Morgunblaðið - 06.11.1988, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988
35
úrá
HOLSKEFLUNNI
„Ég tók þetta mikla og miskunnarlausa
starf að mér og það er engin uppgjöf í mér.“
— Ætlar þú að gefa kost á þér til endur-
kjörs sem formaður Sjálfstæðisflokksins á
landsfundi flokksins næsta vor?
„Já, það er ekkert annað í mínum huga
en að vinna af vaxandi krafti og ástríðu ef
þú vilt (!) fyrir hönd flokksins. Eg stóð við
stýrið þegar holskeflan reið yfir og ég ætla
að sigla út úr henni.“
— Er það persónulegur metnaður þinn
sem ræður því að þú tekur svona ákvörðun?
Væri það metnaðarlegt, póltískt skipbrot,
ef þú ákvæðir að víkja af formannsstóli?
„Það er þörfín fyrir að rækja þær skyld-
ur sem ég hef tekist á herðar sem ræður
ákvörðun minni. Éjg hef unnið ýmis önnur
störf en pólitísk. Eg gæti vel hugsað mér
að lifa lífí mínu án stjómmálaafskipta. Jafn-
vel leitar sú hugsun oft á mann að geta lif-
að öðru vísi fjölskyldulífí heldur en forystu-
menn í stjómmálum eiga kost á. En ég er
ekki að hætta afskiptum af stjómmálum.
Ég á ólokið mörgum mikilvægum verkefnum
á þeim vettvangi."
— Eftir það sem er á undan gengið á
síðustu mánuðum, á Sjálfstæðisflokkurinn
samleið og möguleika á samstarfi í náinni
framtíð við einhvem eða einhveija hinna
stjómmálaflokkanna?
„Við vomm auðvitað ekki tilbúnir að
kaupa setu í ráðherrastólum því verði að
hverfa áratugi aftur í timann til millifærslu
og stóraiikinnar skattheimtu. Stefán Val-
geirsson, hulinn vemdarkraftur hins nýja
stjómarsamstarfs, taldi það vera höfuðverk-
efni sitt að vera utan stjómarinnar en hafa
puttann á sjóðunum. Þessi ríkisstjóm er að
hverfa til gamla þjóðfélagsins, þar sem ein-
staklingunum var ekki treyst, en stjómvöld
tóku að sér að hafa forsjá fýrir fyrirtækjum
og einstaklingum.
Þegar okkur hefur tekist að auka afl
okkar og styrk, sem flest bendir til að tak-
ast muni, þá em engin persónuleg vand-
kvæði af okkar hálfu' að starfa með öðram
flokkum né forystumönnum þeirra. En þeir
knýja okkur ekki frá þeirri gmndvallar-
hugsjón sjálfstæðisstefnunnar að standa
vörð um hag einstaklingsins, atvinnufrelsið
og hag stéttanna. Sjálfstæðisstefnan er að
minnsta kosti ekki skattastefna.
Og ég vil benda á að forystumenn Sjálf-
stæðisflokksins hafa beitt sér af öllu afli
gegn pólitískum andstæðingum sínum, þeg-
ar flokkurinn hefur verið í stjómarandstöðu.
Ef einhver hefur haldið að Sjálfstæðisflokk-
urinn tryggi möguleika sína til áhrifa með
því að mjálma utan í vinstri stjómir, þá er
það mikiíl misskilningur."
— Þeir flokksformennimir og fyrram
samstarfsráðherrar þínir, Jón Baldvin
Hannibalsson og Steingrímur Hermannsson,
hafa löngum haft það orð á sér að vera vel
að sér í pólitískum refskap, en þú hefur
iðulega verið sagður ungur drengur úr Sjálf-
stæðisflokknum sem værir of reynslulítill
og saklaus til þess að hafa í fullu tré við
þá. Ertu betur i stakk búinn nú til þess að
takast á við þá?
„Að svo miklu leyti sem um ref skap var
að ræða af þeirra hálfu, þá var hann bæði
mér og okkur sem í stjóminni voram, full-
ljós. Refskapur er óheiðarleikaeinkunn. Ég
sækist ekki eftir að standa mig í slíku
prófí. En auðvitað er reynsla alltaf dýrmæt
og af henni dregur maður sinn lærdóm.
Ég hygg á hinn bóginn að forystumenn
Alþýðuflokks og Framsóknar ættu fremur
að hafa áhyggjur af því hvort þeir era, eins
og nú er ástatt fyrir þeim, hæfir til heiðar-
legs samstarfs um fíjálslynda umbóta-
stefnu. Þeir ættu að draga lærdóm af því
sem gerðist."
