Morgunblaðið - 06.11.1988, Qupperneq 27
_____«MMVfltJ!«mA
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988
í»<-
27
Sovétríkin:
Gífurleg
mengun í
Angarsk
Moskvu. Reuter.
RÚMLEGA 1.000 manns í borg-
inni Angarsk í Síberíu hafa leitað
læknishjálpar vegna öndunarerf-
iðleika sem raktir eru til mikillar
mengunar á þessum slóðum.
Að sögn sovésku fréttastofunnar
Tass þurftu 140 manns á neyðar-
hjálp að halda. Fréttastofan sagði
að í síðari hluta októbermánaðar
hefði mikil megun náð að safnast
saman yfir borginni sökum lítils
vindhraða og lágs loftþrýstings.
Mengunin kæmi einkum frá olíu-
hreinsistöðvum, iðnfyrirtækjum og
lyfjaverksmiðjum en eitraðar loft-
tegundir frá verskmiðju einni sem
framleiddi vítamín hefðu þó „riðið
baggamuninn".
200.00Ö manns búa í Angarsk.
Að sögn Tass-fréttastofunnar dæla
verksmiðjur í borginni allt að fimm
sinnum meira af eitruðum loftteg-
undum út í andrúmsloftið en leyfi-
legt er samkvæmt opinberum reglu-
gerðum.
Danmörk:
Steinbíts-
roð í skó
DANSKA dagblaðið Jyllands-
postenskýrði nýlega frá því að
fyrirtækið Dan-Cod í Esbjerg,
sem aðallega hefiir fengist við
saltfísksölu, hygðist koma á
framfæri ýmsum vörum sem
unnar væru úr roði nokkurra
fisktegunda. Verða vörurnar,
skór, töskur og mittisólar, fram-
leiddar hjá vestur-þýsku fyrir-
tæki og kynntar á tískuvörusýn-
ingu í Flórens á Ítalíu seinna í
þessum mánuði.
Dan-Cod framleiðir og selur ár-
lega saltfisk að andvirði 1.400 -
2.000 milljóna ísl. kr. fyrir Suður-
Evrópumarkað. Roði af steinbít,
laxi og vatnakarfa er venjulega
fleygt sé það ekki notað í loðdýra-
fóður. Forráðamenn Dan-Cods vona
að fyrirtækjunum takist í samein-
ingu að fá fólk til að kaupa vörur
úr sérstaklega meðhöndluðu fisk-
roði í staðinn fyrir dýran tískuvarn-
ing úr skinni ýmissa dýrategunda
sem sums staðar eru í útrýmingar-
hættu þ.á m. ákveðinna krókódíla-
og slöngutegunda.
Danska fyrirtækið hefur eytt
milljón danskra króna (6,8 milljón-
um ísl.kr.) í hugmyndina og þýska
fyrirtækið (heiti þess hefur enn
ekki verið látið uppi) sem svarar
tæpum tuttugu milljónum d.kr.
(1.360 milljónum ísl.kr.) til að koma
framleiðslunni á markað.
Ítalía:
Skattsvikun-
um mótmælt
Mílanó. Reuter.
TUGIR þúsunda manna í Mílanó
á Ítalíu lögðu á fimmtudag niður
vinnu í þrjár klukkustundir til
að mótmæla skattsvikum og
krefjast þess, að stjórnin skeri
upp herör gegn þeim.
Tekjuskattur er óvíða hærri í
Evrópu en á Ítalíu en jafnframt eru
skattsvik mikil, einkum hjá þeim,
sem eru með ýmiss konar rekstur
og geta skammtað sér launin á
skattskýrslunni. Hefur það valdið
mikilli óánægju meðal launþega.
Það, sem fýllti mælinn, var þó það,
að ríkisstjórnin ákvað að gefa skatt-
skuldurum upp sakir að nokkru leyti
borguðu þeir hluta skuldarinnar.
Hefur nú verið boðað til mikils
mótmælafundar í Róm 12. nóvem-
ber nk.
FLUGLEIDIR
-fyrir þíg-
Vetrarfrí í austurrísku Ölpunum, á skíðum í heimsins
bestu brekkum... það er sannarlega engu líkt! í hinum
dýrlegu fjallabæjum er loftið tært og heilnæmt og þar
muntu kynnast heillandi stemningu sem líður þér seint
úr minni.
Mayrhofen, Zell am See og Kitzbuhel eru staðirnir
þrír sem Flugleiðir bjóða ferðir til í vetur. Beint
áætlunarflug er til Salzburg vikulega, en þaðan er stutt
til allra áfangastaða.
Fararstjórar verða sem fyrr hinn góðkunni Rudi Knapp,
sem er innfæddur Tíróli og íslenskumælandi, og Ingunn
Guðmundsdóttir.
Verð frá kr. 19.900 á mann.
Miðað er við staðgreiðsluverð á vikuferð og fjóra saman
í íbúð á Landhaus Heim. Brottför: 7/1, 14/1 og 21/1.
Allar nánari uppiýsingar færðu á söluskrifstofum
Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferða-
skrifstofum.
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju
og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir
í síma 25 100.
P.S, Byrjandi eða meistari á skíðum - það eru allir
jafnir í austurrísku brekkunum!
AUK/SlA k110d2-245