Morgunblaðið - 09.11.1988, Síða 1
56 SÍÐUR B
257. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum klukkan 2 í nótt:
George Bush talinn hafa
unnið ótvíræðan sigur
George Bush gefur
sigurvissu sína til kynna með
því að beina þumalfingri upp
er hann kemur á kjörstað í
Houston í Texas-riki í
gærmorgun. Fyrstu
kosningatölur bentu til að
hann myndi vinna öruggan
sigur á keppinaut sínum,
demókratanum Michael
Dukakis.
Hafði tryggt sér atkvæði 256 kjör-
manna en Michael Dukakis aðeins 76
GEORGE Bush, frambjóðanda Repúblíkanafiokksins, var spáð sigri
í forsetakosningunum sem fram fóru í Bandaríkjunum í gær.
Þegar Morgunblaðið fór í prentun í nótt þótti sýnt að Bush hefði
tryggt sér atkvæði 256 kjörmanna samkvæmt spá CBS-sjónvarps-
stöðinni. Til að ná kjöri sem 41. forseti Bandaríkjanna þurfti hann
stuðning 270 lgörmanna. Michael Dukakis, frambjóðandi Demó-
krataflokksins, hafði á hinn bóginn tryggt sér atkvæði 76 kjör-
manna. Næðu þessar spár fram að ganga yrði Bush fyrsti varafor-
seti Bandaríkjanna í 152 ár til að ná kjöri sem forseti. í janúar
á næsta ári tekur lætur Ronald Reagan, sem er orðinn 77 ára og
hefúr gegnt forsetaembættinu í tvö kjörtímabil, af embætti og
mun næsti forseti sveija embættiseið 20. janúar. Bush naut vin-
sælda Reagans í kosningabaráttunni og segist munu fyigja svip-
aðri stefiiu og Reagan. Michael Dukakis, ríkisstjóri Massachu-
setts, frambjóðandi Demókrataflokksins, hafði ekki viðurkennt
sigur Bush, þegar Morgunblaðið fór í prentun.
George Bush, sem er 64 ára
gamall, fylgdist með talningu at-
kvæða í hótelíbúð í heimaborg
sinni Houston í Texas. Hann var
sigurviss þegar hann greiddi at-
kvæði með eiginkonu sinni Bar-
böru í gærmorgun. Hið sama mátti
segja um Michael Dukakis, sem
er 55 ára gamall, þegar hann kom
á kjörstað með eiginkonu sinni
Kitty í bænum Brookline í Massac-
husetts. Hann taldi sig geta fetað
í fótspor Harrys Trumans og unn-
ið sigur þrátt fyrir að skoðana-
kannanir væru honum andstæðar.
Fréttaskýrendur eru sammála
um að kosningabarátta þeirra
tveggja hafí verið rekin á neikvæð-
um nótum og ekki verið til þess
fallin að vekja eldmóð meðal þjóð-
arinnar. Mjög dræmri kosninga-
þátttöku hafði verið spáð en frá
árinu 1930 hefur hún mest orðið
rétt rúm 60 prósent, árið 1960.
183 milljónir Bandaríkjamanna
eru á kosningaaldri en talið er að
tæplega 100 milljónir hafí farið á
kjörstað. Því hefur verið haldið
fram að dræm þátttaka endur-
spegli þá skoðun Bandaríkja-
manna að þeir búi við öryggi, frið
og góðan efnahag.
Samkvæmt bandarískum kosn-
ingalögum fær forsetaframbjóð-
andi stuðning allra kjörmanna í
einstöku ríki fái hann einfaldan
meirihluta atkvæða í viðkomandi
ríki og síðan nægir einfaldur meiri-
hluti kjörmannanna. Kjörmennirn-
ir eru alls 538 og eiga ríkin þar
fulltrúa í samræmi við fólksfjölda.
Er skiptingin milli ríkja svipuð og
í fulltrúadeild Bandaríkjaþings þar
sem þingmenn eru 435, en kosið
var til hennar í gær. Þótti einsýnt
að demókratar héldu meirihluta
sínum í deildinni. Einnig voru
kjömir 33 af 100 öldungardeildar-
þingmönnum. Þá voru kjömir 12
ríkisstjórar og greidd atkvæði um
ýmis málefni í einstökum ríkjum.
Ronald Reagan fylgdist með
talningu atkvæða í Hvíta húsinu.
Samkvæmt lögum mátti hann ekki
bjóða sig fram í þriðja sinn, en
hann hefur á 8 ára forsetaferli
sínum notið einna mestra vinsælda
af þeim sem embættinu hafa
gegnt. Taki varaforseti hans, Ge-
orge Bush, við af honum verður
það í fyrsta sinn sem slíkt gerist
síðan 1836, þegar Martin van
Buren tók við af Andrew Jackson.
Sjá ennfremur fréttir á bls. 20.
Reuter
Setuverkföll í Gdansk:
Ungir verkamenn virða
boð Samstöðu að vettugi
Lech Walesa hótar að segja af sér
breiðist mótmælaaðgerðir þeirra út
Gdansk, Varsjá. Reuter.