— Stækt Framsóknarhatur hefur löngum
loðað við ákveðinn hluta Sjálfstæðisflokks-
ins. Er ekki líklegt að slíkt hatur hafí bloss-
að upp á nýjan leik, við það að svo fór sem
fór, þegar ríkisstjóm þín fór frá völdum?
„Það er ekki til hatur í mínum huga, og
vonandi ekki annarra. Baráttan fyrir stefnu-
málum Sjálfstæðisjflokksins er mér aftur á
móti efst í huga. Ég er reiðubúinn að beij-
ast af alefli gegn andstæðingum flokksins, r
en ég held ég myndi ekki treysta mér að
taka þátt í pólitík, ef ég ætti að sofna á
kvöldin og vakna á morgnana með haturs-
hug í garð þeirra sem ég er að vinna með
eða á móti. Sjáífs mín vegna vil ég fremur
fyrirgefa mönnum sem ég reiðist, en hatast
við þá. Þannig líður mér betur."
Húnavallaskóli í
A-Húnavatnssýslu:
Lífogflör
á frjálsum
dögum
Blönduósi.
INNRAS inn í hversdagsleikann
er nauðsynleg endrum og eins
ef tilgangurinn er að lífga og
auðga hina breysku sál manns-
ins. Þessi tilgáta sýndu nemend-
ur Húnavallaskóla í Austur-
Húnavatnssýslu að er sönn. Fjóra
daga samfleytt undirbjuggu
nemendur skólans stórkostlega
dagskrá sem flutt var í skólanum
sl. fóstudagskvöld.
Þegar komið var í hlaðið á Húna-
völlum þetta föstudagskvöld þá
tóku á móti gestum Grettir og
Glámur svo og „lítil tröll“ sem
teymdu námshest um skólalóðina.
Til að gera umhverfið sem ævin-
týralegast bárast eyram manna
ískyggileg veðurhljóð, sjálfsagt
líkust þeim er Grettir glímdi við
Glám á sínum tíma. Strax og kom-
ið var inn í skólann tóku á móti
gestum bókaormar í iðandi kös í
einu homi anddyrisins.
Áður en haldið var í íþróttasal
skólans hlýddu viðstaddir á oddvita-
fund sem nemendur höfðu sett á
svið. Þóttust sumir kenna þar ein-
kenni oddvita þeirra sveitahreppa
seni að skólanum standa en um það
skal ekki frekar fjölyrt. í íþróttasal
skólans var síðan aðaldagskráin
flutt og kenndi þar ýmissa grasa.
Leikþáttur um sögu skólamála í
sýslunni var skemmtilega útfærður
og einnig fluttu ljóðavinir framsam-
in ljóð með tilheyrandi látbragðs-
leik.
Það vakti einnig athygli að í hléi
var Húnavallaskóli og allt hans
nánasta umhverfi borðaður en bök-
uð hafði verið heljarstór terta í líki
skólans. Dansinn sem tjáningar-
form var áberandi í dagskránni og
að öðram dansatriðum ólöstuðum
þá vakti útfærsla nemenda á ball-
ettinum Svanavatnið hvað mesta
athygli. Eftir því sem á ballettinn
leið þá var það ljóst að svínin höfðu
náð yfirhendinni og Svanavatnið
varð að Svínavatni. Þessi þróun á
ballettinum er ef til vill ekki alveg
út í hött því Húnavallaskóli stendur
við vesturenda Svínavatnsins. Aðal-
leiðbeinandi nemendanna á Húna-
völlum á þessari fíjálsu viku var
þúsundþjalasmiðurinn Örn Ingi frá
Akureyri.
í vetur stunda um hundrað nem-
endur nám við Húnavallaskóla og
hefur þeim farið fækkandi á und-
anförnum áram. Skólastjóri Húna-
vallaskóla er Arnar Einarsson.
Jón Sig.
Álnabær og Z-gardínubrautir hafa sameinast og bjóða nú gardínubrautir eftir
máii úrval af köppum í mörgum litum.
Við framleiðum pli-SOl plíserui
máli fyrir alla vandamálaglugga
Einnig framleiðum við ;
máli.
rimlagluggatjöld sérsniðin eftir
Við höfum sérhæft starfslið með góða vöruþekkingu sem er ávallt til
þjónustu við val á réttri vöru fyrir þig, máltöku og uppsetningu ef
óskað er.
Verið velkomin, við höfum ávallt eitthvað við þitt hæfi
Sendum í póstkröfu um land allt
URVAL- GÆÐI- ÞJONUSTA
SIÐUMULA 32 REYKJAVIK SIMI31870
TJARNARGÖTU 12 KEFLAVÍK SÍMI 92-12061