Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 18
18
■' 'r—T/.”' .1 T'OAcnr/.’wjATWnflOV 4i
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988
Á BREYTINGA-
SKEIÐI
Mogginn sjötíu og fimm! Ég trúi þvi varla. Bara 15 árum
eldri en Steingrímur. Hvor finnst ykkur nú bera aldurinn betur,
forsætisráðherrann sívinsæli eða blað allra landsmanna? Hvað
um það. Mogginn er búinn að vera fastur punktur í
hversdagstilveru kynslóðanna lengur en forsætisráðherrann og
mun að öllum líkindum lifa hann. Pólitíkusar koma og fara en
stofnanir bliva. Og Mogginn er stofnun, kannski þjóðarstofhun
eins og hinar stofhanirnar, sem byija á þjóð: þjóðleikhús,
þjóðminjasafii, þjóðarbókhlaða, þjóðskjalasafn og
þjóðar-hvaðeina. Telst til þjóðminja. Samt hefur hann nú þótt
misjafhlega þjóðlegur á ýmsum æviskeiðum. Var hann ekki
einhvem tfma kallaður danski Moggi? Þar að auki er hann
alþjóðlegur á forsíðunni. Það þarf meiri háttar náttúruhamfarir
til þess að ryðja erlendum fréttum af forsíðunni. Enda er þetta
stærsta blað i heimi miðað við fólksfjölda. Það er ekki að fúrða
þótt hann líti stórt á sig og telji sig í tölu heimsblaða eins og
New York Times, Le Monde og — má ég segja það — Prövdu.
Mitt fólk hefur í meira en hálfa
öld haft sérstakt samband við
Moggann. Það byijaði með Finn-
boga Rút föðurbróður mínum. Fyrir
hálfri öld storkaði hann þeim
Moggamönnum með því að gera
Alþýðublaðið jafn stórt Mogganum
að útbreiðslu og mun heimsboig-
aralegra í sniðum. Hann var með
neimsfréttimar á forsíðunni frá sér-
legum fréttariturum Alþýðubiaðs-
ins f helstu heimsborgum, á sama
tíma og Mogginn héit sig enn við
dánartilkynningar og jarðarfarir.
Ætli við frændur eigum ekki óbeint
sök á því að Mogginn rak af sér
slyðruorðið og endaði sem þjóðar-
stofnun? En við kunnum nú ráð við
þessu. „If you can’t beat them join
them.“ Þegar hallaði aftur á Al-
þýðublaðið gerðum við einn af kven-
kostum ættarinnar út af örkinni;
hún krækti sér bara í einn af rit-
stjórum Morgunblaðsins. Sá sýnir
ekki á sér neitt fararsnið og gæti
þess vegna haldið áfram að vera
ritstjóri fram á næstu öld. Og orðið
eins konar þjóðarstofnun sjálfur.
Og haldið þessu öllu innan flölskyld-
unnar, svo sem vera ber í ættarsam-
félaginu.
Fjölskyldunnar — vel
á minnst. Ég ætlaði eig-
inlega að hugsa upphátt
um breytingaskeið ein-
staklinga og stofiiana;
um samhengið í lífi kyn-
slóðanna. Þegar ég kom
heim til mín síðla
hausts, eftir 14 mánaða
útvist í fjármálaráðu-
neytinu, tók ég eftir því
að eitthvað hafði
breyst. Mér fannst eins
og kyrrð og ró hefði
færst yfir heimilið, jafn-
vel að þögnin væri orðin
ærandi. Allt í einu átt-
aði ég mig á því að
bömin vora öll á bak
og burt. Hjákona mín
til 14 mánaða Madame
Finance, var líka á bak
og burt; í staðinn var
ég nú gestur föngulegrar eiginkonu
á besta aldri, sem sat fyrir framan
tölvuskjá með rauðhærðri karrier-
stelpu úr sjónvarpinu, gömlum nem-
anda okkar, og sýslaði við æviminn-
ingar. Ég hafði það sterklega á til-
finningunni að mér væri ofaukið í
þessari kvennadyngju. Sennilega
væri ég kominn á breytingaskeið.
Ætli grái fíðringurinn komi nú jrfír
mig aftur, þessi sem ég upplifði
fyrir tvítugt — áður en ég upplifði
Bryndísi? Hvað var orðið af bömun-
um mínum? Eftir kibbutzrispu f
ísrael var elzta dóttirin komin á
leiklistarskóla í London. Ætli sjmd-
ir mæðranna komi ævinlega niður
á dætranum? Strákurinn farinn að
iæra tölvutrikk og sölumennsku í
Chicago. Næsta stelpa komin í
tiskubransann í París og farin að
afla gjaldeyris eins og lítill frysti-
togari. Yngsta dóttirin
— litla bamið — var
orðin að skiptinema í
Napólí og skrifaði heim
sólgylhan ástaróð til
Bellu ítalfu.
011 farin. Hver er ég
þá? Einhvers konar
munaðarleysingi á
gamals aldri, gestur
heima hjá mér? Og hinn
fasti punktur tilver-
unnar sl. 14 mánuði,
§ ármálaráðunejtið,
komið í hendur vanda-
lausra. Þetta hlaut að
vera byrjunin á brejrt-
ingaskeiðinu.
Era þetta þá dekur-
böm velferðarríkisins,
sem hún Bryndís hefur
verið að ala upp sl.
20—30 ár? Hafa þau lif-
að öðra og ljúfara lífí
en við á uppvaxtaráranum? Ég held
ekki. Þeim hefur fyrir löngu lærzt
að meta að hafa fengið að alast
upp á bryggjusporðunum á ísafirði.
Þar lærðu stelpumar að vera físki-
freyjur, §áðar, framtakssamar og
forkar duglegar. Litia bamið vann
frá morgni og fram yfír miðnætti
í allt sumar í malbikunargengi með
.hraustum strákum og safnaði fé til
Ítalíuferðar. Sýningardaman las
gamla MR utan skóla um leið og
hún halaði inn meiri gjaldejri en
faðir hennar, ármálaráðherrann.
En hvað með strákinn? Þegar ég
hitti hann f New York um daginn
fór ég með hann að skoða nýjan
fiskmarkað á Manhattan til þess
að koma honum í skilning um, hvar
markaðsfræði væra reynd f praksis.
Eftir á að hyggja finnst mér þetta
fólk veraldarvanara og bráðþrosk-
aðra en mig minnir að foreldrar
þeirra hafí verið á þeirra aldri.
Það rifjast upp fyrir mér að á
þeirra aldri skiptum við bræður með
okkur heimsálfunum. Amór varð
fyrstur manna frá vestrænum
ríkjum til að útskrifast úr sovéskum
háskóla eftir fimm ára vist við
þröngan kost í hinum sveltandi sós-
falisma Stalíns. Og las heimspeki.
Ólafur gerðist marxisti af því að
upplifa öfgár allsnægta og örbirgð-
ar hins vesturheimska kapítalisma;
seinast spurðist það samt til hans
að hann væri orðinn formaður Sjálf-
stæðisfélags Ketildæla. Sem segir
að vísu fátt um það, hvar hann
kann að hasla sér völl f pólitík, sbr.
HUGSAD
UPPHÁTT
í dagskrifarJón
Baldvin Hannibals-
son,formaiur
Alfýóuflokksins.
BBMHruskál ar
Verð kr.
1.595,-
Klingjandi kristall
- kærkomin gjöf
KOSTABODA
KRINGWN
KBIMeNH Sími 689122
Bankastræti
Sími 13122.