MÖRG hundruð félagar í Sam-
stöðu, hinum bönnuðu verkalýðs-
samtökum í Póllandi, efiidu til
setuverkfalls í stórum slipp í
Gdansk í gær. Lech Walesa,
Færeysku kosningarnar:
Stjómin tapaði meirihlutanum
SAMSTEYPUSTJÓRN Sjálfstýrisflokksins, Framsóknarflokksins,
Þjóðveldisflokksins og jafhaðarmanna undir forystu lögmannsins,
Atla Dams, tapaði meirihluta sínum á færeyska lögþinginu i kosn-
ingunum sem fram fóru i gær. Ekki er ljóst hvaða flokkar mynda
næstu stjórn og er talið að stjórnarmyndun geti orðið erfið. Stjórn-
arflokkarnir höfðu áður samanlagt 17 þingsæti en fengu nú 15.
Að sögn færeyska blaðsins Jafnaðarmenn fengu að þessu
Dimmalætting var kjörsókn meiri sinni 6230 atkvæði og sjö menn
en nokkru sinni fyrr í kosningum
til lögþingsins. Nákvæmar tölur
lágu ekki fyrir um miðnætti I nótt
en tálið að hún hefði verið sú
mesta frá upphafí, nálægt 90%,
enda þótt veður væri slæmt í
Færeyjum nær allan daginn.
kjömá, höfðu átta. Þeir töpuðu
einum á Nyrðri-Straumey. Þjóð-
veldisflokkurinn fékk 5517 at-
kvæði og sex menn kjöma, hafði
sex. Sjálfstýriflokkurinn fékk nú
2092 atkvæði og tvo þingmenn,
hafði tvo. Framsóknarflokkurinn
fékk 611 atkvæði og engan mann
kjörinn, hafði einn.
Fólkaflokkurinn fékk nú 6692
atkvæði og átta menn kjöma,
vann eitt sæti í Klakksvík. Sam-
bandsflokkurinn fékk 6115 at-
kvæði og sjö menn kjöma, óbreytt-
an þingsætafjölda. Kristilegi
fólkaflokkurinn fékk 1580 at-
kvæði og tvo menn kjöma, hafði
einn. Flokkurinn vann mann í
Þórshöfn. Þijár konur vom að
þessu sinni kosnar á lögþingið en
þar var aðeins ein fyrir.
formaður Samstöðu, hafði fyrr
um daginn hvatt félaga sína í
Lenín-skipasmíðastöðinni til að
hætta við verkföll þar. Sagði
hann að beita yrði öðrum að-
ferðum til að knýja fram viður-
kenningu á Samstöðu og kveða
niður áform stjórnvalda er segj-
ast ætla að loka stöðinni þar sem
11.000 manns starfa. Á frétta-
mannafúndi hótaði Walesa að
segja af sér formannsstöðu í
Samstöðu ef ungu uppreisnar-
mennimir létu sér ekki segjast.
í stómm slipp, þar sem 5.800
menn vinna, sendi framkvæmda-
stjórinn starfsmenn í tveggja daga
leyfí er bera tók á verkfallshótun-
um. Walesa skýrði frá því að um
500 menn hefðu orðið eftir í slippn-
um og hefðu efnt þar til setuverk-
falls. Um 900 manns starfa í
Wisla-skipasmíðastöðinni í útjaðri
Gdansk-borgar. 30 ungir Sam-
stöðumenn hengdu borða með nafni
Samstöðu utan á aðalhlið stöðvar-
innar og kynntu sex kröfur þar sem
m.a. var heimtað að Samstaða yrði
lögleidd á ný og hætt við að loka
Lech Walesa
Lenín-stöðinni.
„Ég er ekki
ánægður með
þetta. Það ríkir
agaleysi. Þeir
virðast líta svo á
að mér hafí mis-
tekist að knýja
fram pólitíska
lausn [í deilum
við ríkisstjóm-
ina],“ sagði Walesa á fréttamanna-
fundinum. „Ef verkföllin breiðast
út er ég reiðubúinn að segja af
mér. Hlýði þeir mér ekki merkir það
að ég sé að missa tökin,“ bætti
hann við. Hann sagði að fulltrúi frá
Gdansk-deild Samstöðu hefði farið
á fund verkfallsmanna en ekki haft
erindi sem erfiði. Ungu mennimir
vildu beijast og þeir væm bitrir
vegna árangurslausra samnin-
gaumleitana Walesa og stjómvalda
að undanfömu.
Walesa sagði félögum sínum í
Lenín-stöðinni að þetta væri ekki
rétti tíminn til verkfalla; yfírvöld
gætu kveðið mótmælin niður með
því að loka fyrir rafmagn til vinnu-
staðanna og Samstaða réð ekki
yfír miklu fjármagni til verkfalls-
baráttu. Auk þess tæki tvö ár að
loka stöðinni og á þeim tíma gæti
margt gerst.