Morgunblaðið - 06.11.1988, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988
17
það sem vekur oftast mestu athyg-
lina hjá hinum venjulega manni eru
hin sterku fjölskyldutengsl og
frjálslegur máti þeirra að tjá sig.
Og sá lúmski grunur læðist að
manni, að það sé eitthvað í háttum
og siðum ítala sem höfðar til okkar.
í kvikmyndinni „Moonstruck",
sem sýnd var í Bíóborginni sl. vor,
segir frá ástum og lífi ítalskrar fjöl-
skyldu í New York. Mörg bestu
atriði myndarinnar gerast við mat-
arborðið þegar ijölskyldan er öll
saman komin og leysir þau vanda-
mál sem upp koma. Auðvitað geng-
ur það ekki hljóðalaust fyrir sig,
því allir virðast eiga í basli með
ástina nema afinn, en hin mikla
samheldni fjölskyldunnar er heill-
andi, og þegar tjaldið fellur sitja
menn eftir með þá tilfinningu að
þeir hafi farið á mis við eitthvað
afar mikilvægt í lífínu.
Og afinn tók af skarið
Eftir því sem best verður séð,
þá virðist ekkert innbyrðis pukur
210 manns
læranú
ítölskuí
Reykjavík.
Ennfleiri
borðaálO
ítölskum
veitingastöð-
um...
ogflykkjast
hundruðum
samantil
Ítalíu
oft í viku, til að fá sér molakaffi.
Nú vinna allir svo mikið og lengi
að öll athafnasemi er í lágmarki
að vinnudegi loknum. Sennilega
varð þó mesta breytingin þegar
konur hættu að vinna á heimilinu
eingöngu, því svo sannarlega voru
það þær sem lögðu mesta rækt við
skyldmenni sín og gátu auk þess
oft platað karlinn í heimsókn á
kvöldin þótt þeir væru lúnir.
En nú bíður þeirra önnur vinna
þegar þær koma heim á kvöldin og
því lítið um molakaffi með vinum
og vandamönnum.
Og kjamafjölskyldan sjálf á í vök
að veijast því sambandsleysi innan
fjölskyldunnar verður æ algengara
og sameiginlegt borðhald með við-
eigandi samræðum er sjaldgæft.
Allir eru að flýta sér, og því er el-
dað í flýti, borðað í flýti og talað í
flýti. Svo kaupum við okkur ör-
bylgjuofn í flýti til að hita upp
matinn fyrir þann sem er að flýta
sér.
En gamli tíminn kemur ekki aft-
vera á milli foreldranna, eða á milli
bamanna, í ítölsku fjölskyldunni.
Öll mál em fjölskyldumál og allir
meðlimir hafa jafnan rétt, þótt
meira örli á virðingu fýrir hinum
eldri heldur en tíðkast hér á landi.
Og menn tjá sig umbúðalaust, létta
af sálinni og fá svo annað hvort
skammir, eða styrk og hvatningu
frá fjölskyldunni.
íslensk ijölskylda rakst óvart inn
í pizza-garð í litlum bæ á Norður-
Ítalíu, og í þessum einkar fallega
garði, sem var veitingahús undir
bemm himni, söfnuðust heimamenn
saman í kvöldkyrrðinni og snæddu
pizzur og drakku rauðvín.
íslendingamir settust þama nið-
ur, pöntuðu sér hið sama og hinir,
og þegar þeir höfðu rifið í sig mat-
inn, fóra þeir að skima í kringum
sig og skoða þessa „blóðheitu" þjóð
sem sat allt í kringum þá. En ekki
virtist mikill hiti í mönnum því þeir
snæddu og drakku af stakri ró og
virtust fremur vera að þessu til að
gera sér eitthvað til dundurs, heldur
en til að seðja hungur sitt.
Þama sátu fjölskyldur saman og
á næsta borði við norðanmenn sat
átta manna fjölskylda, sem saman-
stóð af mömmu, pabba, afa, ömmu,
frænku og þremur bömum á öllum
aldri. Þau kinkuðu vingjamlega
kolli til íslensku vísitölufjölskyld-
unnar sem var fremur fámenn, og
í framhaldi af því fóra bömin að
leika sér saman án nokkurra tungu-
málaerfiðleika, enda hefur slíkt
aidrei háð þeim aldurshópi.
Leið svo frameftir kvöldi og af
því að ítalimir virtust hafa allan
heimsins tíma, þá sátu íslending-
amir sem fastast og fylgdust af
athygli með fjölskyldulífínu á næsta
borði. Skildu vitanlega ekki stakt
orð, en af andlitssvip, látbragi, pati
og bendingum mátti ráða hvað
væri á dagsskrá hveiju sinni.
