Morgunblaðið - 09.11.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988
23
Krasnojarsk-ratsjárstöðin:
Ekki hluti gagn-
eldflaugakerfisins
-segir sovéskur embættismaður
Moskvu. Reuter.
PRA VDA, málgagn sovéska
kommúnistaflokksins, birti í
gær myndir af umdeildri rat-
sjárstöð Sovétmanna í Krasnoj-
arsk í Síberíu auk þess sem blað-
ið vitnaði til ummæla embættis-
manns nokkurs þess efhis að
tækjabúnaður stöðvarinnar
væri ekki liður í varnarvið-
búnaði sovéska kjarnorkuheraf-
Ians.
Embættismaðurinn, B. Shiskín,
sem er sérfræðingur á sviði fjar-
skipta, sagði fullyrðingar Banda-
ríkjamanna um að ratsjársjárstöð-
in væri hluti af gagneldflauga-
kerfi Sovétmanna fráleitar. Sam-
kvæmt sáttmála um takmarkanir
gagneldflaugakerfa, sem risaveld-
in gerðu með sér árið 1972 og í
daglegu tali er nefndur ABM-
sáttmálinn, er Sovétmönnum
óheimilt að koma upp vamarkerf-
um gegn langdrægum kjamorku-
eldflaugum í meiri en 150 kíló-
metra fjarlægð frá Moskvu.
Bandarískir embættismenn líta
svo á að með smíði ratsjárstöðvar-
innar í Krasnojarsk, sem ekki er
Norður-Kórea:
lokið, hafi Sovétmenn brotið gegn
þessu og fleiri ákvæðum ABM-
samningsins. Sovétmenn halda því
á hinn bóginn fram að geimvam-
aráætlun Bandaríkjastjórnar sé í
engu samræmi við sáttmálann og
hafa deilur þessar sett mark sitt
á viðræður risaveldanna um helm-
ingsfækkun langdrægra kjarn-
orkuvopna.
B. Shiskín sagði að byggingam-
ar í Krasnojarsk væm ekki styrkt-
ar til að þola kjamorkuárás, sem
væri nauðsynlegt væri stöðinni
ætlað að vara Sovétmenn við yfir-
vofandi árás. Þetta gæti sérhver
sérfræðingur séð með því að skoða
myndir af byggingunum auk þess
sem tækjabúnaður stöðvarinnar
væri starfræktur á sérdeilis óhent-
ugum bylgjulengdum væri til-
gangur hennar þessi.
Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleið-
togi lagði nýlega til að ratsjárstöð-
,inni yrði breytt í alþjóðlega
geimvísindastofnun en sú tillaga
hlaut dræmar undirtektir í Banda-
ríkjunum.
Tillögur um samein-
ingu Kóreuríkjanna
Vilja að ríkjasambandið Koryo verði stofnað
Tókfó. Reuter.
NORÐUR-KÓREUMENN
kynntu i gær nýjar tillögur um
sameiningu kóresku ríkjanna
og ætla þeir að senda Banda-
rikjamönnum og Suður-Kóreu-
mönnum bréf þar að lútandi.
í opinberri tilkynningu frá
Norður-Kóreumönnum, sem flutt
var í norður-kóreska útvarpinu í
gær, sagði að sameining ríkjanna
verði ekki tryggð nema til komi
brottflutningur erlends herliðs í
ríkjunum og vígbúnaður þeirra
verði skorinn niður.
í tilkynningunni sagði ennfrem-
ur að stofnun lýðræðislegs ríkja-
sambands, undir heitinu Koryo,
væri besta lausnin á sameiningu
ríkjanna.
Tillögur Norður-Kóreumanna
byggja á því að bandarísk kjam-
orkuvopn verði flutt frá Suður-
Kóreu í tveimur áföngum og verði
hafist handa á því árið 1990. Enn-
fremur er gert ráð fyrir að
bandarískt herlið hverfi á brott frá
landinu í þremur áföngum og er
gert ráð fýrir að brottflutningur-
inn hefjist árið 1991.
Þá er í tillögunum einnig gert
ráð fyrir að fækkað verði í hemm
ríkjanna úr 400.000 hermönnum
í árslok 1989 í 250.000 í árslok
1990 og að herstyrkur ríkjanna
verði færri en 100.000 hermenn
árið 1992.
