur, rithöfundur, — fyrír nú utan að vera móðir fjögurra bama og að koma mér til manns. Og ég gleymi áreiðanlega einhverju. Ætli þetta sé nokkuð óvenjuleg lífsreynsla fólks af okkar kynslóð? Trúlega ekki. En svona lífshlaup eru fáséð í uppflettiritum jafnaldra okkar í hinum gamalgrónu og stabflu þjóðfélögum grannland- anna. Þar heyrir það til undantekn- inga að námsfólk vinni fyrir sér og heyi sér þannig lífsreynslu, sem hlýtur að móta lífið allt. Þar er það hinn vandlega undirbúni og plan- Iagði „karrier" sem gildir.. Hliðar- spor eru óæskileg, gætu spillt karri- sinnar í að bíða eftir Þórami Tíma- ritstjóra á fundum. Þórarinn átti ekki bfl og í den tid var nógur tími, allavega fyrir Tímaritstjóra. Hvað ætli við höfum eytt mörgum vinnu- 'vikum — eða eru það mannár — í að lesa Moggann? Þennan .aldar- spegil breytingaskeiðsins. Ég veit það ekki. Én hitt veit ég, að hvem- ig sem allt veltist, þá mun Mogginn lifa okkur öll. Því að mennimir koma og fara. En þjóðin blívur — og stofnanir við hana kenndar. Þennan dálk, Hugsað upphátt, hafa toringjar stjómmálaflokk- anna sem sæti eiga á Alþingi, gengist inná að skrifa til skipt- is fyrir sunnudagsblað Morg- unblaðsins. Næsta sunnudag hugsar Kristín Halldórsdóttir, þingkona Samtaka um kvenna- lista, upphátt. ÖRBYLGJUOFNAR 7 GERÐIR Eigum fyrirliggjandi örbylgjuofna í úrvali, bæði frá SANYO OG HUSQVARNA ^18.500. M <2\ stgr. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 - Sími 69 16 00 GERÐAR- MENN! SJÓNVARP/Ð INNLEND DAG- SKRÁRDEILD ÓSKAR EFT/R TILBOÐUM / GERÐ KV/KMYNDAR ÆTLAÐA YNGSTU ÁHORFENDUM. MYNDIN ER HLUTI AF SAMNORRÆNUM MYNDAFLOKKL PAR SEM HVER KV/KMYND ER SJÁLFSTÆTT VERK OG VERÐUR SÝNDÁ ÖLLUM NORÐURLÖNDUNUM. LENGD MYNDAR/NNAR PARFAÐ VERA UM 20 MÍNÚTUR. í ÚTBOÐ/NU FELST ENDANLEGUR KOSTNAÐUR V/Ð GERÐ MYNDAR/NNAR ÁSAMT HANDR/T/SEM VERKTAK! VELUR SJÁLEUR. T/LBOÐUM PARF AÐ SK/LA T/L SJÓNVARPS/NS FYR/R15. DESEMBER 1988. KV/KMYND/N AFHEND/ST FULLBÚ/N E/G/ S/ÐAR EN1. DESEMBER1989. NÁNAR/ UPPLÝS/NGAR VE/T/R DAG- SKRÁRFULLTRÚ/ BARNAEFN/S. S/GRÍÐUR RAGNA S/GURÐARDÓTT/R 'SJÓNVARP/NU LAUGA VEG/176 106 REYKJAVÍK SÍM/ 38800. mm RIKISUTVARPIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.