Stundum var hátt hlegið, en eitt
sinn urðu mamman og amman svo
æstar að lá við gráti, og beindu
spjótum sínum að frænkunni, sem
fékk rauða díla í kinnamar og sat
með þijóskusvip þar til afinn tók
af skarið og skammaði þær allar
þijár. Varð þá allt gott á nýjan leik,
þær tóku til við að hossa lilla litla
til skiptis og íslendingamir vörpuðu
öndinni feginsamlega.
„Þetta er eins og heima í gamla
daga,“ sagði íslenski pabbinn með
eftirsjá í röddinni og leit á konu
sína, sem vissi upp á hár hvað hann
átti við.
Lóa frænka hætt að koma
Nú þykjumst við nú aldeilis búa
við sterk fjölskyldutengsl, allir
landsmenn meira og minna skyldir,
en þrátt fyrir það era nú ýmsar
væringar meðal skyldmenna sem
benda til annars en góðra tengsla.
Menn hafa verið svo kappsfullir að
komast áfram í lífínu og hlaða í
kringum sig fánýtum hlutum, að
öllum gömlum siðum og venjum
hefur verið varpað fyrir róða. Þeir
sem muna eftir flölskyldulífí íslend-
inga eins og það var fyrir þijátíu
áram eða svo, finnst nú lítið til
þess koma eins og það er í dag.
Því það er af sem áður var þegar
Lóa frænka, Halli mágur eða Sigga
svilkona komu í heimsókn, stundum
ur þegar mamma beið með matinn
bæði í hádeginu og á kvöldin. Þó
era allar þessar bameignir síðasta
árið umhugsunarverðar. Um tíma
þótti nú ekki æskilegt fyrir konur
að vera með ungböm ef þær ætluðu
að komast eitthvað áfram í atvinnu-
lífinu. En nú virðast þær kæra sig
kollóttar.
Hafa þær komist að því að heim-
ur karlanna var hreint ekkert
spennandi eftir allt saman, eða er
þetta dulin ósk um eðlilegt fjöl-
skyldulíf og draumurinn um dekkað
borð þar sem fjölskyldan safnast
saman í friði og spekt og tengir
böndin sem nú virðast víða vera að
losna?
„La bella luna“
En Ítalíuæði hefur gripið um sig,
hvort sem sálrænar hvatir era að
verki eða bara ein dellan í viðbót á
ferðinni, því við eram jú með af-
brigðum nýjungagjöm. En mikið
er það nú samt skrýtið að hamingju-
samasta þjóð í heimi skuli sífellt
vera svona leitandi.
En þótt Ítalía sé viðs fjarri þá
er þó alltaf hægt að trítla inn á
einn af ítölsku veitingastöðunum
og komast í stemmningu, heyra
jafnvel ítölsku talaða á næsta borði,
því líklega era margir orðnir flínkir
í henni núna.
Eða gera bara eins og afínn í
fyrrgreindri bíómynd, fara í kvöld-
göngu með hundana og horfa á
tunglið, því það er nefnilega _sama
tunglið og þeir sjá niðri á Ítalíu.
Andvarpa svo ofurlítið eins og sá
gamli gerði og segja: La bella luna,
la bella luna.
SPORTVÖRU-
UTSALA
SPOR I Ul-augavegi49
-byrjar á morgun-
KRUMPGALLAR
Nr. XS-S-M-L-XL
Verð 2.900,-til 4.900,-
(áður 6.190,- til 9.990,-)
Einniq barnastærðir.
BÓMULLARGALLAR
Allarstærðir.
Verðfrákr. 1.490,-
ADIDAS ORION
Nr. 36-42. Kr. 1.290,-
(áður kr. 2.200,-).
ELDORADO
körfuboltaskór
Nr. 39-47
kr. 2.950,-
(áður kr. 4.950,-).
MARGARAÐRAR SKÓTEGUNDIR
Lelkflmi- og aeróblkkfatnaóur
Úr glansefni kr. 790,-
(áður kr. 1.690 til 2.080,-).
Úr bómull kr. 490,-
Glansgallar í barna- og unglingastærðum.
Stuttbuxur nr. 140 til 176 kr. 390,-
(áður kr. 790,-).
Stakar trimmbuxur kr. 990,-
Stuttermabollr allar stærðir kr. 490,-
Sundbollr barnastærðir kr. 390,-
Barnaskfóasett kr. 1.490,-
Kuldaskór flestar stærðir.
Háskólabollr kr. 990,- (áður kr. 1.950,-)
Póló skyrtur kr. 1.290,-
Lúffur kr. 250,- (áður kr. 450,-).
Töskur
Karlmannaúlpur og margt margtfleira.
l/fö rúllum boltanum tll ykkar.
IMú er taaklfsarlð tllþoas að gora góð kaup.
Ath! 10% afslátturaföllum öðrum vörum
verslunarínnar meðan á útsölunni stendur.
Sendum ípóstkröfu
Vlsa og Euro þjónusta.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
wmm
LAUGAVEGI 49 SIMI 12024