Frakkland:
Bann við hunda-
haldi vekur fiirðu
París. Frá Margrtti E. Ólafsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
KOSNINGAR í Reykjavík um
það hvort leyfa ætti áfram
hundahald í borginni hafa náð
að vekja athygli Qölmiðla i
Frakklandi. Dagblaðið France
Soir birti frétt á síðu þijú á
miðvikudag undir fyrirsögninni
„Hundar bannaðir í Reykjavík“.
Fréttin hefst á því að sagt er
frá þeirri ákvörðun borgarstjóra
að leyfa þeim sem þegar eiga hund
að halda þeim þar til jarðvist þeirra
lýkur en að engir nýir hundar verði
leyfðir í borginni. Síðan er skýrt
frá úrslitum kosninganna og að
hundar hafi ekki verið leyfðir í
Reykjavík á tímabilinu 1926-1985
þegar hundahald hafí verið heimil-
að á ný að uppfylltum mjög
ströngum skilyrðum. Allir hunda-
eigendur hafí þurft að skrá hunda
sína, greiða leyfísgjald og sýna
heilbrigðisvottorð frá dýralækni.
í lokin er síðan minnst á „ákveð-
inn“ stjómmálamann, það er Al-
bert Guðmundsson, fyrrverandi
ijármálaráðherra og fyrram leik-
mann með franska knattspymulið-
inu R.C Paris, sem hafí verið vel
þekktur fyrir að halda hund í
ólevfi á heimili sínu fyrir árið
1985.
Það er ekki undarlegt þó Frökk-
um finnist þessi ákvörðun að
banna hundahald í höfuðborg ís-
lands furðuleg. Þeir era miklir
gæludýraunnendur og engin þjóð
í Evrópu hýsir fleiri hunda og
ketti. Hundaskítur er.raunar mikið
vandamál í París og hafa verið
hannaðir sérstakir vagnar til að
halda götum og gangstéttum
borgarinnar hreinum.
Reuter
Lestarslys íFrakklandi
Að minnsta kosti tíu manns fórust og nokkrir slösuðust þegar hrað-
lest var beint á rangt spor með þeim afleiðingum að hún rakst á
viðgerðarlest nálægt París á mánudag, eins og skýrt var frá i blaðinu
í gær.
Spánn:
Akærður
fyrir bjarn-
dýrsdráp?
León. Reuter.
SVO kann að fara að spænskur
veiðimaður, sem skaut bjarndýr
að því er hann segir í sjálfsvörn,
verði dreginn fyrir rétt.
Spænskir náttúruverndarsinnar
hafa farið þess á leit að tildrög
drápsins verði rannsökuð en skóg-
arbimir eru í útrýmingarhættu á
Spáni. Maðurinn skaut bjamdýrið
í síðustu viku í héraðinu Cantabría
á Norður-Spáni og segist hafa gert
það í sjálfsvöm. Samtök náttúra-
vemdarsinna kærðu drápið og þyki
ekki sannað að maðurinn hafí fellt
dýrið til að veija hendur sínar kann
hann að þurfa að greiða sekt þar
eð skógarbimir hafa verið friðaðir
í Cantabría-héraði.
í slandsmótið í handknattleik
w 1. flnkkiir karlð*
Á Hlíðarenda í kvöld kl. 19.30 fer fram stórleikur þar sem erkifjendurnir
mulningsvél Vals og KR eigast við. Síungir „töframenn" Vals fara á
kostum að vanda og leika við hvern sinn fingur.
Síðustu leikir Vals:
Valur: Armassn (mættu ekki)
Valnr: Leiftus (dómarar mættu ekki)
Valur: Fylkir (mættu ekki)
Valur: KA. * mæta þeir?
FORLEIKUR:
Meistaraflokkur karla 1. deild
VALUR - FRAM
hefst ki. 18.15.
hver gestur fær afruglara,
gólfefni á íbúðina,
vetrardekkábílinn,
sprunguviðgerðir
og vélsleða.
MÆTIÐ TÍMANLEGA OG FORÐIST ÞRENGSLI
Forsala aðgöngumiða í Teppabúðinni frá kl. 13.00
Gísii
Jónsson
& Co.
Vélsleðar.